Berjarimi 32-40,
Breiðavík 2-4,
Flúðasel 78-94,
Háskóli Íslands, Náttúrufræðahús,
Krókháls/Lyngháls,
Víkurás/Vindás,
Víkurhverfi,
Ásgarður 22-24,
Selásbraut, leikskóli,
Sporhamrar, verslun,
Viðarás, einbýlishús,
Kennaraháskólinn/Sjómannaskólinn,
Ofanleiti 2,
Starmýri 2,
Vallarstræti,
Vatnsmýravegur, Bústaðarvegur,
Reiðleiðir á höfuðborgarsvæðinu,
Austurstræti/Skólabrú,
Skipulagsnefnd: Ferð til Bretlands, 1995,
Ráðstefna um skipulagsmál, október 1995,
Skipulags- og umferðarnefnd
19. fundur 1995
Ár 1995, mánudaginn 28. ágúst kl. 11.00, var haldinn 19. fundur skipulagsnefndar í Borgartúni 3, 4. hæð. Þessir sátu fundinn: YYYYYY. Fundarritari var XXXXXX.
Þetta gerðist:
Berjarimi 32-40, nýbygging
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 15.08.95 á bókun skipulagsnefndar frá 14.08.95 um Berjarima 32-40, nýbyggingu.
Breiðavík 2-4, nýbygging
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 15.08.95 á bókun skipulagsnefndar frá 14.08.95 um Breiðuvík 2-4, nýbyggingu.
Flúðasel 78-94, frágangur á lóð.
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 15.08.95 á bókun skipulagsnefndar frá 14.08.95 um frágang lóða við Flúðasel 78-94.
Háskóli Íslands, Náttúrufræðahús,
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 15.08.95 á bókun skipulagsnefndar frá 31.07.95 um Háskóla Íslands, skipulag og náttúrufræðahús.
Krókháls/Lyngháls, lóðarafmörkun
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 15.08.95 á bókun skipulagsnefndar frá 14.08.95 um Krókháls/Lyngháls, lóðarafmörkun.
Víkurás/Vindás, breyting á bílastæðum
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 15.08.95 á bókun skipulagsnefndar frá 14.08.95 um breytingu á bílastæðum við Vindás/Víkurás.
Víkurhverfi, breytingar á skilmálum
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 15.08.95 á bókun skipulagsnefndar frá 14.08.95 um breytingu á skilmálum í Víkurhverfi.
Ásgarður 22-24, breytt notkun
Lagt fram að nýju bréf byggingarfulltrúa f.h. byggingarnefndar, dags. 29.05.95, varðandi breytingu á verslunarhúsnæði að Ásgarði 22-24 í íbúðarhúsnæði, samkv. uppdráttum Arkitektastofunnar við Austurvöll, dags. 25.07.95. Einnig lögð fram umsögn borgarlögmanns, dags. 22.08.95, vegna fjölgunar íbúða á reitnum.
Frestað.
Selásbraut, leikskóli, lóðarstækkun
Lagt fram bréf Rúnars Gunnarssonar arkitekts, f.h. byggingadeildar borgarverkfræðings, dags. 23.08.95, varðandi stækkun leikskólalóðinnar nr. 56 við Selásbraut. Einnig lagður fram uppdr. Yngva Þórs Loftssonar landslagsarkitekts FÍLA, dags. 11.08.95.
Samþykkt.
Sporhamrar, verslun, verslunar- og þjónustulóð
Lagt fram að nýju bréf Gunnars Arnar Steingrímssonar, dags. 15.03.95, varðandi ósk um að breyta skipulagi verslunarlóðar við Sporhamra. Einnig lögð fram tillaga Borgarskipulags, unnin af Agli Guðmundssyni arkitekt FAÍ, dags. 21.05.95, að verslunar- og þjónustulóðum við Sporhamra og sameiginlegri bílastæðalóð fyrir skóla, gæsluvöll, verslun og þjónustu.
Skipulagsnefnd samþykkir tillögu skipulagsnefndar, enda sjái lóðarhafi verslunarlóðar fyrir 1 bílastæði á móti hverjum 35 m2 gólfflatar í húsi á lóðinni eða greiði fyrir gerð bílastæða á bílastæðalóð til að því hlutfalli verði náð.
Viðarás, einbýlishús, breyting á skilmálum
Lagt fram bréf Jóns Bjargmundssonar f.h. Trés hf., dags. 20.08.95, varðandi breytingu á byggingarskilmálum lóðanna nr. 25 og 31 við Viðarás, þannig að heimilt verði að byggja parhús í stað einbýlishúsa.
Frestað. Borgarskipulagi falið að endurskoða deiliskipulag hverfisins.
Kennaraháskólinn/Sjómannaskólinn, skipulag lóða
Lagt fram að nýju bréf Ormars Þórs Guðmundssonar, arkitekts, f.h. nefndar til umfjöllunar um skipulag og nýtingu lóða Kennaraháskóla Íslands og Sjómannaskólans, dags. 21.07.95. Einnig lagt fram líkan og uppdr., dags. 28.08.95.
Ormar Þór Guðmundsson kom á fundinn og gerði grein fyrir tillögunni.
Frestað. Vísað til umsagnar umferðarnefndar, umhverfismálaráðs, skólamálaráðs og borgarminjavarðar.
Ofanleiti 2, Verslunarháskóli
Lögð fram til kynningar tillaga Ormar Þórs Guðmundssonar, arkitekts, dags. 28.08.95, að uppbyggingu á lóð Verslunarháskólans á horni Listabrautar og Kringlumýrarbrautar, Ofanleiti 2.
Ormar Þór Guðmundsson kom á fundinn og kynnti tillöguna.
Starmýri 2, lóðamál, ofanábygging
Lagt fram bréf Óttars Halldórssonar og Viggós Benediktssonar f.h. Ísflex hf., dags. 9.08.95, varðandi lóð nr. 2 við Starmýri. Einnig lagðir fram uppdr. Ríkharðs Oddssonar og Sigurðar Hafsteinssonar að ofanábyggingu á húsinu Starmýri 2b og 2c, dags. júlí 1995, ásamt afstöðumynd Aðalsteins Richter, dags. 18.08.95.
Samþykkt. Skipulagsnefnd undirstrikar að samþykktin tekur ekki til aðalhússins á lóðinni (húss A).
Vallarstræti, Fógetagarður
Lögð fram til kynningar tillaga Arkitekta, dags. 23.8.95, að frágangi stígs á milli Vallarstræti og Fógetagarðs. Gatnamálastjóri kom á fundinn og kynnti tillöguna.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna fyrir sitt leyti.
Vatnsmýravegur, Bústaðarvegur,
Lögð fram til kynningar tillaga gatnamálastjóra, dags. 4.8.95, að frágangi svæðus við brú á Bústaðavegi við Vatnsmýrarveg.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna fyrir sitt leyti. Vísað til umhverfismálaráðs.
Reiðleiðir á höfuðborgarsvæðinu, staðsetning
Lögð fram til kynningar tillaga gatnamálastjóra, dags. 25.8.95, að staðsetningu bekkja við göngustíga.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna fyrir sitt leyti. Vísað til umhverfismálaráðs.
Austurstræti/Skólabrú, hlið og ljós við stíg
Lögð fram til kynningar tillaga Teiknistofunnar Bankastræti 11, ódags., að útfærslu hliða og ljósa við stíg á milli Austurstrætis 20 og 22.
Skipulagsnefnd: Ferð til Bretlands, 1995,
Ólafur Bjarnason, yfirverkfræðingur og Ágústa Sveinbjörnsdóttir, arkitekt sýndu svipmyndir úr ferð skipulagsnefndar til Bretlands í september 1995.
Gunnar Jóhann Birgisson lagði fram svofellda bókun:
"Það er að mínu mati undarlegt að á sama tíma og meirihluti borgarstjórnar sakar Sjálfstæðisflokkinn um óábyrga fjármálastjórn á síðasta kjörtímabili skuli vera skipulögð glæsiferð fyrir skipulagsnefnd til Englands á kostnað skattgreiðenda. Það kann vel að vera að ferðir af þessu tagi séu gagnlegar og því skil ég áhuga nefndarmanna fyrir ferðinni. Rétt hefði hins vegar verið að stytta ferðatímann og fækka fulltrúum. Jafnframt skora ég á meirihlutann að beita sér fyrir því að ferðir af þessu tagi hljóti meiri umræðu í nefndinni, áður en endanleg dagskrá er kynnt fyrir nefndarmönnum".
Fulltrúar R-listans í skipulagsnefnd óskuðu bókað:
"Það er sjónarmið út af fyrir sig að vera andvígur því að vera í tengslum við aðrar þjóðir og fara í náms- og kynnisferðir til nágrannalanda. Undirbúningur ferðarinnar hefur verið langur m.a. til að ná sem hagstæðustu samningum við ferðaskrifstofur og til að hafa sem mest og best gagn af ferðinni. Gunnar Jóhann hefur haft tækifæri til að fylgjast með þeim undirbúningi og því sérkennilegt að koma nú, nokkrum dögum fyrir ferðina og bóka mótmæli. Hefð er fyrir því að skipulagsnefnd og raunar fleiri nefndir fari í náms- og kynnisferðir bæði innanlands og utan og er þetta fjórða ferð nefndarinnar og bæði sú fámennasta og ódýrasta. Kostnaður við ferðina er innan ramma fjárhagsáætlunar borgarinnar. Að loknum þessum ferðum hefur ávallt verið gefin út skýrsla og haldinn kynningarfundur fyrir embættismenn, borgarfulltrúa og nefndarmenn, sem nýtist í faglegri vinnu innan kerfisins. Sá háttur verður hafður á nú líka".
Gunnar Jóhann Birgisson óskaði bókað:
"Það má vel vera að undirbúningar ferðarinnar hafi verið langur. Það má einnig vel vera að hefð sé fyrir slíkri ferð. Fyrst lá fyrir dagskrá ferðarinnar á síðasta fundi nefndarinnar. Andmæli við ferð af þessu tagi á ekkert skilt við það að ekki sé áhugi fyrir því að vera í samskiptum við aðarar þjóðir".
Ráðstefna um skipulagsmál, október 1995,
Formaður skipulagsnefndar kynnti, að hinn 21. október n.k. verður haldin ráðstefna um skipulagsmál í Tjarnarsal Ráðhússins.