Þönglabakki 1

Verknúmer : BN013692

3414. fundur 1996
Þönglabakki 1, Breyting á innréttingu.
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingu á 2. hæð í keilusal á
lóðinni nr. 1 við Þönglabakka.
Gjald kr. 2.180.oo.
Jafnframt lagt fram bréf Rekstrarfélagsins hf., v. Landsbanka
Íslands sem er þinglýstur eigandi.
Einnig lögð fram skýrsla Rb um hljómburð milli hæða dags. 7. des.
1994.
Erindinu fylgir afrit af bréfi til Rekstrarfélagsins ehf,
dags. 11. f.m.

Samþykkt.
Enda verði gengið frá hljóðkröfum samkvæmt bréfi
dags. 13.10.1996 sbr. einnig bréf Sabim dags. 27.06.1996.