Aflagrandi 5 - 19, Austurstræti 20, Aðalland 6-8, Aðalstræti 2 - vesturgata 1, Barmahlíð 15, Berjarimi 10-16, Breiðagerði barnaskóli, Dalsel 6-22, Faxafen 8-14 - skeifan 11-19, Fossagata 3, Frakkastígur 10, Goðaborgir 1, Hagamelur 14, Hagasel 40 - kirkja., Heiðargerði 78, Hestháls 2-4, Holtavegur 28 - kfum og k, Hvammsgerði 7, Hverfisgata 29, Hólaberg 78, Höfðatún 10, Ingólfsstræti 7b, Kirkjustræti 6 og 10, Korpa við vesturlandsveg, Krókháls 5-5f, Kvistaland 26, Langahlíð 7 - 11, Langholtsvegur 43, Langholtsvegur 75, Laufrimi 27-33, Laugarásvegur 7, Laugavegur 163, Laugavegur 40a, Lindargata 7, Lokastígur 24, Melgerði 19, Norðurbrún 1, Nóatún 17, Rafstöðvarvegur 9, Rauðhamrar 12 - 14, Reykjavíkurvegur 25, Seljavegur 2, Selvogsgrunn 11, Skipasund 84, Skipholt 50d, Smárarimi 8, Snorrabraut 79, Starengi 2, Starengi 60, Starengi 86, Starengi 88, Stigahlíð 37, Stigahlíð 84, Sundagarðar 8, Suðurlandsbraut 30, Suðurlandsbraut 4, Sævarhöfði 33, Vesturfold 46, Vesturhlíð 1 leikskóli., Vorsabær 6, Vífilsgata 5, Víðimelur 46, Álfabakki 12, Ármúli 17, Örfirisey skeljungur, Borgarhverfi - götuheiti., Flúðasel 60-76, Fáfnisnes 12 og 14., Hrísateigur 41, Hátún 43, Hönnunarleyfi., Krókháls 10 - lyngháls 9, Kvisthagi 8, Laufrimi 19-25, Leifsgata 15, Leiðréttingar., Meistari/blikksmíðameistari., Meistari/húsasmíðameistari, Meistari/húsasmíðameistari., Miklabraut 5, Rauðagerði 26, Reglur um svalaskýli., Silungakvísl 21, Síðumúli 32, Tún - götuheiti - tölusetning., Akraland 1 - 3, Baldursgata 30, Bergstaðastræti 26, Bergþórugata 55, Bústaðavegur 49, Garðastræti 45, Hrísrimi 35-37, Háagerði 17, Mjölnisholt 14, Norðurstígur 5, Seljugerði 4, Vesturlandsv/lambhagaland 8.,

BYGGINGARNEFND

3377. fundur 1995

Árið 1995, fimmtudaginn 8. júní, kl. 11 fyrir hádegi, hélt byggingarnefnd Reykjavíkur, 3377. fund sinn. Fundurinn var haldinn í fundarsalnum 4. hæð Borgartúni 3. Þessir nefndarmenn sátu fundinn: Steinunn V. Óskarsdóttir, Helgi Hjálmarsson, Guðmundur Haraldsson, Hilmar Guðlaugsson og Halldór Guðmundsson. Auk þeirra sátu fundinn: Hrólfur Jónsson, Ágúst Jónsson, Ívar Eysteinsson, Ólafur Ó. Axelsson, Þormóður Sveinsson, Magnús Sæda Svavarsson og Sirrý Hrönn Haraldsdóttir. Fundarritari var Bjarn Þór Jónsson.
Þetta gerðist:


Umsókn nr. 9242 (01.01.522.402)
Aflagrandi 5 - 19,
reisa skjólgirðingu
Sótt er um leyfi til að reisa girðingu úr timbri á lóðinni nr.
13 við Aflagranda.
Gjald kr. 2.140.oo.

Frestað.
Vísað til byggingarfulltrúa og Borgarskipulags til að finna
heildarlausn á umferðarmálum.


Umsókn nr. 9031 (01.01.140.503)
Austurstræti 20,
sorp,sóltjald
Sótt er um leyfi til að reisa sorpgeymslu, sóltjald, skilti og
koma fyrir ruslafötum á lóðinni nr. 20 við Austurstræti.
Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.
Finna lausn með skábrautum.


Umsókn nr. 9214 (01.01.841.303)
Aðalland 6-8,
Aðalland 6.
Sótt er um leyfi til að flytja bílastæði frá suðurhlið lóðar
að norðurhlið lóðarinnar nr. 6 - 8 við Aðalland.
Gjald kr. 2.075.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 9201 (01.01.136.101)
Aðalstræti 2 - vesturgata 1,
Br. á notkun og innviðum.
Sótt er um leyfi til að innrétta og breyta notkun húsanna nr. 2
við Aðalstræti, 1 við Vesturgötu og tengibyggingu milli þeirra á
lóðinni nr. 2 við Aðalstræti.
Gjald kr. 2.180.oo.
Lagt fram bréf húsafriðunarnefndar ríkisins, dags. 09.03.95, og
bréf hönnuða, dags. 02.06.95.

Samþykkt.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.


Umsókn nr. 9208 (01.01.702.013)
Barmahlíð 15,
Stækka svalir.
Sótt er um leyfi til að stækka úr steinsteypu svalir hússins á
lóðinni nr. 15 við Barmahlíð.
Gjald kr. 2.180.oo
Ódagsett samþykki meðeigenda fylgir erindinu.

Frestað.
Samræma þarf útlit.


Umsókn nr. 9171 (01.02.584.402)
Berjarimi 10-16,
Breyta innra skipulagi nr. 14
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi íbúðar nr. 02-05
í húsi nr. 14 á lóðinni nr. 10 - 16 við Berjarima.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9133 (01.01.817.-99)
Breiðagerði barnaskóli,
Breyta innréttingu og útliti
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingu og útliti
Breiðagerðisskóla á lóð við Breiðagerði.
Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.
Stærð á lyftu samræmist ekki reglugerð.


Umsókn nr. 9150 (01.04.948.701)
Dalsel 6-22,
Áðurbygður skúr.
Sótt er um leyfi fyrir áður byggðu stigahúsi, úr steinsteypu,
ofan á bílgeymslu á lóðinni nr. 6 - 22 við Dalsel.
Stækkun: 15,4 ferm., 37 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 807.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9217 (01.01.462.001)
Faxafen 8-14 - skeifan 11-19,
br.innr.í kjallara
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingu kjallara hússins nr.
14 við Faxafen á lóðinni nr. 8 - 14 við Faxafen og 11 - 19 við
Skeifuna.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9215 (01.01.636.602)
Fossagata 3,

Sótt er um leyfi til að byggja tröppur, verönd og skjólgirðingu
og setja hurð í stað glugga í húsið á lóðinni nr. 3 við
Fossagötu.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykki eigenda að Fossagötu 1 og 5 fylgir erindinu.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 9147 (01.01.172.224)
Frakkastígur 10,
Vegna eignask.samnings
Sótt er um leyfi fyrir breyttum innréttingum vegna eignaskipta í
húsinu á lóðinni nr. 10 við Frakkastíg.
Stækkun 1. hæðar 9,1 ferm., 21 rúmm. Áður rifinn skúr 9,6 ferm.,
24 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9211 (01.02.344.201)
Goðaborgir 1,
Byggja fjölbýlishús
Sótt er um leyfi til að byggja fjölbýlishús úr steinsteypu, með
7 íbúðum á lóðinni nr. 8-10 við Goðaborgir.
Stærð: 1. hæð 157,3 ferm., 2. hæð 231,1 ferm., 3. hæð 231,1
ferm., 1.961 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 42.750.oo.

Frestað.
Kótasetja hæðir í lóð.


Umsókn nr. 9237 (01.01.540.327)
Hagamelur 14,
Fá samþ. risíbúð
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðri íbúð í risi hússins á lóðinni
nr. 14 við Hagamel.
Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.
Vantar skoðunarskýrslur og samþykki meðeigenda.
Ólafur Axelsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.


Umsókn nr. 9189 (01.04.938.001)
Hagasel 40 - kirkja.,
Byggja kirkjuturn.
Sótt er um leyfi til að byggja klukkuturn úr steinsteypu og fá
samþykktar minniháttar breytingar á grunnmynd kirkjunnar á
lóðinni nr. 40 við Hagasel.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9187 (01.01.802.207)
Heiðargerði 78,
Byggja þakglugga (kvist).
Sótt er um leyfi til að byggja kvist á vesturhlið hússins
(endurnýjun á byggingarleyfi frá 09.12.93) á lóðinni nr. 78 við
Heiðargerði.
Stækkun: ris 1,1 ferm., 2 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 44.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9164 (01.04.323.001)
Hestháls 2-4,
Byggja viðbyggingu f. Hrein.
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu úr steinsteypu, stáli
og timbri á lóðinni nr. 2 - 4 við Hestháls.
Stærð: 1. hæð 67,5 ferm., 248 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo +
5.406.oo.

Samþykkt.
Helgi Hjálmarson vék af fundi við afgreiðslu málsins.


Umsókn nr. 9122 (01.01.386.101)
Holtavegur 28 - kfum og k,
Lagðar inn réttar teikningar
Sótt er um leyfi fyrir þegar gerðum breytingum í húsinu á
lóðinni nr. 28 við Holtaveg.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9179 (01.01.802.504)
Hvammsgerði 7,
Byggja við andyri.
Sótt er um leyfi til að byggja, úr timbri, við anddyri hússins á
lóðinni nr. 7 við Hvammsgerði.
Stækkun: 1. hæð 4,2 ferm., 11 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo +
240.oo.

Frestað.
Fá betri lausn.


Umsókn nr. 9126 (01.01.151.509)
Hverfisgata 29,
Setja glugga á norðurhlið
Sótt er um leyfi til að setja glugga á norðurhlið hússins nr. 29
við Hverfisgötu.
Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.
Vísað til byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 9216 (01.04.673.407)
Hólaberg 78,
Innrétta gistingu í vinnuskála
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingu vinnuskála í
gistiheimili á lóðinni nr. 78 við Hólaberg.
Gjald kr. 2.180.oo.
Ennfremur lögð fram umsögn skipulagsnefndar, dags. 26.04.1995.

Samþykkt.
Bókun byggingarfulltrúa:
"Áður en húsnæðið er tekið í notkun skal húseigandi eða
húsasmíðameistari óska eftir lokaúttekt sbr. grein 4.11.13 í
byggingarreglugerð nr. 177/1992."


Umsókn nr. 9170 (01.01.220.201)
Höfðatún 10,
Lagfæring vegna eldvarna.
Sótt er um leyfi fyrir breyttum innréttingum vegna eldvarna í
húsinu á lóðinni nr. 10 við Höfðatún.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9182 (01.01.171.217)
Ingólfsstræti 7b,
Breyta áður samþ. teikningum.
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktum uppdráttum,
breyta innra fyrirkomulagi íbúða á 1. hæð og innrétta íbúð á 2.
hæð og risi hússins á lóðinni nr. 7 B við Ingólfsstræti.
Jafnframt er sótt um leyfi fyrir áður gerðri íbúð í kjallara.
Stækkun: kjallari 8,5 ferm., 1. hæð 11,8 ferm., 2. hæð 15,8
ferm. Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.
Vísað til skipulagsnefndar.


Umsókn nr. 9202 (01.01.141.102)
Kirkjustræti 6 og 10,
Ýmsar breytingar
Sótt er um leyfi til að rífa millibyggingu, tvö tröppuhús og
kvist og endurbyggja hliðar, þök og útitröppur úr timbri og
járni á lóðinni nr. 6, 8 B og 10 við Kirkjustræti.
Gjald kr. 2.180.oo.
Lagt fram bréf húsafriðunarnefndar og umhverfismálaráðs, dags.
26.05.95. Samþykki gatnamálastjóra vegna fyrirkomulags á
tröppum, dags. 07.06.95 fylgir erindinu.

Frestað.
Vantar að uppfæra grunnmyndir.


Umsókn nr. 9132
Korpa við vesturlandsveg,
Korpa við Vesturlandsveg
Sótt er um leyfi til að breyta súlnastöðu í sal, þ.e. steyptur
milliveggur sem súlur stóðu á er fjarlægður og nýjar súlur koma
á undirstöður, í aðveitustöð 8 við Korpu við Vesturlandsveg.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9148 (01.04.323.401)
Krókháls 5-5f,
Skipta rými 2. hæðar.
Sótt er um leyfi til að skipta rými á 2. hæð í tvö rými, 02-02
og 02-021 í húsinu nr. 5 við Krókháls á lóðinni nr. 5 - 5F við
Krókháls.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Helgi Hjálmarsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.


Umsókn nr. 9261 (01.01.862.301)
Kvistaland 26,
Viðbygging við Kvistaborg.
Sótt er um leyfi til að byggja við leikskólann Kvistaborg
úr steinsteypu á lóðinni nr. 26 við Kvistaland.
Stækkun: 1. hæð 177,3 ferm., 574 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo +
12.513.oo.
Málið var kynnt eigendum að Hjallalandi 40, Kúrlandi 29 og
Kvistalandi 22 og 24, með bréfi dags. 28.04.95. Engar
athugasemdir hafa borist.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra.


Umsókn nr. 9203 (01.01.270.201)
Langahlíð 7 - 11,
br. og gera svalir
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðri íbúð í risi og gera svalir á
íbúðina í húsinu nr. 9 við Lönguhlíð á lóðinni nr. 7 - 11 við
Lönguhlíð.
Gjald kr. 2.140.oo.

Frestað.
Fá nýtt samþykki meðeigenda og gera betur grein fyrir svalarými.


Umsókn nr. 9052 (01.01.357.003)
Langholtsvegur 43,
byggja við útibú bankans
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu úr steinsteypu
á lóðinni nr. 43 við Langholtsveg.
Stækkun: 1. hæð 55,3 ferm., 2. hæð 40,9 ferm., 219 rúmm. Gjald
kr. 2.180.oo + 4.774.oo.
Umsögn skipulagsnefndar, dags. 07.06.95, fylgir erindinu.

Frestað.
Vantar að sameina lóðir.


Umsókn nr. 8392 (01.01.410.014)
Langholtsvegur 75,
Gera íbúð í risi.
Sótt er um leyfi til að innrétta íbúð í risi hússins og gera
bílastæði á lóðinni nr. 75 við Langholtsveg.
Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.
Fá samþykki eigenda að Langholtsvegi 77 fyrir bílastæði.


Umsókn nr. 9049 (01.02.540.803)
Laufrimi 27-33,
keðjuhús
Sótt er um leyfi til að byggja 4 keðjuhús úr steinsteypu á
lóðinni nr. 27 - 33 við Laufrima.
Stærð, hvert hús: 1. hæð 130,5 ferm., 397 rúmm., samtals 1588
rúmm., bílgeymsla fyrir hvert hús; 30,0 ferm., 99 rúmm.,
samtals 396 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 43.251.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 9184 (01.01.380.107)
Laugarásvegur 7,
Sólstofa og svalir.
Sótt er um leyfi til að byggja sólstofu og svalir úr steypu,
timbri og gleri á lóðinni nr. 7 við Laugarásveg.
Stærð sólstofu: 12,0 ferm., 27 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo +
589.oo.
Samþykki meðeigenda, dags. 30.05.95 fylgir erindinu.

Frestað.
Lagfæra útlit og samræma.
Helgi Hjálmarsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.


Umsókn nr. 9252 (01.01.222.211)
Laugavegur 163,
Klæðning.
Sótt er um leyfi til að klæða hús að utan með stenex eða
sambærilegri klæðningu, fjarlægja stálrör á svalahandriði 2. og
3. hæðar og rjúfa vegg að Höfðatúni á lóðinni nr. 163 við
Laugaveg.
Gjald kr. 2.180.oo.
Meðfylgjandi ástandsskýrsla frá VST, dags. 04.06.1994.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9167 (01.01.172.222)
Laugavegur 40a,
Ísbúð
Sótt er um leyfi til að innrétta ísbúð í austasta hluta 1.
hæðar hússins á lóðinni nr. 40 A við Laugaveg.
Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.


Umsókn nr. 9065 (01.01.151.104)
Lindargata 7,
breyta gluggapóstum.
Sótt er um leyfi til að breyta útliti glugga hússins, á lóðinni
nr. 7 við Lindargötu, nær upprunalegu horfi.
Gjald kr. 2.180.oo.
Ennfremur lagt fram bréf Svavars Þorvarðssonar, f.h. Fasteigna
ríkissjóðs, dags. 14.06.95.

Frestað.
Vantar brunaviðvörunarkerfi.


Umsókn nr. 9239 (01.01.181.306)
Lokastígur 24,
Breyting á húsi.
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu húsi á lóðinni nr.
24 við Lokastíg.
Stækkun: ris 37,0 ferm., 107 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo +
2.332.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9195 (01.01.815.408)
Melgerði 19,
viðbygging
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu og bílgeymslu á
lóðinni nr. 19 við Melgerði.
Stækkun: 1. hæð 62,3 ferm., 191 rúmm., bílgeymsla 35,1 ferm.,
115 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 6.671.oo.
Umsögn skipulagsnefndar, dags. 20.06.94 fylgir erindinu.

Samþykkt.
Teikningar samþykktar 30.06.94 jafnframt felldar úr gildi.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 9264 (01.01.352.401)
Norðurbrún 1,
Breyting.
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingu á jarðhæð
v/hreyfihamlaðra og byggja við húsið úr steinsteypu og timbri á
lóðinni nr. 1 við Norðurbrún.
Stærð: kjallari 25,6 ferm., 74 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo +
1.620.oo.
Meðfylgjandi eru bréf arkitekts, dags. 10.05.95 og 06.06.95.

Frestað.
Fá sérteikningar af lyftu.


Umsókn nr. 9229 (01.01.235.201)
Nóatún 17,
Vörumóttaka, skyggni og bílast
Sótt er um leyfi til að byggja vörumóttöku og breyta bílastæðum
og anddyrisskyggni á lóðinni nr. 17 við Nóatún.
Stærð: 1. hæð 97,0 ferm., 4. hæð 49,9 ferm. Gjald kr. 2.180.oo.
Umsögn skipulagsnefndar, dags. 29.06.94 fylgir erindinu.

Frestað.
Vantar 2 bílastæði og nánari upplýsingar um samning vegna
bílastæða með Laugavegi.


Umsókn nr. 9131
Rafstöðvarvegur 9,
Rafstöðvarvegur 9
Sótt er um leyfi til að breyta notkun húss í minjasafn á lóðinni
nr. 9 við Rafstöðvarveg.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9218 (01.02.295.002)
Rauðhamrar 12 - 14,
setja skjólgirðingu
Sótt er um leyfi til að setja skjólgirðingu við einkalóðarhluta
íbúðar á jarðhæð hússins nr. 14 á lóðinni nr. 12 - 14 við
Rauðhamra.
Gjald kr. 2.140.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9181 (01.01.635.808)
Reykjavíkurvegur 25,
Byggja við.
Sótt er um leyfi til að byggja við forstofu og sólstofu, úr
steypu og timbri, á lóðinni nr. 25 við Reykjavíkurveg.
Stækkun: kjallari 14,8 ferm., 1. hæð 36,7 ferm., 157 rúmm. Gjald
kr. 2.180.oo + 3.423.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 9152 (01.01.130.105)
Seljavegur 2,
Breyting á innra skipulagi
Sótt er um leyfi fyrir breyttum innréttingum vegna eignaskipta í
húsinu á lóðinni nr. 2 við Seljaveg.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9161 (01.01.350.102)
Selvogsgrunn 11,
Gera hurð.
Sótt er um leyfi til að gera hurð út úr stofu á 1. hæð hússins á
lóðinni nr. 11 við Selvogsgrunn.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykki meðeigenda, dags. 30.05.95 fylgir erindinu.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9209 (01.01.412.104)
Skipasund 84,
Endurbyggja og stækka svalir.
Sótt er um leyfi til að byggja nýjar og stærri svalir úr timbri
og stáli við húsið á lóðinni nr. 84 við Skipasund.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9063 (01.01.254.102)
Skipholt 50d,
Breyta áður samþykktum teikn.
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktum teikningum á
lóðinni nr. 50 D við Skipholt.
Stækkun: 5. hæð 77,3 ferm., 252 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknareyðublaði.


Umsókn nr. 9186 (01.02.524.304)
Smárarimi 8,
Einbýlishús
Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús úr steinsteypu á
lóðinni nr. 8 við Smárarima.
Stærð: 569 rúmm., bílgeymsla 25,9 ferm., 86 rúmm. Gjald kr.
2.180.oo + 14.279.oo.

Frestað.
Vantar geymslu. Athygli er vakin á planlausnum.


Umsókn nr. 9169 (01.01.247.507)
Snorrabraut 79,
Bílast. sorptunnug.og veggir
Sótt er um leyfi til að steypa vegg, gera 2 bílastæði og
sorpgeymslu á lóðinni nr. 79 við Snorrabraut.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9255 (01.02.384.001)
Starengi 2,
Verslun greiðasala bensínafgr.
Sótt er um leyfi til að byggja verslun, greiðasölu og
bensínafgreiðslu úr steinsteypu á lóðinni nr. 2 við Starengi.
Stærð: 1. hæð 216 ferm., 858 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo +
18.704.oo.
Lagt fram bréf skipulagsnefndar, dags. 04.04.95.
Ennfremur lagt fram bréf lóðarhafa, dags. 01.06.95.

Frestað.
Vísað til byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 9263 (01.02.384.302)
Starengi 60,
Einbýlishús.
Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús úr timbri á lóðinni
nr. 60 við Starengi.
Stærð: 1. hæð 142,3 ferm., 614 rúmm. Bílgeymsla 50,4 ferm., 159
rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 16.851.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 9206 (01.02.384.505)
Starengi 86,
Einbýlishús úr timbri.
Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús úr timbri á lóðinni
nr. 86 við Starengi.
Stærð: 1. hæð 117,5 ferm., 399 rúmm., bílgeymsla 31,0 ferm., 96
rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 10.791.oo.

Samþykkt með 3:2. Þeir sem voru á móti óskuðu bókað:
Halldór Guðmundsson og Helgi Hjálmarsson á móti. Helgi og
Halldór óskuðu bókað:
"Í gr. 6.1.1 í byggingarreglugerð segir m.a. að íbúðir skuli
hanna þannig að þær henti vel til íbúðar. Grunnmynd hússins er
ósannfærandi, þannig fer mikið rými í ganga án þess að nýtast
til íveru, auk þess sem vakin er sérstök athygli á litlum
tengslum stofu/borðstofu við önnur rými. Útlit hússins er ekki
aðlaðandi og sérstök athygli er vakin á hönnun þakbrúnar og
gluggasetningu."
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 9102 (01.02.384.506)
Starengi 88,
Einbýlishús
Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús úr steinsteypu og
timbri á lóðinni nr. 88 við Starengi.
Stærð: 1. hæð 149,3 ferm., 556 rúmm. Bílgeymsla 33,3 ferm., 122
rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 14.780.oo.

Samþykkt með 3:2.
Halldór Guðmundsson og Helgi Hjálmarsson á móti. Helgi og
Halldór óskuðu bókað:
Þeir sem voru á móti óskuðu bókað:
"Í gr. 6.1.1 í byggingarreglugerð segir m.a. að íbúðir skuli
hanna þannig að þær henti vel til íbúðar.
Grunnmynd hússins er ósannfærandi, þannig fer mikið rými í
ganga, án þes að nýtast til íveru. Sérstök athygli er vakin á
lögun stofu og vegalengdum úr eldhúsi að borðstofu."

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 9205 (01.01.712.001)
Stigahlíð 37,
klæða+byggja y.svalir+þak bg
Sótt er um leyfi til að setja þak á bílskúr, byggja yfir svalir
á 1. og 2. hæð og klæða hús með steni-plötum á lóðinni nr. 37
við Stigahlíð.
Stækkun: 41 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 894.oo.

Frestað.
Fá betri upplýsingar.


Umsókn nr. 9172 (01.01.733.509)
Stigahlíð 84,
Laufsk. verönd og sólpallur
Sótt er um leyfi til að reisa laufskála, verönd og skjólgirðingu
úr timbri á lóðinni nr. 84 við Stigahlíð.
Stærð laufskála: 20,1 ferm., 67 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo +
1.461.oo.
Umsögn skipulagsnefndar, dags. 24.05.95, fylgir erindinu.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9050 (01.01.335.402)
Sundagarðar 8,
klæða með aluzinkplötum
Sótt er um leyfi til að klæða með "aluzinkplötum" útveggi
hússins á lóðinni nr. 8 við Sundagarða.
Gjald kr. 2.180.oo.
Ennfremur lögð fram ástandsskýrsla, dags. 09.05.95.

Frestað.
Vantar betri upplýsingar og sýnishorn af klæðningunni.


Umsókn nr. 9213 (01.01.265.003)
Suðurlandsbraut 30,
Klæðning.
Sótt er um leyfi til að klæða með "steni" bakhúsið á lóðinni nr.
30 við Suðurlandsbraut.
Gjald kr. 2.140.oo.
Skýrsla um ástand steinsteypu, dags. 16.05.95 fylgir erindinu.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9175 (01.01.262.001)
Suðurlandsbraut 4,
Breyta innr. á 3. hæð.
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingu á hluta 3. hæðar
hússins á lóðinni nr. 4 við Suðurlandsbraut.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9151 (01.04.022.401)
Sævarhöfði 33,
Stækka tengibyggingu.
Sótt er um leyfi til að stækka tengibyggingu milli skrifstofu-
og verkstæðishúss úr steypu, timbri og gleri á lóðinni nr. 33
við Sævarhöfða.
Stækkun: 59,3 ferm., 198 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 4.316.oo.

Frestað.
Vísað til hafnarstjórnar.
Helgi Hjálmarsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.


Umsókn nr. 9207 (01.02.820.207)
Vesturfold 46,
Einbýlishús
Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús úr steinsteypu og
timbri á lóðinni nr. 46 við Vesturfold.
Stærð: kjallari 40,2 ferm., 1. hæð 147,2 ferm., 633 rúmm.,
bílgeymsla 32,1 ferm., 84 rúmm. (lagnakjallari 70,4 ferm., 169
rúmm.) Gjald kr. 2.180.oo + 15.631.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 9079 (01.01.768.601)
Vesturhlíð 1 leikskóli.,
Viðbygging.
Sótt er um leyfi til að byggja við leikskólann Sólborg, úr
steinsteypu og timbri, á lóðinni nr. 1 við Vesturhlíð.
Stækkun: 1. hæð 102,8 ferm., 348 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo +
7.586.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 9146 (01.04.352.109)
Vorsabær 6,
Hækkun Þaki hússins
Sótt er um leyfi til að setja mænisþak úr timbri og járni á hús
og bílskúr á lóðinni nr. 6 við Vorsabæ.
Stækkun: 84,0 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 1.831.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9212 (01.01.243.310)
Vífilsgata 5,
br,þaki og setja rennu utan á
Sótt er um leyfi til að breyta þaki og þakkanti (utanáliggjandi
renna) á húsinu nr. 5 og 7 við Vífilsgötu.
Gjald kr. 2.140.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9192 (01.01.540.020)
Víðimelur 46,
Breyta íbúð á jarðhæð.
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi
kjallaraíbúðar í húsinu á lóðinni nr. 46 við Víðimel.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.

Ágúst Jónsson vék af fundi kl. 13.50.


Umsókn nr. 9155 (01.04.603.401)
Álfabakki 12,
Innrétta ísbúð / bakarí
Sótt er um leyfi til að innrétta ísbúð/bakarí á 1. hæð hússins
á lóðinni nr. 12 við Álfabakka.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.


Umsókn nr. 9204 (01.01.264.004)
Ármúli 17,
Breyting á innra skipulagi
Sótt er um leyfi fyrir breyttum innréttingum á 2. hæð og þakhæð
hússins á lóðinni nr. 17 við Ármúla.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.


Umsókn nr. 9157 (01.01.110.-98)
Örfirisey skeljungur,
Reisa olíugeymir og stækkun
Sótt er um leyfi til að reisa nýjan olíugeymi úr stáli og stækka
öryggissvæði á lóð Shell við Örfirisey.
Stærð: 4000 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 87.200.oo.

Frestað.
Vísað til umsagnar skipulagsnefndar, eldvarnaeftirlits og
heilbrigðisnefndar.


Umsókn nr. 9260
Borgarhverfi - götuheiti.,
Borgahverfi - götuheiti.
Byggingarfulltrúi leggur til að götuheiti í A- og B hluta
Borgahverfis, verði Vættaborgir.
Jafnframt verði nafn Malarvegar fellt niður.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9247 (01.04.971.401)
Flúðasel 60-76,
Útleiga á föndurherbergjum.
Lagt fram bréf Leigjendasamtakanna, dags. 30.05.95, vegna útleigu
á föndurherbergjum í húsinu nr. 74 við Flúðasel á lóðinni nr.
60 - 76 við Flúðasel.

Vísað til byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 9238
Fáfnisnes 12 og 14.,
Fáfnisnes 12 og 14.
Hjörleifur B. Kvaran, borgarlögmaður fh., borgarsjóðs, óskar
eftir samþykki byggingarnefndar til að breyta mörkum lóðanna
Fáfnisnes 12, Fáfnisnes 14 (áður Skeljanes 10 og 10A), Skeljanes
10, og tveggja lóðarskika í eigu Reykjavíkurborgar eins og sýnt
er á meðfylgjandi uppdrætti mælingadeildarinnar, dags. 17. maí
1995.
Við breytinguna stækkar lóðin Fáfnisnes 12 úr 562 ferm., í 645
ferm., lóðin Fáfnisnes 14 úr 548 ferm., í 655 ferm., og lóðin
Skeljanes 10 úr 644 ferm., í 682 ferm. Tveir lóðarskikar í eigi
Reykjavíkurborgar, samtals 203 ferm., að stærð bætast við
Fáfnisnes 14 og eru felldir úr skrám og 12 ferm., eru teknir af
Skeljanesi 10 undir götu.
Í meginatriðum eru breytingar þessar í samræmi við skipulag, sem
staðfest var af Skipulagsstjórn ríkisins, 27. febrúar 1967.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9269 (01.01.346.012)
Hrísateigur 41,
Kæra frá ráðuneytinu.
Lagt fram bréf umhverfisráðuneytis, dags. 13.05.95, þar sem óskað
er eftir umsögn byggingarnefndar um synjun á umsókn Kristmanns
Þórs Einarssonar, um leyfi fyrir áður gerðri íbúð í kjallara
hússins á lóðinni nr. 41 við Hrísateig.
Umsögn skrifstofustjóra byggingarfulltrúa, dags. 08.06.95 fylgir
erindinu.

Umsögnin samþykkt.


Umsókn nr. 9249 (01.01.235.120)
Hátún 43,
Greinargerð.
Lögð fram greinargerð Guðjóns Rúnarssonar, f.h. eigenda að
Hátúni 43.

Frestað.
Vísað til umsagnar skrifstofustjóra byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 9228
Hönnunarleyfi.,
Hönnunarleyfi.
Ofanritaður sækir um leyfi til hönnunar á aðaluppdráttum fyrir
húsin nr. 14 við Hagamel, rishæð, 55 við Bergþórugötu, rishæð,
og Rauðagerði 27, samkvæmt meðfylgjandi bréfi, dags. 02.06.95.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9226 (01.04.324.201)
Krókháls 10 - lyngháls 9,
Skipting lóðar.
Sótt er um leyfi til að skipta lóðinni Lyngháls 9 - Krókháls 10,
eins og sýnt er á meðfylgjandi uppdrætti mælingadeildar, dags.
29.05.95.
Umsögn skipulagsnefndar, dags. 24.05.95, fylgir erindinu.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9225 (01.01.543.206)
Kvisthagi 8,
Trjáfelling.
Sótt er um leyfi til að fella grenitré á lóðinni nr. 8 við
Kvisthaga.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9254 (01.02.540.802)
Laufrimi 19-25,
Leiðrétting.
Á fundi byggingarnefndar þann 30.03.95 var samþykkt raðhús úr
steinsteypu á lóðinni og voru stærðir rangt bókaðar og eru réttar
stærðir eftirfarandi:
Hús nr. 19, 1. hæð 123,1 ferm., 2. hæð 46,8 ferm., 515 rúmm.,
bílgeymsla 26,6 ferm., 99 rúmm. hús nr. 21, 1. hæð 112,2 ferm.,
2. hæð 44,7 ferm., 471 rúmm., bílgeymsla 25,0 ferm., 91 rúmm.,
hús nr. 23, 1. hæð 112,2 ferm., 2. hæð 44,7 ferm., 471 rúmm.,
bílgeymsla 25,0 ferm., 91 rúmm., hús nr. 25, 1. hæð 111,9 ferm.,
2. hæð 44,7 ferm., 470 rúmm., bílgeymsla 25,3 ferm., 92 rúmm.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9266 (01.01.195.011)
Leifsgata 15,
Fella úr gildi byggingarleyfi.
Lagt fram bréf eigenda hússins, dags. 26.05.95, með ósk um að
byggingarleyfi frá 14. nóvember 1991 verði fellt úr gildi.

Vísað til umsagnar skrifstofustjóra byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 9250
Leiðréttingar.,
Leiðréttingar.
Lagðar fram leiðréttingar frá fundi byggingarnefndar þann
30.03.95.

Smárarimi 10:
Húsið var bókað 159,6 ferm., en á að vera 149,6 ferm.

Stararimi 51:
Húsið var bókað 760 rúmm., en á að vera 791 rúmm. Bílgeymsla var
bókuð 148 rúmm., en á að vera 139 rúmm.

Sævarhöfði 2A:
Húsið var bókað 13.031 rúmm., en á að vera 13.172 rúmm.

Viðarás 71:
Húsið var bókað 477 rúmm., og bílgeymsla 82 rúmm., en á að vera
472 rúmm., og bílgeymsla 97 rúmm.

Viðarás 73:
Húsið var bókað 477 rúmm., og bílgeymsla 82 rúmm., en á að vera
472 rúmm., og bílgeymsla 97 rúmm.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9243
Meistari/blikksmíðameistari.,
Meistari/blikksmíðameistari.
Ofanritaður sækir um leyfi byggingarnefndar til að mega standa
fyrir byggingum í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur sem
blikksmíðameistari.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9220
Meistari/húsasmíðameistari,
Meistari/húsasmíðameistari
Ofanritaður sækir um leyfi byggingarnefndar til að mega standa
fyrir byggingum í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur sem
húsasmíðameistari.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9221
Meistari/húsasmíðameistari.,
Meistari/húsasmíðameistari.
Ofanritaður sækir um leyfi byggingarnefndar til að mega standa
fyrir byggingum í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur sem
húsasmíðameistari.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9245 (01.01.247.807)
Miklabraut 5,
Leiðrétting.
Að ósk Agnars Gústafssonar, hrl., dags. 12.05.95, voru stærðir í
húsinu nr. 5 við Miklubraut endurreiknaðar. Húsið hafði verið
bókað 158 ferm., en réttar stærðir eru: kjallari 110,0 ferm., 1.
hæð 107,9 ferm., 2. hæð 107,9 ferm.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9248 (01.01.823.001)
Rauðagerði 26,
Niðurrif.
Sótt er um leyfi til að rífa húsið á lóðinni nr. 26 við
Rauðagerði.
Bréf skipulagsnefndar, dags. 23.05.95 fylgir erindinu.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9271
Reglur um svalaskýli.,
Reglur um svalaskýli.
Lögð fram tillaga byggingarfulltrúa, slökkviliðsstjóra og
brunamálastofnunar ríkisins, dags. 08.06.95.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9246 (01.04.212.705)
Silungakvísl 21,
Stöðvun óleyfisframkvæmda.
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa, dags. 06.06.95, um stöðvun
óleyfisframkvæmda að Silungakvísl 21.



Umsókn nr. 9240 (01.01.295.202)
Síðumúli 32,
Leiðrétting v. bílastæða.
Á fundi byggingarnefndar þann 30.03.95, var samþykkt breytt
fyrirkomulag bílastæða og notkun kjallara hússins að Síðumúla
32. Greiða skyldi fyrir 5 bílastæði í IV. flokki. Hið rétta er
3,7 bílastæði.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9244
Tún - götuheiti - tölusetning.,
Tún - Götuheiti - Tölusetning.
Byggingarfulltrúi leggur til að götuheitið Sigtún verði fellt
niður á þeim hluta götunnar sem liggur vestan Kringlumýrarbrautar
og nýtt nafn Sóltún verði tekið upp á götu sem liggur milli
Nóatúns og Borgartúns. Jafnframt verði gata sem liggur milli
Sóltúns og Borgartúns nefnd Mánatún.
Breyting á tölusetningum:

Sigtún 1 verði Sóltún 1.
Sigtún 3 verði Sóltún 3.
Sigtún 7 verði Sóltún 24.
Sigtún 9 verði Sóltún 20.
Sigtún 10 verði Sóltún 16.

Þá er lagt til að götuheitið Laugarnesvegur verði fellt niður á
þeim hluta götunnar sem liggur milli Laugavegar og núverandi
vesturhluta Sigtúns og í stað þess tekið upp heitið Hátún.

Breyting á tölusetningu:

Laugarnesvegur 13 verður Hátún 49.

Erindið var kynnt eigendum að Sigtúni 1, 3, 7, 9 og 10, með bréfi
dags. 24.05.95. Mótmæli dags. 07.06.95 hafa borist.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9197 (01.01.841.701)
Akraland 1 - 3,
Gera íbúð í kjallara.
Spurt er hvort leyft verði að innrétta íbúð í kjallara hússins
nr. 3 við Akraland, á lóðinni nr. 1 - 3 við Akraland.

Nei, samræmist ekki skipulagi né byggingarreglugerð.


Umsókn nr. 9227 (01.01.186.212)
Baldursgata 30,
Byggja y. svalir og set.kvisti
Spurt er hvort leyft verði að byggja yfir svalir og setja kvisti
úr timbri og járni á húsið á lóðinni nr. 30 við Baldursgötu.

Jákvætt er að byggja yfir svalir. Nei við kvisti.


Umsókn nr. 9174 (01.01.184.314)
Bergstaðastræti 26,
Reisa girðingu.
Spurt er hvort leyft verði að girða milli lóðanna samkvæmt
meðfylgjandi uppdrætti á lóðinni nr. 26 við Bergstaðastræti.

Frestað.
Fá betri upplýsingar.


Umsókn nr. 9200 (01.01.191.116)
Bergþórugata 55,
Hækkun þaks og innr. vinnust.
Spurt er hvort leyft verði að hækka þak og innrétta vinnustofu
á lóðinni nr. 55 við Bergþórugötu.

Jákvætt við hækkun hæðar.
Ólafur Axelsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.


Umsókn nr. 9088 (01.01.818.213)
Bústaðavegur 49,
Bílskúr.
Spurt er hvort leyft verði að byggja bílskúr úr steinsteypu á
lóðinni nr. 49 við Bústaðaveg.
Meðfylgjandi er útskrift úr gerðabók umferðanefndar, dags.
09.05.95.

Nei.


Umsókn nr. 9262 (01.01.161.212)
Garðastræti 45,
Breyta íbúðarhúsi.
Spurt er hvort leyft verði að byggja kvist á rishæð og byggja
svalir á 2. hæð og rishæð hússins á lóðinni nr. 45 við
Garðastræti.

Jákvætt. Minnka kvist og svalir. Athuga þakhalla.


Umsókn nr. 9163 (01.02.583.306)
Hrísrimi 35-37,
Samþykkja íbúð.
Spurt er hvort leyft verði að innrétta aukaíbúð í húsinu nr. 35
við Hrísrima á lóðinni nr. 35 - 37 við Hrísrima.

Nei, samræmist ekki landnotkun.


Umsókn nr. 9198 (01.01.815.209)
Háagerði 17,
Hækkun
Spurt er hvort leyft verði að hækka útbyggingu að framan til
samræmis við áður samþykkta útbyggingu á húsi nr. 13.
Ennfremur er spurt hvort leyfð verði að byggja anddyri að framan
og kvisti að afan og hvort íbúð á 2. hæð hússins nr. 17
við Háagerði fengist samþykkt ef breytingar yrðu leyfðar.

Frestað. Borgarskipulag og byggingarfulltrúi athugi málið.


Umsókn nr. 9188 (01.01.241.102)
Mjölnisholt 14,
Byggja íbúðir ofan á hús.
Spurt er hvort leyft verði að byggja íbúðarhæð ofan á húsið á
lóðinni nr. 14 við Mjölnisholt.

Nei, samræmist ekki landnotkun.


Umsókn nr. 9259 (01.01.132.014)
Norðurstígur 5,
Rífa skemmu og byggja íb.hús
Spurt er hvort leyft verði að rífa skemmu og byggja íbúðarhús
með 4 íbúðum úr steinsteypu og timbri á lóðinni nr. 5 við
Norðurstíg.
Erindið var kynnt nágrönnum með bréfi dags. 09.06.95.

Frestað. Vísað til Borgarskipulgs og kynna fyrir eigendum að
Norðurstíg 3, 3 A, 5, Nýlendugötu 5 og Tryggvagötu 10.
Niðurrifi á skemmu vísað til umsagnar umhverfismálaráðs.


Umsókn nr. 9241 (01.01.806.104)
Seljugerði 4,
Kjallari undir hús.
Spurt er hvort leyft verði að setja kjallara undir húsið á
lóðinni nr. 4 við Seljugerði.

Leggja þarf fram teikningar.


Umsókn nr. 9125
Vesturlandsv/lambhagaland 8.,
Vesturlandsv/Lambhagaland 8.
Spurt er hvort leyft verði að byggja til bráðabirgða sumarhús úr
timbri á lóðinni nr. 8 í Lambhagalandi við Vesturlandsveg.

Nei.