Malarhöfði 6

Verknúmer : BN011700

3400. fundur 1996
Malarhöfði 6, Véla- og bílageymsla.
Sótt er um leyfi til að byggja véla og bílageymslu úr stáli á
lóðinni nr. 6 við Malarhöfða.
Stærð: 1. hæð 712 ferm., 2. hæð 290 ferm., 4846 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 109.035.oo.
Jafnframt fylgir málinu bréf Willy Petersen f.h. Blikksmiðsins hf
og uppdráttur Borgarskipulags v. lóðar Malarhöfða 8 dags.
21.02.1992.
Jafnframt lagt fram bréf verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf,
dags. 24.04.1996.
Bréf Willys Petersen og Karls Rosekjær dags. 07.05.96 fylgir
erindinu.

Samþykkt.
Þinglýsa skal kvöð um undanþágu frá eldvörnum burðarvirkis,
miðað við þá starfsemi sem fyrirhuguð er í húsinu og núverandi
eiganda.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra.