Barónsstígur 2, Bauganes 25, Byggðarendi 7, Flugvöllur, Grjótháls 5, Grófar-hag-hal-heiðas, Gylfaflöt 3, Hverfisgata 39, Héðinsgata 1, Klapparstígur 1 - 7a, Laufásvegur 22, Laugavegur 24b, Leirubakki 34-36, Nökkvavogur 33, Rósarimi 11, Skúlagata 19, Smiðjustígur 6, Spítalastígur 10, Stakkahlíð - kennaraháskóli, Vatnagarðar, Vesturlv reynisvl óútv, Vitastígur 3, Vættaborgir 22-24, Ægisíða 111, Afgreiðsla mála 1996, Afgreiðsluf. byggingarfulltrúa, Bergstaðastræti 50, Grandagarður 101, Hverfisgata 26-28, I. gata 4 v rauðavatn, Klapparstígur 30, Laugavegur 21, Samþykktir um lagnir, Síðumúli 28, Vallarás 1 - 5 og 2 - 4, Fjölnisvegur 16, Hafnarstræti 17, Haukshólar 9, Kríuhólar 2-6, Suðurgata - háskóli íslands, Óðinsgata 11,

BYGGINGARNEFND

3416. fundur 1997

Árið 1997, fimmtudaginn 9. janúar, kl. 11.00 fyrir hádegi, hélt byggingarnefnd Reykjavíkur 3416. fund sinn. Fundurinn var haldin í fundarsalnum 4. hæð Borgartúni 3. Þessir nefndarmenn sátu fundinn: Gunnar L. Gissurarson, Steinunn V. Óskarsdóttir, Helgi Hjálmarsson og Hilmar Guðlaugsson. Auk þeirra sátu fundinn: Magnús Sædal Svavarsson, Þormóður Sveinsson Ólafur Ó. Axelsson, Gunnar Ólason, Ágúst Jónsson, Ívar Eysteinsson, Sigríður K. Þórisdóttir og Bjarni Þór Jónsson sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:


Umsókn nr. 13307 (01.01.154.307)
Barónsstígur 2,
Breyt. á notkun fjóss.
Sótt er um leyfi til þess að breyta húsnæði (Barónsfjósi) í
verslun, lager og hótelherbergi á lóðinni nr. 2-4 við
Barónsstíg.
Gjald kr. 2.250.oo.

Frestað.
Gera skal betur grein fyrir gerð og fyrirkomulagi herbergja.


Umsókn nr. 13851 (01.01.673.011)
Bauganes 25,
Breyting á klæðningu
Sótt er um leyfi til þess að klæða húsið á lóðinni nr. 25 við
Bauganes með bárustáli í stað stenex.
Gjald kr. 2.250.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 13885 (01.01.826.004)
Byggðarendi 7,
Þakbrún og klæðning.
Sótt er um leyfi til þess að klæða með sléttum plötum og breyta
þakbrún hússins á lóðinni nr. 7 við Byggðarenda.
Gjald kr. 2.250.oo.
Skoðunarskýrsla dags. 07.11.1996 fylgir erindinu.

Samþykkt.


Umsókn nr. 13872 (01.01.64-.-99)
Flugvöllur,
Viðbygging við flugskýli.
Sótt er um leyfi til þess að byggja við flugskýli úr stáli á
lóðinni nr. 21 við Fluggarða.
Gjald kr. 2.250.oo + 16.112.oo.
Stærð: 158 ferm., 675 rúmm.

Samþykkt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 13884 (01.04.302.301)
Grjótháls 5,
Breyting á áður samþ. húsi.
Sótt er um leyfi til þess að breyta áður samþykktu húsi
(gluggar, svalir og klæðning) á lóðinni nr. 5 við Grjótháls.
Stærð: 1. hæð 914,6 ferm., 2. hæð 914,6 ferm., 3. hæð 929,4
ferm., 4. hæð 186 ferm., 11305 rúmm.
Eldri uppdrættir dags. 24.09.1992 óskast felldir úr gildi.
Meðfylgjandi er bréf Ásgeirs Ásgeirssonar dags. 23.12.1996.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra.


Umsókn nr. 13814 (01.04.937.201)
Grófar-hag-hal-heiðas,
Svalir og þakgluggi
Sótt er um leyfi til þess að setja þakglugga og byggja svalir úr
timbri og járni við húsið á lóðinni nr. 19 við Grófarsel.
Gjald kr. 2.250.oo.
Samþykki nágranna dags. 03.12.1996 fylgir erindinu.

Frestað.
Vantar afstöðumynd. Vantar samþykki meðlóðarhafa.


Umsókn nr. 13869 (01.02.575.102)
Gylfaflöt 3,
Atvinnuhúsnæði úr timbri og st
Sótt er um leyfi til þess að byggja iðnaðarhús úr steinsteypu á
lóðinni nr. 3 við Gylfaflöt.
Stærð: 1. hæð 1404,3 ferm., 2. hæð 205,3 ferm., 7166 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 171.052.oo.

Samþykkt.
Með þremur atkvæðum Helgi Hjálmarsson sat hjá.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra.


Umsókn nr. 13823 (01.01.152.423)
Hverfisgata 39,
Klæðning
Sótt er um leyfi til þess að klæða austurgafl hússins á
lóðinni nr. 39 við Hverfisgötu með gráu Trapisulaga stáli.
Gjald kr. 2.250.oo.
Meðfylgjandi er bréf Óla H. Þórðarsonar dags. 30.10.1996 og
yfirlýsing eignda Hverfisgötu 39 og 41 dags. nóv. 1996.

Frestað.
Lagfæra teikningar. Þinglýsa skal yfirlýsingu frá lóðarhafa
Hverfisgötu 41.


Umsókn nr. 13871 (01.01.327.401)
Héðinsgata 1,
Innrétta skrifstofu o.fl.
Sótt er um leyfi til þess að innrétta skrifstofuhúsnæði í
norðurhluta skemmu og setja glugga og hurðir á götuhlið hússins
á lóðinni nr. 1-3 við Héðinsgötu.
Gjald kr. 2.250.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 13852 (01.01.152.201)
Klapparstígur 1 - 7a,
Álklæðning
Sótt er um að fá samþykktar breyttar aðalteikningar af húsinu á
lóðinni nr. 7 við Klapparstíg. Auk þess er sótt um að klæða
húsið með álklæðningu.
Stærð: kjallari 121 ferm., 1. hæð 312 ferm., 2. hæð 312 ferm.,
3. hæð 312 ferm., 4. hæð 312 ferm., 5. hæð 312 ferm., 6. hæð 196
ferm., 5431 rúmm., stækkun: 30 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 716.oo.

Samþykkt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 13859 (01.01.183.408)
Laufásvegur 22,
br.á áður sþ.vinnustofum
Sótt er um leyfi til þess að breyta áður samþykktum vinnustofum
í sýningarsali í húsinu á lóðinni nr. 22 við Laufásveg.
Gjald kr. 2.387.oo.
Bréf Höllu Jónatansdóttur ódags. fylgir erindinu.

Synjað.
Samræmist ekki landnotkun.
Yður til upplýsingar er rétt að benda á að umsókn um breytta
landnotkun er hægt að leggja fyrir skipulags- og umferðanefnd
Reykjavíkur, Borgartúni 3, 3. hæð 105 R. Ef leyfi fæst fyrir
breyttri landnotkun verður málið að koma aftur fyrir
byggingarnefnd og er ljóst að gera verður breytingar í húsinu
vegna athugasemda Eldvarnaeftirlits og heilbrigðiseftirlits. Að
auki mun þurfa að greiða bílastæðagjöld í samræmi við reglur þar
að lútandi. Rétt er að taka fram að notkun vinnustofunnar umfram
samþykktar heimildir er óheimil þar til leyfa hefur verið aflað.


Umsókn nr. 13888 (01.01.172.204)
Laugavegur 24b,
Nýbygging
Sótt er um leyfi til að byggja 14 hótelíbúðir, tvær bílgeymslur
og verslunarhúsnæði úr steinsteypu á lóðinni nr. 24B við
Laugaveg.
Stærð: 1. hæð 103,o ferm., 2.hæð 180,o ferm., 3. hæð 180,0 ferm.,
4. hæð 180,0 ferm., Bílgeymsla 58,0 ferm,. 2010 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 45.225.oo.
Erindið var kynnt nágrönnum með bréfi dags. 5. nóvember 1996.
Athugasemdir hafa borist með bréfum dags. 25.11.1996, 21.11.1996,
22.11.1996 og 24.11.1996.
Jafnframt hafa borist bréf frá Lögmönnum, Lágmúla 7, þar sem
óskað er eftir lengri fresti til að koma með athugasemdir.
Málinu fylgir einnig samþykki borgarráðs frá 17. f.m. og bréf
borgarlögmanns dags. s.d.

Frestað.
Vantar mæliblað. Þinglýsa skal kvöð um umferð.


Umsókn nr. 13867 (01.04.633.203)
Leirubakki 34-36,
viðbygging
Sótt er um leyfi til þess að byggja við 1. hæð og byggja 2. hæð
(6 íbúðir) úr steinsteypu við húsið á lóðinni nr. 34 við
Leirubakka.
Stærð: 1. hæð 49,3 ferm., 2. hæð 264 ferm., 777 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 18.547.oo.
Meðfylgjandi er samþykki eiganda Leirubakka nr. 36 dags.
25. nóvember 1996.
Bréf hönnuðar dags. 20.11.1996 fylgir erindinu.

Samþykkt.
Með vísan til samþykktar skipulagsnefndar frá 25. maí 1992 skal
öllum framkvæmdum lokið lokið innan 18 mánaða frá útgáfu
byggingarleyfis.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 13782 (01.01.445.309)
Nökkvavogur 33,
Stækkun á bílskúr
Sótt er um leyfi til þess að stækka áður samþykktan bílskúr á
lóðinni nr. 33 við Nökkvavog.
Stækkun: 23,9 ferm., 87 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 2.077.oo.
Meðfylgjandi er bréf Sverris Péturs Péturssonar dags. 10.12.1996.

Samþykkt.
Með þremur atkvæðum Hilmar Guðlaugsson sat hjá.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 13863 (01.02.546.001)
Rósarimi 11,
br, á 3 áfanga og 2 áf,v/eldh.
Sótt er um að fá samþykktar breyttar teikningar af 3. hluta
Rimaskóla. Einnig er um að ræða breytingar á 2. hluta varðandi
eldhús við félagsaðstöðu og sal í Rimaskóla á lóðinni nr. 11 við
Rósarima.
Stærð: 1. hæð 1395 ferm., 2. hæð 323 ferm., 3. hæð 107 ferm.,
12700 rúmm. Gjald kr. 2.387.oo.
Meðfylgjandi er bréf Egils Guðmundssonar dags. 02.01.1997.

Samþykkt.
Skila skal inn nýjum brunavarnaruppdráttum fyrir úttekt á
botnplötu.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra.


Umsókn nr. 13873 (01.01.154.201)
Skúlagata 19,
Atvinnuhúsnæði.
Sótt er um leyfi til að byggja atvinnuhúsnæði (skrifstofur,
verslun) úr steinsteypu á lóðinni nr. 19 við Skúlagötu.
Stærð: 1. hæð 542 ferm., 2. hæð 544,1 ferm., 3. hæð 519,8 ferm.,
4. hæð 248,6 ferm., 5810 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 138.685.oo.

Samþykkt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 13882 (01.01.171.1--)
Smiðjustígur 6,
Veitingastaður
Sótt er um leyfi til þess að innrétta veitingastað í húsinu á
lóðinni nr. 4A við Smiðjustíg.
Gjald kr. 2.387.oo.

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Kynna fyrir nágrönnum, sbr. samþykkt borgarráðs frá 16.07.1996.
Þar sem umsækjandi hyggur á veitingastarfsemi í húsnæðinu er
honum bent á að sækja ber um leyfi fyrir slíkri starfsemi til
Lögreglustjórans í Reykjavík. Embætti Lögreglustjóra fjallar um
slíkar leyfisveitingar að fenginni umsögn borgarráðs. Rétt er að
taka fram að samþykkt byggingarnefndar felur ekki í sér neinar
skuldbindingar af hálfu Reykjavíkurborgar til veitingareksturs.


Umsókn nr. 13896 (01.01.184.102)
Spítalastígur 10,
13869
Sótt er um leyfi til þess að breyta atvinnuhúsnæði í íbúð á
1. hæð hússins á lóðinni nr. 10 við Spítalastíg.
Minnkun: 8 ferm., 24 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo.
Meðfylgjandi er bréf Halldórs Ellertssonar dags. 05.12.1996.

Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnareftirlits.


Umsókn nr. 13870 (01.01.271.101)
Stakkahlíð - kennaraháskóli,
Fjölbýlishús út steinsteypu.
Sótt er um leyfi til þess að byggja fjölbýlishús með 42
nemendaíbúðum á lóð kennaraháskólans við Stakkahlíð.
Stærð: 1. hæð 869,3 ferm., 2. hæð 843,1 ferm., 3. hæð 843,1
ferm. Gjald kr. 2.250.oo +

Frestað.
Kynna fyrir eigendum að Bólstaðarhlíð nr. 15, 16, 20, 25, 26 og
27, Úthlíð nr. 15 og 16 og Skaftahlíð nr. 15.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 13899 (01.01.408.---)
Vatnagarðar,
br, úti og inni
Sótt er um leyfi til þess að setja sex glugga á vesturhlið á
milli mátlína I-J í húsinu á lóð við Vatnagarða.
Gjald kr. 2.387.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 13762 (01.05.11-.-99)
Vesturlv reynisvl óútv,
bráðab,leyfi fyrir áð,gerðu
Sótt er um bráðbirgðaleyfi fyrir byggingum og mannvirkjum sem
þegar eru byggð og bráðbirgðaleyfi fyrir veitingaskemmu úr
timbri á lóð við Vesturlv. Reynisvatnsland.
Stærð: Veiðihús 66,7 ferm., 198 rúmm., geymsluskúr 6 ferm., 13
rúmm., veitingaskáli 136,5 ferm., 260 rúmm., samtals 471 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 2.387.oo + 11.243.oo.

Frestað.
Vísað til umsagnar umhverfismálaráðs og kynningar í skipulags-
og umferðarnefnd.


Umsókn nr. 13601 (01.01.154.301)
Vitastígur 3,
Breytingar í íb. og atv.húsn
Sótt er um leyfi til að breyta atvinnuhúsnæði í íbúðar- og
atvinnuhúsnæði. Sótt er um leyfi fyrir svölum úr stáli á
ausurhlið tvær á 2. hæð og tvær á 3. hæð. Ennfremur er sótt um
leyfi fyrir áður gerðum glugga og um leyfi til þess að gera
ljóra í gafl (F-60) hússins á lóðinni nr. 3 við Vitastíg.
Gjald kr. 2.250.oo.
Jafnframt lögð fram útskrift úr gerðabók skipulagsnefndar frá
23.09.1996.

Frestað.
Vantar samþykki meðeigenda.


Umsókn nr. 13868 (01.02.346.201)
Vættaborgir 22-24,
Keðjuhús
Sótt er um leyfi til þess að byggja parhús úr steinsteypu á
lóðinni nr. 22-24 við Vættaborgir.
Stærð: hvert hús 1. hæð 69,8 ferm., 2. hæð 82,2 ferm., samtals
902 rúmm., hvor bílgeymsla 30,1 ferm., samtals 190 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 26.066.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 13798 (01.01.532.201)
Ægisíða 111,
Bílskúr.
Sótt er um leyfi fyrir áður byggðum bílskúr úr timbri á lóðinni
nr. 111 við Ægisíðu.
Stærð: 50,2 ferm., 129 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo.

Frestað.
Óskað er upplýsinga um tilurð bílskúrsins og hvaða meistarar
framkvæmdu verkið.


Umsókn nr. 13893
Afgreiðsla mála 1996,
Afgreiðsla mála 1996
Lagt fram yfirlit um málafjölda í byggingarnefnd og á
afgreiðslufundum árið 1996.



Umsókn nr. 13895
Afgreiðsluf. byggingarfulltrúa,
Afgreiðsluf. byggingarfulltrúa
Fylgiskjöl með fundargerð þessari eru fundargerðir nr. 26 frá
20. desember 1996 og nr. 27 frá 7. janúar 1997, án liðar
nr. 5. Með vísan til 2. mgr. 2. gr. reglugerðar nr. 614/1995
er einnig lagður fram liður nr. 22 úr fundargerð nr. 25 frá
12. desember 1996.



Umsókn nr. 13902 (01.01.185.303)
Bergstaðastræti 50,
Bréf v/trjágróðurs
Lagt fram bréf Arnars Guðmundssonar, Bergstaðastræti 50, vegna
trjágróðurs nyrst á lóðinni nr. 50a við Bergstaðastræti.

Vísað til byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 13891 (01.01.114.-98)
Grandagarður 101,
Lóðarstækkun
Reykjavíkurhöfn sækir um stækkun á lóð Grandagarðs nr. 101.
Lóðin var 119 ferm., en verður eftir breytingu 261 ferm., sbr.
mæliblað 1.114.101.

Samþykkt.


Umsókn nr. 13904 (01.01.171.101)
Hverfisgata 26-28,
Lóðarbreyting
lagt fram bréf Hjalta Geirs Kristjánssonar, f.h. Sameignar sf,
þar sem óskað er eftir skiptingu lóðanna Smiðjustígur 6,
Hverfisgata 26-28, samkvæmt uppdrætti mælingadeildar
borgarverkfræðings dags. 08.01.1997.
Lóðin er talin 787,6 ferm., Lóðin reynist vera 788 ferm.,
Lóðin skiptist í þrjár lóðir, þannig:
Hverfisgata 26 verður 185 ferm., Hverfisgata 28 verður 168 ferm.,
Smiðjustígur 6 verður 435 ferm.
Sjá samþykkt skipulagsnefndar 12.08.1996 og samþykkt borgarráðs
15.10.1996. Kvöð um umferð, sjá þinglesið skjal nr. A-6211/96.

Frestað.


Umsókn nr. 13892 (01.04.411.-72)
I. gata 4 v rauðavatn,
Niðurrif
Skrifstofustjóri borgarverkfræðings, Skúlatúni 2, 105 Reykjavík
sækir um niðurrif sumarbústaðar við I-götu nr. 4 við Rauðavatn.
Staðgreinir 4411-72, Landnúmer 111620.

Samþykkt.


Umsókn nr. 13897 (01.01.171.108)
Klapparstígur 30,
Niðurrif
Ólafur Garðarsson, hrl. fh. Tjalds ehf., sækir um leyfi til
niðurrifs á húsinu nr. 30 við Klapparstíg.
Húsið er byggt árið 1917 og stærð þess er 113,9 ferm., 401 rúmm.
Málinu fylgir bréf umsækjanda dags. 18. þ.m.
Umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 19. des sl., og útskrift úr
gerðabók Umhverfismálaráðs frá 11. des. sl., ásamt umsögn
Árbæjarsafns dags. 9. des. og greinagerð safnsins frá 6. des.

Frestað.


Umsókn nr. 13898 (01.01.171.109)
Laugavegur 21,
Niðurrif
Ólafur Garðarsson, hrl. fh. Tjalds ehf, sækir um leyfi til
niðurrifs á húsinu nr. 21 við Laugaveg.
Húsið er byggt 1884 og stærð þess er 195,6 ferm., og 532 rúmm.
Málinu fylgir umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 19. des. sl., og
útskrift úr gerðabók Umhverfismálaráðs frá 11. des sl., ásamt
umsögn Árbæjarsafns dags. 9. des. og greinagerð frá 6. des.
Jafnframt lagt fram bréf Ólafs Gaðrarssonar, hrl, dags. 17. f.m.

Frestað.


Umsókn nr. 13901
Samþykktir um lagnir,
Samþykktir um lagnir
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa og yfirverkfræðings
borgarverkfræðings dags. 7. þ.m. og kynnt drög að samþykktum um
lagnir í Reykjavík.



Umsókn nr. 13900 (01.01.295.002)
Síðumúli 28,
Niðurrif
Lagt fram bréf Bergþórs Jónssonar, dags. 08.01.1997, f.h. Mótáss
þar sem óskað er eftir heimild til þess að rífa fangelsið á
lóðinni nr. 28 við Síðumúla.
Stærð: 372,5 ferm., 1213 rúmm. Landnúmer 103832.
Ennfremur kynnt drög að nýrri byggingu á lóðinni.

Samþykkt að rífa húsið á lóðinni nr. 28 við Síðumúla.


Umsókn nr. 13903 (01.04.720.001)
Vallarás 1 - 5 og 2 - 4,
óleyfisframkvæmdir
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa dags. 2. þ.m. til A og P
lögmanna, Borgartúni 24 vegna óleyfisinnréttinga í Vallarási 3.
Byggingarfulltrúi leggur til með vísan til 31. og 32. gr.
byggingarlaga nr. 54/1978 að eigenda rýmis 0101 í Vallarási 3
verði gefinn 30 daga frestur, frá birtingu bréfs þar að lútandi
til þess að fjarlægja óleyfisinnréttinga úr rýminu. Að öðrum
kosti verði beytt dagsektum kr. 10.000 á hvern dag sem það dregst
að framkvæma verkið og þær innheimtar í samræmi við 3. mgr.
36. greinar byggingarlaganna.
Jafnframt er lagt til að eiganda verði gefinn kostur á að tjá sig
um málið sbr. 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Jafnframt lagt fram bréf A og P lögmanna dags. 9. janúar f.h.
Landsbanka Íslands.

Samþykkt að eiganda verði gefinn kostur á að tjá sig um tillögu
byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 13858 (01.01.196.403)
Fjölnisvegur 16,
Kvistur
Spurt er hvort leyft verði að byggja kvist á húsið á lóðinni
nr. 16 við Fjölnisveg skv. meðfylgjandi uppdráttum

Neikvætt.


Umsókn nr. 13849 (01.01.118.502)
Hafnarstræti 17,
Veitingahús
Spurt er hvort leyft verði að innrétta bar á 1. hæð í húsinu á
lóðinni nr. 17 við Hafnarstræti.

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Þar sem umsækjandi hyggur á veitingastarfsemi í húsnæðinu er
honum bent á að sækja ber um leyfi fyrir slíkri starfsemi til
Lögreglustjórans í Reykjavík. Embætti Lögreglustjóra fjallar um
slíkar leyfisveitingar að fenginni umsögn borgarráðs. Rétt er að
taka fram að samþykkt byggingarnefndar felur ekki í sér neinar
skuldbindingar af hálfu Reykjavíkurborgar til veitingareksturs.


Umsókn nr. 13850 (01.04.643.009)
Haukshólar 9,
Sólstofa o.fl.
Spurt er hvort leyft verði að loka svölum á húsinu á lóðinni
nr. 9 við Haukshóla.

Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum.


Umsókn nr. 13855 (01.04.642.501)
Kríuhólar 2-6,
sólstofa
Spurt er hvort leyft verði að byggja sólstofu við íbúð á 1. hæð
í húsinu á lóðinni nr. 2 við Kríuhóla.

Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum.


Umsókn nr. 13860 (01.01.60-.-99)
Suðurgata - háskóli íslands,
Stúdentagarðar
Spurt er hvort leyft verði að byggja stúdentagarða samkvæmt
meðfylgjandi teikningum á lóð við Suðurgötu.
Meðfylgjandi er bréf Páls Gunnlaugssonar dags. 03.01.1997.
Samþykki skipulags- og umferðarnefndar frá 06.01.1997 fylgir
erindinu.

Jákvætt.


Umsókn nr. 13861 (01.01.184.521)
Óðinsgata 11,
viðbygging
Spurt er hvort leyft verði að byggja viðbyggingu úr timbri og
gleri við húsið á lóðinni nr. 11 við Óðinsgötu.

Neikvætt.