Barðastaðir 7-11
Skjalnúmer : 7726
20. fundur 1998
Barðastaðir 7-9-11, uppbygging
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 15.09.98 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 14. s.m. um uppbyggingu að Barðastöðum 7, 9. og 11.
25. fundur 1998
Barðastaðir 7-9-11, uppbygging
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju bréf Guðmundar Gunnlaugssonar arkitekts, dags. 17.08.98, varðandi nýtingu lóðarinnar Barðastaða 7-9-11, samkv. uppdr. sama, dags. í ágúst 1998. Málið var í auglýsingu frá 28. sept. til 26. okt., athugasemdafrestur var til 9. nóv. 1998. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt
18. fundur 1998
Barðastaðir 7-9-11, uppbygging
Lagt fram að nýju bréf Guðmundar Gunnlaugssonar arkitekts, dags. 17.08.98, varðandi nýtingu lóðarinnar Barðastaða 7-9-11, samkv. uppdr. sama, dags. í ágúst 1998.
Samþykkt að leggja til við borgarráð að tillagan verði auglýst sem breyting á deiliskipulagi Staðahverfis.
17. fundur 1998
Barðastaðir 7-9-11, uppbygging
Lagt fram bréf Guðmundar Gunnlaugssonar arkitekts, dags. 17.08.98, varðandi nýtingu lóðarinnar Barðastaða 7-9-11, samkv. uppdr. sama, dags. í ágúst 1998.
Frestað.
25. fundur 1997
Barðastaðir 7-9-11, fjölbýlishús
Lagt fram bréf Byggingarfélags Gylfa og Gunnars ehf, dags. 11.11.97, varðandi fjölbýlishús á lóðina Barðastaði 7-9-11, samkv. uppdr. Guðmundar Gunnlaugssonar arkitekts, dags. í nóv. 1997. Einnig lögð fram umsögn skipulagshöfundar, dags. 03.12.97.
Skipulags- og umferðarnefnd fellst ekki á umbeðnar breytingar á deiliskipulagi Staðahverfis og ítrekar að á ofangreindri lóð verði hús 3-5 hæðir og fjöldi íbúða um 50.