Keilugrandi 12

Verknúmer : BN011016

3393. fundur 1996
Keilugrandi 12, Byggja viðbyggingu
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu úr steinsteypu við
Grandaskóla á lóðinni nr. 12 við Keilugranda.
Stærð: 1. hæð 1095,2 ferm., 2. hæð 889,4 ferm., 8289 rúmm. Gjald
kr. 2.180.oo + 180.700.oo. Erindið var kynnt nágrönnum með
bréfi dags. 27.11.1995, mótmæli dags. 19.12.1995 frá eigendum
Frostaskjóls 30, hafa borist. Mótmæli dags. 21.12.1995 hafa
borist frá eigendum Rekagranda 7 og 8, húsfélaginu Rekagranda 6
og húsfélaginu Rekagranda 5. Bréf Egils Guðmundssonar dags.
04.01.96 fylgir erindinu. Mótmæli dags. 05.01.96 hafa borist frá
lóðarsamtökum við Rekagranda og Seilugranda.

Samþykkt.
Samþykkt með 3 atkv. Halldór Guðmundsson og Helgi Hjálmarsson
sátu hjá. Helgi Hjálmarsson óskaði bókað: Hjásetu mína vil ég
rökstyðja eftirtöldum atriðum. Ég tel ámælisvert hvernig staðið
var að undirbúningsvinnu og framkvæmdum vegna viðbyggingu
Grandaskóla. Jarðvegsútboð var auglýst á sama tíma og
grenndarkynning var í gangi. Ástæða er til að minna á þýðingu
slíkra kynninga og þeim tilgangi sem henni er ætlað að þjóna og
er það ekki síður mikilvægt fyrir stjórnvöld en hluteigandi aðila
sem málefnið varðar. Tilvik geta komið upp sem réttlæta
byggingarframkvæmdir áður en fullbúin hönnun liggur fyrir en þá
þarf, að vera tryggt að málið sé í réttum farvegi og vel
undirbúið. Ég tel að svo hafi ekki verið í þessu tilfelli. Þá
tel ég að yfirbragð álmunnar frekt og fyrirferðamikið í
umhverfinu og leita hefði átt annarra lausna t.d. með því að
deila álmunni upp (hugsanlega í tvo hluta) og fella hana betur að
íbúðarbyggðinni og húsagerð núverandi skólabyggingar.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra. Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.
Sjá meðfylgjandi bókun Helga Hjálmarssonar.