Starengi 86

Verknúmer : BN009206

3377. fundur 1995
Starengi 86, Einbýlishús úr timbri.
Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús úr timbri á lóðinni
nr. 86 við Starengi.
Stærð: 1. hæð 117,5 ferm., 399 rúmm., bílgeymsla 31,0 ferm., 96
rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 10.791.oo.

Samþykkt með 3:2. Þeir sem voru á móti óskuðu bókað:
Halldór Guðmundsson og Helgi Hjálmarsson á móti. Helgi og
Halldór óskuðu bókað:
"Í gr. 6.1.1 í byggingarreglugerð segir m.a. að íbúðir skuli
hanna þannig að þær henti vel til íbúðar. Grunnmynd hússins er
ósannfærandi, þannig fer mikið rými í ganga án þess að nýtast
til íveru, auk þess sem vakin er sérstök athygli á litlum
tengslum stofu/borðstofu við önnur rými. Útlit hússins er ekki
aðlaðandi og sérstök athygli er vakin á hönnun þakbrúnar og
gluggasetningu."
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.