Austurbrún 12, Austurstræti 10a, Breiðavík 18, Breiðavík 27-29, Breiðavík 49-57, Breiðhöfði 11, Faxafen 8-14 - skeifan 11-19, Fellsmúli 24 - 26, Gnoðarvogur 52, Grandagarður faxi, Hverfisgata 54, Hverfisgata 55, Jórusel 13, Kirkjustræti 6 og 10, Klapparstígur 35, Kleifarvegur 9, Klettagarðar 5, Langirimi 21-23, Laugarnesvegur 89, Lindargata 2, Lágmúli 5, Lækjargata 6b, Lækjargata 8, Malarhöfði 6, Meistaravellir 15-17, Mosarimi 26-30, Mávahlíð 19, Neshagi 1 - kirkja, Nesvegur 80, Njálsgata 37, Njálsgata 55, Nóatún 4, Skútuvogur 6, Smárarimi 42, Sogavegur 198, Starengi 62, Starengi 90, Vatnsveituvegur fákur, Vesturgata 2, Ármúli 40, Ægisgarður 5-7, Afgreiðsluf. byggingarfulltrúa, Gullengi 21-27, Hafnarstræti 23, Heiðargerði 78, Hólmsheiði fjáreigfél, Húsvernd í reykjavík, Leirubakki 34-36, Rafstöðvarvegur 23 Árhvammur, Sogavegur 218, Staðarhverfi staðgreinir 2.4, Hlíðargerði 25, Kringlan 4-6, Melgerði 24, Reykjafold 3, Starmýri 2, Suðurlandsbraut 28, Vitastígur 10, Vættaborgir 112-124,

BYGGINGARNEFND

3400. fundur 1996

Árið 1996, fimmtudaginn 9. maí, kl. 11.00 fyrir hádegi, hélt byggingarnefnd Reykjavíkur 3400. fund sinn. Fundurinn var haldin í fundarsalnum 4. hæð Borgartúni 3. Fundinn sátu: Gunnar L. Gissurarson, Helgi Hjálmarsson, Steinunn V. Óskarsdóttir, Hilmar Guðlaugsson og Þórunn Pálsdóttir. Einnig sátu fundinn: Magnús Sædal Svavarsson, Þormóður Sveinsson, Ólafur Ó. Axelsson, Ívar Eysteinsson, Gunnar Ólason, Ágúst Jónsson og Sigríður K. Þórisdóttir. Fundarritari var Bjarni Þór Jónsson.
Þetta gerðist:


Umsókn nr. 11915 (01.01.381.603)
Austurbrún 12,
St. á bílskúr og anddyri.
Sótt er um leyfi til að byggja við úr steinsteypu og
timbri (stækka bílskúr og anddyri) og breyta innra skipulagi
hússins á lóðinni nr. 12 við Austurbrún.
Stærð: 1. hæð 10,9 ferm., 30 rúmm. Bílgeymsla 14,1 ferm., 38
rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 1.485.oo.
Meðfylgjandi eru bréf borgarskipulags dags. 11.04.1995 og
22.04.1996 og samþykki nágranna ódagsett.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.
Helgi Hjálmarsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.


Umsókn nr. 11825 (01.01.140.406)
Austurstræti 10a,
Innrétta 2 íbúðir
Sótt er um leyfi til að innrétta tvær íbúðir á 2. hæð í húsinu á
lóðinni nr. 10A við Austurstræti.
Gjald kr. 2.250.oo.

Frestað.
Gera grein fyrir hljóðvist. Gera grein fyrir eignarhaldi.
Vindfang vantar vegna íbúðar 0202.
Þormóður Sveinsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.


Umsókn nr. 11932 (01.02.355.302)
Breiðavík 18,
Fjölbýlishús
Sótt er um leyfi til að byggja fjölbýlishús úr steinsteypu með
fjörutíu íbúðum á lóðinni nr. 14 - 18 við Breiðuvík.
Stærð: kjallari 380,7 ferm., 1. hæð 468,5 ferm., 2. hæð 461
ferm., 3. hæð 461 ferm., 4. hæð 461 ferm., 5. hæð 461 ferm., 6.
hæð 461 ferm., 9866,3 rúmm. Gjald kr. 2.250.oo + 221.985.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 11857 (01.02.354.201)
Breiðavík 27-29,
Fjölbýlishús
Sótt er um leyfi til að byggja fjölbýlishús úr steinsteypu með
ellefu íbúðum á lóðinni nr. 27-29 við Breiðuvík.
Stærð: 1. hæð 307,2 ferm., 2. hæð 365,1 ferm., 3. hæð 365,1
ferm., 3190 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 71.775.oo.

Frestað.
Vantar vindfang í íbúðir. Lagfæra stigahús og palla framan við
innganga.
Þórunn Pálsdóttir mætti á fundinn kl. 11.12.


Umsókn nr. 11863 (01.02.354.102)
Breiðavík 49-57,
Byggja raðhús
Sótt er um leyfi til að byggja raðhús úr steinsteypu með fimm
búðum á lóðinni nr. 49-57 við Breiðuvík.
Stærð: 1. hæð 5x152,2 ferm., samtals 761 ferm., 2641 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 59.423.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 11851 (01.04.028.401)
Breiðhöfði 11,
Fyrirkomulagsbreyting og bruna
Sótt er um að fá samþykkta brunavarnaruppdrætti og breyttar
innréttingar í húsinu á lóðinni nr. 11 við Breiðhöfða.
Gjald kr. 2.250.oo.
Meðfylgjandi er greinargerð Jóns B. Stefánssonar fh. Ísaga hf, um
brunatæknileg málefni dags. 29.03.1996.

Samþykkt.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra.


Umsókn nr. 11856 (01.01.462.001)
Faxafen 8-14 - skeifan 11-19,
Hringstigi
Sótt er um leyfi til að byggja hringstiga skv. kröfum
eldvarnareftirlits í húsinu á lóðinni nr. 15 við Skeifuna.
Gjald kr. 2.250.oo.

Frestað.
Gera skal grein fyrir stærð stiga og rúmmáli. Greiða ber fyrir
eitt bílastæði í fl. IV kr. 832.230 (byggvísit. 208.9).
Ágúst Jónsson mætti á fundinn kl. 11.20.


Umsókn nr. 11907 (01.01.297.101)
Fellsmúli 24 - 26,
Gluggar á gafl
Sótt er um leyfi til að setja glugga á austurgafl hússins á
lóðinn nr. 24 við Fellsmúla.
Gjald kr. 2.250.oo.
Jafnframt lagt fram myndbréf Úlfars Aðalsteinssonar verkfræðings
dags. 18.04.96.

Frestað.
Vísað til bókunar byggingarfulltrúa:
Á grundvelli upplýsinga, sem lagðar voru fram á fundi
byggingarnefndar þann 30.03 1995, þegar fjallað var um erindi
Þreks hf. um leyfi til að innrétta líkamsræktarstöð í húsinu á
lóðinni nr. 24-26 við Fellsmúla, er ljóst að umsækjandi upplýsti
ekki um þá auknu fermetra sem urðu til við þá framkvæmd og brást
þar með upplýsingaskyldu sinni sbr. III. kafla
byggingarreglugerðar nr. 177/1992 greinar 3.1. og 3.2.
Í ljósi þessa er þess krafist að umsækjandi leggi fram
heildaruppdrátt ásamt útreikningum af bílastæðaþörf á lóð og
samþykki allra meðlóðarhafa.
Jafnframt er vísað til athugasemda, sem fram komu við lokaúttekt
þann 24.01.1996.


Umsókn nr. 11916 (01.01.444.104)
Gnoðarvogur 52,
Sólstofa
Sótt er um leyfi til að byggja sólstofu á 3. hæð hússins á
lóðinni nr. 52 við Gnoðarvog.
Stærð: 3. hæð 15 ferm., 39 rúmm. Gjald kr. 2.250.oo + 878.oo.
Samþykki meðeigenda dags. 25.03.1996 fylgir erindinu.
Meðfylgjandi er bréf Sigurðar Halldórssonar ódagsett.

Frestað.
Gera grein fyrir klæðningu á svalarhandriði.


Umsókn nr. 11925 (01.01.112.-99)
Grandagarður faxi,
Verksmiðjuhús
Sótt er um leyfi til að byggja verksmiðjuhús við Norðurbugt.
Stærð: 1. hæð 680,3 ferm., 8343 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 187.718.oo.
Jafnframt lögð fram bréf Heilbrigðiseftirlitsins dags. 3. maí
1996, bréf Vinnueftirlits ríkisins dags. 24. apríl 1996 og bréf
frá Reykjavíkurhöfn dags. 8. maí 1996.

Samþykkt.
Með vísan til bréfa Heilbrigðiseftirlitsins, Vinnueftirlits
ríkisins og Reykjavíkurhafnar.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra. Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.


Umsókn nr. 11892 (01.01.172.102)
Hverfisgata 54,
Br. innréttingu
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingum á 1. og 2. hæð úr
timbri og gleri í húsinu á lóðinni nr. 56 við Hverfisgötu.
Gjald kr. 2.250.oo.

Samþykkt.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 11909 (01.01.152.519)
Hverfisgata 55,
Breyta rishæð
Sótt er um leyfi til að breyta rishæð og stækka stigahús úr
timbri í húsinu á lóðinni nr. 55 við Hverfisgötu.
Stærð: 2. hæð 8,4 ferm., 39 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 878.oo.
Umsögn Árbæjarsafns dags. 03.04.96 fylgir erindinu.

Samþykkt.


Umsókn nr. 11839 (01.04.995.402)
Jórusel 13,
Sólstofa
Sótt er um leyfi til að byggja garðskála úr steinsteypu og gleri
við húsið á lóðinni nr. 13 við Jórusel.
Stærð: garðskáli 15 ferm., 55 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 2.475.oo.
Meðfylgjandi er samþykki eigenda Jórusels 11, 15, 21 og 23.

Frestað.
Vísað til skipulagsnefndar.


Umsókn nr. 11912 (01.01.141.102)
Kirkjustræti 6 og 10,
Br. á tengibyggingu.
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktum teikningum af
húsinu á lóðinni nr. 6, 10 og 10A við Kirkjustræti.
Stækkun: kjallari og tengibygging 3,5 ferm., 9 rúmm. Hús nr. 10
stækkar um 13 rúmm vegna lækkunar gólfs í kjallara.
Gjald kr. 2.250.oo.
Meðfylgjandi er bréf dags. 09.04.96.

Samþykkt.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra.


Umsókn nr. 11829 (01.01.172.237)
Klapparstígur 35,
setja op milli íbúða
Sótt er um leyfi til að gera op á milli íbúða í húsinu á lóðinni
nr. 35 við Klapparstíg.
Gjald kr. 2.250.oo.

Frestað.
Umsókn ekki í samræmi við teikningar.


Umsókn nr. 11938 (01.01.380.214)
Kleifarvegur 9,
Bílskúr
Sótt er um leyfi til að byggja bílgeymslu úr steinsteypu á
lóðinni nr. 9 við Kleifarveg.
Stærð: Bílgeymsla 34,4 ferm., 97 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 2.183.oo.
Erindið var kynnt nágrönnum með bréfi dags. 26.04.96.
Samþykki eigenda að Vesturbrún 8 og 10, og Kleifarvegi 11 fylgir
erindinu. Jafnframt lagt fram bréf Ernu Kristjánsdóttur, f.h.
eigenda að Kleifarvegi 7.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.
Hæðarafstetning háð sérstöku samþykki byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 11913 (01.01.330.902)
Klettagarðar 5,
Milliloft
Sótt er um leyfi til að byggja milliloft úr stáli og timbri í
húsinu á lóðinni nr. 5 við Klettagarða.
Stærð: 2. hæð 63 ferm.
Gjald kr. 2.250.oo.

Samþykkt.
Bílastæði háð úttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 11859 (01.02.546.803)
Langirimi 21-23,
Söluturn
Sótt er um leyfi til að byggja söluturn úr steypu og timbri á
lóðinni nr. 19-23 við Langarima.
Stærð: 1. hæð 40 ferm., 126 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 2.835.oo.

Frestað.
Athuga þak með tilliti til annarra bygginga á lóðinni. Vísað til
athugasemda á umsóknareyðublaði.


Umsókn nr. 11871 (01.01.340.594)
Laugarnesvegur 89,
Byggja þrjú hús
Sótt er um leyfi til að byggja þrjú fjölbýlishús úr steinsteypu
með 70 íbúðum á lóðinni nr. 1-5 við Kirkjusand.
Stærð: 1. hæð 9443 ferm., 29186 rúmm., bílgeymslur 1818 ferm.,
4727 rúmm. Gjald kr. 2.250.oo + 763.043.oo.

Frestað.
Kynna fyrir nágrönnum. Athugasemdir gerðar síðar.
Helgi Hjálmarsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.


Umsókn nr. 11931 (01.01.151.401)
Lindargata 2,
Dómssalir, lóð ofl.
Sótt er um leyfi fyrir breytingum í dómsölum, frágangi lóðar og
gerð bílastæða á lóðinni nr. 2 við Lindargötu.
Gjald kr. 2.250.oo.

Samþykkt.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra.


Umsókn nr. 11854 (01.01.261.301)
Lágmúli 5,
Br. innra skipulagi og úthurð
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og útihurðum úr
gleri ofl. í húsinu á lóðinni nr. 5 við Lágmúla.
Gjald kr. 2.250.oo.

Samþykkt.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra. Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.


Umsókn nr. 11920 (01.01.140.509)
Lækjargata 6b,
Breytt notkun
Sótt er um leyfi til að breyta notkun 1. hæðar og kjallara
hússins að Lækjargötu 6B úr verslun og skrifstofu í veitingahús
og gistirými.
Gjald kr. 2.250.oo.
Meðfylgjandi er bréf Stefáns Ingólfssonar dags. 30.04.1996.
Greinargerð Stefáns Ingólfssonar dags. 07.05.1996 fylgir
erindinu.

Frestað.
Sjá athugasemdir á umsóknareyðublaði.
Steinunn V. Óskarsdóttir mætti á fundinn kl. 12.58.


Umsókn nr. 11756 (01.01.140.510)
Lækjargata 8,
br.geymslum o.fl
Sótt er um leyfi til að breyta geymslum og stækka sjoppu úr
timbri í húsinu á lóðinni nr. 8 við Lækjargötu.
Gjald kr. 2.250.oo.
Bréf Árbæjarsafns dags. 8. maí 1996 fylgir erindinu.
Bréf húsafriðunarnefndar dags. 17. maí 1996 fylgir erindinu.

Frestað.
Sækja skal um niðurrif. Vísað til skipulagsnefndar.


Umsókn nr. 11700 (01.04.055.501)
Malarhöfði 6,
Véla- og bílageymsla.
Sótt er um leyfi til að byggja véla og bílageymslu úr stáli á
lóðinni nr. 6 við Malarhöfða.
Stærð: 1. hæð 712 ferm., 2. hæð 290 ferm., 4846 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 109.035.oo.
Jafnframt fylgir málinu bréf Willy Petersen f.h. Blikksmiðsins hf
og uppdráttur Borgarskipulags v. lóðar Malarhöfða 8 dags.
21.02.1992.
Jafnframt lagt fram bréf verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf,
dags. 24.04.1996.
Bréf Willys Petersen og Karls Rosekjær dags. 07.05.96 fylgir
erindinu.

Samþykkt.
Þinglýsa skal kvöð um undanþágu frá eldvörnum burðarvirkis,
miðað við þá starfsemi sem fyrirhuguð er í húsinu og núverandi
eiganda.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra.


Umsókn nr. 11910 (01.01.523.001)
Meistaravellir 15-17,
Fá sþ íbúð
Sótt er um leyfi til að fá samþykkta íbúð í húsinu á lóðinni nr.
17 við Meistaravelli.
Gjald kr. 2.180.oo.
Meðfylgjandi skoðunarskýrslur frá byggingarfulltrúa og
heilbrigðiseftirliti. Ennfremur samþykki meðeigenda og bréf
Þóreyjar Haraldsdóttur dags. 05.09.1995.

Frestað.
Kynna fyrir eigendum í húsinu nr. 15 við Meistarvelli.


Umsókn nr. 11828 (01.02.543.002)
Mosarimi 26-30,
Færa hús
Sótt er um leyfi til að færa hús nr. 26, á lóðinni nr. 26-30 við
Mosarima 1,5 m til suðvesturs.
Gjald kr. 2.250.oo.
Bréf borgarskipulags dags. 27. mars 1996 fylgir erindinu.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 11841 (01.01.702.122)
Mávahlíð 19,
gera svalir við kvisti á suð.h
Sótt er um leyfi til að gera svalir við kvisti á húsinu á
lóðinni nr. 19-21 við Mávahlíð.
Gjald kr. 2.250.oo.
Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda dags. 25.04.96.

Synjað.


Umsókn nr. 11954 (01.01.544.102)
Neshagi 1 - kirkja,
Stækkun kirkju
Sótt er um leyfi til að stækka norðurhlið kirkjunnar úr
steinsteypu á lóð Neskirkju við Neshaga.
Jafnframt lagt fram bréf formanns sóknarnefndar.
Stærð: kjallari 53,0 ferm., 1. hæð 62,1 ferm., 325 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 7.085.oo.
Jafnframt lagt fram bréf sóknarnefndar Neskirkju dags. 3. maí
1996, vegna umsóknar um viðbyggingu við kirkjuna.

Synjað.
Byggingarnefnd getur ekki samþykkt viðbyggingu samkvæmt
framlögðum teikningum, en bendir umsækjanda á að finna má lausn
í sérbyggðu húsi á lóð.


Umsókn nr. 11844 (01.01.517.024)
Nesvegur 80,
byggja tvo blómaskál, br. glug
Sótt er um leyfi til að byggja tvo blómaskála og breyta gluggum
úr timbri, áli og gleri á húsinu á lóðinni nr. 80 við Nesveg.
Stærð: garðstofa 1. hæð 6 ferm., 2. hæð 1,8 ferm., 18 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 405.oo.

Frestað.
Lagfæra útlit og samræma teikningar.


Umsókn nr. 11908 (01.01.190.025)
Njálsgata 37,
Breytingar
Sótt er um leyfi til að breyta þaki, stækka 2. hæð og byggja
bílgeymslu úr timbri á lóðinni nr. 37 við Njálsgötu.
Stækkun: 2. hæð 11,6 ferm., 39 rúmm. Stærð: bílgeymsla 32 ferm.,
87 rúmm. Gjald kr. 2.250.oo + 2.835.oo.

Frestað.
Kynna fyrir eigendum Grettisgötu nr. 38 og Njálsgötu 35, 35b,
38, 39 og 39b.


Umsókn nr. 11934 (01.01.190.123)
Njálsgata 55,
Einbýlishús
Sótt er um leyfi til að stækka núverandi einbýlishús úr timbri á
lóðinni nr. 55 við Njálsgötu.
Stærð: kjallari 13,5 ferm., 1. hæð 9,3 ferm., 2. hæð 13,5 ferm.,
177 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 3.983.oo.
Samþykki nágranna dags. 8. apríl 1996 fylgir erindinu.

Samþykkt.


Umsókn nr. 11917 (01.01.221.102)
Nóatún 4,
Byggja vöruskemmu
Sótt er um leyfi til að byggja vöruskemmu úr steinsteypu á
lóðinni nr. 4 við Nóatún.
Stærð: 1. hæð 261 ferm., 1677 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 37.733.oo.
Bréf hönnuðar dags. 08.03.1996 fylgir erindinu.
Umsagnir borgarskipulags dags. 27.03.1996 og 19.01.1996 fylgja
erindinu og samþykki skipulagsnefndar dags. 06.02.1996.
Erindið var kynnt nágrönnum með bréfi dags. 1. apríl 1996, engin
mótmæli hafa borist.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra.


Umsókn nr. 11846 (01.01.420.401)
Skútuvogur 6,
vörugeymsla
Sótt er um leyfi til að byggja birgðahús-vöruskemmu úr límtré á
lóðinni nr. 6 við Skútuvog.
Stærð: 1. hæð 3420 ferm., 2. hæð 1343 ferm., 21546 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 484.785.oo.
Bókun skipulagsnefndar frá 15.04.1996 fylgir erindinu.

Frestað.
Sjá athugasemdir á umsóknareyðublaði. Lagfæra útlit.


Umsókn nr. 11919 (01.02.524.706)
Smárarimi 42,
Einbýlishús
Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús úr steinsteypu á
lóðinni nr. 42 við Smárarima.
Stærð: 1. hæð 150 ferm., 513 rúmm., bílgeymsla 45,5 ferm., 150
rúmm. Gjald kr. 2.250.oo + 14.918.oo.

Samþykkt.
Með 3 atkv. Helgi hjálmarsson á móti, Hilmar Guðlaugsson sat hjá.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 11918 (01.01.831.103)
Sogavegur 198,
Endurnýja þak
Sótt er um leyfi til að endurnýja þak og ris úr timbri og byggja
180 sm girðingu á suð-vestur lóðamörkum á lóðinni nr. 198 við
Sogaveg.
Stækkun: 65 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 1.463.oo.
Erindið var kynnt nágrönnum með bréfi dags. 30. mars 1996, engin
mótmæli hafa borist.

Samþykkt.


Umsókn nr. 11933 (01.02.384.303)
Starengi 62,
Einbýlishús
Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús úr steinsteypu á
lóðinni nr. 62 við Starengi.
Stærð: 1. hæð 137,7 ferm., 454 rúmm. Bílgeymsla 40,5 ferm., 134
rúmm. Gjald kr. 2.250.oo + 13.230.oo.

Synjað.


Umsókn nr. 11850 (01.02.384.507)
Starengi 90,
Einbýlishús úr steinsteypu.
Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús úr steinsteypu á
lóðinni nr. 90 við Starengi.
Stærð: 1. hæð 145 ferm., 466 rúmm., bílgeymsla 43 ferm., 136
rúmm. Gjald kr. 2.250.oo + 13.545.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 11868 (01.04.762.001)
Vatnsveituvegur fákur,
Breyting
Sótt er um leyfi til að breyta ofanljósi í mæni og
áhorfendastúku í reiðhöllinni við Vatnsendaveg.
Gjald kr. 2.250.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 11855 (01.01.140.002)
Vesturgata 2,
Breyta innandyra ofl.
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingum og stækka
veitingastað í húsinu á lóðinni nr. 2 við Vesturgötu.
Gjald kr. 2.250.oo.

Frestað.
Vantar umsögn Árbæjarsafns og Húsafriðunarnefndar ríksins. Gera
skal grein fyrir verönd sunnan við hús og skúrum við norðurhlið.


Umsókn nr. 11831 (01.01.295.102)
Ármúli 40,
Eins og húsið er í dag
Sótt er um leyfi fyrir breytingum á innra skipulagi í húsinu á
lóðinni nr. 40 við Ármúla.
Gjald kr. 2.250.oo.

Samþykkt.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra. Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.


Umsókn nr. 11914 (01.01.116.101)
Ægisgarður 5-7,
Byggja verkstæði
Sótt er um leyfi til að byggja verkstæðisbyggingu úr stáli á
lóðinni nr. 7 við Ægisgarð.
Stærð: 1. hæð 280 ferm., 2. hæð 139,9 ferm., 1652 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 37.170.oo.

Samþykkt.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra.
Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.


Umsókn nr. 11944
Afgreiðsluf. byggingarfulltrúa,
Afgreiðsluf. Byggingarfulltrúa
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð frá
afgreiðslufundi byggingarfulltrúa nr. 9 þann 06.05.1996.



Umsókn nr. 11943 (01.02.386.301)
Gullengi 21-27,
Leiðrétt bókun
Á fundi byggingarnefndar þann 24.04.96 var samþykkt að breyta
áður samþykktu fjölbýlishúsi úr steinsteypu en átti að vera
endurnýjun á byggingarleyfi frá 28.04.1994 ásamt breytingum.
Stærðir eru eftirfarandi: 1. hæð 843,4 ferm., 2. hæð 1012,2
ferm., 3. hæð 1012,2 ferm., samtals 8892 rúmm., bílskúrar 143,9
ferm., 388 rúmm.

Samþykkt.


Umsókn nr. 11922 (01.01.118.505)
Hafnarstræti 23,
Niðurrif
Ólafur Bjarnason, yfirverkfræðingur, fh. borgarverkfræðings,
sækir um leyfi til þess að rífa viðbyggingu austan við Zimsenhús
á lóð nr. 21 við Hafnarstræti og það sem eftir stendur af
byggingum Olíufélagsins h.f á lóð nr. 23, sbr. bréf dags. 3. maí
1996.

Samþykkt.


Umsókn nr. 11921 (01.01.802.207)
Heiðargerði 78,
Lagt fram bréf
Lagt fram bréf Eggerts Guðmundssonar dags. 30. apríl 1996 fh.
eigenda Heiðargerði 76.
Jafnframt lagt fram bréf byggingarfulltrúa dags. 19.02.96 v.
úttektar þann 1. febrúar 1996.

Frestað.
Byggingarfulltrúa falið að svara erindinu.


Umsókn nr. 11924 (01.05.8--.-96)
Hólmsheiði fjáreigfél,
Hesthús
Lögð fram fyrirspurn vegna uppbyggingar á hesthúsi eftir bruna,
sbr. bréf dags. 30.04.1996.

Frestað.


Umsókn nr. 11952
Húsvernd í reykjavík,
Húsvernd í Reykjavík
Lagður fram texti um húsvernd á kynningarblaði vegna
aðalskipulags Reykjavíkur.

Samþykkt.


Umsókn nr. 11827 (01.04.633.203)
Leirubakki 34-36,
Fella úr gildi
Ofanritaður óskar eftir því að byggingarleyfi frá 26.05.1994
vegna Leirubakka 34, verði fellt úr gildi.

Samþykkt.


Umsókn nr. 11951 (01.04.25-.-96)
Rafstöðvarvegur 23 Árhvammur,
Lóðarmarkabreyting
Óskað er eftir leyfi byggingarnefndar til þess að breyta mörkum
lóðarinnar Rafstöðvarveg 23 (Árhvammur).
Lóðin er 0.60 ha að stærð, sbr. þinglesinn leigusamning Litra 03
nr. 59, dags. 22.05.1931, til 10 ára.
Samkvæmt skipulagi, sem samþykkt var á fundi í skipulagsnefnd
11.12.1995 og á fundi borgarráðs þann 12.12.1995, verður lóðin
1905 ferm., að stærð.

Samþykkt.


Umsókn nr. 11950 (01.01.837.002)
Sogavegur 218,
lóðarmarkabreyting
Óskað er eftir samþykki byggingarnefndar til að breyta mörkum
lóðanna Sogavegur 218 og 220 og stækka þær eins og sýnt er á
meðsendum uppdrætti mælingadeildar borgarverkfræðings, dags.
02.05.1996. Við breytinguna stækkar lóðin Sogavegur 218 úr 494
ferm., í 607 ferm., en Sogavegur 220 úr 494 ferm., í 646 ferm.
Vísað er til samþykktar skipulagsnefndar 28.03.1994 og samþykktar
borgarráðs 03.05.1994.

Samþykkt.


Umsókn nr. 11940
Staðarhverfi staðgreinir 2.4,
Staðarhverfi staðgreinir 2.4
Lagðir fram skipulagsskilmálar af Staðarhverfi dags. 5. maí 1996.

Frestað.
Vísað til meðfylgandi athugasemda.


Umsókn nr. 11939 (01.01.815.114)
Hlíðargerði 25,
Br. gluggum
Spurt er hvort leyft verði að breyta gluggum skv. meðfylgjandi
teikningum af húsinu á lóðinni nr. 25 við Hlíðargerði.

Jákvætt.


Umsókn nr. 11878 (01.01.721.301)
Kringlan 4-6,
Kvikmyndahús ofl.
Spurt er hvort leyft verði að breyta innréttingum og byggja
kvikmyndahús úr steinsteypu og stáli á lóðinni nr. 4-6 við
Kringluna.

Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum laga og reglugerða.


Umsókn nr. 11911 (01.01.815.604)
Melgerði 24,
byggja bílskúr,þvottahús/geyms
Spurt er hvort leyft verði að byggja bílskúr, þvottahús og
geymslu úr timbri á lóðinni nr. 24 við Melgerði.

Nei.


Umsókn nr. 11826 (01.02.870.302)
Reykjafold 3,
vindfang
Spurt er hvort leyft verði að byggja vindfang við húsið á
lóðinni nr. 3 við Reykjafold.

Jákvætt.


Umsókn nr. 11769 (01.01.283.001)
Starmýri 2,
hækkun á hurðargati
Spurt er hvort leyft verði að lækka gólf við innkeyrsku til þess
að hækka hurðargat í húsinu á lóðinni nr. 2A við Starmýri.

Jákvætt.
Hilmar Guðlaugsson tekur ekki afstöðu til málsins.


Umsókn nr. 11880 (01.01.264.202)
Suðurlandsbraut 28,
Byggja 4. hæð
Spurt er hvort leyft verði að byggja 4. hæð ofan á húsið á
lóðinni nr. 28 við Suðurlandsbraut.

Jákvætt.
Að uppfylltum ákvæðum byggingarlaga og reglugerða.


Umsókn nr. 11928 (01.01.173.117)
Vitastígur 10,
Br. nýtingu/kvisti ofl.
Spurt er hvort leyft verði að breyta húsinu nr. 10A á lóðinni
nr. 10 við Vitastíg, samkvæmt meðfylgjandi teikningum.

Jákvætt.
Samkvæmt fyrri tillögu.


Umsókn nr. 11935 (01.02.342.603)
Vættaborgir 112-124,
Raðhús
Spurt er hvort leyft verði að byggja raðhús úr steinsteyptum
einingum á lóðinni nr. 112 - 124 við Vættaborgir.
Bréf Borgarskipulags dags. 23.04.96 fylgir erindinu.

Vísað til bréfs Borgarskipulags.