Baugatangi 5A
Skjalnúmer : 7201
13. fundur 1999
Austurnes við Bauganes, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 11.5.99 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 10. s.m. um breytt deiliskipulag á Austurnesi vð Bauganes.
12. fundur 1999
Austurnes við Bauganes, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga Borgarskipulags að breyttu deiliskipulagi, dags. 28.08.98, ásamt bréfi borgarstjóra f.h. borgarráðs, dags. 27.05.98, varðandi nýtingu hússins Austurnes við Bauganes og umsögn Borgarskipulags, dags. 24.6.98. Málið var í auglýsingu frá 10.03 til 07.04.99, athugasemdafrestur var til 21. apríl 1999. Lagt fram athugasemdabréf Sigurðar P. Kristjánssonar, dags. 08.04.99. Einnig lögð fram umsögn Borgarskipulags, dags. 06.05.99.
Samþykkt umsögn Borgarskipulags og tillaga um breytt deiliskipulag.
5. fundur 1999
Austurnes við Bauganes, landnotkunarbreyting
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 9.2.99 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 8. s.m. um Austurnes við Bauganes, landnotkunarbreytingu.
3. fundur 1999
Austurnes við Bauganes, landnotkunarbreyting
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga Borgarskipulags að landnotkunarbreytingu, dags. 28.08.98, ásamt bréfi borgarstjóra f.h. borgarráðs, dags. 27.05.98, varðandi nýtingu hússins Austurnes við Bauganes og umsögn Borgarskipulags, dags. 24.6.98. Einnig lagt fram athugasemdabréf Ólafs Erlingssonar, dags. 27.01.99. Málið var í auglýsingu frá 8. jan. til 29. jan. 1998. Ennfremur lögð fram umsögn Borgarskipulags, dags. 04.02.99.
Nefndin samþykkir umsögn Borgarskipulags um þá athugasemd sem barst í kjölfar kynningar. Ennfremur samþykkir nefndin ofangreinda tillögu um breytingu á landnotkun.
19. fundur 1998
Austurnes við Bauganes, landnotkunarbreyting
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h borgarráðs um samþykkt borgarráðs 08.09.98 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 07.09.98 um auglýsingu á lóðarafmörkun og landnotkunarbreytingu Austurness við Bauganes.
17. fundur 1998
Austurnes við Bauganes, landnotkunarbreyting
Lögð fram tillaga Borgarskipulags að lóðarafmörkun og landnotkunarbreytingu, dags. 28.08.98, ásamt bréfi borgarstjóra f.h. borgarráðs, dags. 27.05.98, varðandi nýtingu hússins Austurnes við Bauganes og umsögn Borgarskipulags, dags. 24.6.98.
Samþykkt að leggja til við borgarráð að auglýstar verði tillögur að breytingum á aðal- og deiliskipulagi.