Útilistaverk
Skjalnúmer : 9172
14. fundur 1999
Útilistaverk, stóll Gullivers
Lagt fram að nýju bréf M. Stuk, dags. 26.10.98, varðandi staðsetningu stóls Gullivers í nágrenni Reykjavíkur, sbr. bókun nefndarinnar 11. janúar s.l. Ennfremur lagt fram bréf M. Stuk, dags. 8.6.99.
Nefndin felur Borgarskipulagi að athuga frekar með mögulega staðsetningu verksins.
12. fundur 1999
Útilistaverk, höggmyndasýning á strandlengju Reykjavíkur
Lagt fram bréf borgarlögmanns f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 27.4.99 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 26. s.m. um höggmyndasýningu á strandlengju Reykjavíkur.
9. fundur 1999
Útilistaverk, stóll Gullivers
Lagt fram bréf M. Stuk, dags. 20.03.99, þar sem beðið er um frestun að setja upp stólinn til ársins 2000. Einnig lagt fram bréf Heilbrigðis- og umhverfisnefndar, dags. 22.01.99.
Nefndin samþykkir eftirfarandi. Nefndin getur ekki fallist á staðsetningu stólsins á þessum stað á árinu þegar Reykjavíkurborg verður menningarborg Evrópu.
1. fundur 1999
Útilistaverk, stóll Gullivers
Lagt fram bréf M. Stuk, dags. 26.10.98, varðandi staðsetningu stóls Gullivers í nágrenni Reykjavíkur. Einnig lögð fram hugmynd og umsögn Borgarskipulags um staðsetningu, dags. 7. jan.´99.
Nefndin samþykkir fyrir sitt leyti tímabundna staðsetningu ofangreinds mannvirkis skv. tillögu Borgarskipulags og vísar málinu til heilbrigðis- og umhverfisnefndar.
11. fundur 1999
Útilistaverk, höggmyndasýning á strandlengju Reykjavíkur
Lagt fram bréf Myndhöggvarafélagsins, dags. 11.04.99, varðandi sýningaraðstöðu við norðurströnd Reykjavíkur, nánar tiltekið milli hafnarsvæðanna tveggja, eftir Sæbraut og út á Laugarnesið. Einnig lögð fram umsögn Borgarskipulags, dags. 21.04.99.
Nefndin samþykkir erindið fyrir sitt leyti og vísar málinu til borgarráðs.
21. fundur 1998
Útilistaverk, höggmyndasýning á strandlengju Reykjavíkur
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs, dags. 15.09.98 ásamt bréfi Myndhöggvarafélags Reykjavíkur frá 10.09.98 varðandi framlengingu sýningar Myndhöggvarafélags Reykjavíkur við strandlengjuna.
Nefndin samþykkir erindið fyrir sitt leyti og felur Borgarskipulagi að kynna málið fyrir nágrönnum sem málið snertir.
23. fundur 1998
Útilistaverk, Íslandsbanki, Kirkjusandi
Lagt fram bréf Kjarvalsstaða, dags. 16.09.98, varðandi staðsetningu tveggja útilistaverka á lóð Íslandsbanka að Kirkjusandi, samkv. uppdr. Landmótunar ehf, dags. 07.09.98.
Samþykkt
16. fundur 1998
Útilistaverk, Söguleg samtíð
Lagt fram bréf forstöðumanns Kjarvalsstaða, dags. 07.08.98 og fylgigögn, ásamt fundargerð menningarmálanefndar dags.1.7.98, varðandi staðsetningu útilistaverksins "Söguleg samtíð" við Hallgrímskirkju.
Samþykkt.
5. fundur 1998
Útilistaverk, höggmyndasýning á strandlengju Reykjavíkur
Lagt fram bréf Myndhöggvarafélagsins, dags. 12.02.98, varðandi útisýningu á 25 rýmislistaverkum á strandlengju Reykjavíkur við Skerjafjörð.
Nefndin samþykkir erindið fyrir sitt leyti og felur Borgarskipulagi að kynna málið fyrir nágrönnum.
22. fundur 1994
Útilistaverk, staðsetning
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs, dags. 14.9.94, varðandi tillögu menningarmálanefndar um að í aðal- og deiliskipulagningu skuli tekin frá svæði fyrir útilistaverk.