Baldursgata 22a, Baldursgata 30, Bergstaðastræti 37, Borgartún 33 þróttur, Breiðavík 18, Brekkusel 20-36, Bræðraborgarstígur 32, Bólstaðarhlíð 64-68, Bústaðavegur 153, Dofraborgir 7, Dugguvogur 8 - 10, Egilsgata 3 - domus medica, Eskihlíð 8 og 8a, Flókagata 33, Fossagata 7, Freyjugata 34, Fylkisvegur 6-8, Fákafen 11, Garðastræti 45, Grandavegur 47, Grensásvegur 3 - 7, Gullengi 29-39, Hagamelur 14, Hjallavegur 27, Hjallavegur 7, Hraunbær 102, Hringbraut 63, Hrísrimi 35-37, Hverfisgata 6, Hátún 27, Hávallagata 7, Jötnaborgir 4-10, Kirkjustræti 6 og 10, Kóngsbakki 2-16, Laufengi 1 - 3, Laufrimi 16-18, Laufásvegur 53-55, Laugarnesvegur 41, Laugarásvegur 1, Laugavegur 13, Laugavegur 66-68, Laugavegur 89-91, Miðhús 9, Njálsgata 23, Norðurstígur 3, Nóatún 17, Reyrengi 39, Réttarholtsv 45-61, Selásbraut 98, Skipasund 85, Smárarimi 62, Stangarhylur 7, Starengi 36-40, Staðarsel 1, Sturlugata, Stóragerði 4-6-8, Suðurlandsbraut 28, Síðumúli 27, Sörlaskjól 26, Súðarvogur 34, Tangarhöfði 4, Tjarnargata 39, Tryggvagata 28, Tunguháls 2, Ugluhólar 2-6 bílskl, Vesturgata 45, Vesturás 38, Viðarhöfði 2, Víkur og vindás 1-8, Álfaborgir 21, Álfaborgir 25, Álfaborgir 27, Álftahólar 2-8, Árskógar 2 - 8, Ásgarður 18-24, Öldugata 41, Þingholtsstræti 5, Þykkvibær 13, Þönglabakki 1, Akraland 1 - 3, Bergstaðastræti 77, Byggingarstjóri, Bárugata 37, Dyrhamrar 9, Faxafen 8-14 - skeifan 11-19, Hverfisgata 56, Háaleitisbraut 9, Jafnasel 6, Kleppsv laugambl 28, Lagt fram bréf, Laufrimi 1-5, Laufrimi 1-5, Laufrimi 1-5, Meistari/pípulagningameistari, Rafstöðvarvegur rr, Rósarimi 2, Rósarimi 6, Sogavegur 222, Tröllaborgir 23-29, Týsgata 5, Vesturgata 50, Ármúli 30, Baldursgata 22, Barmahlíð 53, Blesugróf 40, Grettisgata 31a, Hverfisgata 12, Háaleitisbraut 13, Höfðabakki 1, Laufásvegur 19, Laugavegur 98, Skólavörðuhæð - iðnskólinn., Vesturgata 20, Álfabakki 14, Ármúli 21, Ægisíða 64,

BYGGINGARNEFND

3386. fundur 1995

Árið 1995, fimmtudaginn 26. október, kl. 11.00 fyrir hádegi, hél byggingarnefnd Reykjavíkur 3386. fund sinn. Fundurinn var haldin í fundarsalnum 4. hæð Borgartúni 3. Þessir nefndarmenn sátu fundinn: Gunnar L. Gissurarson, Helgi Hjálmarsson, Sigurbjörg Gísladóttir, Hilmar Guðlaugsson og Halldór Guðmundsson. Auk þeirra sátu fundinn: Magnús Sædal Svavarsson, Ólafur Óskar Axelsson, Þormóður Sveinsson, Ívar Eysteinsson, Ágúst Jónsson, Gunnar Ólason og Sigríður K. Þórisdóttir. Fundarritari var Bjarni Þór Jónsson.
Þetta gerðist:


Umsókn nr. 10410 (01.01.186.207)
Baldursgata 22a,
Stækka og breyta
Sótt er um leyfi til að stækka og breyta innréttingu hússins á
lóðinni nr. 22A við Baldursgötu.
Stækkun: 1. hæð 1,7 ferm., 5 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 109.oo.

Samþykkt.
Halldór Guðmundsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.


Umsókn nr. 10271 (01.01.186.212)
Baldursgata 30,
Reyndarteikningar
Sótt er um leyfi til að baðherbergi verði samþykkt sem hluti af
íbúð í húsinu á lóðinni nr. 30 við Baldursgötu.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10277 (01.01.184.407)
Bergstaðastræti 37,
reykháfur
Sótt er um leyfi til að setja reykháf frá arni á þak
viðbyggingar hússins á lóðinni nr. 37 við Bergstaðastræti.
Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknareyðublaði.


Umsókn nr. 10319 (01.01.219.101)
Borgartún 33 þróttur,
leiðréttar teikningar/eldvarna
Sótt er um að fá samþykktar leiðréttar teikningar í samráði við
eldvarnareftirlit Reykjavíkur af húsinu á lóðinni nr. 33 við
Borgartún.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra.


Umsókn nr. 10341 (01.02.355.302)
Breiðavík 18,
reisa fjölbýlishús
Sótt er um leyfi til að reisa fjölbýlishús úr steinsteypu með
tuttugu og fjórum íbúðum á lóðinni nr. 18 við Breiðuvík.
Stærð: kjallari 192 ferm., 1. hæð 365,3 ferm., 2. hæð 358,8
ferm., 3. hæð 358,8 ferm., 4. hæð 358,8 ferm., 5. hæð 358,8
ferm., 6. hæð 358,8 ferm., samtals 6709 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 146.256.oo.

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknareyðublaði þ.e.
eldvarnaeftirlits, rafmagnsveitu og borgarskipulags.


Umsókn nr. 10317 (01.04.944.401)
Brekkusel 20-36,
klæða húsin að ofan
Sótt er um leyfi til að klæða efri hluta útveggja með loftræstri
útveggjaklæðningu og setja kant úr áli á þakbrún hússins á
lóðinni nr. 26-30 við Brekkusel.
Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.
Vantar samþykki meðlóðarhafa.


Umsókn nr. 10417 (01.01.134.611)
Bræðraborgarstígur 32,
byggja viðbyggingu og portbygg
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu og portbyggja hús sem
fyrir er úr steinsteypu, timbri og járni á lóðinni nr. 32A við
Bræðraborgarstíg. Lagt fram bréf skipulagsnefndar dags.25.10.95.
Stækkun: kjallari 36 ferm., 1. hæð 36 ferm., ris 19,3 ferm., 269
rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 5.864.oo.

Frestað.
Sjá athugasemdir á umsóknareyðublaði.
Kynna fyrir eigendum Holtsgötu 1, 5 og Bræðraborgarstígs 32.
Helgi Hjálmarsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.


Umsókn nr. 10320 (01.01.272.101)
Bólstaðarhlíð 64-68,
leiðrétta sameign og merkja ge
Sótt er um að fá samþykktar teikningar af núverandi
fyrirkomulagi í sameign og merkja geymslur íbúðum í húsinu á
lóðinni nr. 68 við Bólstaðarhlíð.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10386 (01.01.826.101)
Bústaðavegur 153,
Innrétt.br. og tvö skilti.
Sótt er um leyfi fyrir breyttum innréttingum á 2. hæð hússins og
setja upp tvö skilti á lóðinni nr. 153 við Bústaðaveg.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10374 (01.02.344.804)
Dofraborgir 7,
byggja einbýlishús
Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús úr steinsteypu á
lóðinni nr. 7 við Dofraborgir.
Stærð: 1. hæð 151 ferm., 562 rúmm. bílgeymsla 28,9 ferm., 92
rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 14.257.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 10353 (01.01.454.002)
Dugguvogur 8 - 10,
Breyta hurð o.fl.
Sótt er um leyfi til að breyta hurð á austurhlið, setja nýjan
stiga og skipta annari hæð í húsinu á lóðinni nr. 8-10 við
Dugguvog.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10237 (01.01.193.404)
Egilsgata 3 - domus medica,
Minnka glugga + breytingar
Sótt er um leyfi til að minnka þakglugga og breyta úr
staðsteyptri plötu í holplötu á húsinu á lóðinni nr. 3 við
Egilsgötu. Jafnframt er sótt um gerð stiga milli kjallara og 1.
hæðar.
Minnkun: 2 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.


Umsókn nr. 10327 (01.01.700.202)
Eskihlíð 8 og 8a,
Áður gerðar breytingar
Sótt er um að fá samþykkta teikningar af núverandi fyrirkomulagi
í húsinu á lóðinni nr. 8 og 8A við Eskihlíð.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10382 (01.01.244.402)
Flókagata 33,
Byggja yfir svalir + nýjar sv.
Sótt er um leyfi til að byggja yfir svalir og gera nýjar svalir
úr steinsteypu á húsinu á lóðinni nr. 33 við Flókagötu.
Gjald kr. 2.180.oo.
Meðfylgjandi bréf Sigurðar G. Jónssonar, dags. 18.10.1995.

Frestað.
Lagfæra útlit.


Umsókn nr. 10229 (01.01.636.604)
Fossagata 7,
byggja við
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu úr timbri og járni
við húsið á lóðinni nr. 7 við Fossagötu.
Stærð: 1. hæð 18,4 ferm., 2. hæð 5,8 ferm., 78 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 1.613.oo.

Frestað.
Samræma glugga og stærðir á viðbyggingu þeim sem fyrir eru.
Kynna fyrir eigendum Fossagötu 1, 3, 5, 9, 11, 6 og 8.


Umsókn nr. 10352 (01.01.196.004)
Freyjugata 34,
Áður gerð íbúð
Sótt er um að fá samþykkta áður gerða íbúð á jarðhæð hússins á
lóðinni nr. 34 við Freyjugötu.
Gjald kr. 2.180.oo. Meðfylgjandi eru skoðunarskýrslur
heilbrigðiseftirlits dags. 24.10.95 og byggingarfulltrúa
dags.19.09.1995. Jafnframt fylgir samþykki meðeigenda dags.
17.10.1995.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10350 (01.04.364.101)
Fylkisvegur 6-8,
Reyndarteikningar
Sótt er um að fá samþykktar teikningar af núverandi
fyrirkomulagi hússins á lóðinni nr. 6 við Fylkisveg.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra.


Umsókn nr. 10351 (01.01.463.402)
Fákafen 11,
Innréttingabreyting
Sótt er um leyfi til að breyta útliti norðurhliðar og
innréttingum í húsinu á lóðinni nr. 11 við Fákafen.
Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.
Vísað til athugasemda heilbrigðiseftirlits. Vantar samþykki
meðeigenda. Athuga aðra lausn á loftræsingu.


Umsókn nr. 10360 (01.01.161.212)
Garðastræti 45,
Breyta fjölbýlishúsi.
Sótt er um leyfi til að stækka svalir og setja glugga í þakflöt
í stað eldri glugga úr steni/timbri í húsinu á lóðinni nr. 45
við Garðastræti.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10377 (01.01.521.201)
Grandavegur 47,
Aðstaða fyrir pottagaldra.
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingu til
bráðabirgða í verslunar og þjónusturými á 1. hæð (kryddpökkun)
hússins á lóðinni nr. 47 við Grandaveg.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Til bráðabirgða í fjóra mánuði.


Umsókn nr. 10379 (01.01.461.001)
Grensásvegur 3 - 7,
innrétta húsnæði f.veitingar.
Sótt er um leyfi til að innrétta húsnæði fyrir veitingarekstur
og skemmtistað og breyta skyggni að utan í húsinu á lóðinni nr.
5 og 7 við Grensásveg.
Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits.
Magnús Sædal vék af fundi kl. 13.00


Umsókn nr. 10306 (01.02.386.101)
Gullengi 29-39,
Reyndarteikningar
Sótt er um að fá samþykktar teikningar af núverandi
fyrirkomulagi í húsinu á lóðinni nr. 37-39 við Gullengi.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 10369 (01.01.540.327)
Hagamelur 14,
Fá samþ. risíbúð
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðri íbúð í risi hússins á lóðinni
nr. 14 við Hagamel. Ennfremur er sótt um tröppur og hurð inn í
þvottahús svo aflétta megi kvöð sem hvílir á kjallaríbúð á
Hagamel 14, um aðgang að þvottahúsi.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Ólafur Axelsson vék af fundi við afgreiðlu málsins.


Umsókn nr. 10309 (01.01.384.106)
Hjallavegur 27,
Fá samþykkta íbúð
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðri íbúð í kjallara hússins á
lóðinni nr. 27 við Hjallaveg.
Gjald kr. 2.180.oo.
Meðfylgjandi samþykki meðeigenda dags. 22.09.95.
Skoðunarskýrslur byggingarfulltrúa og heilbrigðiseftirlits fylgja
erindinu.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10380 (01.01.353.204)
Hjallavegur 7,
klæða húsið, brjóta svalahandr
Sótt er um leyfi til að klæða húsið á lóðinni nr. 7 við
Hjallaveg að utan með hvítum steniplötum og bárustáli
Gjald kr. 2.180.oo.
Meðfylgjandi er bréf hönnuðar, Kristjáns Ásgeirssonar, dags.
19.10.95.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10310 (01.04.343.301)
Hraunbær 102,
Klæða af steypta kalda veggi
Sótt er um leyfi til að klæða kalda útveggi hússins á lóðinni
nr. 102 við Hraunbæ, með hvítum steniplötum.
Gjald kr. 2.180.oo.
Meðfylgjandi ástandsskýrsla Andrésar Ásmundssonar, dags.
20.07.1995 og samþykki eigenda í Hraunbæ 102, dags. 15.08.1995.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10416 (01.01.540.008)
Hringbraut 63,
byggja svalir og tröppur
Sótt er um leyfi til að byggja svalir og tröppur úr timbri
niður í garð hússins á lóðinni nr. 63 við Hringbraut.
Gjald kr. 2.180.oo.
Bréf Guðrúnar Stefánsdóttur dags. 06.10.95 fylgir erindinu.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10376 (01.02.583.306)
Hrísrimi 35-37,
Fá íbúð samþykkta
Sótt er um leyfi til að fá samþykkta 55 ferm. íbúð (þrjár íbúðir
í húsinu) nr. 35 á lóðinni nr. 35 - 37 við Hrísrima.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykki nágranna fylgir erindinu.
Ennfremur lagt fram bréf umsækjanda dags. 14. ágúst 1995.
Umsögn skipulagsnefndar dags. 03.10.1995 fylgir erindinu.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10304 (01.01.170.003)
Hverfisgata 6,
hækka áður samþ. vegg á bakb.
Sótt er um leyfi til að hækka áður samþykktan vegg á bakbyggingu
úr timbri á lóðinn nr. 4 og 6 við Hverfisgötu.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10349 (01.01.235.017)
Hátún 27,
gera 2 íbúðir og breyta kjalla
Sótt er um að breyta kjallara og fá samþykkta íbúð í kjallara
hússins á lóðinni nr. 27 við Hátún.
Gjald kr. 2.180.oo.
Meðfylgjandi eru skoðunarskýrslur heilbrigðiseftirlits dags.
23.10.95 og byggingarfulltrúa dags. 04.10.95.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10370 (01.01.160.306)
Hávallagata 7,
Reisa pall og skjólvegg
Sótt er um leyfi til að reisa pall og skjólvegg á lóðinni nr. 7
við Hávallagötu.
Gjald kr. 2.180.oo.
Meðfylgjandi er samþykki eigenda Hávallagötu 5 og Hólatorgs 8.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10322 (01.02.340.602)
Jötnaborgir 4-10,
byggja fjölbýlishús
Sótt er um leyfi til að byggja fjölbýlishús úr steinsteypu með
átta íbúðum á lóðinni nr. 4-6 við Jötnaborgir.
Stærð: 1. hæð 89,4 ferm., 2. hæð 341,5 ferm., 3. hæð 341,5 ferm.,
2485 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 54.173.oo.

Frestað.
Lagfæra handrið og hurð í opið bílskýli.
Ágúst Jónsson vék af fundi kl. 13.10.


Umsókn nr. 10420 (01.01.141.102)
Kirkjustræti 6 og 10,
Tengibygging.
Sótt er um leyfi til að byggja tengibyggingu úr steypu, timbri
og málmklæðningu á lóðinni nr. 8b og 10 við Kirkjustræti.
Stærð: kjallar 32,1 ferm., 1. hæð 37 ferm., 2. hæð 21,1 ferm.,
306 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 6.671.oo.
Meðfylgjandi er bréf Sigurðar Einarssonar, arkitekts, dags.
25.10.1995, Jafnframt fylgir bréf húsfriðunarnefndar ríkisins
dags. 18.10.1995 erindinu.

Samþykkt.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra.


Umsókn nr. 10328 (01.04.634.203)
Kóngsbakki 2-16,
Reyndarteikningar
Sótt er um að fá samþykktar teikningar vegna eignaskipta af
núverandi fyrirkomulagi í húsinu á lóðinni nr. 2-16 við
Kóngsbakka.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Athygli eigenda er vakin á því að kröfum um eldvarnir er ekki
fullnægt samkvæmt núgildandi reglugerð.


Umsókn nr. 10268 (01.02.389.001)
Laufengi 1 - 3,
Hækka þak
Sótt er um leyfi til að hækka þak frá áður samþykktum teikningum
af húsinu á lóðinni nr. 1-3 við Laufengi.
Stækkun: 179 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 3.902.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 10387 (01.02.540.302)
Laufrimi 16-18,
Byggja fjölbýlishús
Sótt er um leyfi til að byggja fjölbýlishús úr steinsteypu á
lóðinni nr. 10-18 við Laufrima, í húsi nr. 16, eru níu íbúðir og
í húsi nr. 18, eru ellefu íbúðir.
Stærð: hús nr. 16, kjallari 290,9 ferm., 2. hæð 280,5 ferm., 3.
hæð 280,5 ferm., 2656 rúmm., hús nr. 18, 1. hæð 375,7 ferm., 2.
hæð 363,3 ferm., 3. hæð 363,3 ferm., 3432 rúmm., samtals 6088
rúmm. Gjald kr. 4.360.oo + 132.718.oo.
Jafnframt er lagt til að lóðin verði nr. 16-18 við Laufrima.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.
3 atkv. gegn 1, Halldór Guðmundsson sat hjá, Helgi Hjálmarsson á
móti.


Umsókn nr. 10414 (01.01.185.605)
Laufásvegur 53-55,
Endurb. og endurskipuleggja
Sótt er um leyfi til að breyta útliti og innra skipulagi hússins
lóðinni nr. 53-55 við Laufásveg.
Gjald kr. 2.180.oo.
Ennfremur lögð fram greinagerð hönnuðar dags. 26.09.1995.

Samþykkt.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.


Umsókn nr. 10373 (01.01.360.003)
Laugarnesvegur 41,
Byggja anddyri
Sótt er um leyfi til að byggja anddyri úr timbri og járni við
húsið á lóðinni nr. 41 við Laugarnesveg.
Stækkun: 1. hæð 7,8 ferm., 26 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 567.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10332 (01.01.380.104)
Laugarásvegur 1,
Áður gerðar breytingar
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum vegna eignaskipta
á húsinu á lóðinni nr. 1 við Laugarásveg.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Vakin er athygli á athugasemdum eldvarnaeftirlits.


Umsókn nr. 10347 (01.01.171.113)
Laugavegur 13,
byggja við og gera breytingar
Sótt er um leyfi til að byggja glerskála út á svalir á 4. hæð
breyta innréttingum á 4.hæð, 5. hæð og turni og setja glugga á
turn í húsinu á lóðinni nr. 13 við Laugaveg.
Stærð: 4. hæð 7,6 ferm., 23 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 501.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10404 (01.01.174.202)
Laugavegur 66-68,
Reyndarteikningar
+Sótt er um að fá samþykktar teikningar af núverandi
fyrirkomulagi í húsinu á lóðinni nr. 66-68 við Laugaveg vegna
eignaskipta.
Minnkun: 10 ferm., 298 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Helgi Hjálmarsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.


Umsókn nr. 10356 (01.01.174.119)
Laugavegur 89-91,
Stækka hús
Sótt er um leyfi til að stækka húsið á lóðinni nr. 89 við
Laugaveg.
Stærð: kjallari 75,2 ferm., 1. hæð 91,2 ferm., 2. hæð 91,2 ferm.,
3. hæð 91,2 ferm., 4. hæð 145 ferm., 1323 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 28.841.oo.

Frestað.
Kynna fyrir eigendum Laugavegs 87, Hverfisgötu 100B og 100A.
Vísað til skipulagsnefndar.
Vísað til athugasemda byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 10330 (01.02.846.905)
Miðhús 9,
færa inngang/útbyggður gluggi
Sótt er um leyfi til að færa inngang og setja útbyggðan glugga
á húsið á lóðinni nr. 9 við Miðhús.
Stærð: 1. hæð 1,5 ferm., 4 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 87.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10406 (01.01.182.125)
Njálsgata 23,
íbúðarhús í verslunarhúsnæði
Sótt er um leyfi til að breyta íbúðarhúsnæði í verslunarhúsnæði
í húsinu á lóðinni nr. 23 við Njálsgötu.
Gjald kr. 2.180.oo.
Meðfylgjandi mótmæli íbúðareigenda að Njálsgötu 23 dags.
06.10.95. Jafnframt fylgir bréf Jóns Sigurðssonar dags. 18.10.95
erindinu.

Samþykkt.
Hilmar Guðlaugsson vék af fundi kl. 13.40.


Umsókn nr. 10384 (01.01.132.016)
Norðurstígur 3,
Byggja við íbúðarhús.
Sótt er um leyfi til að byggja úr timbri við húsið á lóðinni
nr. 3 við Norðurstíg.
Stærð: kjallari 10,0 ferm., 1. hæð 13,4 ferm., 2. hæð 13,4
ferm., 3. hæð 100,2 ferm., ris 47,7 ferm., 492 rúmm. Gjald kr.
2.180.oo + 10.726.oo.
Erindið var kynnt nágrönnum með bréfi dags.01.09.95 og mótmæli
hafa borist frá eigenda Vesturgötu 20, dags. 28.09.95.

Frestað.
Lagfæra afstöðumynd og stytta svalir.


Umsókn nr. 10354 (01.01.235.201)
Nóatún 17,
Rífa og endurbyggja
Sótt er um leyfi til að rífa áfastan skúr stærð: 32,7 ferm.,
104,7 rúmm., og endurbyggja með 45,7 ferm., viðbyggingu á lóðinni
nr. 17 við Nóatún. Stærð: 45,7 ferm., 147 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 916.oo.

Samþykkt.
Jafnframt er óskað eftir því að heildaruppdrættir af húsinu
verði lagðir fram.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.


Umsókn nr. 9765 (01.02.387.804)
Reyrengi 39,
byggja hús
Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús úr steinsteypu
(argisol mót ) á lóðinni nr. 39 við Reyrengi.
Stærð: 1. hæð 144 ferm., 510 rúmm., bílgeymsla 44 ferm., 133
rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 14.017.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 10367 (01.01.834.002)
Réttarholtsv 45-61,
Klæðning á austurgafl.
Sótt er um leyfi til að klæða með steniplötum, austurgafl,
hússins á lóðinni nr. 45 - 61 við Réttarholtsveg.
Gjald kr. 2.180.oo.
Skýrsla húsfélagsins um ástand steypu, o.fl., dags. 20.06.95
fylgir umsókninni.

Samþykkt.
Nota skal sléttar plötur


Umsókn nr. 10312 (01.04.385.901)
Selásbraut 98,
breytingar á áður samþ.teikn
Sótt er um leyfi til að breyta verslunarhúsi á lóðinni
Selásbraut 98 úr steinsteypu, útliti og grunnmynd frá áður
samþykktum teikningum.
Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.
Lagfæra teikningar.


Umsókn nr. 10366 (01.01.413.016)
Skipasund 85,
leiðrétta teikningar,útlit
Húsfélagið Skipasundi 85 sækir um leyfi til að breyta útliti
austurhliðar og sameign í kjallara hússins á lóðinni nr. 85 við
Skipasund.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10378 (01.02.526.308)
Smárarimi 62,
br.þaki
Sótt er um leyfi til að breyta þaki, stækka kvisti og
breyta útliti hússins á lóðinni nr. 62 við Smárarima.
Stærð: ris 13,6 ferm., 6 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 131.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.


Umsókn nr. 10300 (01.04.232.204)
Stangarhylur 7,
Vegna eignaskipta
Sótt er um að fá samþykktar vegna eignaskipta teikningar af
núverandi fyrirkomulagi í húsinu á lóðinni nr. 7 við Stangarhyl
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10344 (01.02.384.301)
Starengi 36-40,
Raðhús
Sótt er um leyfi til að byggja raðhús úr steinsteypu með þremur
íbúðum á lóðinni nr. 36-40 við Starengi.
Stærð: hús nr. 36, 118,1 ferm., hús nr. 38, 118,7 ferm., hús nr.
40, 118,7 ferm., samtals 1204 rúmm. Bílgeymslur nr. 36, 26,6
ferm., nr. 38, 26 ferm., nr. 40, 26 ferm., samtals 266 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 32.046.oo.

Frestað.
Lagfæra hæðarafsetningu.


Umsókn nr. 10371 (01.04.924.001)
Staðarsel 1,
byggja sólstofu
Sótt er um leyfi til að byggja sólstofu úr gleri og stáli við
húsið á lóðinni nr. 1 við Staðarsel.
Stærð: sólstofa 17,4 ferm., 46 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 1.003.oo.

Synjað.


Umsókn nr. 10413 (01.01.60-.-97)
Sturlugata,
byggja Náttúrufræðahús,
Sótt er um leyfi til að byggja náttúrufræðahús úr steinsteypu
við Sturlugötu.
Stærð: 1. hæð 3.277 ferm., 2. hæð 2357,7 ferm., 3. hæð 2319,8
ferm., 31289 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 682.035.oo.

Frestað.
Vísað til byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 10194 (01.01.800.101)
Stóragerði 4-6-8,
áðurgerð íbúð í kjallara
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðri íbúð í húsinu nr. 8 á lóðinni
nr. 4-8 við Stóragerði.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Þormóður Sveinsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.


Umsókn nr. 10340 (01.01.264.202)
Suðurlandsbraut 28,
Breyta notkun innanhúss o.fl.
Sótt er um leyfi til að breyta notkun innanhúss á 1. hæð og koma
fyrir nýjum gluggum á vestur og austurhlið hússins á lóðinn nr.
28 við Suðurlandsbraut.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10323 (01.01.295.107)
Síðumúli 27,
byggja verkstæði á baklóð
Sótt er um leyfi til að breyta þakkanti á húsinu á lóðinni nr.
27 við Síðumúla.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10383 (01.01.532.014)
Sörlaskjól 26,
byggja svalir og stækka glugga
Sótt er um leyfi til að byggja svalir, síkka glugga og gera hurð
úr kjallara og út, í húsinu á lóðinni nr. 26 við Sörlaskjól.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykki meðeigenda dags. 3. október 1995 fylgir erindinu.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10296 (01.01.454.112)
Súðarvogur 34,
Breyting vegna eldvarna
Sótt er um leyfi fyrir breytingum v/brunavarna í húsinu á
lóðinni nr. 34 við Súðarvog.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10294 (01.04.063.502)
Tangarhöfði 4,
steypa stoðvegg
Sótt er um leyfi til að byggja stoðvegg úr steinsteypu á lóðinni
nr. 4 við Tangarhöfða.
Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.
Vantar samþykki nágranna.


Umsókn nr. 10338 (01.01.143.101)
Tjarnargata 39,
Björgunarop og fl.
Sótt er um leyfi til að gera franskar svalir á austurhlið
hússins á lóðinni nr. 39 við Tjarnagötu.
Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.
Kynna fyrir meðeigendum.


Umsókn nr. 10331 (01.01.140.103)
Tryggvagata 28,
Hækka gangstétt v. aðalinngang
Sótt er um leyfi til að hækka gangstétt við aðalinngang með
rampa og setja upp handrið úr stáli og fá samþykktar teikningar
af núverandi fyrirkomulagi í kjallara hússis á lóðinni nr. 28
við Tryggvagötu
Gjald kr. 2.180.oo.
Jafnframt lögð fram umsögn gatnamálastjóra dags. 2. nóv. 1995.

Frestað.
Vísað til umsagnar gatnamálastjóra.


Umsókn nr. 10324 (01.04.328.501)
Tunguháls 2,
Stækka ketilhús þvottahúss
Sótt er um leyfi til að stækka úr steinsteypu ketilhús
þvottahúss á lóðinni nr. 2 við Tunguháls.
Stækkun 57 ferm., 317 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 6.911.oo.

Frestað.
Gera grein fyrir bílastæðum.


Umsókn nr. 10336 (01.04.648.-02)
Ugluhólar 2-6 bílskl,
klæða gafla með hvítum steni
Sótt er um leyfi til að klæða gafla hússins á lóðinni nr. 2-6
við Ugluhóla með hvítum steniplötum og stenexplötum í lit.
Gjald kr. 2.180.oo.
Meðfylgjandi bréf Ingimundar Einarssonar dags. 20.09.95 og
samþykki eigenda dags. 17.10.95 fylgja erindinu.

Frestað.
Vantar ástandsskýrslu. Fá heildarlausn.


Umsókn nr. 10348 (01.01.135.002)
Vesturgata 45,
Áður gerð íbúð
Sótt er um fá samþykkta áður gerða íbúð á 1. hæð, breyta
fyrirkomulagi í anddyri og á 2. hæð, stækka 2. hæð og byggja
svalir á húsinu á lóðinni nr. 45 við Vesturgötu.
Stækkun: 2. hæð 2,8 ferm., 9 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 196.oo.
Meðfylgjandi samþykki meðeigenda dags. 03.10.1995 og
skoðunarskýrsla heilbrigðiseftirlits.

Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits og byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 10381 (01.04.385.402)
Vesturás 38,
Einbýlishús
Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús úr steinsteypu á
lóðinni nr. 38 við Vesturás.
Stærðir: 1. hæð 103,2 ferm., 2. hæð (ris) 84,9 ferm., 584 rúmm.,
blómaskáli 23,2 ferm., 59 rúmm., bílgeymsla 36 ferm., 120 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo.

Frestað.
Lagfæra teikningar.


Umsókn nr. 10224 (01.04.077.501)
Viðarhöfði 2,
Breyta innk. og lóðarsk.
Sótt er um leyfi til að breyta innkeyrslu á lóð og
lóðarskipulagi á lóðinni nr. 2, 2A, 2B og 4 við Viðarhöfða.
Gjald kr. 2.180.oo.
Meðfylgjandi samþykki meirihluta húsfélagsins dags.28.08.1995.

Samþykkt.
Þinglýsa skal samkomulagi dags. 28.08.1995.


Umsókn nr. 10372 (01.04.720.201)
Víkur og vindás 1-8,
vindás 1-4 víkurás 1-8
Sótt er um leyfi til að breyta fyrirkomulagi lóðar nr. 1 - 4 við
Vindás og 1 - 8 við Víkurás.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10358 (01.02.348.101)
Álfaborgir 21,
fjölbýlishús
Sótt er um leyfi til að byggja fjölbýlishús úr steinsteypu með
fjórum íbúðum á lóðinni nr. 21 við Álfaborgir.
Stærð: kjallari 7,6 ferm., 1. hæð 186,7 ferm., 2. hæð 186,7
ferm., 1257 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 27.403.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.
Hæðarafsetning háð sérstöku samþykki byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 10359 (01.02.348.103)
Álfaborgir 25,
fjölbýlishús
Sótt er um leyfi til að byggja fjölbýlishús úr steinsteypu með
ellefu íbúðum á lóðinni nr. 25 við Álfaborgir.
Stærð: kjallari 8,7 ferm., 1. hæð 306,2 ferm., 2. hæð 307,1
ferm., 3. hæð 307,1 ferm., 2894 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo +
63.089.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.
Hæðarafsetning háð sérstöku samþykki byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 10357 (01.02.348.105)
Álfaborgir 27,
byggja fjölbýlishús
Sótt er um leyfi til að byggja fjölbýlishús úr steinsteypu með
11 íbúðum á lóðinni nr. 27 við Álfaborgir.
Stærð: kjallari 8,7 ferm., 1. hæð 316,3 ferm., 2. hæð 317,2
ferm., 3. hæð 317,2 ferm., 2988 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 65.138.oo.

Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.
Hæðarafsetning háð sérstöku samþykki byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 10329 (01.04.642.601)
Álftahólar 2-8,
Reyndarteikningar
Sótt er um að fá samþykktar teikningar v/eignaskipta af
núverandi fyrirkomulagi í kjallara hússins á lóðinni nr. 2 við
Álftahóla. Stækkun: 41,9 ferm., 134 rúmm.
Samþykki meðeigenda fylgir.
Gjald kr. 2.180.oo + 2.921.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10375 (01.04.911.301)
Árskógar 2 - 8,
Hjúkrunarheimili
Sótt er um leyfi til að byggja hjúkrunarheimili úr steinsteypu á
lóðinni nr. 2 við Árskóga.
Stærð: kjallari 488,3 ferm., 1. hæð 1496,1 ferm., 2. hæð 1448,5
ferm., 3. hæð 392,0 ferm., ris. 280,7 ferm., samtals 13888 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 302.758.oo.
Ennfremur lagt fram bréf VSO dags. 03.10.95 og bréf arkitekta
dags. 18.10.95 og brunatæknileg hönnun.

Samþykkt.
Með vísan til bókunar skipulagsnefndar dags. 23. okt. 1995.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra. Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.
Halldór Guðmundsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.


Umsókn nr. 10335 (01.01.834.203)
Ásgarður 18-24,
Sjúkranuddstofa
Sótt er um leyfi til að starfrækja sjúkranuddstofu í húsinu á
lóðinni nr. 22-24A við Ásgarð.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.


Umsókn nr. 10321 (01.01.134.414)
">Öldugata 41,
leiðrétta sameign og merkja ge
Sótt er um að fá samþykktar teikningar vegna eignaskipta í
sameign og merkja geymslur í húsinu á lóðinni nr.41 við
Öldugötu.
Gjald kr. 2180.oo.
Meðfylgjandi samþykki meðeigenda dags. 10.10.1995.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10362 (01.01.170.303)
Þingholtsstræti 5,
breyta þakrými
Sótt er um leyfi til að breyta þakhæð úr timbri og bárujárni á
lóðinni nr. 5 við Þingholtsstræti.
Stækkun: 70 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 1.526.oo.

Synjað.


Umsókn nr. 10426 (01.04.352.401)
Þykkvibær 13,
Viðbygging
Sótt er um leyfi til að byggja við íbúðarhúsið úr steinsteypu á
lóðinni nr. 13 við Þykkvabæ. Stærð: 1. hæð 107,9 ferm., 332
rúmm. Bílgeymsla 46,7 ferm., 117 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 9.788.oo.

Frestað.
Vísað til borgarskipulags.


Umsókn nr. 10411 (01.04.603.501)
Þönglabakki 1,
Byggja göngugötu.
Sótt er um leyfi til að byggja yfir göngugötu úr límtré og
polycarkoadplötum á lóðunum nr. 12, 14 og 16 við Álfabakka og 1
- 6 við Þönglabakka.
Flatarmál yfirbyggðrar götu er 1685 ferm., rúmmál götu er 13915
rúmm, opið.
Ennfremur lagt fram bréf frá formanni svæðisf. dags. 06.03.95.
Umsögn skipulagsnefndar, dags. 8. mars 1995 fylgir erindinu.
Jafnframt lagt fram bréf Viðars Ólafssonar, dags. 29.03.1995 og
afrit af bréfi Svæðafélagsins til skipulagsnefndar, dags.
29.03.1995.
Bréf og yfirlýsing Viðars Ólafssonar, fylgja erindinu.
Jafnframt fylgir bréf Haraldar H. Helgasonar f.h. Andlegs
Þjóðarráðs bahá'ía á Íslandi dags. 27.09.95, og bréf
svæðafélagsins í Mjódd dags. 11.10.1995 um brunavarnir og
tímaáætlun. Lagt fram bréf byggingarfulltrúa dags. 25.10.1995.

Samþykkt.
Með þeim skilyrðum sem fram koma í bréfi byggingarfulltrúa.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra.


Umsókn nr. 10402 (01.01.841.701)
Akraland 1 - 3,
Lagt fram bréf
Lagt fram bréf umhverfisráðuneytisins dags. 10.10.95 vegna kæru
Níels Christian Svane um synjun byggingarnefndar þann 26.05.1995
á leyfi fyrir sólstofu á 1. hæð hússins nr. 3 við Akraland.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun byggingarnefndar frá 26.05.95
um að synja um leyfi til að byggja sólstofu
úr gleri og stáli á 1. hæð við Akraland
skal óbreytt standa.



Umsókn nr. 10424 (01.01.196.409)
Bergstaðastræti 77,
Trjáfelling
Sótt er um leyfi til að fella grenitré á lóðinni nr. 77 við
Bergstaðastræti. Umsögn garðyrkjustjóra dags. 25.10.95 fylgir
erindinu.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10394
Byggingarstjóri,
Byggingarstjóri
Ármannsfell hf, sækir um viðurkenningu fyrir Gunnar Lárusson
húsasmíðameistara sem byggingarstjóra vegna byggingar á Berjarima
32-36.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10425 (01.01.135.401)
Bárugata 37,
Lóðabreyting
Húseigendur að Bárugötu 37 óska eftir því að lóðin Bárugata 37
sem sameinuð var úr lóðunum Bárugata 37 og Bræðraborgarstígur 13
verði Bárugata 37 og Bræðraborgarstígur 13 þannig að matshluti 01
eystra hús verði Bárugata 37 og matshluti 02 vestra hús verði
Bræðraborgarstígur 13. Samþykki allra eigenda nema tveggja fylgir
erindinu dags. 18.10.1995, svo og bréf Þorsteins Geirharðssonar
dags. 25.10.1995.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10405 (01.02.296.501)
Dyrhamrar 9,
Lögð fram umsögn
Lögð fram umsögn skrifstofustjóra byggingarfulltrúa dags.
25.10.1995 vegna kæru til umhverfisráðuneytisins dags.
04.10.1995, þar sem Anna Borgþórsdóttir f.h. húsfélagsins í
Geithömrum 2-16, kærir fyrirhugaða stækkun Hamraskóla.

Umsögnin samþykkt.


Umsókn nr. 10392 (01.01.462.001)
Faxafen 8-14 - skeifan 11-19,
Lagt fram bréf
Lagt fram bréf Jóhannesar Þórðarsonar, arkitekts, dags. 30. júlí
1993 fh. Brauðs hf vegna bílastæða á lóðinni, en óskað er eftir
að bílastæðagjöld að upphæð kr. 756.500.oo sem lagt var á með
samþykkt á bílskýli 10. júní 1993 verði fellt niður.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10398 (01.01.172.103)
Hverfisgata 56,
Lagt fram bréf
Lagt fram bréf borgarlögmanns dags. 19. október 1995.

Frestað.
Vísað til byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 10393 (01.01.290.401)
Háaleitisbraut 9,
Lagt fram bréf skýrr.
Lagt fram bréf Skýrr, dags. 5. október 1995 með ósk um að húseign
Skýrr, Háaleitisbraut 9 verði tölusett nr. 2 við Ármúla.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10403 (01.04.993.103)
Jafnasel 6,
Lagt fram bréf
Lagt fram bréf borgarskipulags dags. 10.10.1995.



Umsókn nr. 10399 (01.01.351.004)
Kleppsv laugambl 28,
Lagt fram bréf
Lagt fram bréf Halldórs Guðmundssonar, arkitekts dags. 17.10.1995
f.h. Sjómannadagsráðs vegna geymsluhúsnæðis á lóðinni nr. 28 við
Laugamýrablett.

Frestað.
Vísað til skrifstofustjóra borgarverkfræðings.
Halldór Guðmundsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.


Umsókn nr. 10396
Lagt fram bréf,
Lagt fram bréf
Lagt fram bréf skrifstofustjóra borgarstjórnar dags. 16. október
1995 með tillögu um samþykkt borgarstjórnar um byggingarmál á
grundvelli laga nr. 82/1994 um reynslusveitarfélög.



Umsókn nr. 10231 (01.02.543.201)
Laufrimi 1-5,
númer á geymslur og bifreiðage
Sótt er um leyfi til að setja matshlutanúmer á geymslur og
bifreiðageymslur í húsinu á lóðinni nr. 1-5 við Laufrima.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10232 (01.02.543.201)
Laufrimi 1-5,
númer á geymslur og bifreiðag
Sótt er um leyfi til að setja matshlutanúmer á geymslur og
bifreiðageymslur í húsinu á lóðinni nr. 1-5 við Laufrima

Samþykkt.


Umsókn nr. 10421 (01.02.543.201)
Laufrimi 1-5,
Númer á geymslur og bifreiðag
Sótt er um leyfi til að setja matshlutanúmer á geymslur og
bifreiðageymslur í húsinu á lóðinni nr. 1-5 við Laufrima.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10422
Meistari/pípulagningameistari,
Meistari/pípulagningameistari
Ofanritaður sækir um leyfi byggingarnefndar til að mega standa
fyrir byggingum í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur sem
pípulagningameistari.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10412 (01.04.25-.-88)
Rafstöðvarvegur rr,
Niðurrif
Landsvirkjun, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, sækir um leyfi
til þess að rífa dæluhús úr steinsteypu, um er að ræða matshluta
nr. 20, staðgreinir 01.04.25-.-88. Bréf Landsvirkjunar dags. 4.
október 1995 fylgir málinu.
Samþykki borgarstjórnar dags. 19. október 1995 fylgir erindinu.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10234 (01.02.543.801)
Rósarimi 2,
númer á geymslur og bifreiðag
Sótt er um leyfi til að setja matshlutanúmer á geymslur og
bifreiðageymslur í húsinu á lóðinni nr. 2 við Rósarima.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10233 (01.02.543.802)
Rósarimi 6,
nýmer á geymslur og bifreiðag
Sótt er um leyfi til að setja matshlutanúmer á geymslur og
bifreiðageymslur í húsinu á lóðinni nr. 6 við Rósarima.
Gjald kr. 2.180.oo.

Samþykkt.


Umsókn nr. 10418 (01.01.837.004)
Sogavegur 222,
Breytt lóðarmörk
Sótt er um leyfi til að breyta lóðarmörkum Sogavegs 222, til
samræmis við lóðarmörk Sogavegs 218 og 220. Lóðim er 691 ferm.,
sbr. þinglesna yfirlýsingu nr. 17487/85, dags. 30.04.1995. Tekið
af lóðinni undir akbraut 29 ferm., lóðin verður 662 ferm.
Sjá samþykkt skipulagsnefndar dags. 28.03.94 og samþykkt
borgarráðs dags. 03.05.1994 um Sogaveg 218 og 220.

Frestað.
Vísað til skipulagsnefndar.


Umsókn nr. 10408 (01.02.340.302)
Tröllaborgir 23-29,
Lagt fram bréf
Lagt fram bréf Gunnars S. Óskarssonar dags. 24.10.95 varðandi
synjun byggingarnefndar á byggingarleyfisumsókn Haraldar
Eiríkssonar þann 12. október 1995.



Umsókn nr. 10397 (01.01.181.118)
Týsgata 5,
Lagt fram bréf
Lagt fram bréf Grétu Ingólfsdóttur, Týsgötu 8, dags. 13.10.95



Umsókn nr. 10400 (01.01.130.207)
Vesturgata 50,
Niðurrif
Sveinn Guðmundsson, lögfræðingur Einholti 2, 128 R. f.h. Guðmanns
Heiðmar kt:180828-4869, Öldugötu 7a, 101 R, sækir um leyfi til
niðurrifs á húseigninni Vesturgötu 50. Með erindinu fylgir bréf
Sveins Guðmundssonar dags. 29. september 1995, afrit af bréfi
Húsfriðunarnefndar ríkisins dags. 18. október 1995.

Frestað.


Umsókn nr. 10401 (01.01.292.104)
Ármúli 30,
Lagt fram bréf
Lagt fram bréf Jóns Svavars Jóhannssonar, Einars Páls
Jóhannssonar og Hjördísar Einarsdóttur vegna byggingarleyfis
fyrir skúr við bakhlið Ármúla 30.
Jafnframt lagt fram bréf Kristínar Sjafnar Helgadóttur.
Lögð fram umsögn skrifstofustjóra byggingarfulltrúa dags.
26.12.1995.

Frestað.
Vísað til skrifstofustjóra byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 10389 (01.01.186.206)
Baldursgata 22,
Breyta innréttingu o.fl
Spurt er hvort leyft verði að hækka ris og breyta innréttingum í
húsinu á lóðinni nr. 22 við Baldursgötu.

Nei.


Umsókn nr. 10316 (01.01.710.024)
Barmahlíð 53,
Kvistur og svalir.
Spurt er hvort leyft verði að setja aukakvist á norðurhlið og
svalir á suðurhlið á húsinu á lóðinni nr. 53 við Barmahlíð.
Samþykki eigenda Barmahlíðar 53 og 55 fylgir erindinu.

Nei við svölum.


Umsókn nr. 10415 (01.01.885.522)
Blesugróf 40,
bílskúr
Spurt er hvort leyft verði að byggja bílskúr úr timbri á lóðinni
nr. 40 við Blesugróf.

Neikvætt.


Umsókn nr. 10315 (01.01.173.134)
Grettisgata 31a,
áður gerð íbúð
Spurt er hvort samþykkt yrði áður gerð íbúð á jarðhæð hússins á
lóðinni nr. 31A við Grettisgötu.

Jákvætt að uppfylltum skilyrðum reglugerðar.


Umsókn nr. 10365 (01.01.171.001)
Hverfisgata 12,
setja upp millivegg /klósett
Spurt er hvort leyft verði að setja upp milliveggi vegna salerna
í húsinu á lóðinni nr. 12 við Hverfisgötu.
Meðfylgjandi er bréf dags. 20.10.1995.

Jákvætt.


Umsókn nr. 10311 (01.01.290.403)
Háaleitisbraut 13,
viðbygging -sundlaug-
Spurt er hvort leyft verði að byggja viðbyggingu við sundlaug úr
steinsteypu á lóðinni nr. 13 við Háaleitisbraut.

Frestað.
Vísað til skipulagsnefndar.
Kynna fyrir eigendum Háaleitisbrautar 15, 17, 20 og 26.


Umsókn nr. 10343 (01.04.070.001)
Höfðabakki 1,
Hótel
Spurt er hvort leyft verði að innrétta hótel á 2. og 3. hæð
hússins á lóðinni nr. 1 við Höfðabakka.
Bréf Hjartar Aðalsteinssonar, dags. 18.10.1995 fylgir erindinu.

Jákvætt.
Að uppfylltum skilyrðum byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 10307 (01.01.183.510)
Laufásvegur 19,
Breyta jarðhæð
Spurt er hvort leyft verði að innrétta tvær íbúðir á jarðhæð
hússins á lóðinni nr. 19 við Laufásveg.

Nei.


Umsókn nr. 10297 (01.01.174.309)
Laugavegur 98,
gera bílastæði á baklóð
Spurt er hvort leyft verði að gera bílastæði á baklóð nr. 98 við
Laugaveg.

Frestað.
Vísað til umsagnar gatnamálastjóra.


Umsókn nr. 10314 (01.01.192.001)
Skólavörðuhæð - iðnskólinn.,
framlengja loftræstistokk
Spurt er hvort leyft verði að framlengja loftræstistokk frá
lakkklefa upp fyrir þakbrún á suðurhlið hússins á
Skólavörðuholti.

Nei.
Við staðsetningu, fá betri lausn.


Umsókn nr. 10305 (01.01.132.001)
Vesturgata 20,
innrétta 2 íbúðir á 1. hæð hús
Spurt er hvort leyft verði að innrétta tvær íbúðir á 1. hæð
hússins á lóðinni nr. 20 við Vesturgötu.

Nei.


Umsókn nr. 10339 (01.04.603.402)
Álfabakki 14,
Innrétta sjúkraþjálfun
Spurt er hvort leyft verði að innrétta húsnæði fyrir
sjúkraþjálfun á 1. hæð í húsinu á lóðinni nr. 14 við Álfabakka.

Frestað.
Vísað til brunamálastofnunar.


Umsókn nr. 10388 (01.01.264.105)
Ármúli 21,
stækka versl.hús
Spurt er hvort leyft yrði að byggja inndregna skrifstofuhæð
ofan á framhúsið á lóðinni nr. 21 við Ármúla.

Nei.


Umsókn nr. 10325 (01.01.545.211)
Ægisíða 64,
búa til séríbúð fyrir ris
Spurt er hvort leyft verði að byggja við stigahús og innrétta
íbúð á 3. hæð hússins á lóðinni nr. 64 við Ægisíðu

Nei.