Asparf 2-12 æsuf 2-6, Austurstræti 22b, Bankastræti 11, Bíldshöfði 18, Bíldshöfði 9, Bíldshöfði 9a, Dofraborgir 1, Egilsgata 3 - domus medica, Eldshöfði 18, Faxafen 8-14 - skeifan 11-19, Faxafen 9, Fiskislóð 99, Flugvöllur - flugleiðir., Flókagata 14, Frakkastígur 13, Garðastræti 17, Gerðuberg 1, Grensásvegur 1, Grensásvegur 3 - 7, Heiðargerði 88, Hestháls 15, Hjarðarhagi 31, Hverfisgata 123, Hörpugata 11, Jafnasel 6, Keldnaholt, Kringlan 4-6, Kringlan 7, Langholtsvegur 126-130, Langholtsvegur 186, Laufrimi 1-5, Laufrimi 1-5, Laufásvegur 31, Malarhöfði 8, Mosarimi 20-24, Mörkin 4, Mörkin 6, Mörkin 6, Njálsgata 44, Rósarimi 2, Rósarimi 6 - 8, Skútuvogur 4, Smárarimi 40, Starengi 58, Stigahlíð 45 - 47, Síðumúli 21, Vesturgata 7, Víðimelur 59, Víðimelur 64, Álfabakki 12, Ármúli 17, Ármúli 22, Ármúli 30, Ásvallagata 48, Úthlíð 14, Austurstræti 20, Borgarhverfi-skilmálar a-hluti, Borgarhverfi-skilmálar b-hluti, Hagasel 40 - kirkja., Laugalækur 2a, Meistari - húsasmíðameistari., Meistari - múrarameistari., Meistari - múrarameistari., Reyrengi 23, Skipulagsskilmálar., Starhagi - númering., Síðumúli 32, Súðarvogur 2e og 2f, Viðarrimi 2-18, Þvottalaugabl. vii- reykjaborg, Þórsgata 16, Fiskislóð 97, Síðumúli 19, Álfab. 12-16 og þönglab.1 og 6,

BYGGINGARNEFND

3368. fundur 1995

Árið 1995, fimmtudaginn 26. janúar, kl. 11 fyrir hádegi, hél byggingarnefnd Reykjavíkur 3368 fund sinn. Fundurinn var haldin í fundarsalnum 4. hæð Borgartúni 3. Viðstaddir voru: Gunnar L Gissurarson, Helgi Hjálmarsson, Steinunn V. Óskarsdóttir, Hilma Guðlaugsson og Þórunn Pálsdóttir. Auk þeirra sátu fundinn: Magnú Sædal Svavarsson, Ívar Eysteinsson, Hrólfur Jónsson, Ágús Jónsson, Ólafur Ó. Axelsson, Þormóður Sveinsson og Elísabet J Þórisdóttir. Fundarritari var Bjarni Þór Jónsson.
Þetta gerðist:


Umsókn nr. 8128 (01.04.681.001)
Asparf 2-12 æsuf 2-6,
klæða suður og austurhliðar.
Sótt er um leyfi til að klæða útveggi suður- og austurhliðar með
stáli og stenexklæðningu, hluti hússins var klæddur 1990, sjá
skýrslu Línuhönnunar.
Gjald kr. 2.140.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 8111 (01.01.140.505)
Austurstræti 22b,
Auglýsingarskilti.
Sótt er um leyfi til að setja upp auglýsingaskilti á
húsið á lóðinni nr. 22B við Austurstræti (austurhlið að
Lækjargötu).
Gjald kr. 2.180.oo.

Synjað.
Auglýsingamagn á húsinu er umfram reglur.


Umsókn nr. 8106 (01.01.171.018)
Bankastræti 11,
br,rishæð 4 h.í 2 íbúðir
Sótt er um leyfi til að breyta rishæð í tvær íbúðir í húsinu á
lóðinni nr. 11 við Bankastræti.
Ennfremur lagt fram samþykki meðeigenda, dags. 05.01.95.
Gjald kr. 2.180.oo.
Greiða skal fyrir 1 bílastæði í flokki III eða alls kr.
566.832.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 8138 (01.04.065.002)
Bíldshöfði 18,
bæta við innkeyrsluhurðum
Sótt er um leyfi til að bæta við 3 innkeyrsludyrum á norðurhlið
bakhúss á lóðinni nr. 18 við Bíldshöfða.
Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.
Fá skýringar á mismun teikninga.


Umsókn nr. 8108 (01.04.062.001)
Bíldshöfði 9,
Reyndarteikningar.
Sótt er um leyfi til að leggja inn teikningar með áorðnum
breytingum og brunavörnum í húsið á lóðinni nr. 9 við
Bíldshöfða.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra.


Umsókn nr. 8123 (01.04.062.002)
Bíldshöfði 9a,
dreifistöð RR
Sótt er um leyfi til að byggja dreifistöð úr steinsteyptum
einingum á lóðinni nr. 9A við Bíldshöfða.
Stærð: 1. hæð 13,8 ferm., 35 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 763.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 8137 (01.02.344.801)
Dofraborgir 1,
Einbýlishús.
Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús úr steinsteypu á
lóðinni nr. 1 við Dofraborgir.
Stærð: 1. hæð 142 ferm., 459 rúmm., bílgeymsla 31 ferm., 96 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 12.099.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 8185 (01.01.193.404)
Egilsgata 3 - domus medica,
Breyta innrétt.
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingu í verslunar og
skrifstofuhúsnæði á 1. hæð hússins á lóðinni nr. 3 við
Egilsgötu.
Gjald kr. 2.140.oo.
Jafnframt lagt fram bréf frá Einari P. Svavarssyni, fram.kv. stj.
dags. 18.01.95.

Samþykkt.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.


Umsókn nr. 8182 (01.04.035.004)
Eldshöfði 18,
Brunatæknileg hönnun.
Lögð fram brunatæknileg hönnun í húsinu á lóðinni nr. 18 við
Eldshöfða.
Gjald kr. 2.140.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 8063 (01.01.462.001)
Faxafen 8-14 - skeifan 11-19,
Útbygging.
Sótt er um leyfi til að breyta útbyggingu hússins úr timbri
og stáli við Skeifuna 17.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra.


Umsókn nr. 8140 (01.01.463.303)
Faxafen 9,
Skáli
Sótt er um leyfi til að byggja glerskála úr timbri, gleri og
járni á lóðinni nr. 9 við Faxafen.
Stærð: 1. hæð 142 ferm., 511 rúmm. Gjald kr. 2.140.oo +
10.935.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 8114 (01.01.087.601)
Fiskislóð 99,
Fiskverkunarhús
Sótt er um leyfi til að byggja fiskverkunarhús úr stálgrind á
steyptum grunni á lóðinni nr. 99 við Fiskislóð.
Stærð: 1. hæð 1018,2 ferm., 2. hæð 220,8 ferm., 5451 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 118.831.oo.

Frestað.
Leyft að grafa.


Umsókn nr. 8153 (01.01.619.601)
Flugvöllur - flugleiðir.,
Nýjar gluggahliðar á A og V-hl
Sótt er um leyfi til að setja nýjar gluggahliðar úr áli og
gleri á eldri hótelálmu 2. 3. og 4. hæð.
Gjald kr. 2.180. Meðfylgjandi er bréf frá Vinnustofunni Klöpp.

Samþykkt.
Skila skal inn sérteikningum af hæðarskilum.


Umsókn nr. 8183 (01.01.247.202)
Flókagata 14,
bílgeymsla
Sótt er um leyfi til að byggja bílskúr úr steinsteypu og timbri
á lóðinni nr. 14 við Flókagötu.
Stærð: bílgeymsla 36,0 ferm., 97 rúmm. Gjald kr. 2.140.oo +
2.076.oo. Meðfylgjandi er samþykki eigenda Flókagötu 16.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 8171 (01.01.173.137)
Frakkastígur 13,
Endurb., og br., og ól., hús.
Sótt er um leyfi til að endurbæta og breyta íbúð og sótt er um
leyfi fyrir óleyfisbyggingu í austurhluta lóðar á lóðinni nr. 13
við Frakkastíg.
Bókun skipulagsnefndar, dags. 23.01.95, fylgir erindinu. Stærð:
1.hæð 126,3 ferm., 382 rúmm. Gjald kr. 8.180.oo + 2.140.oo.

Frestað.
Skila skal inn teikningum í samræmi við samþykkt
skipulagsnefndar frá 23.01.95.


Umsókn nr. 8135 (01.01.136.525)
Garðastræti 17,
Breyta skrifst. í íbúðir.
Sótt er um leyfi til að breyta skrifstofuhúsnæði í íbúð og gera
á því svalir úr steinsteypu á lóðinni nr. 17 við Garðastræti.
Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknareyðublaði.


Umsókn nr. 8125 (01.04.674.301)
Gerðuberg 1,
Br. innréttingu jarðhæðar.
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingu 1. hæðar hússins í
dagvistun fatlaðra og vinnustofu einhverfa á lóðinni nr. 1 við
Gerðuberg.
Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.
vísað til athugasemda á umsóknareyðublaði.


Umsókn nr. 8187 (01.01.460.001)
Grensásvegur 1,
byggja 3 hæð ofaná
Sótt er um leyfi til að byggja 3. hæð ofan á skrifstofubyggingu
og klæða allt húsið með stálgrind og timbri (plötum í flokki 1)
á lóðinni nr. 1 við Grensásveg.
Stærð: 3. hæð 551,4 ferm., 1492 rúmm. Gjald kr. 2.140.oo +
31.929.oo.

Samþykkt.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.


Umsókn nr. 8115 (01.01.461.001)
Grensásvegur 3 - 7,
Hólfun m.t.t. eldvarna.
Sótt er um leyfi fyrir innri hólfun m.t.t. eldvarna í húsinu nr.
3 á lóðinni nr. 3 - 7 við Grensásveg.
Gjald kr. 2.140.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 8064 (01.01.802.213)
Heiðargerði 88,
Bifreiðageymsla
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktri bifreiðageymslu,
innra fyrirkomulagi húss og breyta eldhúsglugga hússins á
lóðinni nr. 88 við Heiðargerði.
Uppdráttur samþykktur 11.08.94 óskast jafnframt felldur úr gildi.
Stærð: bílgeymsla 34,6 ferm., 91 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo +
1.984.oo.

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknareyðublaði.
Minnka bifreiðageymslu í samræmi við byggingarreglugerð.


Umsókn nr. 8161 (01.04.322.401)
Hestháls 15,
Hestháls 15 Iðnaðarhúsnæði.
Sótt er um leyfi til að byggja iðnaðarhús úr steypu, stáli og
timbri á lóð við Hestháls.
Stærð: 1. hæð 324 ferm., 2. hæð 44,9 ferm., 1593 rúmm. Gjald kr.
2.140.oo + 34.090.oo.

Frestað.


Umsókn nr. 8150 (01.01.545.103)
Hjarðarhagi 31,
br,íbúðarhúsi
Sótt er um leyfi til að breyta íbúð í kjallara hússins nr. 31
við Hjarðarhaga.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 8130 (01.01.222.117)
Hverfisgata 123,
sameina íbúðir á 2 og 3 í eina
Sótt er um leyfi til að sameina íbúðir á 2. og 3. hæð í húsinu
nr. 123 við Hverfisgötu í eina íbúð.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 8129 (01.01.635.803)
Hörpugata 11,
Breyting á gluggum.
Sótt er um leyfi til að breyta útliti glugga hússins á lóðinni
nr. 11 við Hörpugötu.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 8195 (01.04.993.103)
Jafnasel 6,
Breyta innrétting og rekstri.
Sótt er um leyfi til að innrétta söluturn og skyndibitastað á
hluta jarðhæðar hússins á lóðinni nr. 6 við Jafnasel.
Gjald kr. 2.140.oo.

samþykkt áskilið sþ.heilbrigðisnefndar


Umsókn nr. 8144 (01.02.3--.-98)
Keldnaholt,
Hækkun á þaki elstu byggingar.
Sótt er um leyfi til að breyta þaki á elstu byggingu
stofnunarinnar við Keldnaholt.
Stærð: 995 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 21.691.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 8147 (01.01.721.301)
Kringlan 4-6,
Breyta innr. 4. og 5. hæð
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingu á 4. og 5. hæð, m.a.
minnka íbúð á 5. hæð hússins nr. 4 við Kringluna.
Skrifstofa verður 53,7 ferm. og íbúð verður 71,5 ferm.
Gjald kr. 2.140.oo.

Samþykkt.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra.


Umsókn nr. 8143 (01.01.723.101)
Kringlan 7,
Breyta stigahúsi.
Sótt er um leyfi til að breyta stigahúsi og bílgeymslu hússins á
lóðinni nr. 7 við Kringluna.
Gjald kr. 2.180.oo.
Meðfylgjandi eru bréf Ingimundar Sveinssonar, dags. 18.01.95,
bréf borgarstjórans í Reykjavík, Markúsar Arnar Antonssonar,
dags. 19.01.94, bréf Ágústs Jónssonar, skrifstofustjóra
borgarverkfræðings, dags. 10.01.94 og 13.01.94 og bréf Stefáns H.
Stefánssonar, dags. 15.07.93.

Frestað.
Gera skal grein fyrir eldvarnauppdráttum.


Umsókn nr. 8134 (01.01.436.129)
Langholtsvegur 126-130,
Br. á verslunarrými.
Sótt er um leyfi til að breyta verslunarrými í húsinu nr. 130 á
lóðinni nr. 126 - 130 við Langholtsveg.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.


Umsókn nr. 8072 (01.01.445.106)
Langholtsvegur 186,
Áður gerð íbúð í kjallara
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðri íbúð í kjallara á lóðinni nr.
186 við Langholtsveg.
Gjald kr. 2.140.oo.
Málið var kynnt með bréfi dags. 14.12.94, og mótmæli, dags.
24.01.95, hafa borist.
Jafnframt lagt fram bréf f.h. umsækjanda dags. 19.01.95.

Frestað.
Vísað til umsagnar skrifstofustjóra byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 8148 (01.02.543.201)
Laufrimi 1-5,
br,útliti
Sótt er um leyfi til að setja útihurð í bifreiðageymslu
Laufrima 3, svo hún verði lokuð.
Stærð: bílgeymsla 56,7 ferm., 141,7 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo +
3.089.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 8149 (01.02.543.201)
Laufrimi 1-5,
br.útliti
Sótt er um leyfi til að setja útihurð í bílageymslu Laufrima 1,
svo hús verði lokuð.
Stærð: bílgeymsla 56,7 ferm., 141,7 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo +
3.089.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 8184 (01.01.185.212)
Laufásvegur 31,
Sendiráð.
Sótt er um leyfi til að byggja skrifstofuhúsnæði (sendiráð) úr
steinsteypu og stáli á lóðinni nr. 31 við Laufásveg.
Stærð: kjallari 100 ferm., 1. hæð 560 ferm., 2. hæð 318 ferm.,
3030 rúmm. Bílgeymsla 255 ferm., 791 rúmm. Gjald kr. 2.140.oo +
81.769.oo.
Greiða skal fyrir 8,6 bílastæði í flokki IV eða alls kr.
6.776.877.oo.
Erindið var kynnt með bréfi og athugasemdir hafa borist.
Jafnframt lagt fram bréf skipulagsnefndar, dags. 09.08.94., og
staðfesting umhverfisráðherra á breyttu skipulagi, dags.
24.01.95.

Frestað.
Byggingarnefnd lýsir sig samþykka þeim byggingaráformum sem fram
koma í umsókn umsækjanda hvað staðsetningu, fyrirkomulag og
byggingarmagn varðar en vegna meðfylgjandi athugasemda frestar
byggingarnefndin endalegri afgreiðslu málsins nú.
Þórunn Pálsdóttir vék af fundi við afgreiðslu málsins.


Umsókn nr. 8008 (01.04.055.502)
Malarhöfði 8,
Breyta innréttingu.
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingu (stækka milligólf) í
húsinu á lóðinni nr. 8 við Malarhöfða.
Stækkun: 484,2 ferm. Gjald kr. 2.140.oo.

Samþykkt.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra.


Umsókn nr. 7908 (01.02.543.001)
Mosarimi 20-24,
Byggja keðjuhús.
Sótt er um leyfi til að byggja 3 keðjuhús úr steinsteypu
(argisól) á lóðinni nr. 20 - 24 við Mosarima.
Stærð: Hús nr. 20, 1. hæð 127,0 ferm., 465 rúmm. Hús nr. 22, 1.
hæð 118,0 ferm., 434 rúmm. Hús nr. 24, 118,0 ferm., 434 rúmm.
Hver bílgeymsla 28,0 ferm., 70 rúmm. Gjald kr. 3 x 2.140.oo +
33.020.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 8181 (01.01.471.102)
Mörkin 4,
versl,og skrifst,hús
Sótt er um leyfi til að byggja verslunar - og skrifstofuhúsnæði
úr steinsteypu á lóðinni nr. 4 við Mörkina.
Stærð: kjallari 912,0 ferm., 1. hæð 912,0 ferm., 2. hæð
568,0 ferm., 10060 rúmm. Gjald kr. 2.140.oo.
Meðfylgjandi er afrit af bréfi Guðmundar Gunnlaugssonar til
skipulagsnefndar og yfirlýsing frá Trésmíðafélagi Reykjavíkur
vegna lóðamarka og hækkunar húsa að Mörkinni 2, dags. 4. janúar
1995.

Samþykkt.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 8126 (01.01.471.201)
Mörkin 6,
Innréttingarbr.(tölvu,verkst.)
Sótt er um leyfi til að innrétta tölvuverslun, verkstæði og
geymslur fyrir tölvubúnað í húsinu á lóðinni nr. 6 við Mörkina.
Gjald kr. 2.140.oo.

Samþykkt.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.


Umsókn nr. 8154 (01.01.471.201)
Mörkin 6,
tannlæknastofa
Sótt er um leyfi til að innrétta tannlæknastofur á 2. hæð og í
risi hússins á lóðinni nr. 6 við Mörkina.
Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknareyðublaði.


Umsókn nr. 8110 (01.01.190.213)
>Njálsgata 44,
Hækka þak og setja kvisti + sv
Sótt er um leyfi til að hækka ris, setja kvisti, svalir og fá
leyfi fyrir eldri stækkun á skúr á lóðinni nr. 44 við Njálsgötu.
Stækkun: skúr 16,4 ferm., 44 rúmm., ris 12 ferm., 44 rúmm.,
samtals 88 rúmm. Gjald kr. 2.140.oo + 1882.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 8146 (01.02.543.801)
Rósarimi 2,
br,útliti
Sótt er um leyfi til að setja hurð fyrir opin bílskýli og breyta
þeim í bílgeymslur á lóðinni nr. 2 - 4 við Rósarima.
Stærð: 56,7 ferm., 142 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 3.095.oo.
Ennfremur lagt fram bréf frá Ríkharði Steinbergssyni, framkv.stj.
og Gísla Halldórssyni, arkitekt, dags. 10.01.95.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 8145 (01.02.543.802)
Rósarimi 6 - 8,
br,útliti
Sótt er um leyfi til að setja hurð fyrir opin bílskýli og breyta
þeim í bílgeymslur á lóðinni nr. 6 - 8 við Rósarima.
Stærð: 56,7 ferm., 142 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 3.095.oo.
Ennfremur lagt fram bréf frá Ríkharði Steinbergssyni,
framkv.stj. og Gísla Halldórssyni, arkitekt, dags. 10.01.95.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 8061 (01.01.420.201)
Skútuvogur 4,
Breyta útliti norðurhliðar
Sótt er um leyfi til að breyta útliti tengibyggingar
(norðurhlið) úr timbri og stáli á lóðinni nr. 4 við Skútuvog.
Jafnframt er lagt fram samþykki meðeigenda, dags. 05.01.94.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 8136 (01.02.524.705)
Smárarimi 40,
færa til svalahurð
Sótt er um leyfi til að færa til svalahurð á áður samþykktu húsi
á lóðinni nr. 40 við Smárarima.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 8060 (01.02.384.405)
Starengi 58,
Hækka mænishæð
Sótt er um leyfi til að hækka mæni um 10 sm. á áður samþykktu
einbýlishúsi á lóðinni nr. 58 við Starengi.
Stærð: 9 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 196.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 8132 (01.01.712.101)
Stigahlíð 45 - 47,
Br. á nýtingu hluta 2. hæðar.
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingu á 2. hæð hússins á
lóðinni nr. 45 - 47 við Stigahlíð.
Gjald kr. 2.180.oo.
Ennfremur lagt fram bréf hönnuðar, dags. 18.01.95 og
Vinnueftirlits, dags. 18.01.95.

Samþykkt.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.


Umsókn nr. 8131 (01.01.293.207)
Síðumúli 21,
Br. á innréttingu v/eldvarna.
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingu hússins nr. 21
við Síðumúla vegna eldvarna.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 8121 (01.01.136.106)
Vesturgata 7,
2 opnanlegir rammar í glugga
Sótt er um leyfi til að setja tvo opnanlega ramma í glugga á
jarðhæð að Garðarstræti á lóðinni nr. 7 við Vesturgötu.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 7977 (01.01.524.108)
Víðimelur 59,
Áður gerð íbúð
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðri íbúð í húsinu á lóðinni nr.
59 við Víðimel.
Gjald kr. 2.140.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 7201 (01.01.524.004)
Víðimelur 64,
Áður gerð íbúð í kjallara.
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðri íbúð í kjallara hússins á
lóðinni nr. 64 við Víðimel.
Samþykki meðeigenda, dags. 13.08.94 fylgir og skýrsla
heilbrigðiseftirlits, dags. 24.11.94.
Gjald kr. 2.140.oo.



Umsókn nr. 8124 (01.04.603.401)
Álfabakki 12,
Br. á innréttingu þakhæðar.
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingu þakhæðar hússins á
lóðinni nr. 12 við Álfabakka.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 8104 (01.01.264.004)
Ármúli 17,
Reyndarteikningar.
Sótt er um leyfi fyrir breytingum á innra fyrirkomulagi í
kjallara og 1. hæð hússins á lóðinni nr. 17 við Ármúla.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.


Umsókn nr. 8113 (01.01.292.005)
Ármúli 22,
Skyndibitastaður og sala.
Sótt er um leyfi til að innrétta sölu - og skyndibitastað að
Ármúla 22.
Ennfremur lagt fram samþykki eiganda dags. 29. 11. 1994.
Gjald kr. 2.140.oo.

Samþykkt.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.


Umsókn nr. 8099 (01.01.292.104)
Ármúli 30,
áðurbyggður skúr
Sótt er um leyfi fyrir áður byggðum skúr úr timbri og
steinsteypu á lóðinni nr. 30 við Ármúla.
Stærð: 30,0 ferm., 81 rúmm. Gjald kr. 2.140.oo + 1.733.oo.
Umsögn skipulagsnefndar, dags. 11. janúar 1995 fylgir erindinu.

Samþykkt.


Umsókn nr. 8120 (01.01.139.118)
Ásvallagata 48,
Sameina kjallara og 1. hæð
Sótt er um leyfi til að sameina kjallara og 1. hæð hússins nr.
48 við Ásvallagötu í eina íbúð.
Samþykki meðeigenda fylgir.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 7699 (01.01.270.207)
Úthlíð 14,
Áður gerð þakíbúð.
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðri íbúð í risi hússins nr. 14
við Úthlíð.
Gjald kr. 2.140.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 8174 (01.01.140.503)
Austurstræti 20,
Niðurrif.
Sótt er um niðurrif á skúr við gönguleið Austurstræti/Skólabrú.
Jafnframt lagt fram bréf Árbæjarsafns, dags. 18. janúar 1995.

Samþykkt.
Byggingarnefnd samþykkir niðurrif þeirra skúra sem byggðir eru
eftir 1900. Leita skal umsagnar Húsafriðunarnefndar ríkisins
hvað skúr frá 1898 varðar.
Umsækjandi skal skila og fá samþykkta útlitsteikningu vegna
frágangs á þeim sárum sem myndast við rif á skúrunum.


Umsókn nr. 8196
Borgarhverfi-skilmálar a-hluti,
Borgarhverfi-skilmálar A-hluti
Lagðir fram til kynningar.



Umsókn nr. 8197
Borgarhverfi-skilmálar b-hluti,
Borgarhverfi-skilmálar B-hluti
Lagðir fram til kynningar.



Umsókn nr. 8194 (01.04.938.001)
Hagasel 40 - kirkja.,
Lóðarbreyting.
Sótt er um leyfi, f.h. byggingarnefndar Seljakirkju, til að
breyta mörkum lóðar Seljakirkju, Hagaseli 40, eins og sýnt er á
meðsendum uppdrætti mælingardeildar Reykjavíkur, dags. 19.01.95.
Við breytinguna minnkar lóðin úr 7276 ferm. í 3550 ferm., en
bílastæðalóðin verður óbreytt, 573 ferm. að stærð.
Vísað er til samþykkta skipulagsnefndar 11.09.89 og 08.02.93 og
samþykkta borgarráðs 12.09.89 og 09.03.93.

Samþykkt.


Umsókn nr. 8199 (01.01.345.101)
Laugalækur 2a,
Lóðarbreyting.
Íslandsbanki hefur óskað eftir endurskráningu á lóð bankans á
Kirkjusandi en hún er nú skráð nr. 2A við Laugalæk, sbr. samþykkt
byggingarnefndar þann 10. september 1987.
Byggingarfulltrúi leggur til að nafni Laugalækjar milli Sæbrautar
og Laugarnesvegar verði breytt og heiti gatan Kirkjusandur,
jafnframt verði lóð bankans nr. 2 við Kirkjusand.

Frestað.


Umsókn nr. 8186
Meistari - húsasmíðameistari.,
Meistari - Húsasmíðameistari.
Ofanritaður sækir um leyfi byggingarnefndar til að mega standa
fyrir byggingum í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur sem
húsasmíðameistari.

Samþykkt.


Umsókn nr. 8190
Meistari - múrarameistari.,
Meistari - Múrarameistari.
Ofanritaður sækir um leyfi byggingarnefndar til að mega standa
fyrir byggingum í lögsagnaumdæmi Reykjavíkur sem múrarameistari.

Samþykkt.


Umsókn nr. 8191
Meistari - múrarameistari.,
Meistari - Múrarameistari.
Ofanritaður sækir um leyfi byggingarnefndar til að mega standa
fyrir byggingum í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur sem múrarameistari.

Samþykkt.


Umsókn nr. 8202 (01.02.387.204)
Reyrengi 23,
Leiðrétting.
Á fundi byggingarnefndar þann 12.01.94 var samþykkt breyting á
þakefni og jafnframt var bókuð 9 rúmm aukning á rúmmáli hússins.
Ekki var um neina rúmmálsaukningu að ræða.

Samþykkt.


Umsókn nr. 8176
Skipulagsskilmálar.,
Skipulagsskilmálar.
Lagðir fram skipulagsskilmálar fyrir nýjar lóðir við Hestháls,
Krókháls, Lyngháls, Klettháls og Bæjarháls, dags. 12.01.95.



Umsókn nr. 8173
Starhagi - númering.,
Starhagi - Númering.
Byggingarfulltrúi leggur til að eftirtalin hús við Starhaga
verði númeruð sem hér segir:
Túnberg verði nr. 5
Aðalból verði nr. 7
Suðurhlíð verði nr. 9

Samþykkt.


Umsókn nr. 8175 (01.01.295.202)
Síðumúli 32,
Stækka lóð til vesturs.
Sótt er um leyfi til að stækka lóðina nr. 32 við Síðumúla.
Lóðin stækkar um 398 ferm., og verður þá 2390 ferm.

Mæliblað samþykkt en málinu að öðru leyti vísað til
byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 8169 (01.01.450.201)
Súðarvogur 2e og 2f,
Elliðavogur/Súðarvogur númerin
Byggingarfulltrúi leggur til að hús Banana hf., nú Elliðavogur
103 verði nr. 2E við Súðarvog og hús Bananasölunnar hf., nú nr.
105 við Elliðavog verði nr. 2F við Súðarvog.
Þörf er á þessari breytingu þar sem gatan Elliðavogur heitir nú
Sæbraut og aðkoma að ofangreindum byggingum er frá Súðarvogi.

Samþykkt.


Umsókn nr. 8193 (01.02.529.602)
Viðarrimi 2-18,
Lóðarstækkun.
Sótt er um leyfi, f.h. Trésmiðju Snorra Hjaltasonar, til að
stækka lóð um 2 metra til suðurs eða um 55,0 ferm., samkvæmt
mæliblaði, dags. 23.01.95. Lóðin er 4825 ferm. og verður eftir
stækkun 4880 ferm.

Samþykkt.


Umsókn nr. 8200
Þvottalaugabl. vii- reykjaborg,
Þvottalaugabl. VII- Reykjaborg
Garðyrkjustjóri fyrir hönd borgarsjóðs sækir um leyfi til þess að
rífa útihús við Reykjaborg í Laugardal.
Umsögn Árbæjarsafns, dags. 12.01.95 fylgir erindinu.

Samþykkt.
Í samræmi við umsögn Árbæjarsafns.


Umsókn nr. 8203 (01.01.186.302)
Þórsgata 16,
Tré - niðurrif.
Sótt er um leyfi til að fella hlyn sem stendur austanmegin við
húsið að Þórsgötu 16. Meðfylgjandi er umsögn garðyrkjustjóra,
dags. 24.01.95.

Synjað.
Vísað er til umsagnar garðyrkjustjóra.


Umsókn nr. 8133 (01.01.087.603)
Fiskislóð 97,
Byggja fiskverkunarhús.
Spurt er hvort leyft verði að byggja fiskverkunarhús úr
forsteyptum einingum og stáli á lóðinni nr. 97 við Fiskislóð.

Jákvætt.


Umsókn nr. 8172 (01.01.293.206)
Síðumúli 19,
Ofanáb. og br. versl. í gisth.
Spurt er hvort leyft verði að byggja 3. hæðina samanber leyfi
frá 1962 og innrétta gistiheimili á 2. og 3. hæð.
Bókun skipulagsnefndar, dags. 23.01.95, fylgir erindinu.

Jákvætt.
Sbr. bókun skipulagsnefndar frá 23.01.95.


Umsókn nr. 8156
Álfab. 12-16 og þönglab.1 og 6,
Álfab. 12-16 og Þönglab.1 og 6
Meðfylgjandi uppdrættir eru lagðir fram til fyrirspurnar og
kynningar.

Jákvætt.