Barðastaðir 7-9-11,
Klapparstígur 40,
Miklabraut/Skeiðarvogur,
Skipulags- og umferðarnefnd,
Stórhöfði 29-31,
Völundarhús, leikskóli,
Keilugrandi 1,
Skipulags- og umferðarnefnd
20. fundur 1998
Ár 1998, þriðjudaginn 29. september kl. 10:00, var haldinn 20. fundur skipulags- og umferðarnefndar í Borgartúni 3, 4. hæð. Þessir sátu fundinn: Guðrún Ágústsdóttir, Sigurður Harðarson, Óskar Bergsson, Snorri Hjaltason og Inga Jóna Þórðardóttir. Fundarritari var Ágúst Jónsson.
Þetta gerðist:
Barðastaðir 7-9-11, uppbygging
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 15.09.98 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 14. s.m. um uppbyggingu að Barðastöðum 7, 9. og 11.
Klapparstígur 40, viðbygging
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 15.09.98 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 14. s.m. um viðbyggingu að Klapparstíg 40.
Miklabraut/Skeiðarvogur, aðalskipulagsbreyting
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 15.09.98 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 14.09.98 um aðalskipulagsbreytingu við Miklubraut/Skeiðarvog. Jafnfram samþykkti borgarráð framkvæmdir við verkið samkv. bréfi borgarverkfræðings frá 14. þ.m.
Skipulags- og umferðarnefnd, undirnefnd
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 15.09.98 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 14. s.m. um skipun undirnefndar um umferðaröryggismál. Gert er ráð fyrir að kostnaður við nefndarstörf færist á gjaldalið skipulags- og umferðarnefndar og fundarsetur verði tilkynntar skrifstofustjóra borgarstjórnar með hefðbundnum hætti.
Stórhöfði 29-31, lóðarstækkun
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 15.09.98 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 14. s.m. um stækkun lóðar að Stórhöfða 29-31.
Völundarhús, leikskóli,
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 15.09.98 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 14. s.m. um afmörkun leikskólalóðar við Völundarhús.
Keilugrandi 1, úrskurður/landnotkunarbreyting
Lagður fram að nýju úrskurður Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála frá 04.09.98 ásamt tillögu Borgarskipulags, dags. 18.09.98, að breytingu á aðalskipulagi á Keilugranda 1.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að leggja til við borgarráð að tillagan verði auglýst sem breyting á aðalskipulagi.