Tún - götuheiti - tölusetning.

Verknúmer : BN009244

3377. fundur 1995
Tún - götuheiti - tölusetning., Tún - Götuheiti - Tölusetning.
Byggingarfulltrúi leggur til að götuheitið Sigtún verði fellt
niður á þeim hluta götunnar sem liggur vestan Kringlumýrarbrautar
og nýtt nafn Sóltún verði tekið upp á götu sem liggur milli
Nóatúns og Borgartúns. Jafnframt verði gata sem liggur milli
Sóltúns og Borgartúns nefnd Mánatún.
Breyting á tölusetningum:

Sigtún 1 verði Sóltún 1.
Sigtún 3 verði Sóltún 3.
Sigtún 7 verði Sóltún 24.
Sigtún 9 verði Sóltún 20.
Sigtún 10 verði Sóltún 16.

Þá er lagt til að götuheitið Laugarnesvegur verði fellt niður á
þeim hluta götunnar sem liggur milli Laugavegar og núverandi
vesturhluta Sigtúns og í stað þess tekið upp heitið Hátún.

Breyting á tölusetningu:

Laugarnesvegur 13 verður Hátún 49.

Erindið var kynnt eigendum að Sigtúni 1, 3, 7, 9 og 10, með bréfi
dags. 24.05.95. Mótmæli dags. 07.06.95 hafa borist.

Samþykkt.