Hafnarstræti 17

Verknúmer : BN013849

3416. fundur 1997
Hafnarstræti 17, Veitingahús
Spurt er hvort leyft verði að innrétta bar á 1. hæð í húsinu á
lóðinni nr. 17 við Hafnarstræti.

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Þar sem umsækjandi hyggur á veitingastarfsemi í húsnæðinu er
honum bent á að sækja ber um leyfi fyrir slíkri starfsemi til
Lögreglustjórans í Reykjavík. Embætti Lögreglustjóra fjallar um
slíkar leyfisveitingar að fenginni umsögn borgarráðs. Rétt er að
taka fram að samþykkt byggingarnefndar felur ekki í sér neinar
skuldbindingar af hálfu Reykjavíkurborgar til veitingareksturs.