Laufásvegur 31
Verknúmer : BN008184
3368. fundur 1995
Laufásvegur 31, Sendiráð.
Sótt er um leyfi til að byggja skrifstofuhúsnæði (sendiráð) úr
steinsteypu og stáli á lóðinni nr. 31 við Laufásveg.
Stærð: kjallari 100 ferm., 1. hæð 560 ferm., 2. hæð 318 ferm.,
3030 rúmm. Bílgeymsla 255 ferm., 791 rúmm. Gjald kr. 2.140.oo +
81.769.oo.
Greiða skal fyrir 8,6 bílastæði í flokki IV eða alls kr.
6.776.877.oo.
Erindið var kynnt með bréfi og athugasemdir hafa borist.
Jafnframt lagt fram bréf skipulagsnefndar, dags. 09.08.94., og
staðfesting umhverfisráðherra á breyttu skipulagi, dags.
24.01.95.
Frestað.
Byggingarnefnd lýsir sig samþykka þeim byggingaráformum sem fram
koma í umsókn umsækjanda hvað staðsetningu, fyrirkomulag og
byggingarmagn varðar en vegna meðfylgjandi athugasemda frestar
byggingarnefndin endalegri afgreiðslu málsins nú.
Þórunn Pálsdóttir vék af fundi við afgreiðslu málsins.