Starengi 88

Verknúmer : BN009102

3377. fundur 1995
Starengi 88, Einbýlishús
Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús úr steinsteypu og
timbri á lóðinni nr. 88 við Starengi.
Stærð: 1. hæð 149,3 ferm., 556 rúmm. Bílgeymsla 33,3 ferm., 122
rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 14.780.oo.

Samþykkt með 3:2.
Halldór Guðmundsson og Helgi Hjálmarsson á móti. Helgi og
Halldór óskuðu bókað:
Þeir sem voru á móti óskuðu bókað:
"Í gr. 6.1.1 í byggingarreglugerð segir m.a. að íbúðir skuli
hanna þannig að þær henti vel til íbúðar.
Grunnmynd hússins er ósannfærandi, þannig fer mikið rými í
ganga, án þes að nýtast til íveru. Sérstök athygli er vakin á
lögun stofu og vegalengdum úr eldhúsi að borðstofu."

Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.