Vallarás 1 - 5 og 2 - 4
Verknúmer : BN013903
3416. fundur 1997
Vallarás 1 - 5 og 2 - 4, óleyfisframkvæmdir
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa dags. 2. þ.m. til A og P
lögmanna, Borgartúni 24 vegna óleyfisinnréttinga í Vallarási 3.
Byggingarfulltrúi leggur til með vísan til 31. og 32. gr.
byggingarlaga nr. 54/1978 að eigenda rýmis 0101 í Vallarási 3
verði gefinn 30 daga frestur, frá birtingu bréfs þar að lútandi
til þess að fjarlægja óleyfisinnréttinga úr rýminu. Að öðrum
kosti verði beytt dagsektum kr. 10.000 á hvern dag sem það dregst
að framkvæma verkið og þær innheimtar í samræmi við 3. mgr.
36. greinar byggingarlaganna.
Jafnframt er lagt til að eiganda verði gefinn kostur á að tjá sig
um málið sbr. 13. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Jafnframt lagt fram bréf A og P lögmanna dags. 9. janúar f.h.
Landsbanka Íslands.
Samþykkt að eiganda verði gefinn kostur á að tjá sig um tillögu
byggingarfulltrúa.