Laufásvegur 22
Verknúmer : BN013859
3416. fundur 1997
Laufásvegur 22, br.á áður sþ.vinnustofum
Sótt er um leyfi til þess að breyta áður samþykktum vinnustofum
í sýningarsali í húsinu á lóðinni nr. 22 við Laufásveg.
Gjald kr. 2.387.oo.
Bréf Höllu Jónatansdóttur ódags. fylgir erindinu.
Synjað.
Samræmist ekki landnotkun.
Yður til upplýsingar er rétt að benda á að umsókn um breytta
landnotkun er hægt að leggja fyrir skipulags- og umferðanefnd
Reykjavíkur, Borgartúni 3, 3. hæð 105 R. Ef leyfi fæst fyrir
breyttri landnotkun verður málið að koma aftur fyrir
byggingarnefnd og er ljóst að gera verður breytingar í húsinu
vegna athugasemda Eldvarnaeftirlits og heilbrigðiseftirlits. Að
auki mun þurfa að greiða bílastæðagjöld í samræmi við reglur þar
að lútandi. Rétt er að taka fram að notkun vinnustofunnar umfram
samþykktar heimildir er óheimil þar til leyfa hefur verið aflað.