Fellsmúli 24 - 26
Verknúmer : BN011907
3400. fundur 1996
Fellsmúli 24 - 26, Gluggar á gafl
Sótt er um leyfi til að setja glugga á austurgafl hússins á
lóðinn nr. 24 við Fellsmúla.
Gjald kr. 2.250.oo.
Jafnframt lagt fram myndbréf Úlfars Aðalsteinssonar verkfræðings
dags. 18.04.96.
Frestað.
Vísað til bókunar byggingarfulltrúa:
Á grundvelli upplýsinga, sem lagðar voru fram á fundi
byggingarnefndar þann 30.03 1995, þegar fjallað var um erindi
Þreks hf. um leyfi til að innrétta líkamsræktarstöð í húsinu á
lóðinni nr. 24-26 við Fellsmúla, er ljóst að umsækjandi upplýsti
ekki um þá auknu fermetra sem urðu til við þá framkvæmd og brást
þar með upplýsingaskyldu sinni sbr. III. kafla
byggingarreglugerðar nr. 177/1992 greinar 3.1. og 3.2.
Í ljósi þessa er þess krafist að umsækjandi leggi fram
heildaruppdrátt ásamt útreikningum af bílastæðaþörf á lóð og
samþykki allra meðlóðarhafa.
Jafnframt er vísað til athugasemda, sem fram komu við lokaúttekt
þann 24.01.1996.