Austurbrún 6, Brúarás 1-19, Byggðarendi 7, Dalhús 2, Grjótháls shell, Gylfaflöt 3, Héðinsgata 1, Korpúlfsstaðir, Laugavegur 24b, Laugavegur 42, Laugavegur 92, Leifsgata 13, Rauðarárstígur 35, Spöngin lóð b, Suðurfell 4 - skeljungur, Vesturhlíð 7, Vesturlbr keldur, Vættaborgir 101-103, Vættaborgir 125, Vættaborgir 142, Vættaborgir 22-24, Vættaborgir 37-39, Víðimelur 55, Þönglabakki 1, Afgreiðsluf. byggingarfulltrúa, Bitruháls 1, Bjarmaland 9-15, Framnesvegur 5, Klapparstígur 30, Laugarásvegur 35, Laugavegur 21, Rauðarárstígur 35, Suðurlandsbraut 30, Austurstræti 11, Borgartún 5, Dugguvogur 4, Hverfisgata 72, Hólavallagata 7, Járnháls 4 krókháls 3, Skólavörðustígur 35, Spítalastígur 10, Vættaborgir 154,

BYGGINGARNEFND

3414. fundur 1996

Árið 1996, fimmtudaginn 28. nóvember, kl. 11.00 fyrir hádegi, hélt byggingarnefnd Reykjavíkur 3414. fund sinn. Fundurinn var haldinn í fundarsalnum 4. hæð Borgartúni 3. Þessir nefndarmenn sátu fundinn: Steinunn V. Óskarsdóttir, Helgi Hjálmarsson, Kristín Blöndal, Hilmar Guðlaugsson og Þórunn Pálsdóttir. Auk þeirra sátu fundinn: Magnús Sædal Svavarsson, Þormóður Sveinsson Ólafur Ó. Axelsson, Ívar Eysteinsson, Hrólfur Jónsson, Sigríður Þórisdóttir og Bjarni Þór Jónsson sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:


Umsókn nr. 13652 (01.01.381.102)
Austurbrún 6,
Klæða húsið að utan
Sótt er um leyfi til að klæða húsið að utan með álklæðningu og
breyta gluggum hússins á lóðinni nr. 6 við Austurbrún.
Gjald kr. 2.180.oo.
Jafnframt lögð fram skýrsla Línuhönnunar hf., um ástand
steinsteypu og bréf Finns Björgvinssonar, arkitekts,
dags. 19.04.95.

Samþykkt.
Helgi Hjálmarsson á móti.
Bókun byggingarfulltrúa: Enda verði verkið unnið í samfellu.


Umsókn nr. 13610 (01.04.370.202)
Brúarás 1-19,
Breyting á innra skipulagi.
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í áður samþykktu
raðhúsi nr. 15 á lóðinni nr. 1-19 við Brúarás.
Gjald kr. 2.250.oo.
Stærð: 18 ferm.

Samþykkt.


Umsókn nr. 13529 (01.01.826.004)
Byggðarendi 7,
Þakbrún og klæðning.
Sótt er um leyfi til þess að kæða með steindum plötum og breyta
þakbrún hússins á lóðinni nr. 7 við Byggðarenda.
Gjald kr. 2.250.oo.
Skoðunarskýrsla dags. 07.11.1996 fylgir erindinu.

Frestað.
Athuga uppdeilingu á plötum og efnisval.
Kristín Blöndal mætti á fundinn kl. 11.05.
Helgi Hjálmarsson mætti á fundinn kl. 11.08.


Umsókn nr. 13668 (01.02.841.201)
Dalhús 2,
Sundlaug
Sótt er um leyfi til þess að byggja sundlaug, búningsklefa,
vaktturn, heita potta og eimbað á lóðinni nr. 2 við Dalhús.
Stærð: kjallari 777 ferm., 1. hæð 1029 ferm., 8614 rúmm.,
vaktturn 14 ferm., 63 rúmm., eimbað 29 ferm., 87 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 197.190.oo.
Minnispunktar Vilhjálms Hjálmarssonar dags. 22.11.1996 fylgja
erindinu.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Helgi Hjálmarsson og Krisín Blöndal voru fjarverandi við
afgreiðslu málsins.


Umsókn nr. 13614 (01.04.301.201)
Grjótháls shell,
Dæla, skyggni, veggur o.fl.
Sótt er um leyfi til þess að koma fyrir dælu, skyggni, skilti og
50 sm háum vegg á austurhluta lóðar, ennfremur bílastæðum og að
breyta innkeyrslu, og á lóð Skeljungs við Grjótháls.
Gjald kr. 2.250.oo.

Samþykkt.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 13669 (01.02.575.102)
Gylfaflöt 3,
Atvinnuhúsnæði úr timbri og st
Sótt er um leyfi til þess að byggja iðnaðarhús úr steinsteypu á
lóðinni nr. 3 við Gylfaflöt.
Stærð: 1. hæð 1404,3 ferm., 2. hæð 205,3 ferm., 7166 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 161.235.oo.

Frestað.
Vísað til fyrri athugasemda.


Umsókn nr. 13646 (01.01.327.401)
Héðinsgata 1,
Innrétta skrifstofu o.fl.
Sótt er um leyfi til þess að innrétta skrifstofuhúsnæði í
norðurhluta skemmu og setja glugga og hurðir á götuhlið á
lóðinni nr. 1-3 við Héðinsgötu.
Gjald kr. 2.250.oo.

Frestað.
Lagfæra útlit. Gera grein fyrir bílastæðum.


Umsókn nr. 13470 (01.02.3--.-99)
Korpúlfsstaðir,
breyting
Sótt er um leyfi til þess að breyta innréttingu og útliti
Korpúlfsstaða.
Bréf hönnuðar dags. 01.10.1996 fylgir erindinu.
Gjald kr. 2.250.oo.
Málinu fylgir bréf umhverfismálaráðs dags 18. október 1996.
Bréf Sigurðar Björgúlfssonar dags. 01.11.1996 og 22.11.1996
fylgja erindinu.

Samþykkt.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Við frekari úrvinnslu skal gera grein fyrir aðgengi fatlaðra og
bílastæðum.


Umsókn nr. 13677 (01.01.172.204)
Laugavegur 24b,
Nýbygging
Sótt er um leyfi til að byggja 14 hótelíbúðir, tvær bílgeymslur
og verslunarhúsnæði úr steinsteypu á lóðinni nr. 24B við
Laugaveg.
Stærð: 1. hæð 103,o ferm., 2.hæð 180,o ferm., 3. hæð 180,0 ferm.,
4. hæð 180,0 ferm., Bílgeymsla 58,0 ferm,. 2010 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 45.225.oo.
Erindið var kynnt nágrönnum með bréfi dags. 5. nóvember 1996.
Athugasemdir hafa borist með bréfum dags. 25.11.1996, 21.11.1996,
22.11.1996 og 24.11.1996.
Jafnframt hafa borist bréf frá Lögmönnum, Lágmúla 7, þar sem
óskað er eftir lengri fresti til að koma með athugasemdir.

Frestað.
Samþykkt að veita umbeðinn frest, þó ekki lengur en til
10. desember n.k.


Umsókn nr. 13557 (01.01.172.223)
Laugavegur 42,
Breyta hurð ofl.
Sótt er um leyfi til að opna á milli eldra húss og viðbyggingar
á horni eldra húss á lóðinni nr. 42 við Laugaveg.
Gjald kr. 2.250.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 13673 (01.01.174.306)
Laugavegur 92,
Viðbygging
Sótt er um leyfi til þess að byggja viðbyggingu úr áli og gleri
við húsið á lóðinni nr. 92 við Laugaveg.
Stærð: 1. hæð 35 ferm., 110 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 2.475.oo.
Bréf skipulags- og umferðarnefndar dags. 25.11.1996 fylgir
erindinu.

Synjað.
Með þremur atkvæðum.
Með vísan til bréfs skipulagsnefndar
Umsækjanda er bent á að byggingarnefnd telur að betri lausn komi
til greina að uppfylltum skipulagsskilmálum.
Hilmar Guðlaugsson og Þórunn Pálsdóttir sátu hjá og bókuðu: Rök
skipulags- og umferðarnefndar ekki viðunandi fyrir synjun.


Umsókn nr. 13440 (01.01.195.012)
Leifsgata 13,
áður gerð íbúð og br.á gl.
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðri íbúð og breyta og stækka
þakglugga á húsinu á lóðinni nr. 13 við Leifsgötu.
Gjald kr. 2.250.oo.
Skoðunarskýrsla byggingarfulltrúa dags. 20.11.1996 og
samþykki meðeigenda dags. 29.10.1996 fylgja erindinu.

Frestað.
Vantar skráningartöflu.
Ófullnægjandi gögn.


Umsókn nr. 13608 (01.01.244.201)
Rauðarárstígur 35,
Nánari útfærsla á teikn.
Sótt er um leyfi til þess að breyta áður samþykktum teikningum
(málsetningu) af húsinu á lóðinni nr. 35 við Rauðarárstíg.
Gjald kr. 2.250.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 13670 (01.02.375.201)
Spöngin lóð b,
Nýbygging
Sótt er um leyfi til að byggja verslunarhús úr steinsteypu á lóð
við Spöngina.
Stærð: 1. hæð 600 ferm., 2865 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 64.463.oo.
Jafnframt lagt fram bréf hönnuðar dags. 20. þ.m. og bréf
Borgarskipulags dags. 27. þ.m.
Minnisblað arkitekta byggingarfulltrúa dags. 28.11.1996 fylgir
erindinu.

Frestað.
Með vísan til minnsblaðs arkitekta byggingarfulltrúa.
Vísað til skipulags- og umferðarnefndar.


Umsókn nr. 13609 (01.04.680.401)
Suðurfell 4 - skeljungur,
Breyta og stækka bensínstöð
Sótt er um leyfi til þess að stækka núverandi bensínstöð úr
steinsteypu og áli á lóðinni nr. 4 við Suðurfell.
Stækkun: 145 ferm., 493 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 11.093.oo.

Frestað.
Vísað til umsagnar skipulags- og umferðarnefndar.


Umsókn nr. 13654 (01.01.768.401)
Vesturhlíð 7,
Viðbygging
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu( kapellu og
einbýlishús) á lóðinni nr. 7 við Vesturhlíð.
Stærð: Íbúðarhús 333 ferm., 1170 rúmm., kapella 91 ferm., 409
rúmm., samt. 424 ferm., 1.579 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 35.528.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.


Umsókn nr. 13621 (01.02.9--.-99)
Vesturlbr keldur,
Endurbygging
Sótt er um leyfi til þess að endurbyggja gripahús og stækka
lítillega úr steinsteypu og timbri á lóðinni Keldur við
Vesturlandsv.
Stækkun: 1. hæð 5,4 ferm., 203 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 4.568.oo.

Frestað.


Umsókn nr. 13681 (01.02.343.004)
Vættaborgir 101-103,
Parhús úr steinsteypu.
Sótt er um leyfi til þess að byggja parhús úr steinsteypu á
lóðinni nr. 101-103 við Vættaborgir.
Stærð: hús nr. 101, 1. hæð 73 ferm., 2. hæð 74,8 ferm., 445
rúmm., bílgeymsla 25,9 ferm., 72 rúmm., hús nr. 103, 1. hæð 73
ferm., 2. hæð 74,8 ferm., 445 rúmm., bílgeymsla 27,9 ferm., 78
rúmm. Gjald kr. 2.250.oo + 23.400.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 13657 (01.02.341.208)
Vættaborgir 125,
Einbýlishús úr steinsteypu.
Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús úr steinsteypu á
lóðinni nr. 125 við Vættaborgir.
Stærð: 1. hæð 157,4 ferm., 513 rúmm. Bílgeymsla 28,7 ferm.,
73 rúmm.
Gjald kr .2.250.oo + 13.185.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 13651 (01.02.342.204)
Vættaborgir 142,
Einbýlishús
Sótt er um leyfi til þess að byggja einbýlishús úr steinsteypu á
lóðinni nr. 142 við Vættaborgir.
Stærð: 1. hæð 158,1 ferm., 563 rúmm., bílgeymsla 32,7 ferm.,
121,3 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 15.397.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 13619 (01.02.346.201)
Vættaborgir 22-24,
Keðjuhús
Sótt er um leyfi til þess að byggja parhús úr steinsteypu á
lóðinni nr. 22-24 við Vættaborgir.
Stærð: hvert hús 1. hæð 69,8 ferm., 2. hæð 82,2 ferm., samtals
902 rúmm., hvor bílgeymsla 30,1 ferm., samtals 190 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 24.615.oo.

Frestað.
Lagfæra grunnmynd og útlit.


Umsókn nr. 13655 (01.02.343.301)
Vættaborgir 37-39,
Parhús úr steinsteypu.
Sótt er um leyfi til þess að byggja parhús á lóðinni nr. 37-39
við Vættaborgir.
Stærð: hvort hús 1. hæð 69,1 ferm., 2. hæð 69,1 ferm., samtals
904 rúmm., hvor bílgeymsla 31,5 ferm., samtals 176 rúmm.
Gjald kr. 2.250.oo + 24.300.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 13653 (01.01.524.110)
Víðimelur 55,
Gluggar og reyndarteikningar
Sótt er um leyfi fyrir þremur nýjum gluggum og núverandi innra
fyrirkomulagi í húsinu á lóðinni nr. 55 við Víðimel.
Gjald kr. 2.250.oo.

Frestað.
Byggingarnefnd getur samþykkt tvo glugga, en ekki glugga á
arinstofu.


Umsókn nr. 13692 (01.04.603.501)
Þönglabakki 1,
Breyting á innréttingu.
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingu á 2. hæð í keilusal á
lóðinni nr. 1 við Þönglabakka.
Gjald kr. 2.180.oo.
Jafnframt lagt fram bréf Rekstrarfélagsins hf., v. Landsbanka
Íslands sem er þinglýstur eigandi.
Einnig lögð fram skýrsla Rb um hljómburð milli hæða dags. 7. des.
1994.
Erindinu fylgir afrit af bréfi til Rekstrarfélagsins ehf,
dags. 11. f.m.

Samþykkt.
Enda verði gengið frá hljóðkröfum samkvæmt bréfi
dags. 13.10.1996 sbr. einnig bréf Sabim dags. 27.06.1996.


Umsókn nr. 13689
Afgreiðsluf. byggingarfulltrúa,
Afgreiðsluf. byggingarfulltrúa
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð nr. 24 frá 26.
nóvember 1996, án liðar nr. 47.
Með vísan til 2. mgr. 2. gr. reglugerðar nr. 614/1995 er einnig
lagður fram liður nr. 18 úr fundargerð nr. 23 frá 12. nóvember
1996.



Umsókn nr. 13667 (01.04.303.001)
Bitruháls 1,
Lagt fram bréf Brunamálast.
Lagt fram bréf Brunamálastofnunar ríkisins dags. 20. október sl.,
móttekið 22. nóvember 1996.



Umsókn nr. 13690 (01.01.854.101)
Bjarmaland 9-15,
Kærubréf
Lagt fram bréf umhverfisráðuneytisins dags. 25.11.1996, þar sem
kærð er ákvörðun byggingarnefndar Reykjavíkur frá 29.08.1996 og
borgarstjórnar Reykajvíkur frá 03.10.1996 um veitingu leyfis til
að breyta þaki hússins nr. 9 á lóðinni nr. 9-15 við Bjarmaland.

Vísað til umsagnar skrifstofustjóra byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 13688 (01.01.134.002)
Framnesvegur 5,
Lagt fram bréf
Lagt fram bréf Loga Magnússonar, dags. 25. þ.m. vegna umsóknar um
breytingu á atvinnuhúsnæði í íbúð sem synjað hefur verið af
byggingarfulltrúa.

Byggingarnefnd sér ekki ástæðu til endurupptöku málsins.


Umsókn nr. 13683 (01.01.171.108)
Klapparstígur 30,
Niðurrif
Ólafur Garðarsson, hrl. fh. Tjalds ehf., sækir um leyfi til
niðurrifs á húsinu nr. 30 við Klapparstíg.
Húsið er byggt árið 1917 og stærð þess er 113,9 ferm., 401 rúmm.
Málinu fylgir bréf umsækjanda dags. 18. þ.m.

Frestað.
Vísað til umsagnar umhverfismálaráðs.


Umsókn nr. 13687 (01.01.382.113)
Laugarásvegur 35,
Úrskurður
Lagt fram bréf umhverfisráðuneytisins dags. 25. þ.m. með úrskurði
vegna kæru eigenda Laugarásvegar 37 á samþykkt byggingarnefndar
frá 29. febrúar sl., um leyfi til þess að byggja hæð ofan á húsið
nr. 35 við Laugarásveg.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun byggingarnefndar Reykjavíkur frá 29.02.1996 um að
samþykkja umsókn um leyfi til að byggja hæð ofan á húsið á
lóðinni nr. 35 við Laugarásveg skal óbreytt standa.



Umsókn nr. 13684 (01.01.171.109)
Laugavegur 21,
Niðurrif
Ólafur Garðarsson, hrl. fh. Tjalds ehf, sækir um leyfi til
niðurrifs á húsinu nr. 21 við Laugaveg.
Húsið er byggt 1884 og stærð þess er 195,6 ferm., og 532 rúmm.

Frestað.
Vísað til umsagnar umhverfismálaráðs.


Umsókn nr. 13675 (01.01.244.201)
Rauðarárstígur 35,
Bílastæðamál
Lagt fram bréf Ólafs Torfasonar og Magnúsar Inga Ingvarssonar
dags. 4. nóvember sl., vegna bílastæða við Rauðarárstíg 35-41 og
Þverholt 20-32.

Frestað.


Umsókn nr. 13650 (01.01.265.003)
Suðurlandsbraut 30,
Merkingar á framhlið húss
Lagt fram bréf Gísla B. Björnssonar dags. 28.10.1996 varðandi
merkingar á framhlið hússins á lóðinni nr. 30 við
Suðurlandsbraut 30.

Synjað.


Umsókn nr. 13648 (01.01.140.209)
Austurstræti 11,
Nýta kjallara.
Spurt er hvort leyft verði að nota húsnæði í kjallara (sjá
teikningu) til fjölgunar viðskiptamannahólfa Landsbanka Íslands.

Jákvætt.


Umsókn nr. 13674 (01.01.216.302)
Borgartún 5,
Tengibygg.milli Borgartún 5-7
Spurt er hvort leyft verði að byggja tvær hæðir ofan á það hús
sem fyrir er á lóðinni nr. 5 við Borgartún.
Bréf skipulags- og umferðarnefndar dags. 25.11.1996 fylgir
erindinu.

Neikvætt.
Miðað við framlögð gögn.


Umsókn nr. 13666 (01.01.452.201)
Dugguvogur 4,
Byggja við á 2. hæð
Spurt er hvort leyft verði að byggja við 2. hæð úr steinsteypu á
lóðinni nr. 4 við Dugguvog.
Málinu fylgir bréf Skipulags- og umferðarnefndar dags.
19.11.1996.

Jákvætt.
Tekið undir bókun skipulags- og umferðarnefndar.


Umsókn nr. 13665 (01.01.173.007)
Hverfisgata 72,
Áður gerðir kvistir
Spurt er hvort samþykki fáist fyrir áður gerðum kvistum og
eldvarnarvegg á bakhúsi á lóðinni nr. 72 við Hverfisgötu.
Bréf umsækjanda dags. 31. október 1996 fylgir erindinu.

Frestað.
Vísað til umsagnar skrifstofustjóra byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 13660 (01.01.161.004)
Hólavallagata 7,
Bílskúr
Spurt er hvort leyft verði að byggja bílskúr samkvæmt
meðfylgjandi teikningum á lóðinni nr. 7 við Hólavallagötu.

Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum.
Ólafur Ó. Axelsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.


Umsókn nr. 13696 (01.04.323.302)
Járnháls 4 krókháls 3,
Viðbygging
Spurt er hvort leyft verði að skipta lóðinni
Járnháls 4/Krókháls 3 og byggja viðbyggingu við húsið nr. 3 við
Krókháls.

Frestað.


Umsókn nr. 13676 (01.01.182.236)
Skólavörðustígur 35,
Dýralækna"klínik".
Spurt er hvort leyft yrði að breyta bílskúr í
dýralækningaklínik.
Erindið var kynnt nágrönnum með bréfi dags. 5. nóvember 1996.
Mótmæli hafa borist með bréfi dags. 17. nóvember 1996.

Nei.


Umsókn nr. 13629 (01.01.184.102)
Spítalastígur 10,
Innrétta íbúð
Spurt er hvort leyft verði að innrétta íbúð á 1. hæð í stað
skrifstofu í húsinu á lóðinni nr. 10 við Spítalastíg.

Jákvætt.
Miðað við að viðbygging verði rifin.


Umsókn nr. 13656 (01.02.342.002)
Vættaborgir 154,
Nýbygging
Spurt er hvort leyft verði að byggja einbýlishús úr steinsteypu
á lóðinni nr. 154 við Vættaborgir, samkvæmt meðfylgjandi
uppdráttum.

Neikvætt.
Miðað við framlögð gögn.