Ásgarður 18-24
Verknúmer : BN010256
3385. fundur 1995
Ásgarður 18-24, Br. verslun í 2 íbúðir.
Sótt er um leyfi til að breyta verslunar -og kjötvinnsluhúsnæði
í tvær íbúðir á 1. hæð og jarðhæð hússins nr. 22 á lóðinni nr.
18 - 24 við Ásgarð.
Gjald kr. 2.180.oo.
Meðfylgjandi eru fyrirspurnir eigenda verslunarhúsnæðis,
Guðmundar Einarssonar og Elvars Ríkharðssonar, um hvort leyft
verði að breyta verslunarhúsnæði í íbúðir.
Frestað.
Vegna afgreiðslu málsins bókaði byggingarnefnd eftirfarandi:
Staðfestur deiliskipulagi af staðgreinreit 1.834.2, þ.e. reit
sem afmarkast af Ásgarði og Bústaðavegi, hefur nú verið breytt
þannig að heimilt er að fjölga íbúðum í reitnum. Vegna umsóknar
Krosshamra hf. og fyrirspurna Guðmundar Einarssonar og Elvars
Ríkharðssonar gerir byggingarnenfd þessa bókun: Umsókn
Krosshamra hf. Íbúð á 1. hæð. Gera þarf breytingar á svölum
hvað varðar lögun og efnisval, gera þær breytingar á
norðurhlið sem taki mið af íbúðarhúsi. Íbúð á jarðhæð. Áður
hafa verið gerðar athugasemdir við íbúðina úr nokkrum þeirra
hefur verið bætt, eftir stendur að ekki er séð fyrir nægri
dagsbirtu í eldhúsi sbr. gr. 6.1.2 í byggingarreglugerð.
Glerflötur glugga svefnisherbergis er of lítill, skv.
útlitsteikningu, sjá byggingarreglugerð gr. 6.3.1. Forstofa er
of lítil, sjá byggingarreglugerð gr. 6.4.1. Lögun stofu er
ófullnægjandi. Staðsetning bílastæðis óásættanleg.