Laufásvegur 20

Verknúmer : BN010293

3385. fundur 1995
Laufásvegur 20, Reyndarteikningar
Sótt er um að fá samþykktar teikningar af núverandi
fyrirkomulagi íbúða og útliti hússins á lóðinni nr. 20 við
Laufásveg.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Þinglýsa skal kvöð um aðgengi að geymslu í kjallara vegna lagna.
Sjá meðfylgjandi bókun byggingarnefndar:
Á grunnmynd af kjallara hússins er sýnd geymsla sem tilgreind er
í sameign þrátt fyrir að aðgangur að henni sé um séreign, þe.
kjallaraíbúð, slíkt fyrirkomulag samræmist ekki almennri reglu
um aðgang að sameign. Upplýst hefur verið að heimæðum hússins er
komið fyrir í geymslunni. Þinglýsa skal kvöð um aðgengi annara
húseigenda að geymslunni vegna lagna. Jafnframt er sett það
skilyrði að verði byggt við húsið skulu heimæðar fluttar þangað
í rými sem fullnægi kröfum um aðgengi eigenda.