Akraland 1 - 3
Verknúmer : BN010402
3386. fundur 1995
Akraland 1 - 3, Lagt fram bréf
Lagt fram bréf umhverfisráðuneytisins dags. 10.10.95 vegna kæru
Níels Christian Svane um synjun byggingarnefndar þann 26.05.1995
á leyfi fyrir sólstofu á 1. hæð hússins nr. 3 við Akraland.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun byggingarnefndar frá 26.05.95
um að synja um leyfi til að byggja sólstofu
úr gleri og stáli á 1. hæð við Akraland
skal óbreytt standa.