Rangársel 15

Skjalnúmer : 6375

12. fundur 1999
Rangársel 15, leikskóli, viðbygging
Lagt fram bréf borgarlögmanns f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 27.4.99 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 26. s.m. um viðbyggingu við leikskóla að Rangárseli 15.


16. fundur 1999
Rangársel 15, leikskóli, viðbygging
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju bréf byggingardeildar, dags. 20.04.99, varðandi leikskólann Seljakot, lóðarstækkun og viðbyggingu, samkv. uppdr. byggingardeildar borgarverkfr., dags. 20.04.99. Einnig lagt fram bréf skólastjóra Ölduselsskóla, dags. 10.03.99, bréf Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur, dags. 17.03.99 og umsögn Borgarskipulags, dags. 23.04.99. Málið var í auglýsingu frá 26.05.-23.06.99, athugasemdafrestur var til 7. júlí 1999. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt.

11. fundur 1999
Rangársel 15, leikskóli, viðbygging
Lagt fram bréf byggingardeildar, dags. 20.04.99, varðandi leikskólann Seljakot, lóðarstækkun og viðbyggingu, samkv. uppdr. byggingardeildar borgarverkfr., dags. 20.04.99. Einnig lagt fram bréf skólastjóra Ölduselsskóla, dags. 10.03.99, bréf Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur, dags. 17.03.99 og umsögn Borgarskipulags, dags. 23.04.99.
Samþykkt að auglýsa tillöguna sem breytingu á deiliskipulagi.