Hagasel 40 - kirkja.
Verknúmer : BN008194
3368. fundur 1995
Hagasel 40 - kirkja., Lóðarbreyting.
Sótt er um leyfi, f.h. byggingarnefndar Seljakirkju, til að
breyta mörkum lóðar Seljakirkju, Hagaseli 40, eins og sýnt er á
meðsendum uppdrætti mælingardeildar Reykjavíkur, dags. 19.01.95.
Við breytinguna minnkar lóðin úr 7276 ferm. í 3550 ferm., en
bílastæðalóðin verður óbreytt, 573 ferm. að stærð.
Vísað er til samþykkta skipulagsnefndar 11.09.89 og 08.02.93 og
samþykkta borgarráðs 12.09.89 og 09.03.93.
Samþykkt.