Ármúli 26,
Ásvallagata 46,
Baldursgata 11,
Bergstaðastræti 20,
Bergstaðastræti 27,
Blönduhlíð 25,
Borgartún 28,
Bústaðavegur 130,
Deildarás 20,
Eyjarslóð 7,
Fannafold 53,
Flókagata 3,
Frakkastígur 7,
Grenimelur 39,
Grettisgata 29,
Hafnarstræti  1-3,
Hafnarstræti 18,
Háagerði 23,
Hólmaslóð 10,
Hólmgarður 9,
Hraunbær 121,
Ingólfsstræti 8,
Karfavogur 50,
Kárastígur 9A,
Kirkjustétt 2-6,
Kirkjustétt 2-6,
Kirkjustétt 28,
Klettagarðar 8-10,
Klettháls 1,
Klettháls 7,
Langagerði 40,
Langholtsvegur 115,
Laugavegur 168,
Laugavegur 170-172,
Laugavegur 34A,
Miðstræti 3,
Mjölnisholt 10,
Móvað 29,
Njálsgata 8C,
Nökkvavogur 37,
Ólafsgeisli 103,
Reykjavegur Laugard.,
Safamýri 50,
Seljavegur 2,
Sigtún 33,
Skeifan 5,
Skógarhlíð Perlan,
Skólavörðustígur 24,
Smiðjustígur 4,
Sogavegur 164,
Sóleyjarimi 1-23,
Starengi 6,
Stóragerði 23,
Stórhöfði 29,
Tjarnargata 35,
Vatnsstígur 3,
Vesturgata 21,
Víkurbakki 22,
Þorláksgeisli 78-80,
Þönglabakki 6,
Fálkagata 1,
Húsasmíðameistari,
Nýlendugata Hlíðarh.,
Suðurhús 11,
Þorláksgeisli 82-86,
Bakkastaðir 53,
Búagrund 12,
Flókagata 5,
Gnoðarvogur 44,
Grettisgata 86,
Heiðarás 24,
Hringbraut 92,
Hverfisgata 56,
Kambsvegur 6,
Langholtsvegur 67,
Mánagata 20,
Sigluvogur 5,
Súðarvogur 32,
Vatnsveituv. Fákur 112470,
Víðihlíð  5-11,
Þverholt 5,
Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. reglugerð nr. 558/2003
325. fundur 2004
Árið 2004, þriðjudaginn 23. nóvember kl. 09:20 fyrir  hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 325. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulags- og byggingarnefndar. Fundurinn var haldinn í fundarherberginu 4. hæð Borgartúni 3. Þessi sátu fundinn: Magnús Sædal Svavarsson, Þórður Búason, Guðlaugur Gauti Jónsson, Helga Guðmundsdóttir, Sigurður Pálmi Ásbergsson og Sigríður Kristín Þórisdóttir
Fundarritari var Magnús Sædal Svavarsson.
Þetta gerðist:
Umsókn nr. 30259 (01.29.210.2)
420987-1109 
Saxhóll ehf
Nóatúni 17 105 Reykjavík 
1. Ármúli 26, þak, br. inni og úti
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi beggja hæða, byggja milliloft fyrir loftræstirými, breyta glerþaki yfir  áður "garði" á 2. hæð með upplyftu þaki, breyta gluggum og dyrum á 1. hæð, byggja skyggni yfir aðalinngang að verslun 1. hæð, fjölga bílastæðum um tvö  og gerð er grein fyrir inntaksrými undir hluta 1. hæðar atvinnuhússins á lóð nr. 26 við Ármúla. 
Bréf hönnuðar dags. 18. nóvember 2004 fylgir erindinu.
Stærð: Áður gerður kjallari 16,5 ferm., 38,8 rúmm., milliloft 52,3 ferm. og þar af 39,3 ferm. með salarhæð undir 1,8 m,  rúmmálsaukning vegna breytts þaks 29,2 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 3.672
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Umsókn nr. 29448 (01.13.911.7)
010850-3049 
Árni Þórarinsson
Ásvallagata 46 101 Reykjavík 
2. Ásvallagata 46, áður gerð íb. á rish.
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðri íbúð á rishæð fjölbýlishússins á lóð nr. 46 við Ásvallagötu.
Afsal rishæðar frá 4. mars 1976, virðingargjörð dags. 12. desember 1951, íbúðarskoðun byggingarfulltrúa dags. 28. nóvember 2002 og 1. september 2004 ásamt samþykki sumra meðeigenda (á teikningu) fylgja erindinu.
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Umsókn nr. 30566 (01.18.451.2)
090647-2889 
Guðni Stefánsson
Laugavegur 46a 101 Reykjavík 
3. Baldursgata 11, einingu 0002 br. í íbúð
Sótt er um leyfi til þess að breyta skrifstofueiningu (0002) í íbúð á jarðhæð fjöleignarhússins á lóð nr. 11 við Baldursgötu.
Bréf hönnuðar dags. 22. nóvember 2004 og samþykki sumra meðeigenda ódags. fylgja erindinu.
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Umsókn nr. 30471 (01.18.401.1)
581198-2569 
Þ.G. verktakar ehf
Fossaleyni 16 112 Reykjavík 
4. Bergstaðastræti 20, niðurrif
Sótt er um leyfi til þess að rífa húsið á lóðinni nr. 20 við Bergstaðastræti. 
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 19. nóvember 2004 fylgir erindinu.
Stærð hússins er 163,8 ferm. og 743,1 rúmm.
Í húsinu eru tvær íbúðir (fastanr. 200-6831 og 200-6832, landnr. 102006)
Gjald kr. 5.400 
Frestað.
Með vísan til ákvæða í gr. 11.4 í byggingarreglugerð nr. 441/1998.
Deiliskipulagsvinnu verður lokið innan fárra vikna. Sjá athugasemdir á umsóknarblaði.
Umsókn nr. 29433 (01.18.441.4)
040761-2179 
Ingibjörg Tómasdóttir
Bergstaðastræti 27 101 Reykjavík 
211026-4729 
Vilborg Ásgeirsdóttir
Bergstaðastræti 27b 101 Reykjavík 
5. Bergstaðastræti 27, breyting inni og úti
Sótt er um leyfi til þess að sameina matshluta 01-03. Jafnframt er sótt um samþykki fyrir breytingum á innra fyrirkomulagi og þremur áður gerðum íbúðum (íb. 0101, 0201 og 0301) í húsinu á lóðinni nr. 27 við Bergstaðastræti.
Virðingargjörð dags. 26. nóvember 1946 fylgir erindinu.
Gjald kr. 5.400 
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Umsókn nr. 30098 (01.71.301.7)
070341-3369 
Gunnar Friðrik Magnússon
Blönduhlíð 25 105 Reykjavík 
6. Blönduhlíð 25, áður gerð íbúð, kvistir og svalir
Sótt er um leyfi fyrir áður gerði íbúð á þakhæð (3. hæð) hússins nr. 25 við Blönduhlíð. Jafnframt er sótt um leyfi til að gera nýjan kvist á norðurþak, stækka kvist og gera svalir á austurþak og stækka kvist á suðurþaki. Ennfremur að breyta innra fyrirkomulagi.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 29. október 2004 fylgir erindinu.
Erindinu fylgir afsal dags. 1. okt. 1959, fyrirspurn afgreidd 20. júlí 2004, skoðunarskýrsla byggingarfulltrúa dags. 6. júlí 2004, samþykki meðeigenda dags. 20. sept.  2004.
Stækkun: 9 ferm. og 16,4 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 5.400 + 885
Frestað.
Grenndarkynningu ólokið.
Umsókn nr. 30143 (01.23.010.1)
670274-0479 
Björninn ehf
Borgartúni 28 105 Reykjavík 
510169-0269 
Einar Farestveit og Co hf
Borgartúni 28 105 Reykjavík 
7. Borgartún 28, fjölgun eininga ofl.
Sótt er um leyfi til að breyta afmörkun eigna í matshluta 05 (framhús) á lóðinni nr. 28 við Borgartún. Jafnframt verði stiga milli kjallara og fyrstu hæðar í suðurhluta hússins lokað. Erindinu fylgir samþykki meðlóðarhafa dags. 15. sept. 2004.
Gjald kr. 5.400 + 5.400
Samþykkt. 
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Umsókn nr. 30540 (01.87.100.4)
690586-1509 
JARL ehf
Krókabyggð 3a 270 Mosfellsbær 
8. Bústaðavegur 130, breytt innra fyrirkomulag
Sótt er um leyfi til þess að breyta fyrirkomulagi og m.a. koma  fyrir djúpsteikingaraðstöðu á 1. hæð í söluturni (fyrrverandi biðskýli) á lóðinni nr. 130 við Bústaðaveg.
Ný skráningartafla fylgir erindinu.
Gjald kr. 5.400 
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Umsókn nr. 30526 (04.37.230.4)
280936-4569 
Tryggvi Kristjánsson
Deildarás 20 110 Reykjavík 
120759-4939 
Sverrir Tryggvason
Deildarás 20 110 Reykjavík 
9. Deildarás 20, breyting inni
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á fyrstu hæð hússins nr. 20 við Deildarás. M.a. hefur óuppfyllt sökklarými verið tekið í notkun og íbúð 0101 stækkuð.
Stækkun: 39,3 ferm. og 94,6 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 5.108
Samþykkt. 
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Umsókn nr. 30460 (01.11.050.4)
590269-1749 
Skeljungur hf
Hólmaslóð 8 101 Reykjavík 
651095-2559 
Sætoppur ehf
Eyjarslóð 7 101 Reykjavík 
10. Eyjarslóð 7, opnun yfir lóðarmörk
Sótt er um leyfi til að gera op í vegg á annrri hæð hússins 7 við Eyjarslóð og samnýta tímabundið hluta hæðarinnar (0203) með húsinu nr. 10 við Hólmaslóð. 
Sjá einnig erindi 30538.
Erindinu fylgir samþykki meðeigenda að Eyjarslóð 7 dags. 2. nóv. 2004.
Gjald kr. 5.400
Samþykkt. 
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Umsókn nr. 30445 (02.85.030.4)
240662-3969 
Ágúst Ómar Ágústsson
Fannafold 53 112 Reykjavík 
210964-5689 
Margrét Lára Pétursdóttir
Fannafold 53 112 Reykjavík 
121245-4939 
Halldór Kr. Valdín Gíslason
Fannafold 53 112 Reykjavík 
11. Fannafold 53, áður gerðar breytingar
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á húsinu nr. 53 við Fannafold. Breytingarnar varða stækkun íbúðar á neðri hæð innan sökkulrýmis og breytingu á bílskýli í tvöfaldan bílskúr. Jafnframt lögð fram útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 19. nóvember 2004.
Stækkun: Íbúð á neðri hæð, 84,6 ferm. og 228,4 rúmm.: Bílskúr, 38,8 ferm. og 103,5 rúmm.: Samtals 123,3 ferm. og 331,9 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 17.922
Samþykkt. 
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Umsókn nr. 30347 (01.24.360.6)
011254-2849 
Íris Guðjónsdóttir
Flókagata 3 105 Reykjavík 
12. Flókagata 3, skúr innréttaður
Sótt er um leyfi til þess að nýta geymsluskúr (matshl. 03) sem vinnustofu listamanns á lóðinni nr. 3 við Flókagötu.
Jafnframt er sótt um leyfi til þess að endureinangra skúrinn og koma fyrir salernisaðstöðu í honum.
Samþykki meðlóðarhafa dags. 2. og 5. október 2004 fylgir erindinu.
Gjald kr. 5.400 
Samþykkt. 
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Umsókn nr. 30464 (01.17.303.0)
121273-4469 
Högni Gunnarsson
Frakkastígur 7 101 Reykjavík 
310365-4409 
Indriði Björnsson
Lokastígur 6 101 Reykjavík 
13. Frakkastígur 7, mhl. 01 breyting inni og úti
Sótt er um leyfi til þess að fella niður stiga milli fyrstu og annarrar hæðar, byggja útitröppur úr timbri og koma fyrir sérinngangi að íbúð á annarri hæð og breyta innra fyrirkomulagi í matshluta 01 á lóðinni nr. 7 við Frakkastíg.
Jafnframt er sótt um leyfi til þess að byggja setlaug í suðurhorni lóðarinnar.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. nóvember 2004 fylgir erindinu.
Gjald kr. 5.400 
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Umsókn nr. 30150 (01.52.440.6)
280120-3329 
Margrét Sigurðardóttir
Grenimelur 39 107 Reykjavík 
14. Grenimelur 39, svalir ofl.
Sótt er um leyfi til þess að byggja svalir við suðvesturhlið 3. hæðar ásamt leyfi fyrir minniháttar breytingum á innra skipulagi íbúðar 3. hæðar fjölbýlishússins á lóð nr. 39 við Grenimel.
Erindið var grenndarkynnt frá 28. september til 26. október 2004. Engar athugasemdir bárust.
Samþykki meðeigenda dags. 13. september 2004 fylgir erindinu.
Gjald kr. 5.400 + 5.400
Frestað.
Lagfæra skráningu.
Umsókn nr. 30484 (01.17.313.5)
230259-5269 
Pálmi Einarsson
Grettisgata 29 101 Reykjavík 
260880-4039 
Anna Rut Pálmadóttir
Grettisgata 29 101 Reykjavík 
15. Grettisgata 29, mhl 02, kvistir, svalir
Sótt er um leyfi til þess að byggja svalir á suðvesturhlið og kvisti á suðvestur- og norðausturhlið matshluta 02 á lóðinni nr. 29 við Grettisgötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 19. nóvember 2004 fylgir erindinu.
Stærð: Stækkun kvistir 14,4 ferm. og 33,3 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 1.798 
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Umsókn nr. 30530 (01.14.000.5)
420187-1739 
Rökkur ehf
Vindási 4 110 Reykjavík 
16. Hafnarstræti  1-3, mhl 02, ýmsar breytingar á innra frkl o.fl.
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi á öllum hæðum veitingahúss í matshluta 02 (bakhús) á lóðinni nr. 1-3 við Hafnarstræti. M.a. verði veitingastarfsemi komið fyrir í kjallara, veitingastaðir verði tveir í stað eins og salarhæðum verði breytt. 
Erindinu fylgir kaupsamningur innfærður 12. okt. 2004, yfirlýsing vegna forkaupsréttar dags. 30. sept. 2004.
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Umsókn nr. 30537 (01.14.030.3)
540203-2530 
H-stræti 18 ehf
Hafnarstræti 18 101 Reykjavík 
17. Hafnarstræti 18, skilti, sóltjald
Sótt er um leyfi til þess að koma fyrir 3,2 fermetra skilti og 4,8m löngu sóltjaldi yfir inngangi á norðurhlið hússins nr. 18 við Hafnarstræti.
Gjald kr. 5.400 
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Umsókn nr. 29545 (01.81.521.2)
231145-3119 
Björn Ólafur Hallgrímsson
Sigluvogur 13 104 Reykjavík 
040144-4209 
Fanney Helgadóttir
Hraunbær 166 110 Reykjavík 
181256-5679 
Skarphéðinn Skarphéðinsson
Háagerði 23 108 Reykjavík 
18. Háagerði 23, stækkun kjallara
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðri stækkun kjallara í sökkulrými og áður gerðum kjallaratröppum við suðurhlið íbúðarhúss á lóð nr. 23 við Háagerði vegna gerðar eignaskiptayfirlýsingar.
Afsalsbréf (v. íbúðar 0201) dags. 24. nóvember 1967 fylgir erindinu. 
Stærð: Stækkun kjallari 7,9 ferm. og 18,2 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 983 
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Umsókn nr. 30538 (01.11.050.2)
590269-1749 
Skeljungur hf
Hólmaslóð 8 101 Reykjavík 
19. Hólmaslóð 10, opna yfir lóðarmörk
Sótt er um leyfi til að gera op í vegg á annrri hæð hússins nr. 10 við Hólmaslóð og samnýta tímabundið hluta annarrar hæðar (0203) hússins nr. 7 við Eyjaslóð. Jafnframt verði sett eldvarnarhurð í opið.
Sjá einnig erindi 30460.
Gjald kr. 5.400]
Samþykkt. 
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Umsókn nr. 30355 (01.81.801.3)
200765-4949 
Magnús Arnar Einarsson
Hólmgarður 9 108 Reykjavík 
20. Hólmgarður 9, anddyri
Sótt er um leyfi til þess að byggja anddyrisviðbyggingu að norðurhlið hússins á lóðinni nr. 9 við Hólmgarð.
Samþykki meðeiganda dags. 19. október 2004 og samþykki nágranna Hólmgarði 11 dags. 20. og 26. október 2004 fylgja erindinu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 29. október 2004 fylgir erindinu.
Stærð: Stækkun viðbygging: 6,2 ferm. og 19,0 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 1.026
Samþykkt. 
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Umsókn nr. 30522 (04.34.010.1)
450599-3529 
Fasteignafélagið Stoðir hf
Kringlunni 4-12 103 Reykjavík 
21. Hraunbær 121, viðbygging
Sótt er um leyfi til þess að byggja fordyri úr stáli og gleri framan við aðalinngang verslunar á lóð nr. 121 við Hraunbæ.
Stærð: Fordyri 53 ferm., 185 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 9.990
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Umsókn nr. 30549 (01.17.030.8)
030775-4309 
Ingibjörg Ágústa Grétarsdóttir
Ingólfsstræti 8 101 Reykjavík 
22. Ingólfsstræti 8, innr. testofu í versl.
Sótt er um leyfi til þess að innrétta litla testofu í verslun í viðbyggingu og kjallara á lóð nr. 8 við Ingólfsstræti.
Samþykki sumra meðeigenda dags. 6. maí 2004 fylgir erindinu.
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Umsókn nr. 29354 (01.44.400.4)
240362-4309 
Ægir Karl Kristmannsson
Karfavogur 50 104 Reykjavík 
23. Karfavogur 50, skýli við inngang og áður gerðar br. á innra frkl.
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðu skýli við inngang á austurgafli ásamt áður gerðum breytingum á innra fyrirkomulagi fjölbýlishússins nr. 50 við Karfavog.
Erindinu fylgir samþykki meðeigenda áritað á teikningar.
Stækkun vegna skýlis: 2,4 ferm. og 6,3 rúmm. (B-rými)
Gjald kr. 5.400 + 336
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Umsókn nr. 29721 (01.18.230.3)
490486-5269 
Kárastígur 9a,húsfélag
Kárastíg 9a 101 Reykjavík 
24. Kárastígur 9A, br. og áður gerðar svalir
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum svölum á suðausturhlið 2., 3. og 4. hæðar, áður gerðum breytingum á innra skipulagi þannig að ein íbúð er nú á hverrri hæð hússins eða samtals fjórar íbúðir ásamt áður gerðum breytingum á geymsluskúr á baklóð sem nú er skráður sem matshluti 02 í stað 70 áður á lóð nr. 9A við Kárastíg.
Samþykki meðeigenda dags. 21. júní 2004 og samþykki eigenda Kárastígs 11 dags. 21. júní 2004 fylgja erindinu.
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Umsókn nr. 30532 (04.13.220.1)
700189-2369 
Trésmiðja Snorra Hjaltason hf
Kirkjustétt 2-6 113 Reykjavík 
25. Kirkjustétt 2-6, kennslust., blómav. mhl. 03
Sótt er um samþykki fyrir smá breytingum á innréttingu veitingastaðar á 1. hæð húss nr. 4 (matshl. 02), leyfi til þess að setja upp gasgeymslu fyrir veitingastað við norðurhlið húss nr. 4, leyfi til þess að fjölga eignum úr fjórum í fimm í húsi nr. 6 (matshl. 03) og innrétta bráðabirgða kennslustofu fyrir myndmenntarkennslu Ingunnarskóla (0104) ásamt  blómabúð (0105) í þjónustubyggingu nr. 6 á lóð nr. 2-6 við Kirkjustétt.
Jafnframt er erindi 29753 dregið til baka.
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Umsókn nr. 30531 (04.13.220.1)
600269-2599 
Smáragarður ehf
Skemmuvegi 2a 200 Kópavogur 
700189-2369 
Trésmiðja Snorra Hjaltason hf
Kirkjustétt 2-6 113 Reykjavík 
26. Kirkjustétt 2-6, matvöruv. og lyfjav. matshl. 01
Sótt er um leyfi til þess að fækka eignum úr þremur í tvær og innrétta matvöruverslun (0101) ásamt lyfjaverslun (0102) í húsi nr. 2 (matshl. 01) á lóð nr. 2-6 við Kirkjustétt.
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Umsókn nr. 30524 (04.13.520.5)
211173-5999 
Guðmundur Gauti Reynisson
Kirkjustétt 28 113 Reykjavík 
27. Kirkjustétt 28, breytingar
Sótt er um leyfi til þess að breyta verönd og byggja gufubað undir verönd hússins á lóðinni nr. 28 við Kirkjustétt.
Jafnframt er sótt um leyfi til þess að breyta fyrirkomulagi á lóð og byggja geymsluskýli og tröppur austan hússins.
Samþykki nágranna Kirkjustétt 26 dags. 16. nóvember 2004 fylgir erindinu.
Stærð: Stækkun 18,8 ferm. og 49,8 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 2.689
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
Umsókn nr. 30539 (01.32.210.1)
600169-5139 
Hekla hf
Laugavegi 170-174 105 Reykjavík 
28. Klettagarðar 8-10, þjónustu og bifreiðaverkstæði
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra fyrirkomulagi matshluta 01 á lóðinni nr. 8-10 við Klettagarða.
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Umsókn nr. 30520 (04.34.280.1)
621194-2169 
H.Hauksson ehf
Vesturási 47 110 Reykjavík 
29. Klettháls 1, Klettháls 1A breyting inni og úti
Sótt er um leyfi til þess að koma fyrir millilofti og breyta innra fyrirkomulagi hússins nr. 1A á lóðinni nr. 1 við Klettháls.
Stærð: Stækkun milliloft xx ferm. 
Gjald kr. 5.400 
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Umsókn nr. 30281 (04.34.260.1)
670502-2950 
Þursaborg ehf
Dalhúsum 54 112 Reykjavík 
530398-2269 
Ís-hlutir ehf
Gylfaflöt 32 112 Reykjavík 
30. Klettháls 7, millil., girðing, skilti o.fl.
Sótt er um leyfi til þess að byggja millipall og breyta öðrum millipalli, breyta innra skipulagi, byggja opna geymslu á norðausturhorni lóðar, breyta aðkomu, setja upp 3 m háan skiltastand (skiltaflötur 2,3 ferm.) við aðkomu að lóð, breyta  bílastæðum og girða af lóðina með 1,8m hárri girðingu og hliði að götu við atvinnuhúsið á lóð nr. 7 við Klettháls.
Samþykki lóðarhafa Klettháls 5 og 9 dags. 18. október og 2. nóvember 2004, brunahönnun VSI endurskoðuð 15. nóvember 2004 og hönnunargögn vatnsúðakerfis dags. október 2004 fylgja erindinu.
Stærð: Stækkun vegna millipalla 138,7 ferm. Opin geymsla 153,6 ferm., 691,2 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 5.400 + 37.325
Samþykkt. 
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Skila skal vottun eininga fyrir úttekt á botnplötu.
Umsókn nr. 30315 (01.83.210.1)
151053-5489 
Páll Kristján Pálsson
Langagerði 40 108 Reykjavík 
31. Langagerði 40, garðhús
Sótt er um leyfi til að byggja garðhús úr timbri í norðvesturhorni lóðarinnar nr. 40 við Langagerði.
Stærð garðhúss: 30,6 ferm. og   80,3 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 4.336
Frestað.
Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdráttar nr. 1.01 dags. 22. október 2004.
Umsókn nr. 29350 (01.41.400.3)
611002-2890 
Langholtsvegur 115,húsfélag
Langholtsvegi 115 104 Reykjavík 
32. Langholtsvegur 115, samræmingarteikningar
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á innra fyrirkomulagi í húsinu nr. 115 við Langholtsveg vegna samræmingar.
Bréf f.h. húsfélags Langholtsvegar 115 dags. 18. maí 2004 og 16. nóvember 2004 og samþykki húseigenda áritað á teikningu  fylgja erindinu.
Gjald kr. 5.400
Samþykkt. 
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Umsókn nr. 30541 (01.25.000.1)
480102-2310 
Mænir  ehf
Hlíðasmára 15 201 Kópavogur 
33. Laugavegur 168, br. hluti 2. h (Hekla)
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi austasta hluta 2. hæðar, breyta útliti suðurhliðar 2. hæðar, fjölga keyrsludyrum á húsi nr. 170 að bílaplani og breyta bílastæðum á suðurhluta lóðar nr. 168 við Laugaveg.
Samþykki meðlóðarhafa dags. 16. nóvember 2004 (og á teikningu) ásamt samkomulagi um umferð  frá aðlægri lóð innfært 22. apríl 1996 fylgja erindinu.
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Umsókn nr. 30542 (01.25.020.1)
480102-2310 
Mænir  ehf
Hlíðasmára 15 201 Kópavogur 
34. Laugavegur 170-172, br. á 1. og 2. h nr. 170
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi verslunarhluta 1. hæðar húss nr. 170, breyta útlit 1. hæðar norðurhliðar og setja upp tvö 4,8 ferm. skilti á skyggni, breyta innra skipulagi núverandi varahlutalagers og hólfa frá hluta verkstæðis á 2. hæð með opnun að suðurhluta aðlægrar lóðar, fell niður stiga í lager 2. hæðar, byggja milliloft inn í verkstæðisrými 2. hæðar og breyta bílastæðum norðan við í húsi nr. 170 þannig að bílastæðum fjölgar um fimm bílastæði á lóð nr. 170-174 við Laugaveg.
Stærð: Milliloft 56,3 ferm.
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Umsókn nr. 30430 (01.17.221.6)
500392-2239 
Þráinn ehf
Laugavegi 34a 101 Reykjavík 
35. Laugavegur 34A, fjölbýlishús m 17 íbúðum
Sótt er um leyfi til að byggja atvinnuhúsnæði úr steinsteypu á allt að fjórum hæðum með sautján gistirýmum  á lóðinni nr. 34A við Laugaveg og 15 við Grettisgötu. Jafnframt er sótt um leyfi til að rífa íbúðarhús Grettisgötumegin á lóðinni. 
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 19. nóvember 2004 fylgir erindinu.
Niðurrif: 117,5 ferm. og 277 rúmm. 
Nýbyggingar: xx
Gjald kr. 5.400 + xx
Frestað.
Vísað til fyrri athugasemda á umsóknarblaði.
Umsókn nr. 30511 (01.18.320.4)
090577-5659 
Birta Björnsdóttir
Miðstræti 3 101 Reykjavík 
020474-3439 
Jón Páll Halldórsson
Miðstræti 3 101 Reykjavík 
070566-3709 
Hulda Ingvarsdóttir
Laugarásvegur 1 104 Reykjavík 
36. Miðstræti 3, reyndarteikningar
Sótt er um samþykki fyrir núverandi fyrirkomulagi hússins á lóðinni nr. 3 við Miðstræti.
Gerð er grein fyrir áður gerðri séreign ( eign 0001, ósamþ. íbúð) í kjallara hússins. Á teikningu er sýnt bílastæði sunnan hússin.
Afsal dags. 8. júlí 1988 fylgir erindinu.
Gjald kr. 5.400 
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Umsagnar um bílastæði er óskað frá skipulagsfulltrúa og verkfræðistofu.
Umsókn nr. 29493 (01.24.101.5)
220253-3419 
Hjörtur Hans Kolsöe
Mjölnisholt 10 105 Reykjavík 
37. Mjölnisholt 10, endurnýjun á klæðningu og gluggum
Sótt er um leyfi til að endurnýja glugga og klæðningu á geymsluskúr á lóðinni nr. 10 við Mjölnisholt. Á teikningum er m.a. gerð grein fyrir áður gerðri stækkun skúrsins.
Erindinu fylgir m.a. skýringabréf umsækjanda vegna áorðinna breytinga dags. 23. nóv. 2003. Jafnframt lagt fram minnisblað byggingarfulltrúa dags. 22. nóvember 2004 og umsögn borgarlögmanns dags. 3. nóvember 2004 og bréf meðlóðarhafa dags. 3. september 2004.
Stækkkun á áður gerðum geymsluskúr: 17,5 ferm. og 43,9 rúmm. 
Skúrinn verður 60,1 ferm., 159,6 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 2.370
Samþykkt. 
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Samþykktin er gerð með vísan til umsagnar borgarlögmanns og minnisblaðs byggingarfulltrúa.
Umsókn nr. 30525 (04.77.340.4)
040969-5439 
Guðjón Halldór Gunnarsson
Búagrund 9 116 Reykjavík 
38. Móvað 29, br. gluggar.
Sótt er um leyfi til þess að fjölga gluggum á suður- og austurhlið hússins á lóðinni nr. 29 við Móvað.
Jafnframt er erindi 29274 dregið til baka.
Leiðrétt skráningartafla fylgir erindinu, brúttóstærðir hússins breytast ekki.
Gjald kr. 5.400
Samþykkt. 
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Umsókn nr. 30463 (01.18.220.8)
310365-4409 
Indriði Björnsson
Lokastígur 6 101 Reykjavík 
39. Njálsgata 8C, v.eignaskiptasamnings
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðri stækkun kjallaraíbúðar í hluta stigarýmis og fyrir áður gerðum breytingum á innra skipulagi allra hæða  fjölbýlishússins vegna gerðar eignaskiptayfirlýsingar á lóð nr. 8C við Njálsgötu.
Samþykki meðeigenda dags. 12. nóvember 2004 (á teikningu) fylgir erindinu.
Gjald kr. 5.400
Samþykkt. 
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Umsókn nr. 28545 (01.44.531.1)
070864-4449 
Sigríður Valgeirsdóttir
Snekkjuvogur 13 104 Reykjavík 
290175-4299 
Bergþór Hermannsson
Nökkvavogur 37 104 Reykjavík 
300370-4979 
Gunnar Páll Jónsson
Nökkvavogur 37 104 Reykjavík 
40. Nökkvavogur 37, reyndarteikningar
Sótt er um samþykki fyrir núverandi fyrirkomulagi í húsi og bílskúr á lóðinni nr. 37 við Nökkvavog.
Gerð er grein fyrir áður gerðri íbúð í kjallara, áður gerðum kvisti á norðausturhlið og lítils háttar útlitsbreytingum.
Virðingargjörð dags. 15. febrúar 1950 fylgir erindinu.
Skoðunarskýrsla byggingarfulltrúa dags. 19. febrúar 2004 fylgir erindinu.
Stækkun: Kvistur 0,6 rúmm.
Gjald kr. 5.100 + 32 
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Umsókn nr. 30283 (04.12.640.5)
150767-5479 
Sveinn Arnarson
Gvendargeisli 40 113 Reykjavík 
41. Ólafsgeisli 103, einbýlish. m. innb. bílg.
Sótt er um leyfi til þess að byggja tvílyft steinsteypt einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu, einangrað að innan og steinað að utan, á lóð nr. 103 við Ólafsgeisla.
Stærð: Íbúð 1. hæð 106,5 ferm., 2. hæð 139,1 ferm., bílgeymsla 31,5 ferm., samtals 276,6 ferm., 865,2 rúmm. 
Gjald kr. 5.400 + 46.721
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Umsókn nr. 30151 (01.37.--9.9)
700169-3679 
Knattspyrnusamband Íslands
Engjavegi 6 104 Reykjavík 
42. Reykjavegur Laugard., skrifstofubygging - viðbótarstúka
Sótt er um leyfi til þess að byggja þriggja hæða steinsteypta skrifstofu- og ráðstefnubyggingu framan við Baldurshaga, byggja stúkur til hliðar við núverandi stúkur og endurbyggja þak eldri stúku. Frambyggingu, sem í verður aðkomusalur og skrifstofur KSÍ á að einangra að utan og klæða með leirflísum og stálklæðningu. Samtals verða um 10.000 stúkusæti eftir stækkun Þjóðarleikvangs Íslendinga á lóð við Reykjaveg í Laugardal.
Brunahönnun VST dags. nóvember 2004 og bréf hönnuðar dags. 28. september, 12. október, 2. og 16. nóvember 2004 og bréf borgarverkfræðings dags. 12. október 2004  fylgja  erindinu.
Stærð: Stækkun (matshluta 01) 3062,1 ferm., 15371,1  rúmm., rými undir stúku og viðbót við stúku (B-rúmi) samtals 3270,8 ferm., 29619,3 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 5.400 + 2.429.482
Samþykkt. 
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Óski umsækjandi eftir aðstöðu utan lóðarmarka vegna byggingarframkvæmda skal sótt um hana sérstaklega til byggingarfulltrúa. 
Umsókn nr. 30508 (01.28.610.1 03)
010257-2719 
Málfríður Vilbergsdóttir
Hríshóll 380 Króksfjarðarnes 
120156-4389 
Þráinn Hjálmarsson
Hríshóll 380 Króksfjarðarnes 
43. Safamýri 50, br inni og garðdyr
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi í íbúð 0001 í húsi nr. 50 á lóðinni nr. 46-50 við Safamýri. Jafnframt er sótt um leyfi til að setja garðdyr á vesturvegg stofu.
Gjald kr. 5.400
Samþykkt. 
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Umsókn nr. 29234 (01.13.010.5)
711297-2439 
Sjálfstætt fólk ehf
Seljavegi 2 101 Reykjavík 
44. Seljavegur 2, útlitsbreytingar norður hlið
Sótt er um leyfi til þess að breyta staðsetningu snyrtingar á 1. hæð, loka milli rýma á 1. hæð, breyta gluggum og dyrum á norðurhlið (að bílastæðum við Mýrargötu), breyta þakgluggum, bæta við millilofti í áður vinnustofu og breyta henni í íbúð í matshluta 04 á lóð nr. 2 við Seljaveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. ágúst 2004 fylgir erindinu. Samþykki meðeigenda fylgir á teikningu.
Stærð: Milliloft 187,7 ferm.
Gjald kr. 5.400 + 5.400
Samþykkt. 
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Umsókn nr. 30528 (01.36.431.0)
180424-3779 
Guðmunda Guðmundsdóttir
Sigtún 33 105 Reykjavík 
041048-2129 
Hugrún Guðríður Þórðardóttir
Sigtún 33 105 Reykjavík 
260270-3389 
Kolbrún Gísladóttir
Kambsvegur 1 104 Reykjavík 
45. Sigtún 33, reyndarteikningar
Sótt er um samþykki fyrir núverandi fyrirkomulagi í húsinu á lóðinni nr. 33 við Sigtún.
Gerð er grein fyrir áður gerðri íbúð á rishæð og  breyttu fyrirkomulagi íbúðar í kjallara.
Samþykki meðeigenda (vantar einn) dags. 6. ágúst 2004 fylgir erindinu.
Bréf hönnuðar dags. 6. ágúst 2004 fylgir erindinu.
Gjald kr. 5.400 
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Umsókn nr. 30535 (01.46.010.2)
590902-3730 
Eik fasteignafélag hf
Suðurlandsbraut 22 108 Reykjavík 
46. Skeifan 5, 0104 hjólbarðaverkstæði
Sótt er um leyfi til að koma fyrir hjólbarðaverkstæði í notaeiningu 0104 á lóðinni nr. 5 við Skeifuna. Jafnframt  verði eignaafmörkun milli 0104 og 0110 breytt, gert milligólf og geymslusvalir og komið fyrir tvennum innkeyrsludyrum.
Stækkun: xx ferm.
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Umsókn nr. 30536 (01.76.250.1 02)
551298-3029 
Orkuveita Reykjavíkur
Bæjarhálsi 1 110 Reykjavík 
47. Skógarhlíð Perlan, ný aksturshurð
Sótt er um leyfi til að gera nýjar innkeyrsludyr á lokahús Orkuveitu Reykjavíkur á lóð Perlunnar við Skógarhlíð.
Gjald kr. 5.400
Samþykkt. 
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Umsókn nr. 29145 (01.18.120.6)
280145-4249 
Lára Ingibjörg Ólafsdóttir
Skólavörðustígur 24 101 Reykjavík 
48. Skólavörðustígur 24, hækka og br.
Sótt er um leyfi til þess að byggja eina hæð úr timbri klæddu bárujárni ofan á húsið á lóðinni nr. 24 við Skólavörðustíg. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30.09.04. 
Málið var í kynningu frá 5. október til 2. nóvember 2004. Engar athugasemdir bárust.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 14. nóvember 2003 (v. fyrirspurnar) fylgir erindinu.
Samþykki nágranna Skólavörðustíg 22B og 24A, dags. 25. maí 2004 fylgir erindinu. Yfirlýsing burðarvirkishönnuðar dags. 10. september 2004 fylgir erindinu.
Stækkun: 55,0 ferm.og 165,3 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 8.926
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Umsókn nr. 29046 (01.17.111.4)
130648-2239 
Sverrir Agnarsson
Smiðjustígur 4 101 Reykjavík 
141177-5409 
Ómar Sverrisson
Smiðjustígur 4 101 Reykjavík 
49. Smiðjustígur 4, ofanábygging
Sótt er um leyfi til þess að byggja hæð og ris ofan á húsið á lóðinni nr. 4 við Smiðjustíg. 
Fjórða hæð (áður ris) og ný rishæð yrði ein íbúð, geymslur og sameiginlegt þvottahús.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. júlí 2003 (v. fyrirspurnar) fylgir erindinu. 
Samþykki meðeigenda dags. 18. febrúar 2004 fylgir erindinu.
Samþykki nágranna Laugavegi 13 og Smiðjustíg 6 fylgir erindinu.
Jafnframt lögð fram útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. apríl 2004 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. apríl 2004.
Stærð: Stækkun 108,9 ferm. og 232,6 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 12.560
Frestað.
Lagfæra gögn m.t.t. skráningar.
Umsókn nr. 30256 (01.83.100.1)
610269-5599 
Sparisjóður Hafnarfjarðar
Strandgötu 8-10 220 Hafnarfjörður 
50. Sogavegur 164, endurnýjað byggingarleyfi frá 12.11.2002
Sótt er um endurnýjun á byggingarleyfi frá 12. nóv. 2002, þar sem sótt var um "leyfi  til þess að byggja léttbyggt anddyri við norðurhlið og steinsteypta bílgeymslu við vesturhlið ásamt stækkun íbúðar ofan á bílgeymslu á lóð nr. 164 við Sogaveg."
Samþykki nágranna dags. 6. nóv. 2004  ásamt umsögn Borgarskipulags dags. 23. apríl 2001 sem fylgdi erindinu þegar það var samþykkt upphaflega. Málið var í kynningu frá 14. ágúst til 12. september, framlengd til 15. sept. 2001. 
Stærð: Viðbygging íbúð 31,2 ferm., bílgeymsla 24,8 ferm., samtals 59,8 ferm., 121,7 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 6.555
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
Umsókn nr. 30544 (02.53.610.1)
460503-3290 
Sóleyjarrimi ehf
Grensásvegi 13 108 Reykjavík 
51. Sóleyjarimi 1-23, nr. 1-7  merkja bílastæði
Sótt er um leyfi til þess að eignarmerkja bílastæði í opinni bílageymslu (matshl. 05) norðan við fjölbýlishúsin nr. 1-7 á lóð nr. 1-23 við Sóleyjarima.
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Samræma skráningu að umsókn.
Umsókn nr. 30185 (02.38.400.2)
020265-4859 
Ingi Pétur Ingimundarson
Mosarimi 6 112 Reykjavík 
52. Starengi 6, námsmannaíbúðir
Sótt er um leyfi til þess að byggja tvö einnar hæðar hús (matshl. 01 og 02) úr forsteyptum einingum með samtals sex námsmannaíbúðum á lóðinni nr. 6 við Starengi.
Íbúðirnar eru ætlaðar til útleigu og sama eignarhald er á öllum íbúðum matshluta 01 og 02.
Stærð: Matshl. 01: 1. hæð 129,5 ferm. og 426,7 rúmm.
Matshl. 02; 1. hæð 149,0 ferm. og 491,5 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 5.400 + 49.583 
Frestað.
Lagfæra skráningu.
Umsókn nr. 30444 (01.80.400.3)
130655-3359 
Guðrún Ingibjörg Ólafsdóttir
Stóragerði 23 108 Reykjavík 
250946-4499 
Birgir Vilhelmsson
Stóragerði 23 108 Reykjavík 
100669-4989 
Sigrún Björnsdóttir
Stóragerði 23 108 Reykjavík 
53. Stóragerði 23, áður gerðar breytingar
Sótt er um leyfi til að breyta og stækka íbúð á fyrstu hæð hússins nr. 23 við Stóragerði á kostnað annarra íbúða í húsinu. Jafnframt er sótt um leyfi til að gera viðbótarbílastæði þannig þau verði þrjú á lóðinni. Ennfremur er sótt um breytingu á skráningu þannig að áður skráður kjallari verði fyrsta hæð.
Stækkun: 
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa og verkfræðistofu hvað varðar staðsetningu þriðja bílastæðisins á lóðinni.
Umsókn nr. 30533 (00.00.000.0)
561297-2079 
Íslandspóstur hf,fasteign/bifrd
Stórhöfða 29 110 Reykjavík 
54. Stórhöfði 29, mötuneyti á 1 hæð
Sótt er um leyfi til að koma fyrir mötuneyti með eldhúsi á fyrstu hæð hússins nr. 29 á lóðinni nr. 29-31 við Stórhöfða.
Erindinu fylgir samþykki húseiganda ódags. og bréf hönnuða dags. 16. nóv. 2004.
Gjald kr. 5.400
Samþykkt. 
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
Umsókn nr. 30404 (01.14.230.2)
610601-2350 
Meiður ehf
Suðurlandsbraut 4 108 Reykjavík 
55. Tjarnargata 35, breyting inni
Sótt er um leyfi til þess að innrétta skrifstofuhúsnæði í húsinu á lóðinni nr. 35 við Tjarnargötu.
Ný skráningartafla fylgir erindinu.
Gjald kr. 5.400 
Frestað.
Vantar umsagnar Árbæjarsafns og Húsafriðunarnefndar ríkisins með málinu.
Umsókn nr. 29720 (01.17.200.7 02)
430304-2750 
Slétt ehf
Laugavegi 42 101 Reykjavík 
56. Vatnsstígur 3, mhl. 02 íbúðir, ofanábygging, svalir
Sótt er um leyfi til þess að byggja hæð (4. hæð) með tveimur íbúðum úr timbri klæddu ólituðu áli ofan á húsið nr.3 (matshl. 02) við Vatnsstíg á lóðinni Laugavegur 31-Vatnsstígur 3
Eftir breytinguna verður atvinnustarfsemi á fyrstu hæð og sjö íbúðir á efri hæðum í húsinu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 23. janúar 2004 (v.fyrirspurnar), umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. janúar 2004 (v.fyrirspurnar) og útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. júlí 2004 fylgja erindinu. 
Umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 6. ágúst 2004 fylgir erindinu.
Samþykki meðeigenda og meðlóðarhafa dags. 1. nóvember 2004 fylgir erindinu.
Stærð: Stækkun ofanábygging (4. hæð) 154,2 ferm. og 503,1 rúmm.
Gjald kr. 5.400 + 27.167 
Samþykkt. 
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Umsókn nr. 30455 (01.13.600.5)
650701-2080 
Hraunbær 107 ehf
Tangarhöfða 6 110 Reykjavík 
020367-3699 
Jón Hafnfjörð Ævarsson
Vesturgata 21 101 Reykjavík 
57. Vesturgata 21, mhl. 03 og 04 - samt.6 íbúðir
Sótt er um leyfi til þess að byggja matshluta 03 og 04, eða alls sex íbúðir á lóðinni nr. 21 við Vesturgötu.
Matshluti 03 er steinsteypt tveggja hæða tvíbýlishús einangrað utan og klætt múrhúð.
Matshluti 04 er steinsteypt fjögurra hæða fjölbýlishús með fjórum íbúðum einangrað utan og klætt múrhúð.
Með erindinu fylgir yfirlýsing eigenda matshl. 01 dags. 20. október 2004 varðandi sameiningu tveggja eignarhluta í eina íbúð áður en lokaúttekt fer fram.
Stærð: Matshl. 03: xx. Matshl. 04: xx.
Gjald kr. 5.400 + xx
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði. Samkvæmt deiliskipulagi skulu vera mest níu íbúðir á lóðinni og skal umsækjandi uppfylla þau skilyrði fyrir samþykkt málsins.
Umsókn nr. 30517 (04.60.420.3 01)
240448-4919 
Steinar Karlsson
Víkurbakki 22 109 Reykjavík 
58. Víkurbakki 22, klæðning á gafli
Sótt er um leyfi til að einangra og klæða norðurgafl raðhúss nr. 22 á lóðinni nr. 22-30 við Víkurbakka. Í klæðningu verði notuð slétt "Steniklæðning" í sama lit og fyrir er á húsinu.
Erindinu fylgir bréf hönnuðar ódags., samþykki nágranna að nr. 20 við Víkurbakka og samþykki eigenda nr. 24. 
Gjald kr. 5.400
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Umsókn nr. 30545 (04.13.570.5)
151268-3669 
Vilborg Þ Sigurðardóttir
Svíþjóð   
160177-4979 
Thomas Már Gregers
Ránargata 19 101 Reykjavík 
180780-3279 
Áslaug Ína Kristinsdóttir
Ránargata 19 101 Reykjavík 
59. Þorláksgeisli 78-80, br. og stækk. nr. 78 og 80
Sótt er um leyfi til þess að stækka neðri hæð og breyta þar fyrirkomulagi þvottaherbergja og geymsla. 
Á efri hæð er stærð bílgeymslu breytt í húsi nr. 78 og snyrting stækkuð í húsi nr. 80 í parhúsinu á lóðinni nr. 78-80 við Þorláksgeisla.
Stærð: Stækkun, viðbygging 1. h. 
Þorláksgeisli 78 (matshl. 01) 8,9 ferm., 43,1 rúmm.
Þorláksgeisli 80 (matshl. 02) 8,7 ferm., 42,8 rúmm.
Ath. stærðarbreyting húss nr. 78 vegna bílgeymslu og viðbyggingar: 
Íbúð var 146,9 ferm., bílgeymsla var 29,7 ferm. íbúð verður 160,4 ferm. og bílgeymsla verður 25,1 ferm.
Gjald kr. 5.400 + 4.639 
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Umsókn nr. 30529 (00.00.000.0 07)
601192-2179 
E.Gullborg ehf
Köldulind 8 201 Kópavogur 
560589-1159 
Gissur og Pálmi ehf
Staðarseli 6 109 Reykjavík 
60. Þönglabakki 6, breytingar
Sótt er um leyfi til þess að innrétta skyndibitastað í rými 0106 á fyrstu hæð hússins nr. 6 við Þönglabakka á lóðinni nr.12-16 við Álfabakka og nr. 1 og 6 við Þönglabakka. 
Gjald kr. 5.400 
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Umsókn nr. 30556 (01.55.420.9)
61. Fálkagata 1, Leiðrétting
Hinn 28. september 2004 var samþykkt byggingarleyfisumsókn frá Einari Sveinbjörnssyni þar sem sótt var um leyfi fyrir núverandi fyrirkomulagi í húsinu og áður gerðri íbúð í rishæð.
Þá var bókað greiða skal fyrir eitt bílastæði í flokki 3, kr. 1.163.957.
Með vísan til aldurs íbúðarinnar skal ekki greiða bílastæðagjald sem leiðréttist hér með.
Samþykkt. 
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Umsókn nr. 30552
090544-4039 
Jóhannes Jónsson
Búagrund 12a 116 Reykjavík 
62. Húsasmíðameistari, staðbundin réttindi
Ofanritaður sækir um staðbundin réttindi sem húsasmíðameistari í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur sbr. ákvæði gr. 37.2 í byggingarreglugerð nr. 441/1998.
Samþykkt. 
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Umsókn nr. 30564 (01.13.200.9)
63. Nýlendugata Hlíðarh., Tölusetning
Byggingarfulltrúi leggur til að timburhús sem kennt hefur verið við Hlíðarhús verði tölusett sem Nýlendugata 9.
Landnúmer 100199, fastanr. 200-0478, mh. 01.
Samþykkt. 
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Umsókn nr. 30547 (02.84.881.1)
230657-4409 
Ólafur Bergmann Svavarsson
Suðurhús 11 112 Reykjavík 
64. Suðurhús 11, leiðrétting
Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 17. nóvember 2004 var samþykkt stækkun íbúðar 2. hæðar í áður sökkulrými með hrigstiga milli hæða ásamt leyfi fyrir glugga að umsóttu rými á vesturhlið 1. hæðar íbúðarhússins á lóð nr. 11 við Suðurhús. Ekki átti að vera í texta "ásamt glugga að umsóttu rými á vesturhlið 1. hæðar" þar sem rými er gluggalaust.
Samþykkt. 
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Umsókn nr. 30553 (04.13.560.1)
65. Þorláksgeisli 82-86, Leiðrétting á aðskildu byggingarleyfi
Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 16. nóvember s.l., var samþykkt umsókn Berglindar Þ. Gunnarsdóttur þar sem sótt var um aðskilið byggingarleyfi vegna byggingarstjóraskipta fyrir hús nr. 84 við Þorláksgeisla. 
Bókunni átti að vera að sótt væri um aðskilið byggingarleyfi vegna meistaraskipta á húsinu nr. 84 við Þorláksgeisla.
Samþykkt. 
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Umsókn nr. 30546 (02.42.110.7)
020361-4929 
Kristmundur Eggertsson
Bakkastaðir 53 112 Reykjavík 
66. Bakkastaðir 53, (fsp) viðbyging
Spurt er hvort leyft yrði að byggja við miðhluta hússins nr. 53 við Bakkastaði til norðvesturs í líkingu við meðfylgjandi skissur.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
Umsókn nr. 30512 (32.47.440.9)
180273-6039 
Marta Guðrún Guðmannsdóttir
Búagrund 12 116 Reykjavík 
67. Búagrund 12, (fsp) bílskúrar
Spurt er hvort leyft yrði að byggja tvo bílskúra á lóðinni nr. 12 við Búagrund sbr. meðfylgjandi uppdrátt.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
Umsókn nr. 30527 (01.24.360.7)
500392-2239 
Þráinn ehf
Laugavegi 34a 101 Reykjavík 
68. Flókagata 5, (fsp) breyta þaki o.fl
Spurt er hvort leyft yrði að breyta þaki hússins nr. 5 við Flókagötu í samræmi við meðfylgjandi teikningar. 
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
Umsókn nr. 30551 (01.44.410.1 01)
140166-3089 
Sveinn Svanur Antonsson
Bjartahlíð 8 270 Mosfellsbær 
69. Gnoðarvogur 44, (fsp) stækkun, svalir
Spurt er hvort leyft yrði að stækka íbúð 0201 og gera nýjar svalir á suðvesturvegg húss nr. 44 á lóðinni nr. 44-46 við Gnoðarvog.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
Umsókn nr. 30567 (01.19.101.2)
061271-4819 
Arnar Freyr Halldórsson
Bólstaðarhlíð 7 105 Reykjavík 
70. Grettisgata 86, fsp- br. atvinnuhúsn. í íbúð
Spurt er hvort leyft yrði að breyta atvinnuhúsnæði í íbúð á fyrstu hæð hússins nr. 86 við Grettisgötu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
Umsókn nr. 30510 (04.37.331.3)
140430-3829 
Eiríkur Gíslason
Staður 500 Brú 
71. Heiðarás 24, (fsp) áðurgerð íbúð í kjallara
Spurt er hvort samþykki fengist fyrir áður gerðri íbúð á fyrstu hæð hússins á lóðinni nr. 24 við Heiðarás. Verði íbúðin samþykkt þá verða alls þrjár íbúðir í húsinu.
Frestað.
Vísað til athugasemda á fyrirspurnarblaði. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
Umsókn nr. 30554 (01.13.921.0)
010373-5739 
Sylvía Hilmarsdóttir
Hringbraut 92 107 Reykjavík 
72. Hringbraut 92, Flóttapallur við 1. hæð
Spurt er hvort leyft yrði að setja upp flóttapall með tröppum niður í garð undir stofuglugga 1. hæðar tvíbýlishússins á lóð nr 92 við Hringbraut.
Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum enda verði sótt um byggingarleyfi sem fylgi samþykki meðeigenda.
Umsókn nr. 30543 (01.17.210.3)
300169-5549 
Sigurbjörn Ingvarsson
Danmörk   
73. Hverfisgata 56, (fsp) íbúð 2. hæð
Spurt er hvor leyft yrði að gera íbúð á annarri hæð hússins nr. 56 við Hverfisgötu í stað atvinnuhúsnæðis.
Nei.
Þær hugmyndir sem fram koma í framlögðum gögnum uppfylla ekki ákvæði byggingarreglugerðar.
Umsókn nr. 30559 (01.35.260.4)
291044-2639 
Albert Ríkarðsson
Kambsvegur 6 104 Reykjavík 
74. Kambsvegur 6, (fsp) fönduraðstaða
Spurt er hvort leyft yrði að byggja aftan við bílskúr um 20 ferm. viðbyggingu fyrir fönduraðstöðu eða sjálfstætt lítið hús í líkingu við íbúðarhúsið á suðausturhorni lóðar nr. 6 við Kambsveg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
Umsókn nr. 30480 (01.35.720.2)
100455-2509 
Júlíus Baldvin Helgason
Langholtsvegur 67 104 Reykjavík 
100455-2509 
Júlíus Baldvin Helgason
Langholtsvegur 67 104 Reykjavík 
75. 0">Langholtsvegur 67, (fsp) ofanábygging
Spurt er hvort leyft yrði að byggja rishæð ofan á einbýlishúsið á lóðinni nr. 67 við Langholtsveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 19. nóvember 2004 fylgir erindinu.
Jákvætt.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa. Ekki verður unnt að fjalla um byggingarleyfisumsókn fyrr en að aflokinni deiliskipulagsbreytingu sem nú er unnið að.
Umsókn nr. 30441 (01.24.314.0)
120449-3119 
Gunnar H Þórarinsson
Stuðlasel 46 109 Reykjavík 
76. Mánagata 20, (fsp) áðu gerð íb. í kj.
Spurt er hvort samþykkt yrði áður gerð kjallaraíbúð eftir að búið er að lækka jarðveg að suðurhlið og innrétta baðherbergi í hluta sameiginlegs þvottaherbergis ef gluggi svefnherbergis yrði síkkaður og geymsla stækkuð í kjallara í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 20 við Mánagötu.
Virðingargjörð dags. 1. maí 1942 og íbúðarskoðun byggingarfulltrúa dags. 6. október 2004 fylgja erindinu.
Nei.
Hér er um ósamþykkjanlega íbúð að ræða. 
Umsókn nr. 30519 (01.41.420.9)
210261-5169 
Páll Pálsson
Sigluvogur 5 104 Reykjavík 
77. Sigluvogur 5, (fsp) viðbygging á bílskúr
Spurt er hvort samþykki fengist fyrir áður gerðri viðbyggingu við bílskúr á lóðinni nr. 5 við Sigluvog.
Samþykki eins eigenda húss nr. 7 dags. 17. nóvember 2004 fylgir erindinu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
Umsókn nr. 30550 (01.45.411.1)
071160-5649 
Sólrún Jónsdóttir
Súðarvogur 36 104 Reykjavík 
021159-3449 
Ingrid Herdís Jónsdóttir
Súðarvogur 36 104 Reykjavík 
78. Súðarvogur 32, (fsp) breyta í íbúð og vinnustofu
Spurt er hvort leyft yrði að breyta notkun þriðju hæaðar hússins nr. 32 við Súðarvog úr atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði og vinnustofu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
Umsókn nr. 30560 (04.76.430.1)
110371-5869 
Guðmundur Baldvinsson
Austurberg 8 111 Reykjavík 
79. Vatnsveituv. Fákur 112470, (fsp) ofanábygg. hesthús
Spurt er hvort leyft yrði að byggja ofanábyggingu á  hesthúsið Faxaból 3d ásamt svölum við gafl í líkingu við fyrirliggjandi teikningu á lóð Fáks við Vatnsveituveg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
Umsókn nr. 30509 (01.78.230.2)
630269-0759 
Styrktarfélag vangefinna
Skipholti 50c 105 Reykjavík 
80. Víðihlíð  5-11, (fsp) nr 9-11 tímab.búseta í föndurh.
Spurt er hvort leyft yrði að breyta núverandi föndurherbergi í bílskúr við húsið nr. 9-11 tímabundið í íbúð tengda sambýlinu á lóð nr. 5-11 við Víðihlíð.
Bréf Styrktarfélags vangefinna dags. 9. nóvember 2004 og bréf hönnuðar dags. 11. nóvember 2004 fylgja erindinu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.
Umsókn nr. 29650 (01.24.101.9)
510593-2279 
Þverholt 5,húsfélag
Þverholti 5 105 Reykjavík 
81. Þverholt 5, (fsp) breyting inni
Spurt er hvort leyft yrði að stækka tvennar svalir á 4. hæð, byggja svalir á 3. hæð, síkka glugga á tveim stöðum á austurhlið 2. hæðar fyrir franskar svalir, loka undirgangi fyrir sameiginlega hjól- og vagnageymslu fyrir Þverholt 5 og 7, loka áður stigahúsi frá Þverholti og hvort samþykktar yrðu breytingar á innra skipulagi 1.- 3. hæðar í líkingu við fyrirliggjandi uppdrætti fjöleignarhússins á lóð nr. 5 við Þverholt.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 17. september 2004 fylgir erindinu.
Frestað.
Vísað til athugasemda á fyrirspurnarblaði.