Bergstaðastræti 37, Blikahólar 2-12, Blönduhlíð 1, Blönduhlíð 2, Bræðraborgarstígur 7, Dofraborgir 2-8, Egilsgata 3 - domus medica, Framnesvegur 46, Garðhús 1 - 33, Garðhús 1 - 33, Goðheimar 20, Grandavegur 5-7, Grettisgata 31a, Hraunberg 4, Keilugrandi 12, Klettagarðar 9, Krókháls 10 - lyngháls 9, Krókháls 5-5f, Kvisthagi 6, Norðurfell 15 símstöð, Nökkvavogur 33, Skipasund 23, Skútuvogur 14-16, Sogvegur 103, Spítalastígur 1, Stararimi 65, Starengi 102-106, Stuðlaháls, Sundagarðar 2, Suðurhús 11, Sóleyjargata 33, Súðarvogur 6, Tunguháls 15, Tunguháls 2, Vatnagarðar 24, Veghúsastígur 5-7, Álftamýri 79 - skóli, Ármúli 5, Þingholtsstræti 6, Þönglabakki 6, Bauganes 1a, Bárugrandi 1-11, Eggertsgata 2-18, 20-22 og 34, Hafnarstræti 20, Hrísrimi 35, Hverfisgata 72, Hörpugata 1, Lagt fram bréf, Laugavegur 24b, Nökkvavogur 5, Sundahöfn - vatnagarðar, Suðurlv hólmsl óutv, Vallengi 14, Vesturgata 50, Breiðavík 65-73, Bústaðavegur 95, Hátún 1, Karfavogur 37, Laugavegur 24b, Ofanleiti 1 ve-skóli, Skógarás 10, Sogavegur 218, Stararimi 11, Suðurhús 13, Tjarnargata 4, Ásendi 1,

BYGGINGARNEFND

3393. fundur 1996

Árið 1996, fimmtudaginn 25. janúar, kl. 11.00 fyrir hádegi, hélt byggingarnefnd Reykjavíkur 3393. fund sinn. Fundurinn var haldin í fundarsalnum 4. hæð Borgartúni 3. Þessir nefndarmenn sátu fundinn: Steinunn V. Óskarsdóttir, Helgi Hjálmarsson, Sigurbjörg Gísladóttir, Hilmar Guðlaugsson og Halldór Guðmundsson. Auk þeirra sátu fundinn: Magnús Sædal Svavarsson, Ólafur Ó. Axelsson, Ágúst Jónsson, Ívar Eysteinsson, Þormóður Sveinsson, Sigríður K. Þórisdóttir og Hrólfur Jónsson. Fundarritari var Bjarni Þór Jónsson.
Þetta gerðist:


Umsókn nr. 10990 (01.01.184.407)
Bergstaðastræti 37,
reykháfur
Sótt er um leyfi til að setja reykháf frá arni á þak
viðbyggingar hússins á lóðinni nr. 37 við Bergstaðastræti.
Gjald kr. 2.180.oo.
Lögð fram skýrsla heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags.
10.janúar 1996. Jafnframt lagt fram yfirlit um kvartanir vegna
reykmengunar frá Hótel Holti 1995, og minnispunktar frá fundi 18.
september 1995.

Frestað.
Byggingarnefnd gerir kröfur til að þannig verði gengið frá
skorsteini að ekki valdi mengun.


Umsókn nr. 10991 (01.04.642.301)
Blikahólar 2-12,
byggja þak ofan á steypta þakp
Sótt er um leyfi til að byggja þak ofan á steypta þakplötu
bílgeymslu á lóðinni nr. 10-12 við Blikahóla.
Stækkun: 40 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 872.oo.
Samþykki nágranna dags. 17.09.95 fylgir erindinu.
Bréf skipulagsnefdnar dags.09.01.96 fylgir erindinu.

Synjað.
Leita skal annarra lausna.


Umsókn nr. 10984 (01.01.704.212)
Blönduhlíð 1,
breyting á kvist og þakkanti
Sótt er um leyfi til að breyta kvisti og þakkanti hússins og fá
samþykktar íbúðir á jarðhæð og í risi á lóðinni nr. 1 við
Blönduhlíð.
Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.
Gera betri grein fyrir íbúð í risi. Vantar björgunarop í risi.
Athuga útfærslu á þakbrún.


Umsókn nr. 10957 (01.01.704.401)
Blönduhlíð 2,
Merkja sþ. íbúð
Sótt er um leyfi til að fá samþykkta íbúð merkta 01-03 áður
vinnustofa í húsinu á lóðinni nr. 2 við Blönduhlíð.
Gjald kr. 2.250.oo.

Frestað.
Fá skýringu á stækkun kjallara. Athuga betur gluggasetningu.


Umsókn nr. 10986 (01.01.135.218)
Bræðraborgarstígur 7,
Br.iðnaðarhúsn, í íbúðarhúsnæð
Sótt er um leyfi til að breyta iðnaðarhúsnæði í íbúðarhús með
níu íbúðum á lóðinni nr. 7 við Bræðraborgarstíg.
Gjald kr. 2.180.oo.
Bréf umsækjanda dags. 17.01.96 fylgir erindinu.

Samþykkt.
Með vísan til bréfs umsækjanda.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 10988 (01.02.344.501)
Dofraborgir 2-8,
byggja 4 einbýlishús
Sótt er um leyfi til að byggja keðjuhús með fjórum íbúðum úr steinsteypu á lóðinni nr. 2 - 8 við Dofraborgir.
Stærð: hvert hús 1. hæð 57,4 ferm., 2. hæð 92,5 ferm., 4 x 402
rúmm., hver bílgeymsla 20 ferm., 54 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo +
39.764.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 10985 (01.01.193.404)
Egilsgata 3 - domus medica,
skýli v/vararafst.br.innr.kj
Sótt er um leyfi til að byggja skýli fyrir vararafstöð og breyta
innréttingum í kjallara hússins á lóðinni nr. 3 við Egilsgötu.
Stærð: 1. hæð 9,3 ferm., 33 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 743.oo.
Bréf Helgu Gunnarsdóttur dags. 17.01.1996 fylgir erindinu.

Samþykkt.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.


Umsókn nr. 10736 (01.01.133.417)
Framnesvegur 46,
Byggja svalir
Sótt er um leyfi til að gera svalir á 3. hæð og stækka hana.
Stærð: 1. hæð 9,5 ferm., 2. hæð 6,5 ferm., 3. hæð 61 ferm., 157
rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 3.533.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 11024 (01.02.840.301)
Garðhús 1 - 33,
fjölb.hús 1-5a
Sótt er um leyfi til að byggja fjölbýlishús úr steinsteypu með
fimm íbúðum (1-5A) á lóðinni nr. 1-33 við Garðhús.
Stærð: 1. hæð 200,6 ferm., 541,6 rúmm., 2. hæð 200,6 ferm., 541,6
rúmm., 3. hæð 200,6 ferm., 743,9 rúmm., samtals 1827,10 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 11025 (01.02.840.301)
Garðhús 1 - 33,
11
Sótt er um leyfi til að byggja fjölbýlishús úr steinsteypu með
fimm íbúðum (7-17A) á lóðinni nr. 1-33 við Garðhús.
Stærð: 1. hæð 200,6 ferm., 541,6 rúmm., 2. hæð 200,6 ferm., 541,6
rúmm., 3. hæð 200,6 ferm., 743,9 rúmm., samtals 1827,1 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 10925 (01.01.432.211)
Goðheimar 20,
Fá samþykkta íbúð
Sótt er um leyfi til þess að breyta ( minnkun ) íbúð í
suð-austurhluta kjallara í húsinu á lóðinni nr. 20 við
Goðheima.
Gjald kr. 2.250.oo. Samþykki meðeignda dags. 09.01.96 fylgir
erindinu. Skoðunarskýrla byggingarfulltrúa dags.04.01.1996
fylgir erindinu. Vottorð um húsnæðisskoðun frá
heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur dags. 24.01.1996 fylgir
erindinu.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10940 (01.01.522.202)
Grandavegur 5-7,
girða lóðarhluta
Sótt er um leyfi til að girða sérnotahluta lóðar (merktur 01-01)
á lóðinni nr. 5-7 við Grandaveg.
Gjald kr. 2.250.oo.

Frestað.
Kynna fyrir eigendum Grandavegar nr. 3, 5 og 7.


Umsókn nr. 10983 (01.01.173.134)
Grettisgata 31a,
áður gerð íbúð
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðri íbúð í kjallara hússins á
lóðinni nr. 31A við Grettisgötu.
Gjald kr. 2.180.oo. Meðfylgjandi eru skoðunarskýrslur
byggingarfulltrúa dags. 16.10.95 og heilbrigðiseftirlits dags.
23.11.1993. Afsalsbréf dags. 04.06.1973 fylgir erindinu. Erindið
var kynnt meðeigendum með bréfi dags. 15.12.1995. Mótmæli hafa
borist með bréfi dags. 08.01.96.

Frestað.
Sýna þarf fram á tilurð íbúðar fyrir 1965.


Umsókn nr. 11005 (01.04.674.002)
Hraunberg 4,
ósamþ. kjallari og breytingar
Sótt er um leyfi fyrir breytingum innanhúss, 1. og 2. hæð og
kjallara undir vesturhluta hússins á lóðinni nr. 4 við
Hraunberg.
Stærð: kjallari 198,9 ferm., 438 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo +
9.548.oo. Ennfremur lagt fram bréf Magnúsar I. Erlingssonar
dags. 25. október 1995.
Bréf hönnuðar dags. 18. desember 1995 fylgir erindinu.
Greiða skal fyrir eitt bílastæði í flokki IV.

Frestað.
Greiða skal fyrir eitt bílastæði í flokki lV.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.


Umsókn nr. 11016 (01.01.512.602)
Keilugrandi 12,
Byggja viðbyggingu
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu úr steinsteypu við
Grandaskóla á lóðinni nr. 12 við Keilugranda.
Stærð: 1. hæð 1095,2 ferm., 2. hæð 889,4 ferm., 8289 rúmm. Gjald
kr. 2.180.oo + 180.700.oo. Erindið var kynnt nágrönnum með
bréfi dags. 27.11.1995, mótmæli dags. 19.12.1995 frá eigendum
Frostaskjóls 30, hafa borist. Mótmæli dags. 21.12.1995 hafa
borist frá eigendum Rekagranda 7 og 8, húsfélaginu Rekagranda 6
og húsfélaginu Rekagranda 5. Bréf Egils Guðmundssonar dags.
04.01.96 fylgir erindinu. Mótmæli dags. 05.01.96 hafa borist frá
lóðarsamtökum við Rekagranda og Seilugranda.

Samþykkt.
Samþykkt með 3 atkv. Halldór Guðmundsson og Helgi Hjálmarsson
sátu hjá. Helgi Hjálmarsson óskaði bókað: Hjásetu mína vil ég
rökstyðja eftirtöldum atriðum. Ég tel ámælisvert hvernig staðið
var að undirbúningsvinnu og framkvæmdum vegna viðbyggingu
Grandaskóla. Jarðvegsútboð var auglýst á sama tíma og
grenndarkynning var í gangi. Ástæða er til að minna á þýðingu
slíkra kynninga og þeim tilgangi sem henni er ætlað að þjóna og
er það ekki síður mikilvægt fyrir stjórnvöld en hluteigandi aðila
sem málefnið varðar. Tilvik geta komið upp sem réttlæta
byggingarframkvæmdir áður en fullbúin hönnun liggur fyrir en þá
þarf, að vera tryggt að málið sé í réttum farvegi og vel
undirbúið. Ég tel að svo hafi ekki verið í þessu tilfelli. Þá
tel ég að yfirbragð álmunnar frekt og fyrirferðamikið í
umhverfinu og leita hefði átt annarra lausna t.d. með því að
deila álmunni upp (hugsanlega í tvo hluta) og fella hana betur að
íbúðarbyggðinni og húsagerð núverandi skólabyggingar.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra. Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.
Sjá meðfylgjandi bókun Helga Hjálmarssonar.


Umsókn nr. 11014 (01.01.330.701)
Klettagarðar 9,
flytja timburhús,byggja við fl
Sótt er um leyfi til að flytja timburhús (stjórnstöð) af lóð
Eimskips við Sundagarða og stækka það úr timbri og setja á
lóðina nr. 9 við Klettagarða.
Stækkun: 92,1 ferm., 313 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 6.823.oo.

Frestað.
Vísað til hafnarstjórnar og heilbrigðiseftirlits.
Halldór Guðmundsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.


Umsókn nr. 10963 (01.04.324.201)
Krókháls 10 - lyngháls 9,
Stoðveggur og frágangur lóðar
Sótt er um leyfi til að breyta fyrirkomulagi á lóð m.a
bílastæðum og stoðveggjum úr steinsteypu, malbiki ofl. á lóðinni
nr. 9 við Lyngháls.
Gjald kr. 2.250.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 10982 (01.04.323.401)
Krókháls 5-5f,
innrétta húsnæði f.lögregluskó
Sótt er um leyfi til að innrétta húsnæði á 1. hæð, 3. hæð og 4.
hæð (ris) í húsinu á lóðinni nr. 5 við Krókháls.
Stækkun: 2 x 29 ferm., eða 58 ferm Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.
Helgi Hjálmarsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.


Umsókn nr. 10962 (01.01.543.207)
Kvisthagi 6,
br.íbúðarhúsi og vinnustofu
Sótt er um leyfi til að innrétta tvær íbúðir og fá samþykkta
eina áður gerða í kjallara með nýrri innréttingu í húsinu á
lóðinni nr. 6 við Kvisthaga.
Gjald kr. 2.250.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10934 (01.04.666.702)
Norðurfell 15 símstöð,
breyta útliti og innra fyrirk.
Sótt er um leyfi til að breyta útliti og innra fyrirkomulagi 1.
hæðar hússins á lóðinni nr. 15 við Norðurfell.
Gjald kr. 2.250.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10941 (01.01.445.309)
Nökkvavogur 33,
br. á bílskúr og br. á gluggum
Sótt er um leyfi til að breyta bílskúr og gluggum á 2.hæð (risi)
hússins á lóðinni nr. 33 við Nökkvavogi.
Gjald kr. 2.250.oo.
Stækkun: 10 ferm., 30 rúmm.

Synjað.
Byggingarnefnd fellst ekki á stækkun bílskúrs.


Umsókn nr. 11023 (01.01.358.109)
Skipasund 23,
klæða
Sótt er um leyfi til að klæða utanhúss með Trapisustáli, stækka
pall á útitröppum, gera tvöfalda hurð á norðurhlið og sækja um
breytt lóðarmörk á lóðinni nr. 23 við Skipasund.
Gjald kr. 2.180.oo.
Jafnframt lagt fram séruppdr. úr mæliblaði dags. 16.01.96.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10964 (01.01.426.402)
Skútuvogur 14-16,
milligólf
Sótt er um leyfi til að gera milliloft úr límtré í verslunarhús
á lóðinni nr. 16 við Skútuvog.
Stærð: 2. hæð 360 ferm. Gjald kr. 2.250.oo.

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknareyðublaði. Umsækjanda er bent á
að sækja þarf um útiskýli á lóð.


Umsókn nr. 10945 (01.01.820.210)
Sogvegur 103,
lagnakjallari undir bílgeymslu
Sótt er um leyfi fyrir lagnakjallara í húsinu á lóðinni nr. 103
við Sogaveg.
Stærð: kjallari 49 ferm., 119 rúmm. Gjald kr. 2.250.oo +
2.678.oo.

Frestað.
Vantar björgunarop á kjallara og loftræsingu.


Umsókn nr. 10948 (01.01.180.217)
Spítalastígur 1,
fá samþykkta íbúð í kjallara
Sótt er um að fá samþykkta áður gerða íbúð í kjallara hússins á
lóðinni nr. 1 við Spítalastíg.
Gjald kr. 2.250.oo.
Skoðunarskýrsla heilbrigðiseftirlitsins dags. 06.12.1995 fylgir
erindinu.Ennfremur lagt fram afsal frá 1949.

Synjað.


Umsókn nr. 10981 (01.02.523.004)
Stararimi 65,
Byggja einbýlishús
Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús úr steyptum einingum
á lóðinni nr. 65 við Stararima.
Stærð: 1. hæð 153,2 ferm., 504 rúmm. Bílgeymsla 42,2 ferm., 130
rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 13.821.oo.
Bréf hönnuðar dags. 04.01.96 fylgir erindinu.

Frestað.
Votta skal steyptar einingar. Vantar skorstein frá arni.


Umsókn nr. 10869 (01.02.384.702)
Starengi 102-106,
Raðhús úr steinst.
Sótt er um leyfi til að byggja raðhús úr steinsteypu með þrem
íbúðum á lóðinni nr. 102-106 við Starengi.
Gjald kr. 2.250.oo + 33.750.oo.

Frestað.
Lagfæra útlit. Planlausn ófullnægjandi. Athuga kóta.


Umsókn nr. 10949 (01.04.326.801)
Stuðlaháls,
umbúðageymsla
Sótt er um leyfi til að reisa umbúðageymslu úr steinsteypu á
lóðinni nr. 1 við Stuðlaháls.
Stærð: 1. hæð 21,3 ferm., 84 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 1.890.oo.

Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.


Umsókn nr. 11019 (01.01.335.301)
Sundagarðar 2,
Byggja bensínstöð
Sótt er um leyfi til að byggja bensínstöð úr steinsteypu á
lóðinni nr. 2 við Sundagarða.
Stærð: kjallari 20 ferm., 1. hæð 213 ferm., 700 rúmm., útigeymsla
21 ferm., 50 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 16.350.oo.

Frestað.
Mæliblað ófrágengið.


Umsókn nr. 10999 (01.02.848.811)
Suðurhús 11,
Setja glugga á vesturhlið kj.
Sótt er um leyfi til að setja glugga á vesturhlið og nýta rými í
kjallara hússins á lóðinni nr. 11 við Suðurhús.
Stærð: kjallari 40,3 ferm., 97 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 2.115.oo.
Umsögn Borgarskipulags dags. 09.08.1995 fylgir erindinu.
Jafnframt lagt fram bréf umsækjanda dags. 1. nóv. 1995.
Erindið var sent í kynningu til meðeiganda með bréfi dags.
13.11.95, mótmæli hafa borist dags. 12.12.1995.
Jafnframt lögð fram umsögn skrifstofustjóra borgarverkfræðings
dags. 17.01.96.

Synjað.
Með vísan til umsagnar skrifstofustjóra borgarverkfræðings.
Bjarni Þór Jónsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.


Umsókn nr. 11028 (01.01.197.413)
Sóleyjargata 33,
Br. innra skipul. 2. hæðar
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi 1. og 2.
hæðar og fjölga íbúðum um tvær í húsinu á lóðinni nr. 33 við
Sóleyjargötu.
Gjald kr. 2.180.oo. Bílastæðagjald kr. 1.634.182.oo.
Meðfylgjandi er bréf Hilmars Ingólfssonar, dags. 20.12.1995.
Umsögn skipulagsnefndar dags. 13.12.95 fylgir erindinu.

Samþykkt.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.


Umsókn nr. 10980 (01.01.452.101)
Súðarvogur 6,
klæða og einangra húsið og fl.
Sótt er um leyfi til að klæða, með málmi og timbri einangra og
breyta útliti austurhliðar hússins á lóðinni nr. 6 við Súðavog.
Gjald kr. 2.250.oo.

Frestað.


Umsókn nr. 10939 (01.04.327.102)
Tunguháls 15,
Áður gert milliloft
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðu millilofti úr timbri í
vörugeymslu og breyta notkun bílgeymslu í húsinu á lóðinni nr.
15 við Tunguháls.
Stækkun: 563 ferm.
Gjald kr. 2.250.oo.

Frestað.
Gera grein fyrir bílastæðum og efni í millilofti.


Umsókn nr. 10970 (01.04.328.501)
Tunguháls 2,
Fella niður þakglugga
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktum teikningum og
fella niður þakglugga á húsinu á lóðinni nr. 2 við Tunguháls.
Gjald kr. 2.250.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10993 (01.01.339.603)
Vatnagarðar 24,
Reisa skilti
Sótt er um leyfi til að reisa skilti á lóðinni nr. 24 við
Vatnagarða.
Gjald kr. 2.250.oo.
Umsögn umferðarnefndar dags. 29.06.95 fylgir erindinu.

Samþykkt.
Sigurbjörg Gísladóttir og Steinunn V. Óskarsdóttir sátu hjá.


Umsókn nr. 10987 (01.01.152.419)
Veghúsastígur 5-7,
Br. innréttingu 2. hæðar
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingum á 2. hæð hússins á
lóðinni nr. 7 við Veghúsastíg.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10960 (01.01.283.101)
Álftamýri 79 - skóli,
loka göngum v/anddyri,járnhl.
Sótt er um leyfi til að loka opnum göngum við anddyri
Álftamýraskóla með járnhliði á lóðinni nr. 79 við Álftamýri.
Gjald kr. 2.250.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 9709 (01.01.262.002)
Ármúli 5,
innrétta gistiheimili og fl.
Sótt er um leyfi til að breyta notkun á 4. hæð (að Ármúla) og
innrétta gistiheimili í húsinu á lóðinni nr. 5 við Ármúla.
Gjald kr. 2.180.oo.
Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda dags. 15.06.1995.

Samþykkt.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.


Umsókn nr. 10944 (01.01.170.206)
Þingholtsstræti 6,
Húðflúrstofa
Sótt er um leyfi til að innrétta húðflúrstofu og breyta útliti
hússins á lóðinni nr. 6 við þingholtsstræti.
Gjald kr. 2.250.oo.

Frestað.
Lagfæra útlit.


Umsókn nr. 11020 (01.04.603.502)
Þönglabakki 6,
byggja utan um geymslu í kj
Sótt er um leyfi til að byggja utan um geymslu í kjallara
hússins á lóðinni nr. 6 við Þönglabakka.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10995 (01.01.672.016)
Bauganes 1a,
Niðurfelling gjalda
Lagt fram bréf Gunnhildar Ólafsdóttir og Geirs Hafsteins
Sigurgeirssonar, dags. 08.01.96, varðandi ósk um niðurfellingu á
hluta byggingarleyfis.

Frestað.
Skila skal inn nýjum teikningum án bílskúrs og vinnustofu.


Umsókn nr. 10971 (01.01.521.207)
Bárugrandi 1-11,
Breyta lóðarmörkum
Óskað er eftir samþykki byggingarnefndar til að breyta mörkum
lóðarinnar Bárugrandi 1-11 eins og sýnt er á uppdrætti
mælingadeildar borgarverkfræðings dags. 07.12.1995.
Lóðin er 3874 ferm., að viðbættum 53,97% af leiksvæði fyrir
Bárugranda 1-11 og Grandaveg 41-43 og 45, sbr. samþykkt
byggingarnefndar 11.07.1991 og yfirlýsingu nr. A-16186/91 til og
með A-16195/91 (eitt skjal), dags. 26.05.1991.
Viðbót við lóðina úr landi borgarsjóðs 16 ferm., sbr. samþykkt
skipulagsnefndar 09.01.1995 og samþykkt borgarráðs 10.01.1995.
Lóðin verður 3890 ferm., að viðbættum 53,97% af áður tilgreindri
leiksvæðislóð.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10992 (01.01.634.---)
Eggertsgata 2-18, 20-22 og 34,
Undanþága
Félagsstofnun stúdenta óskar eftir undanþágu frá gr. 6.5.2 í
byggingarreglugerð nr. 177/1992 um geymslustærðir sbr. bréf
dags. 15. janúar 1996.

Samþykkt.
Á aðeins við um Eggertsgötu 34.


Umsókn nr. 11026 (01.01.140.302)
Hafnarstræti 20,
KÆRA
Lögð fram umsögn skrifstofustjóra byggingarfulltrúa vegna kæru
til umhverfisráðuneytisins dags. 15.11.1995, þar sem kært er
vegna staðsetningar á söluskála framan við Hafnarstræti 20.

Samþykkt.


Umsókn nr. 11032 (01.02.583.306)
Hrísrimi 35,
Leiðrétting á stærðum
Á fundi byggingarnefndar þann 26.10.95, var samþykkt íbúð í
kjallara hússins á lóðinni nr. 35 við Hrísrima. Stærðir voru
bókaðar 55 ferm., en á að vera 43,9 ferm.

Samþykkt.


Umsókn nr. 11031 (01.01.173.007)
Hverfisgata 72,
Lagt fram bréf
Lagt fram bréf umhverfisráðuneytisins dags. 22.01.96, þar sem
Magnús I. Erlingsson hdl, kærir f.h. Ingibjargar Sigurbergsdóttur
ákvörðun byggingarnefndar frá 12.10.1995 um að synja umsókn um
leyfi til að breyta húsinu nr. 72B við Hverfisgötu og fá það
samþykkt sem íbúðarhúsnæði.

Vísað til umsagnar skrifstofustjóra byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 11003 (01.01.635.501)
Hörpugata 1,
Skipta lóð í tvær
Andri Árnason hrl, fh. Elíesers Jónssonar, Hörpugötu 1, sækir um
leyfi til þess að skipta lóðinni Hörpugötu 1 í tvær lóðir aðra
792 ferm., og hina 786 ferm.
Meðfylgjandi eru bréf dags. 30. nóv. 1995 og 15. jan. 1996 ásamt
fylgigögnum.

Frestað.
Umsækjandi skal skila tillögu að málsettum uppdrætti í samræmi
við samþykkt skipulagsnefndar frá 26.09.1994, vegna gerðar
mæliblaðs.


Umsókn nr. 11030
Lagt fram bréf,
Lagt fram bréf
Lagt fram bréf Vinnueftirlits ríkisins dags. 23.01.96, vegna
beiðni um samræmdar kröfur varðandi frágang opnanlegra glugga.

Vísað til byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 10994 (01.01.172.204)
Laugavegur 24b,
Lögð fram útskrift
Lögð fram útskrift úr gerðabók umhverfismálaráðs frá 10. janúar
sl., sbr. bréf dags. 12.01.1996.
Einnig lagt fram minnisblað byggingarfulltrúa dags. 22.01.96.

Byggingarnefnd tekur undir ábendingar í lok minnisblaðs
byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 11015 (01.01.441.116)
Nökkvavogur 5,
Niðurrif
Sótt er um leyfi til að rífa skúr, mhl nr.02 á lóðinni nr. 5 við
Nökkvavog. Umsögn Trausta Leósonar dags. 23.01.96 fylgir
erindinu.

Samþykkt.


Umsókn nr. 11017
Sundahöfn - vatnagarðar,
Sundahöfn - Vatnagarðar
Lagðar fram tillögur að nýjum mæliblöðum fyrir farmstöð Eimskip í
Sundahöfn
Nafn lóðar: Staðgreinir: Heildarflatarmál lóðar:
Korngarðar 2 1.331.401 4.718 ferm.
Sundabakki 2 1.332.001 37.386 ferm.
Sundabakki 4 1.332.401 24.179 ferm.
Sundabakki 6 1.338.401 13.928 ferm.
Sundabakki 8 1.338.501 20.181 ferm.
Sægarðar 3 1.339.101 19.903 ferm.
Sægarðar 5 1.334.601 18.229 ferm.
Sægarðar 7 1.334.201 11.193 ferm.
Kleppsbakki 2 1.334.101 72.512 ferm.
Óskað er eftir samþykkt byggingarnefndar á þessum nýju
mæliblöðum.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10979 (01.05.8--.-99)
Suðurlv hólmsl óutv,
Niðurrif
Skrifstofustjóri borgarverkfræðings kt:570480-0149 fyrir hönd
borgarsjóðs sækir um niðurrif á sumarbústaðnum Litla Hvammi
stærðir u.þ.b. 32 ferm., byggingarár talið 1969.

Samþykkt.


Umsókn nr. 11000 (01.02.383.301)
Vallengi 14,
Lagt fram bréf
Lagt fram bréf slökkviliðsstjóra dags. 18.01.1996.



Umsókn nr. 10989 (01.01.130.207)
Vesturgata 50,
Niðurrif
Sveinn Guðmundsson, lögfræðingur Einholti 2, 128 R. f.h. Guðmanns
Heiðmar kt:180828-4869, Öldugötu 7a, 101 R, sækir um leyfi til
niðurrifs á húseigninni Vesturgötu 50. Með erindinu fylgir bréf
Sveins Guðmundssonar dags. 29. september 1995, afrit af bréfi
Húsfriðunarnefndar ríkisins dags. 18. október 1995.

Frestað.
Vísað til borgarráðs.


Umsókn nr. 10968 (01.02.354.002)
Breiðavík 65-73,
Raðhús
Spurt er hvort leyft verði að byggja raðhús úr steinsteypu á
lóðinni nr. 65-73 við Breiðuvík.

Nei.
Vísað til athugasemda á umsóknareyðublaði.


Umsókn nr. 10972 (01.01.819.314)
Bústaðavegur 95,
Hækka þak
Spurt er hvort leyft verði að hækka þak hússins til samræmis við
önnur hús í götunni en sleppa svölum og setja þakglugga í
staðinn, á húsið á lóðinni nr. 95 við Bústaðaveg.

Jákvætt.
Í samræmi við skilmála ef samskonar breyting verður gerð
samtímis á nr. 97.


Umsókn nr. 11007 (01.01.223.011)
Hátún 1,
rífa núverandi bíkskúr og fl.
Spurt er hvort leyft verði að rífa núverandi bílskúr og byggja
nýjan úr steinsteypu með breyttri aðkomu á lóðinni nr. 1 við
Hátún.
Samþykki skipulagsnefndar dags. 23.01.96 fylgir erindinu.

Jákvætt með vísun til samþykktar skipulagsnefndar.
Leggja skal fram aðra lausn. Bílskúr verði mest 36 ferm.


Umsókn nr. 11018 (01.01.445.013)
Karfavogur 37,
Stækkun íbúðar
Spurt er hvort leyft verði að hækka þak þannig að ris verði
íbúðarhæft.
Umsögn borgarskipulags dags. 27.03.1996 fylgir erindinu.

Frestað.
Vísað til Borgarskipulags.


Umsókn nr. 11009 (01.01.172.204)
Laugavegur 24b,
endurbyggja auturhluta
Spurt er hvort leyft verði að endurbyggja úr timbri austurhluta
hússins á lóðinni nr. 24B við Laugaveg.
Umsögn skipulagsnefndar dags. 23.01.96 fylgir erindinu.

Neikvætt með vísan til samþykkis skipulagsnefndar.


Umsókn nr. 10961 (01.01.744.001)
Ofanleiti 1 ve-skóli,
byggja skólahús
Spurt er hvort leyft verði að byggja skólahús úr steinsteypu
klæddri að utan á lóðinni nr. 2 við Ofanleiti.

Neikvætt.
Vísað til athugasemda byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 11008 (01.04.386.402)
Skógarás 10,
valmaþak og byggingarreitur
Spurt er hvort leyft verði að byggja einbýlishús með valmaþaki á
lóðinni nr. 10 við Skógarás og um staðsetningu reits á lóð eftir
skiptingu.
Umsögn skipulagsnefndar dags. 23.01.96 fylgir erindinu.

Nei.
Samanber samþykki skipulagsnefndar.


Umsókn nr. 10973 (01.01.837.002)
Sogavegur 218,
Breyta bílskúr
Spurt er hvort leyft verði að stækka bílskúr frá áður samþykktum
teikningum á lóðinni nr. 218 við Sogaveg.

Nei.


Umsókn nr. 10977 (01.02.523.205)
Stararimi 11,
samþ. íbúð á neðri hæð
Spurt er hvort samþykkt verði íbúð á neðri hæð í húsinu á
lóðinni nr. 11 við Stararima.

Nei.
Samræmist ekki skilmálum.


Umsókn nr. 10976 (01.02.848.813)
Suðurhús 13,
skipta húsi í tvær íbúðir
Spurt er hvort leyft verði að gera aukaíbúð í húsinu á lóðinni
nr. 13 við Suðurhús.

Jákvætt.
Í samræmi við skilmála.


Umsókn nr. 11004 (01.01.141.006)
Tjarnargata 4,
Stækka íbúðir á 5. hæð
Spurt er hvort leyft verði að stækka íbúðir á 5. hæð, og
jafnframt fá þær samþykktar í húsinu á lóðinni nr. 4 við
Tjarnargötu.

Jákvætt.
Lagfæra þarf útlit. Gera grein fyrir götuhlið.


Umsókn nr. 11012 (01.01.824.101)
Ásendi 1,
byggja ofan á bílskúr
Spurt er hvort leyft verði að byggja ofan á bílskúr á lóðinni
nr. 1 við Ásenda.
Erindið var kynnt nágrönnum með bréfi dags. 05.12.95 engin
mótmæli hafa borist.

Jákvætt.