Kjalarnes, Saltvík
Skjalnúmer : 10151
23. fundur 1998
Kjalarnes, Saltvík, br. aðalskipulag, deiliskipulag
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 6.10.98. á bókun skipulags- og umferðarnefndar sama dag um breytingu aðalskipulags, deiliskipulags Saltvíkur á Kjalarnesi.
21. fundur 1998
Kjalarnes, Saltvík, br. aðalskipulag, deiliskipulag
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga að breytingu á staðfestu aðalskipulagi Saltvíkur og tillaga að nýju deiliskipulagi jarðarinnar Saltvíkur.
Auglýst var frá 7.08.98 til 4.09.98 með athugasemdarfresti til 18.09.98. Eitt athugasemdarbréf barst frá Vegagerðinni, dags. 15.09.98. Ennfremur umsögn Borgarskipulags, dags. 4.10.98.
Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir umsögn Borgarskipulags , dags. 4.10.98 um athugasemdina sem barst. Ennfremur samþykkir nefndin ofangreindar tillögur að breytingu á staðfestu aðalskipulagi í landi Saltvíkur og nýtt deiliskipulag jarðarinnar Saltvíkur.
15. fundur 1998
Kjalarnes, Saltvík, br. aðalskipulag, deiliskipulag
Lagt fram bréf borgarlögmanns f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 28.07.98 um breytingu á staðfestu aðalskipulagi varðandi Saltvík á Kjalarnesi. Borgarráð samþykkti breytinguna samkvæmt 2. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Jafnframt var samþykkt að heimila auglýsingu deiliskipulags jarðarinnar samkvæmt 1. og 2. mgr. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
16. fundur 1998
Kjalarnes, Saltvík, br. aðalskipulag, deiliskipulag
Lagt fram til kynningar bréf borgarlögmanns f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 28.07.98 um að heimila auglýsingu á tillögu að breytingu á staðfestu aðalskipulagi Saltvíkur og samþykkt um heimild til að auglýsa tillögu að deiliskipulagi jarðarinnar Saltvíkur.
Frestað