Austurberg 28 - 38, Austurberg 28 - 38, Austurstræti 6, Baldursgata 22a, Bankastræti 2, Barðavogur 19, Barónsstígur 65, Baughús 10, Berjarimi 39-41, Blikahólar 2-12, Borgartún 20, Brautarholt 26, Bræðraborgarstígur 32, Bræðraborgarstígur 7, Bárugata 37, Bíldshöfði 7, Dofraborgir 7, Dragavegur 6, Dyngjuvegur 18, Einarsnes 66 og 66a, Eskihlíð 14 og 14a, Eyjarslóð 9, Fannafold 155, Faxafen 8-14 - skeifan 11-19, Faxafen 8-14 - skeifan 11-19, Faxafen 8-14 - skeifan 11-19, Fellsmúli 24 - 26, Framnesvegur 30, Fákafen 11, Granaskjól 36, Grandavegur 47, Grensásvegur 3 - 7, Hjallavegur 7, Hnjúkasel 11, Hraunbær 17 - 33, Hraunbær 62-100, Hringbraut 30, Hringbraut 63, Hrísrimi 35-37, Hverfisgata 49, Hverfisgata 72, Háagerði 19, Háaleitisbraut 23, Hávallagata 40, Jörfabakki 18-32, Jötnaborgir 12-18, Kambsvegur 20, Kirkjutorg 6 og 6a, Kvistaland 1-7, Laufrimi 1-5, Laufrimi 10-18, Laufásvegur 20, Laufásvegur 53-55, Laugavegur 163, Logafold 96, Mosarimi 2, Mosavegur skóli, Njálsgata 23, Njálsgata 62, Njörvasund 25, Norðurstígur 3, Rauðagerði 37, Skólavörðustígur 8, Smárarimi 62, Spítalastígur 10, Staðarsel 1, Sundabakki 1, Suðurgata - háskóli íslands, Suðurlandsbraut 12, Suðurlandsbraut 16, Suðurlandsbraut 2, Suðurlandsbraut 4, Suðurlandsbraut 6, Sölvhólsgata 4, Sörlaskjól 26, Tjarnargata 10a, Tröllaborgir 23-29, Tunguvegur 19, Týsgata 4b, Týsgata 5, Vallengi 14, Vaðlasel 2, Vesturás 38, Viðey suðurendi, Ármúli 36, Ármúli 36, Ármúli 44, Árskógar 2 - 8, Ásgarður 18-24, Öskjuhlíð - keiluhöll, Úthlíð 7, Þönglabakki 1, Dyrhamrar 9, Efstaleiti 1, Efstaleiti 10 - 14, Grjótháls shell, Hlíðargerði 24, Klapparstígur 1 - 7a, Klapparstígur 35, Rafstöðvarvegur rr, Safamýri 34-38, Skipholt 58, Vesturbrún 20, Meistari/húsasmíðameistari, Baldursgata 22, Breiðavík 18, Engjasel 52-68, Flókagata 33, Höfðabakki 1, Laugarásvegur 35, Sogavegur 222, Starengi 36-40,

BYGGINGARNEFND

3385. fundur 1995

Árið 1995, fimmtudaginn 12. október, kl. 11.00 fyrir hádegi, hél byggingarnefnd Reykjavíkur 3385. fund sinn. Fundurinn var haldin í fundarsalnum 4. hæð Borgartúni 3. Þessir nefndarmenn sátu fundinn: Helgi Hjálmarsson, Sigurbjörg Gísladóttir, Steinunn V. Óskarsdóttir, Hilmar Guðlaugsson og Halldór Guðmundsson. Auk þeirra sátu fundinn Magnús Sædal Svavarsson, Ólafur Óskar Axelsson, Þormóður Sveinsson, Ívar Eysteinsson, Ágúst Jónsson, Hrólfur Jónsson og Sigríður K. Þórisdóttir. Fundarritari var Bjarni Þór Jónsson.
Þetta gerðist:


Umsókn nr. 10250 (01.04.670.7--)
Austurberg 28 - 38,
Einangra og klæða stigahús
Sótt er um leyfi til að einangra og klæða austurhlið hússins
á lóðnni nr. 30 við Austurberg með stálklæðningu, og framlengja
þak yfir stigahús.
Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.
Lagfæra þak á stigahúsi.


Umsókn nr. 10292 (01.04.670.7--)
Austurberg 28 - 38,
Einangra og klæða fjölbýlishús
Sótt er um leyfi til að einangra og klæða fjölbýlishús á lóðinni
nr. 28 við Austurberg með stálklæðningu og lengja þak yfir
stigahús.
Gjald kr. 2.180.oo.
Ennfremur lögð fram greinagerð dags. 15.06.95.

Frestað.
Lagfæra þak á stigahúsi.


Umsókn nr. 10288 (01.01.140.403)
Austurstræti 6,
Br. innrétt. í kj. 1.h. og 2.h
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingu í kjallara, 1. hæð og
2. hæð vegna eignaskipta í húsinu á lóðinni nr. 6 við
Austurstræti.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.


Umsókn nr. 10184 (01.01.186.207)
Baldursgata 22a,
Stækka og breyta
Sótt er um leyfi til að stækka og breyta innréttingu hússins á
lóðinni nr. 22A við Baldursgötu.
Stækkun: 1. hæð 1,7 ferm., 5 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 109.oo.

Frestað.
Vantar samþykki meðlóðarhafa.
Halldór Guðmundsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.


Umsókn nr. 10255 (01.01.170.101)
Bankastræti 2,
Br. innanhúss
Sótt um leyfi til að gera hringstiga úr járni á milli hæða,
fjarlægja veggi og gera vegg úr timbri við húsið á lóðinni nr. 3
við Lækjargötu.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Undanþága gefin frá vinnureglu um þvermál á hringstiga vegna
eðlis hússins.


Umsókn nr. 10258 (01.01.443.004)
Barðavogur 19,
garðhýsi
Sótt er um leyfi fyrir garðhúsi úr timbri við húsið á lóðinni
nr. 19 við Barðavog.
Stærð: garðstofa 17,5 ferm., 54 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 1.177.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10260 (01.01.195.219)
Barónsstígur 65,
breyta kjallara og geymsluskúr
Sótt er um að fá samþykktar teikningar af núverandi
fyrirkomulagi íbúða, vegna eignaskipta í húsinu á lóðinni nr. 65
við Barónsstíg.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10219 (01.02.846.205)
Baughús 10,
Br. innrétt.íb. í kj.+ fl.
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingu á efri hæð, gera íbúð
í kjallara, breyta útliti og gera bílastæði á lóðinni fyrir
aukaíbúð nr. 10 við Baughús.
Gjald kr. 2.180.oo.
Meðfylgjandi bréf skipulagsnefndar dags. 04.09.1995.

Frestað.
Gera skal grein fyrir inntökum. Vantar fatahengi.
Halldór Guðmundsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.


Umsókn nr. 10253 (01.02.586.207)
Berjarimi 39-41,
reisa skjólvegg
Sótt er um leyfi til að byggja skjólvegg úr timbri við húsið á
lóðinni nr. 39 - 41 við Berjarima.
Gjald kr. 2.180.oo.
Erindið var kynnt eigenda Berjarima 39 með bréfi dags. 01.09.95
og athugasemdir hafa borist með bréfi dags. 28.09.95.

Frestað.
Timburveggur verði ekki hærri en 1.20 m.


Umsókn nr. 10225 (01.04.642.301)
Blikahólar 2-12,
byggja þak ofan á steypta þakp
Sótt er um leyfi til að byggja þak ofan á steypta þakplötu
bílgeymslu á lóðinni nr. 10-12 við Blikahóla.
Stækkun: 40 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 872.oo.
Samþykki nágranna dags. 17.09.95 fylgir erindinu.

Frestað.
Vísað til skipulagsnefndar.


Umsókn nr. 10211 (01.01.221.002)
Borgartún 20,
Setja kvist o.fl
Sótt er um leyfi til að setja kvist á norðuhluta hússins á
lóðinni nr. 20 við Borgartún.
Stækkun: ris 9,5ferm., 12 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 262.oo.

Samþykkt.
Ívar Eysteinsson vék af fundi kl. 12.50.


Umsókn nr. 10217 (01.01.250.103)
Brautarholt 26,
Byggja ofaná svalir
Sótt er um leyfi til að byggja ofaná svalir úr stáli og timbri á
húsinu á lóðinni nr. 26 við Brautarholt.
Stærð: 2. hæð 63 ferm., 198 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 4.316.oo.

Samþykkt.
Þinglýsa skal yfirlýsingum vegna bílastæða dags. 06.10.1995 og
vegna eldvarna dags. 12.10.1995.
Halldór Guðmundsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.


Umsókn nr. 10195 (01.01.134.611)
Bræðraborgarstígur 32,
byggja viðbyggingu og portbygg
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu og portbyggja hús sem
fyrir er úr steinsteypu, timbri og járni á lóðinni nr. 32A við
Bræðraborgarstíg.
Stækkun: kjallari 36 ferm., 1. hæð 36 ferm., ris 19,3 ferm., 269
rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 5.864.oo.

Frestað.
Vísað til skipulagsnefndar hvað stærðir varðar.
Helgi Hjálmarsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.


Umsókn nr. 10227 (01.01.135.218)
Bræðraborgarstígur 7,
Iðnaðar og verslunarhúsnæði
Sótt er um að fá samþykktar teikningar af núverandi
fyrirkomulagi íbúðar, breyta húsi í íbúðarhús og klæða húsið á
lóðinni nr. 7 við Bræðraborgarstíg með steni plötum.
Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 10196 (01.01.135.401)
Bárugata 37,
Teikn. af núverandi fyrirk.
Sótt er um að fá samþykktar teikningar af núverandi
fyrirkomulagi íbúða hússins á lóðinni nr. 37 við Bárugötu.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10287 (01.04.056.401)
Bíldshöfði 7,
rannsóknarstofa
Sótt er um leyfi til að byggja rannsóknarbyggingu úr steinsteypu
á lóðinni nr. 7 við Bíldshöfða.
Stærð: 1. hæð 99,6 ferm., 2. hæð 99,6 ferm., 687 rúmm. Gjald
kr. 2.180.oo + 14.977.oo.

Samþykkt.
Helgi Hjálmarsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.


Umsókn nr. 10222 (01.02.344.804)
Dofraborgir 7,
byggja einbýlishús
Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús úr steinsteypu á
lóðinni nr. 7 við Dofraborgir.
Stærð: 1. hæð 151 ferm., 562 rúmm. bílgeymsla 28,9 ferm., 92
rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 14.257.oo.

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 10177 (01.01.354.007)
Dragavegur 6,
samþykkja bílskúr, sólhús á sv
Sótt er um leyfi fyrir áður byggðum bílskúr og sólhýsi við húsið
á lóðinni nr. 6 við Dragaveg.
Stærð: bílgeymsla 39,4 ferm., 100 rúmm., sólhýsi 8,4 ferm., 21
rúmm., samtals 121 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 2.638.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10254 (01.01.384.205)
Dyngjuvegur 18,
Breyta innréttingu vöggustofu.
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingu vöggustofu í
leikskóla við Dyngjuveg.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra. Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.


Umsókn nr. 10191 (01.01.673.004)
Einarsnes 66 og 66a,
Vegna eignaskiptasamnings
Sótt er um að fá samþykktar teikningar af núverandi
fyrirkomulagi og útliti hússins á lóðinni nr. 66A við Einarsnes.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10121 (01.01.704.002)
Eskihlíð 14 og 14a,
afgreiða uppfæða teikningu
Sótt er um að fá samþykktar teikningar af núverandi
fyrirkomulagi vegna eignaskipta í húsinu á lóðinni nr. 14 við
Eskihlíð.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10181 (01.01.110.503)
Eyjarslóð 9,
Eldvarnaveguur
Sótt er um leyfi til að setja upp eldvarnarvegg milli
eignarhluta ú húsinu á lóðinni nr. 9 við Eyjaslóð.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10262 (01.02.851.704)
Fannafold 155,
byggja garðhús
Sótt er um leyfi til að byggja garðhús úr timbri og gleri við
húsið á lóðinni nr. 155 við Fannafold.
Stærð: garðstofa 13,6 ferm., 38 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 828.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10151 (01.01.462.001)
Faxafen 8-14 - skeifan 11-19,
breytingar á innréttingum
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktri innréttingu í
húsinu á lóðinni nr. 17 við Skeifuna.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10178 (01.01.462.001)
Faxafen 8-14 - skeifan 11-19,
reisa spennistöð
Sótt er um leyfi til að reisa spennistöð skv. breyttum
teikningum á lóðinni nr. 19 við Skeifuna. Teikningar voru áður
samþykktar þann 10.08.1995.
Stærð: 1. hæð minnkar um 1,2 ferm., 5 rúmm.
Stærð verður 9,6 ferm., 33 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10190 (01.01.462.001)
Faxafen 8-14 - skeifan 11-19,
reysa skýli / vörumóttöku
Sótt er um leyfi til að reisa skýli/vörumóttöku úr timbri og
stáli við húsið á lóðinni nr. 19 við Skeifuna.
Stærð: 1. hæð 30 ferm., 113 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 2.464.oo.
Meðfylgjandi greingerð Jóhannesar Þórðarsonar dags. 30.07.1993,
vegna bílastæða á lóðinni.

Samþykkt.
Til bráðabirgða.


Umsókn nr. 10155 (01.01.297.101)
Fellsmúli 24 - 26,
brunavarnaruppdráttur
Sótt er um að fá samþykkta brunavarnaruppdrætti af húsinu á
lóðinni nr. 26 við Fellsmúla.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra.


Umsókn nr. 10203 (01.01.133.245)
Framnesvegur 30,
Leiðr. sameign í kjallara
Sótt er um leyfi f.h. húsfélagsins til að leiðrétta sameign í
kjallara hússins á lóðinni nr. 30 við Framnesveg.
Gjald kr.2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10140 (01.01.463.402)
Fákafen 11,
Byggja vegg
Sótt er um leyfi til að byggja vegg á lóðarmörkum úr steinsteypu
á lóðinni nr. 11 við Fákafen.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 9726 (01.01.515.404)
Granaskjól 36,
Reyndarteikningar.
Sótt er um að fá samþykktar teikningar af núverandi innra
fyrirkomulagi hússins lóðinni nr. 36 við Granaskjól.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10187 (01.01.521.201)
Grandavegur 47,
Aðstaða fyrir pottagaldra
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingu verslunar og
þjónusturýmis á 1. hæð (kryddpökkun) hússins á lóðinni nr. 47
við Grandaveg.
Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.
Vísað til heilbrigðiseftirlits.


Umsókn nr. 10209 (01.01.461.001)
Grensásvegur 3 - 7,
innrétta húsnæði f.veitingar.
Sótt er um leyfi til að innrétta húsnæði fyrir veitingarekstur
og skemmtistað og breyta skyggni að utan í húsinu á lóðinni nr.
5 og 7 við Grensásveg.
Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits og byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 10208 (01.01.353.204)
Hjallavegur 7,
klæða húsið, brjóta svalahandr
Sótt er um leyfi til að klæða húsið á lóðinni nr. 7 við
Hjallaveg að utan með hvítum steniplötum og bárustáli
Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.
Athuga aðra lausn.


Umsókn nr. 10226 (01.04.974.212)
Hnjúkasel 11,
Áður gerð sólstofa
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðri svalalokun úr timbri og gleri
á húsinu á lóðinni nr. 11 við Hnjúkasel.
Stærð: sólstofa 11,3 ferm., 45 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 981.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10269 (01.04.331.802)
Hraunbær 17 - 33,
Klæða með steni.
Sótt er um leyfi til að klæða að utan með steni, húsið nr. 17
við Hraunbæ, á lóðinni nr. 17 - 33 við Hraunbæ.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykki eigenda að Hraunbæ 7, 9, 15, 19, 25 og 27 fylgja
erindinu, ásamt skýrslu um ástand steinsteypu, dags. 09.11.94.

Synjað.


Umsókn nr. 10249 (01.04.335.201)
Hraunbær 62-100,
klæða bakhlið
Sótt er um leyfi til að klæða bakhlið hússins á lóðinni nr.
74 við Hraunbæ með steindri plötuklæðningu.
Gjald kr. 2.180.oo.
Yfirlýsing húsfélaganna að Hraunbæ 72, 74 og 76 dags. 30.09.95
fylgir erindinu.

Frestað.
Vantar fullnægjandi yfirlýsingu húsfélaganna nr. 72, 74 og 76
við Hraunbæ.


Umsókn nr. 10202 (01.01.143.005)
Hringbraut 30,
Br. sameign í núv. horf
Sótt er um að fá samþykktar teikningar af núverandi innra
fyrirkomulagi sameignar hússins á lóðinni nr. 30 við Hringbraut.
Gjald kr. 2.180.oo.
Meðfylgjandi samþykki meðeigenda dags. 04.10.1995.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10266 (01.01.540.008)
Hringbraut 63,
byggja svalir og tröppur
Sótt er um leyfi til að byggja svalir og tröppur úr timbri
niður í garð hússins á lóðinni nr. 63 við Hringbraut.
Gjald kr. 2.180.oo.
Bréf Guðrúnar Stefánsdóttur dags. 06.10.95 fylgir erindinu.

Frestað.
Lagfæra og minnka svalir.


Umsókn nr. 10284 (01.02.583.306)
Hrísrimi 35-37,
Fá íbúð samþykkta
Sótt er um leyfi til að fá samþykkta 55 ferm. íbúð (þrjár íbúðir
í húsinu) nr. 35 á lóðinni nr. 35 - 37 við Hrísrima.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykki nágranna fylgir erindinu.
Ennfremur lagt fram bréf umsækjanda dags. 14. ágúst 1995.
Umsögn skipulagsnefndar dags. 09.10.1995 fylgir erindinu.

Frestað.
Fá nánari skýringu á teikningu.


Umsókn nr. 10240 (01.01.152.428)
Hverfisgata 49,
reyndart.af geymslum í kj.
Sótt er um að fá samþykktar teikningar af núverandi
fyrirkomulagi í kjallara hússins á lóðinni nr. 49 við
Hverfisgötu.
Gjald kr. 2.180.oo.
Skoðunarskýrslur heilbrigðiseftirlits dags. 25.09.95 og
byggingarfulltrúa dags. 26.09.95 fylgja erindinu.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10265 (01.01.173.007)
Hverfisgata 72,
Endurbætur og samþ. íbúðarhús.
Sótt er um leyfi til að breyta og fá samþykkt sem íbúðarhúsnæði
húsið á lóðinni nr. 72 við Hverfisgötu.
Gjald kr. 2.180.oo.
Meðfylgjandi er greinagerð Magnúsar I. Erlingssonar
dags. 26.07.95.
Mótmæli dags. 20. júní 1995 frá eigendum Hverfisgötu 72 fylgja
málinu.
Erindið var kynnt nágrönnum með bréfi dags. 01.09.95 og fyrri
mótmæli eigenda Hverfisgötu 72 hafa verið ítrekuð með bréfi
Kolbeins Gunnarssonar dags. 29.09.1995.
Jafnframt lögð fram umsögn borgarskipulags dags. 10.07.95 og
umsögn skipulagsnefndar dags. 25.09.95.

Synjað.


Umsókn nr. 10274 (01.01.815.210)
Háagerði 19,
hækka þak
Sótt er um leyfi til að hækka kvist úr timbri á húsinu á lóðinni
nr. 19 við Háagerði.
Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.
Byggingarnefnd getur samþykkt hækkun á kvisti, en gluggi skal
leystur í samræmi við upphaflegt útlit hússins.


Umsókn nr. 10230 (01.01.291.205)
Háaleitisbraut 23,
Breyta gluggum
Sótt er um leyfi til að breyta gluggum (Veltigluggum) hússins á
lóðinni nr. 23 við Háaleitisbraut.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10247 (01.01.137.419)
Hávallagata 40,
br.
Sótt er um leyfi til að byggja yfir svalir úr gleri á
húsinu á lóðinni nr. 38-40 við Hávallagötu. Stærð: 2. hæð 11
ferm., 30 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 654.oo. Meðfylgjandi bréf Júlíönnu
Gísladóttur dags. 06.09.95.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10290 (01.04.634.102)
Jörfabakki 18-32,
uppmæling v/nýrra eignaskipas
Sótt er um leyfi fyrir breyttum innréttingum vegna eignarskipta
í húsinu á nr. 18 við Jörfabakka, á lóðinni nr. 18 - 32 við
Jörfabakka.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Samþykktin tekur ekki til tveggja íbúða í kjallara húss nr. 18
sem merktar eru 00-01 og 00-02.


Umsókn nr. 10220 (01.02.340.603)
Jötnaborgir 12-18,
byggja fjölbýlishús m. 8 íbúð
Sótt er um leyfi til að byggja fjölbýlishús úr steinsteypu með
átta íbúðum á lóðinni nr. 16-18 við Jötnaborgir.
Stærð: 1. hæð 65,5 ferm., 2. hæð 406,1 ferm., 3. hæð 406,1 ferm.,
2711 rúmm. Bílgeymsla 156,6 ferm., 423 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 68.321.oo.

Samþykkt.
Jafnframt breytist númer lóðarinnar í 16 og 18.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 10286 (01.01.354.109)
Kambsvegur 20,
Breyta einni íbúð í tvær, 2.h.
Sótt er um leyfi til að breyta í tvær íbúðir 2. hæð hússins á
lóðinni nr. 20 við Kambsveg.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykki meðeigenda dags. 21.08.95 fylgir erindinu.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10175 (01.01.141.212)
Kirkjutorg 6 og 6a,
gera viðbyggingu
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu úr timbri við húsið á
lóðinni nr. 6a við Kirkjutorg.
Stærð: 1. hæð 13,5 ferm., 2. hæð 15,7 ferm., 87 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 1.897.oo.
Meðfylgjandi er samþykki eigenda Kirkjutorgs 6b og umsögn
húsfriðunarnefndar ríkisins.
Bréf Barða Þórhallssonar f.h. Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins
fylgir einnig erindinu.

Frestað.
Vantar samþykki íbúa Kirkjutorgs 4 og 4B.


Umsókn nr. 10188 (01.01.863.301)
Kvistaland 1-7,
Hlífðarkápa á bílskúrsþak o.fl
Sótt er um leyfi til að klæða þakkant og breyta þaki bílskúrs
hússins á lóðinni nr. 7 við Kvistaland.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10248 (01.02.543.201)
Laufrimi 1-5,
breyta áður samþykktum teikn.
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktum teikningum af
húsinu á lóðinni nr. 1 við Laufrima þannig að tveggja herbergja
íbúð verður þriggja herbergja.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 10216 (01.02.540.301)
Laufrimi 10-18,
Byggja fjölbýlishús
Sótt er um leyfi til að byggja fjölbýlishús úr steinsteypu á
lóðinni nr. 10-18 við Laufrima, í húsi nr. 16, eru níu íbúðir og
í húsi nr. 18, eru ellefu íbúðir.
Stærð: hús nr. 16, kjallari 290,9 ferm., 2. hæð 280,5 ferm., 3.
hæð 280,5 ferm., 2656 rúmm., hús nr. 18, 1. hæð 375,7 ferm., 2.
hæð 363,3 ferm., 3. hæð 363,3 ferm., 3432 rúmm., samtals 6088
rúmm. Gjald kr. 4.360.oo + 132.718.oo.
Jafnframt er lagt til að lóðin verði nr. 16-18 við Laufrima.

Frestað.
Samræma og lagfæra útlit.


Umsókn nr. 10293 (01.01.183.407)
Laufásvegur 20,
Reyndarteikningar
Sótt er um að fá samþykktar teikningar af núverandi
fyrirkomulagi íbúða og útliti hússins á lóðinni nr. 20 við
Laufásveg.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Þinglýsa skal kvöð um aðgengi að geymslu í kjallara vegna lagna.
Sjá meðfylgjandi bókun byggingarnefndar:
Á grunnmynd af kjallara hússins er sýnd geymsla sem tilgreind er
í sameign þrátt fyrir að aðgangur að henni sé um séreign, þe.
kjallaraíbúð, slíkt fyrirkomulag samræmist ekki almennri reglu
um aðgang að sameign. Upplýst hefur verið að heimæðum hússins er
komið fyrir í geymslunni. Þinglýsa skal kvöð um aðgengi annara
húseigenda að geymslunni vegna lagna. Jafnframt er sett það
skilyrði að verði byggt við húsið skulu heimæðar fluttar þangað
í rými sem fullnægi kröfum um aðgengi eigenda.


Umsókn nr. 10213 (01.01.185.605)
Laufásvegur 53-55,
Endurb. og endurskipuleggja
Sótt er um leyfi til að breyta útliti og innra skipulagi hússins
lóðinni nr. 53-55 við Laufásveg.
Gjald kr. 2.180.oo.
Ennfremur lögð fram greinagerð hönnuðar dags. 26.09.1995.

Frestað.
Lagfæra teikningar.


Umsókn nr. 10192 (01.01.222.211)
Laugavegur 163,
Br. á áður samþ. teikningum
Sótt er um leyfi til að klæða að utan með ímúrkerfi húsið á
lóðinni nr. 163 við Laugaveg.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Jafnframt eru uppdrættir frá 08.06.1995 felldir úr gildi.


Umsókn nr. 10171 (01.02.877.203)
Logafold 96,
Breyta einbýlishúsi
Sótt er um leyfi til að taka í notkun útgrafin rými í kjallara,
og breyta bílskýli í bílskúr í húsinu á lóðinni nr. 96 við
Logafold. Stærð: kjallari 36,3 ferm., 98 rúmm., bílgeymsla 45,4
ferm., 170 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 5.842.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10263 (01.02.543.202)
Mosarimi 2,
breyta áur samþykktum teikn.
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktum teikningum af
húsinu á lóðinni nr. 2 við Mosarima þannig að tveggja herbergja
íbúð verður þriggja herbergja.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 10183 (01.02.376.101)
Mosavegur skóli,
breyta burðarþoli í bóknámshús
Sótt er um leyfi til að breyta burðarkerfi í bóknámshúsi á
lóðinni nr. 2 við Mosaveg.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra. Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.


Umsókn nr. 10289 (01.01.182.125)
Njálsgata 23,
íbúðarhús í verslunarhúsnæði
Sótt er um leyfi til að breyta íbúðarhúsnæði í verslunarhúsnæði
í húsinu á lóðinni nr. 23 við Njálsgötu.
Gjald kr. 2.180.oo.
Meðfylgjandi mótmæli íbúðareigenda að Njálsgötu 23 dags.
06.10.95.

Frestað.
Vísað til byggingarfulltrúa og skipulagnefndar.


Umsókn nr. 10193 (01.01.190.312)
Njálsgata 62,
áorðnum breytingum á 1. hæð
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á 1. hæð hússins á
lóðinni nr. 62 við Njálsgötu.
Stækkun 3,1 ferm., 15 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 344.oo.

Samþykkt.
Þormóður Sveinsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.


Umsókn nr. 10182 (01.01.415.101)
Njörvasund 25,
Reyndarteikningar
Sótt er um að fá samþykktar teikningar af núverandi
fyrirkomulagi í húsinu á lóðinni nr. 25 við Njörvasund.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10252 (01.01.132.016)
Norðurstígur 3,
Byggja við íbúðarhús.
Sótt er um leyfi til að byggja úr timbri við húsið á lóðinni
nr. 3 við Norðurstíg.
Stærð: kjallari 10,0 ferm., 1. hæð 13,4 ferm., 2. hæð 13,4
ferm., 3. hæð 100,2 ferm., ris 47,7 ferm., 492 rúmm. Gjald kr.
2.180.oo + 10.726.oo.
Erindið var kynnt nágrönnum með bréfi dags.01.09.95 og mótmæli
hafa borist frá eigenda Vesturgötu 20, dags. 28.09.95.

Frestað.
Lagfæra teikningar. Vísað til athugasemda.


Umsókn nr. 10185 (01.01.821.306)
Rauðagerði 37,
Innrétta íbúð á jarðhæð
Sótt er um leyfi til að innrétta íbúð á jarðhæð og breyta
innréttingu 1. hæðar hússins á lóðinni nr. 37 við Rauðagerði.
Gjald kr. 2.180.oo,

Samþykkt.


Umsókn nr. 10207 (01.01.171.206)
Skólavörðustígur 8,
Innrétta verslun
Sótt er um leyfi til að innrétta verslun í húsinu á lóðinni nr.
8 við Skólavörðustíg.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.


Umsókn nr. 10270 (01.02.526.308)
Smárarimi 62,
br.þaki
Sótt er um leyfi til að breyta þaki, stækka kvisti og
breyta útliti hússins á lóðinni nr. 62 við Smárarima.
Stærð: ris 13,6 ferm., 6 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 131.oo.

Frestað.
Byggingarnefnd ítrekar fyrri afstöðu. Gera skal grein fyrir
lofthæð í kvistrými.


Umsókn nr. 10205 (01.01.184.102)
Spítalastígur 10,
Ýmsar breytingar
Sótt er um leyfi til að breyta fyrstu og annari hæð í íbúðir,
rífa geymsluskemmu matshluti 03 við suðurhlið og fjarlægja eldra
hús matshluti 01, byggingarár 1910, á lóðinni nr. 10 við
Spítalastíg.
Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.
Vísað til skipulagsnefndar. Vísað til umsagnar umhverfismálaráðs
hvað niðurrif og brottfluttning varðar.


Umsókn nr. 10120 (01.04.924.001)
Staðarsel 1,
byggja sólstofu
Sótt er um leyfi til að byggja sólstofu úr gleri og stáli við
húsið á lóðinni nr. 1 við Staðarsel.
Stærð: sólstofa 17,4 ferm., 46 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 1.003.oo.

Frestað.
Lagfæra grunnmynd og útlit.


Umsókn nr. 10245 (01.01.332.001)
Sundabakki 1,
Hliðhús.Sundab. 1/Kleppsb. 4.
Sótt er um leyfi til að fjarlægja núverandi hliðhús við hlið 2,
nefnt hús 16, flytja núverandi hliðhús við hlið 1, nefnt hús nr.
1 að hliði 2 og byggja nýtt hliðhús við hlið 1, nefnt hús nr. 31
á lóðinni nr. 4 við Kleppsbakka, og nr. 1 við Sundabakka.
Stærð: 1. hæð 19,4 ferm., 49 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 1.068.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10186 (01.01.60-.-99)
Suðurgata - háskóli íslands,
byggja Náttúrufræðahús,
Sótt er um leyfi til að byggja náttúrufræðahús úr steinsteypu
við Sturlugötu.
Stærð: 1. hæð 3.277 ferm., 2. hæð 2357,7 ferm., 3. hæð 2319,8
ferm., 31289 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 682.035.oo.

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknareyðublaði. Vísað til
eldvarnaeftirlits.


Umsókn nr. 10210 (01.01.263.004)
Suðurlandsbraut 12,
Breyta matsölustað
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingu matsölustaðar á 1.
hæð (söluskála) hússins á lóðinni nr. 12 við Suðurlandsbraut
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.


Umsókn nr. 10243 (01.01.263.102)
Suðurlandsbraut 16,
endurbættar teikningar
Sótt er um leyfi fyrir breyttum innréttingum í húsinu á lóðinni
nr. 16 við Suðurlandsbraut.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10014 (01.01.261.101)
Suðurlandsbraut 2,
anddyri við aðalinngang
Sótt er um leyfi til að byggja anddyri fyrir framan aðalinngang
Hótel Esju á lóðinni nr. 2 við Suðurlandsbraut.
Stærð: 1. hæð 9 ferm., 26 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 567.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10200 (01.01.262.001)
Suðurlandsbraut 4,
Br. innréttingum
Sótt er um leyfi fyrir breyttum innréttingum á 4. og 5. hæð í
húsinu á lóðinni nr. 4 við Suðurlandsbraut.
Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.
Vantar ræstiherbergi.


Umsókn nr. 10201 (01.01.262.102)
Suðurlandsbraut 6,
Br. innréttingu
Sótt er um leyfi fyrir breyttum innréttingum á 1. hæð í húsinu á
lóðinni nr. 6 við Suðurlandsbraut.
Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.
Vantar ræstiherbergi.


Umsókn nr. 10212 (01.01.151.101)
Sölvhólsgata 4,
Breyta kjallarah. og glugga
Sótt er um leyfi til að breyta kjallarahurðum á vesturhlið í
glugga, hækka og breyta handriðum á 4. hæð hússins á lóðinni nr.
4 við Sölvhólsgötu.
Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.
Gera skal grein fyrir bílastæðum fatlaðra.


Umsókn nr. 10228 (01.01.532.014)
Sörlaskjól 26,
byggja svalir og stækka glugga
Sótt er um leyfi til að byggja svalir, síkka glugga og gera hurð
úr kjallara og út, í húsinu á lóðinni nr. 26 við Sörlaskjól.
Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.
Minnka skal svalir.


Umsókn nr. 10123 (01.01.141.310)
Tjarnargata 10a,
Byggja svalir ofl.
Sótt er um leyfi til að byggja svalir úr stáli á húsið á lóðinni
nr. 10A og 10B við Tjarnargötu.
Gjald kr. 2.180.oo.
Ennfremur lagt fram samþykki meðeigenda dags. í júní 1995.

Frestað.
Lagfæra útlit svala.


Umsókn nr. 10242 (01.02.340.302)
Tröllaborgir 23-29,
byggja fjölbýlishús
Sótt er um leyfi til að byggja fjölbýlishús úr steinsteypu með
átta íbúðum á lóðinni nr. 23-25 við Tröllaborgir.
Stærð: 1. hæð 311,4 ferm., 2. hæð 365,9 ferm., 3. hæð 365,9
ferm., 3136 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 68.365.oo.
Byggingarfulltrúi leggur til að lóðin verði tölusett nr. 23-25.

Synjað.
Helgi Hjálmarsson, Halldór Guðmundssson og Sigurbjörg Gísladóttir
á móti.


Umsókn nr. 10251 (01.01.837.001)
Tunguvegur 19,
Gluggi og br. innra skipul.
Sótt er um leyfi til að gera glugga á suð-vestur gafl og breyta
innra skipulagi 2. hæðar hússins á lóðinni nr. 19 við Tunguveg.
Gjald kr. 2.180.oo.
Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda ódagsett.

Samþykkt.
Kl. 14.45 mætti Ívar Eysteinsson aftur á fundinn.


Umsókn nr. 10257 (01.01.181.011)
Týsgata 4b,
Reyndarteikningar
Sótt er um að fá samþykktar teikningar af núverandi
fyrirkomulagi íbúða í húsinu á lóðinni nr. 4B við Týsgötu.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10164 (01.01.181.118)
Týsgata 5,
Hæð ofaná og br. í hótel
Sótt er um leyfi til að breyta íbúðarhúsnæði í hótel og byggja
hæð úr steinsteypu ofaná húsið á lóðinni nr. 5 við Týsgötu.
Stærð: 3. hæð 46,3 ferm., 132 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo +
2.878.oo.
Umsögn skipulagsnefndar dags. 09.10.95.
Samþykki eigenda Lokastígs nr. 2 og Týsgötu nr. 3 og 8 fylgir
erindinu.

Samþykkt.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra. Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.


Umsókn nr. 10221 (01.02.383.301)
Vallengi 14,
Grunnskóli
Sótt er um leyfi til að byggja grunnskóla úr steinsteypu á
lóðinni nr. 14 við Vallengi. Jafnframt lagðir fram
brunavarnaruppdrættir.
Stærð: kjallari 346 ferm., 1. hæð 3364 ferm., 2. hæð 1484 ferm.,
20433 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 445.439.oo.

Frestað.
Vísað til eldvarnaeftirlits. Vísað til athugasemda
byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 10180 (01.04.930.505)
Vaðlasel 2,
Breyta innréttingu og gluggum
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingu og gluggum á áður
samþykktri íbúð í húsinu á lóðinni nr. 2 við Vaðlasel.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10244 (01.04.385.402)
Vesturás 38,
Einbýlishús
Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús úr steinsteypu á
lóðinni nr. 38 við Vesturás.
Stærðir: 1. hæð 103,2 ferm., 2. hæð (ris) 84,9 ferm., 584 rúmm.,
blómaskáli 23,2 ferm., 59 rúmm., bílgeymsla 36 ferm., 120 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.
Minnka blómaskála.


Umsókn nr. 10246 (01.02.09-.---)
Viðey suðurendi,
hesthús
Sótt er um leyfi til að byggja hesthús úr timbri í Viðey.
Stærð: 1. hæð 31,8 ferm., 78 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 1.700.oo.

Samþykkt.
Til bráðabirgða.


Umsókn nr. 9327 (01.01.293.204)
Ármúli 36,
Eldvarnaruppsrættir
Sótt er um leyfi til að innrétta skrifstofuhúsnæði á 3. hæð og
verslunar- og verkstæðishúsnæði á 1. hæð og 2. hæð hússins á
lóðinni nr. 36 við Ármúla.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10199 (01.01.293.204)
Ármúli 36,
loftræsing sett úr vegg
Sótt er um leyfi fyrir loftræstingu úr veitingastofu og rist á
vesturvegg hússins á lóðinni nr. 36 við Ármúla.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.


Umsókn nr. 10259 (01.01.295.306)
Ármúli 44,
Reyndarteikningar
Sótt er um að fá samþykktar teikningar af núverandi
fyrirkomulagi hússins á lóðinni nr. 44 við Ármúla.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10215 (01.04.911.301)
Árskógar 2 - 8,
Hjúkrunarheimili
Sótt er um leyfi til að byggja hjúkrunarheimili úr steinsteypu á
lóðinni nr. 2 við Árskóga.
Stærð: kjallari 488,3 ferm., 1. hæð 1496,1 ferm., 2. hæð 1448,5
ferm., 3. hæð 392,0 ferm., ris. 280,7 ferm., samtals 13888 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 302.758.oo.
Ennfremur lagt fram bréf VSO dags. 03.10.95 og brunatæknileg
hönnun.

Frestað.
Með vísan til athugasemda. Athuga kvöð um holræsi.
Kynna fyrir skipulagsnefnd. Vantar samþykki meðlóðarhafa.
Halldór Guðmundsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.


Umsókn nr. 10256 (01.01.834.203)
Ásgarður 18-24,
Br. verslun í 2 íbúðir.
Sótt er um leyfi til að breyta verslunar -og kjötvinnsluhúsnæði
í tvær íbúðir á 1. hæð og jarðhæð hússins nr. 22 á lóðinni nr.
18 - 24 við Ásgarð.
Gjald kr. 2.180.oo.
Meðfylgjandi eru fyrirspurnir eigenda verslunarhúsnæðis,
Guðmundar Einarssonar og Elvars Ríkharðssonar, um hvort leyft
verði að breyta verslunarhúsnæði í íbúðir.

Frestað.
Vegna afgreiðslu málsins bókaði byggingarnefnd eftirfarandi:
Staðfestur deiliskipulagi af staðgreinreit 1.834.2, þ.e. reit
sem afmarkast af Ásgarði og Bústaðavegi, hefur nú verið breytt
þannig að heimilt er að fjölga íbúðum í reitnum. Vegna umsóknar
Krosshamra hf. og fyrirspurna Guðmundar Einarssonar og Elvars
Ríkharðssonar gerir byggingarnenfd þessa bókun: Umsókn
Krosshamra hf. Íbúð á 1. hæð. Gera þarf breytingar á svölum
hvað varðar lögun og efnisval, gera þær breytingar á
norðurhlið sem taki mið af íbúðarhúsi. Íbúð á jarðhæð. Áður
hafa verið gerðar athugasemdir við íbúðina úr nokkrum þeirra
hefur verið bætt, eftir stendur að ekki er séð fyrir nægri
dagsbirtu í eldhúsi sbr. gr. 6.1.2 í byggingarreglugerð.
Glerflötur glugga svefnisherbergis er of lítill, skv.
útlitsteikningu, sjá byggingarreglugerð gr. 6.3.1. Forstofa er
of lítil, sjá byggingarreglugerð gr. 6.4.1. Lögun stofu er
ófullnægjandi. Staðsetning bílastæðis óásættanleg.


Umsókn nr. 10238 (01.01.751.201)
Öskjuhlíð - keiluhöll,
Þakgarður
Sótt er um leyfi til að fylla meðfram 1. hæð og byggja þakgarð
á húsinu við Öskjuhlíð.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.
Hilmar Guðlaugsson vék af fundi kl. 15.12.


Umsókn nr. 10204 (01.01.270.110)
Úthlíð 7,
Breyta gluggap. og fl.
Sótt er um leyfi til að breyta gluggapóstum að hluta til í
upphaflegt útlit og setja smárúðuglugga í stofur hússins á
lóðinni nr. 7 við Úthlíð.
Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.


Umsókn nr. 10295 (01.04.603.501)
Þönglabakki 1,
Byggja göngugötu.
Sótt er um leyfi til að byggja yfir göngugötu úr límtré og
polycarkoadplötum á lóðunum nr. 12, 14 og 16 við Álfabakka og 1
- 6 við Þönglabakka.
Flatarmál yfirbyggðrar götu er 1685 ferm., rúmmál götu er 13915
rúmm, opið.
Ennfremur lagt fram bréf frá formanni svæðisf. dags. 06.03.95.
Umsögn skipulagsnefndar, dags. 8. mars 1995 fylgir erindinu.
Jafnframt lagt fram bréf Viðars Ólafssonar, dags. 29.03.1995 og
afrit af bréfi Svæðafélagsins til skipulagsnefndar, dags.
29.03.1995.
Bréf og yfirlýsing Viðars Ólafssonar, fylgja erindinu.
Jafnframt fylgir bréf Haraldar H. Helgasonar f.h. Andlegs
Þjóðarráðs bahá'ía á Íslandi dags. 27.09.95, og bréf
svæðafélagsins í Mjódd dags. 11.10.1995 um brunavarnir og
tímaáætlun.

Frestað.
Vísað til byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 10273 (01.02.296.501)
Dyrhamrar 9,
Lagt fram bréf
Lagt fram bréf umhverfisráðuneytisins, dags. 4. október 1995, þar
sem Anna Borgþórsdóttir f.h. húsfélagsins í Geithömrum 2-16,
kærir fyrirhugaða stækkun Hamraskóla.

Vísað til umsagnar skrifstofustjóra byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 10283 (01.01.745.401)
Efstaleiti 1,
Breyting á lóðarmörkum.
Reykjavíkurborg sækir um breytingar á lóðarmörkum Efstaleitis 1,
samkvæmt meðfylgjandi samkomulagi, dags. 7. mars 1995 samþykkt
borgarráðs sama dag og uppdrátt Mælingadeildar
borgarverkfræðings, dags. 05.10.1990.
Tillaga að breytingu lóðarmarka.
Lóðin er 56115 ferm., sbr. lóðarsamning nr.A-21391/90, dags.
15.08.1990.
Lóðin skiptist þannig:
Tekið undir götu 1474 ferm.
Tekið undir lóðina Efstaleiti 3, 3329 ferm.
Tekið undir lóðina Efstaleiti 5, 2200 ferm.
Tekið undir lóðina Efstaleiti 7, 2200 ferm.
Tekið undir lóðina Efstaleiti 9, 3000 ferm.
Lóðin verður 43915 ferm.
Felld er niður kvöð á lóðinni um almenna gönguumferð á
hitaveitulögn.
Sjá samþykkt skipulagsnefndar 20.03.1995 og samþykktir
borgarráðs 07.03.95 og 21.03.95 og samþykkt
byggingarnefndar dags. 14.09.1995.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10272 (01.01.746.801)
Efstaleiti 10 - 14,
Lagt fram bréf
Lagt fram bréf umhverfisráðuneytisins dags. 28.09.1995, þar sem
Sigurður Helgi Guðjónsson, hrl. f.h. húsfélagsins Efstaleiti 10,
12, og 14, kærir synjun byggingarnefndar frá 31. ágúst sl. á
beiðni um að fresta úrskurði ráðuneytisins dags. 01.03.95 og
21.07.95 meðan beðið er dómsniðurstöðu í málinu.
Ennfremur var lögð fram umsögn skrifstofustjóra byggingarfulltrúa
dags. 10.10.1995.

Byggingarnefnd samþykkti umsögn skrifstofustjóra
byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 10281 (01.04.301.201)
Grjótháls shell,
Stækkun á lóð
Skeljungur hf., sækir um leyfi til að stækka lóðina
Vesturlandsveg/Grjótháls samkvæmt meðfylgjandi bréfi dags.
18.09.1995 og uppdrætti mælingadeildar dags. 05.10.1995.
lóðin er 5700 ferm., sbr. leigulóðarsamning nr. 33022/86, dags.
30.12.86 viðbót við lóðina til austurs 2242 ferm., lóðin verður
7942 ferm. Sjá samþykktir skipulagsnefndar dags. 11.05.92 og
25.09.95 og samþykktir borgarráðs 12.05.95, 16.06.95 og 26.09.95.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10279 (01.01.815.406)
Hlíðargerði 24,
Trjáfellingar
Sótt er um leyfi til að fella 11 aspir á lóðinni nr. 24 við
Hlíðargerði. Umsögn garðyrkjustjóra dags. 02.10.95 fylgir
erindinu.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10285 (01.01.152.201)
Klapparstígur 1 - 7a,
Lögð fram umsögn
Lögð fram umsögn skrifstofustjóra byggingarfulltrúa vegna kæru
til umhverfisráðuneytisins dags. 04.09.95, þar sem ákvörðun
byggingarnefndar frá 30. mars 1995 um byggingarleyfi fyrir
fjölbýlishús á lóðinni nr. 7 við Klapparstíg er kærð.

Samþykkt.
Byggingarnefnd samþykkir að fella byggingarleyfið frá 30. mars
1995 úr gildi að svo stöddu.


Umsókn nr. 10301 (01.01.172.237)
Klapparstígur 35,
Leiðrétting á stærðum
Á fundi byggingarnefndar þann 27.07.95 var samþykkt fjölbýlishús
á lóðinni nr. 35 við Klapparstíg. Stærðir eru eftirfarandi:
kjallari 33,5 ferm., 1. hæð 217,7 ferm., 2. hæð 249,9 ferm., 3.
hæð 249,9 ferm., 4. hæð 222,4 ferm., samtals 2595 rúmm. Jafnframt
var samþykkt niðurrif á lóðinni samtals 240 rúmm., að stærð.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10276 (01.04.25-.-88)
Rafstöðvarvegur rr,
Niðurrif
Landsvirkjun, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, sækir um leyfi
til þess að rífa dæluhús úr steinsteypu, um er að ræða matshluta
nr. 20, staðgreinir 01.04.25-.-88. Bréf Landsvirkjunar dags. 4.
október 1995 fylgir málinu.
Samþykki borgarstjórnar dags. 19. október 1995 fylgir erindinu.

Frestað.
Vísað til borgarráðs.


Umsókn nr. 10299 (01.01.286.001)
Safamýri 34-38,
Leiðrétting á stærðum
Á fundi byggingarnefndar þann 27.07.95 var stækkun neðri kjallara
í stigahúsi nr. 34 bókuð 145,9 ferm., 321 rúmm., en á að vera 98
ferm., 216 rúmm., og í stigahúsi 38, 155,5 ferm., 342 rúmm., en á
að vera 104,4 ferm., 230 rúmm.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10280 (01.01.255.003)
Skipholt 58,
Trjáfellingar
Sótt er um leyfi til að fella nokkur tré á lóðinni nr. 58 við
Skipholt. Umsögn garðyrkjustjóra dags. 02.10.95 fylgir erindinu.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10278 (01.01.382.103)
Vesturbrún 20,
Trjáfellingar
Sótt er um leyfi til að fella grenitré sem stendur á lóðinni nr.
20 við Vesturbrún. Umsögn garðyrkjustjóra dags. 02.10.95 fylgir
erindinu.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10179
Meistari/húsasmíðameistari,
meistari/húsasmíðameistari
Ofanritaður sækir um leyfi byggingarnefndar til að mega standa
fyrir byggingum í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur sem
húsasmíðameistari.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10239 (01.01.186.206)
Baldursgata 22,
Breyta innréttingu o.fl
Spurt er hvort leyft verði að breyta innréttingum og stækka ris
hússins á lóðinni nr. 22 við Baldursgötu.

Frestað.


Umsókn nr. 10223 (01.02.355.302)
">Breiðavík 18,
reisa fjölbýlishús
Spurt er hvort leyft verði að byggja fjölbýlishús úr steinsteypu
með tuttugu og fjórum íbúðum á lóðinni nr. 18 við Breiðuvík.

Frestað.
Lagfæra planlausnir. Vísað til athugasemda á fyrirspurnarblaði.


Umsókn nr. 10189 (01.04.947.301)
Engjasel 52-68,
Byggja skýli yfir svalir
Spurt er hvort leyft verði að byggja glerskýli yfir svalir á 3.
hæð hússins á lóðinni nr. 52-54 við Engjasel.
Stærð: ris 36 ferm., 78 rúmm.

Nei


Umsókn nr. 10206 (01.01.244.402)
Flókagata 33,
Byggja yfir svalir + nýjar sv.
Spurt er hvort leyft verði að byggja yfir svalir og gera nýjar
svalir úr steinsteypu á húsinu á lóðinni nr. 33 við Flókagötu.

Frestað.
Fá aðra lausn sem fellur betur að formi hússins.


Umsókn nr. 10218 (01.04.070.001)
Höfðabakki 1,
hótelíbúðir
Spurt er hvort leyft verði að innrétta hótel íbúðir á 1-3 hæð
hússins á lóðinni nr. 1 við Höfðabakka.
Bréf umsækjanda dags. 04.10.95 og umsögn skipulagsnefndar dags.
27.09.1995 fylgja erindinu.

Nei.


Umsókn nr. 10236 (01.01.382.113)
Laugarásvegur 35,
Hæð ofaná núverandi hús
Spurt er hvort leyft verði að byggja ofan á núverandi hús á
lóðinni nr. 35 við Laugarásveg.

Frestað.
Kynna fyrir nágrönnum.
Halldór Guðmundsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.


Umsókn nr. 10298 (01.01.837.004)
Sogavegur 222,
Breytt lóðarmörk
Spurt er hvort leyft verði að breyta lóðarmörkum Sogavegs 222,
til samræmis við lóðarmörk Sogavegs 218 og 220.

Jákvætt.


Umsókn nr. 10235 (01.02.384.301)
Starengi 36-40,
Raðhús
Spurt er hvort leyft verði að byggja raðhús með þremur íbúðum úr
steinsteypu á lóðinni nr. 36-40 við Starengi.

Jákvætt.
Lagfæra plan og útlit.