Aðalstræti 2 - vesturgata 1,
Aðalstræti 8,
Blönduhlíð 22,
Borgartún 17,
Borgartún 3,
Breiðagerði 33,
Byggðarendi 9,
Bíldshöfði 16,
Bíldshöfði 18,
Efstasund 69,
Efstasund 99,
Fellsmúli 24 - 26,
Gufunes - sorpa,
Hafnarstræti 5,
Hlemmur,
Hraunberg 5,
Hraunteigur 18,
Hrísateigur 41,
Hæðargarður 29,
Klapparstígur 1 - 7a,
Lambhagi/mæri,
Langholtsvegur 79,
Laugavegur 44,
Laugavegur 49,
Lágmúli 7,
Miklabraut 68,
Mosarimi 33-41,
Nesvegur 61,
Pósthússtræti 2,
Rauðagerði 30,
Skúlagata 40 40a og 40b,
Smárarimi 60,
Stakkhamrar 20,
Stangarhylur 2,
Suðurhólar 14 - 18,
Síðumúli 19,
Síðumúli 34,
Torfufell 2 - 22,
Vesturgata 46a,
Vesturás 10 - 16,
Álfheimar 74,
Ármúli 18,
Ármúli 30,
Ármúli 5,
Örfirisey skeljungur,
1. gata 15 v/rauðavatn,
2. gata 37 v/rauðavatn,
2. gata 6 v/rauðavatn,
Austurstræti 20,
Bauganes 25,
Bræðraborgarstígur 34,
Byggingarreglugerð gr. 6.1.2.,
Byggingastjóri.,
Efstaleiti 10 - 14,
Engjavegur - tölusetningar.,
Gautavík - númerabreyting.,
Hlíðargerði 16,
Holtavegur - tölusetningar,
Holtavegur - tölusetningar,
Jafnasel - úrskurður.,
Kirkjuteigur 24,
Laufásvegur 17 - 19,
Laufásvegur 31,
Leiðréttingar.,
Ljósavík - númerabreyting.,
Meistari/ húsasmíðameistari.,
Meistari/húsasmíðameistari,
Meistari/húsasmíðameistari.,
Meistari/pípulagningameistari.,
Múlavegur - nafn og tölusetn.,
Skeggjagata 14,
Skólavörðustígur 18,
Skúlagata - tölusetning.,
Vallengi 2-10. afmörkun lóða.,
Þverás 51 - 57,
Þvottalaugavegur - tölusetning,
Bjarnarstígur 9,
Blikahólar 2-12,
Dofraborgir 15,
Drafnarfell 2 - 18,
Eirhöfði 12,
Fannafold 188,
Flókagata 1,
Flókagata 51,
Hólmgarður 58,
Jakasel 27,
Kirkjugarðsstígur 8,
Ljósaland 1 - 25 og 2 - 24,
Mávahlíð 19,
Nökkvavogur 19,
Sigtún 42,
Skipulagssv.austan víkurvegar.,
Starengi 2,
Síðumúli 16 - 18,
Síðumúli 32,
Þorragata 3 - 9,
BYGGINGARNEFND
3371. fundur 1995
Árið 1995, fimmtudaginn 9. mars, kl. 11 fyrir hádegi, hél byggingarnefnd Reykjavíkur 3371 fund sinn. Fundurinn var haldin í fundarsalnum 4. hæð Borgartúni 3. Þessir sátu fundinn: Gunna L. Gissurarson, Steinunn V. Óskarsdóttir, Helgi Hjálmarsson Hilmar Guðlaugsson og Halldór Guðmundsson. Auk þeirra sát fundinn: Ágúst Jónsson, Ólafur Ó. Axelsson, Ívar Eysteinsson Magnús Sædal Svavarsson, Hrólfur Jónsson, Þormóður Sveinsson o Elísabet J. Þórisdóttir. Fundarritari var Bjarni Þór Jónsson.
Þetta gerðist:
Umsókn nr. 8407 (01.01.136.101)
Aðalstræti 2 - vesturgata 1, Br. á notkun og innviðum.
Sótt er um leyfi til að innrétta og breyta notkun húsanna nr. 2
við Aðalstræti, 1 við Vesturgötu og tengibyggingu milli þeirra á
lóðinni nr. 2 við Aðalstræti.
Gjald kr. 2.180.oo.
Lagt fram bréf húsafriðunarnefndar ríkisins, dags. 09.03.95.
Frestað.
Leyft að byrja.
Umsókn nr. 8352 (01.01.136.503)
Aðalstræti 8, Br. á innrétt. í kjallara.
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingu í kjallara hússins á
lóðinni nr. 8 við Aðalstræti.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8396 (01.01.713.106)
Blönduhlíð 22, Byggja kvisti og breyta þakef.
Sótt er um leyfi til að byggja kvist, endurnýja þakglugga og
þakefni í húsinu á lóðinni nr. 22 við Blönduhlíð.
Stærð: ris verður 32 ferm., stækkar um 3 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo
+ 65.oo. Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8463 (01.01.217.701)
Borgartún 17, Reyndarteikningar.
Lagðar inn teikningar með breytingum á innréttingu og leiðrétta
stærðir.
Stærð: kjallari 502,3 ferm., 1. hæð 504,1 ferm., 2. hæð 504,1
ferm., 3. hæð 333,1 ferm., 5868 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo +
127.922.oo.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8439 (01.01.216.202)
Borgartún 3, Breytingar.
Sótt er um leyfi fyrir innréttingabreytingu á 1. hæð í
vesturenda. Jafnframt eru lagðar fram reyndarteikningar af
húsinu nr. 3 við Borgartún.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8391 (01.01.814.214)
Breiðagerði 33, Pallur og handrið
Sótt er um leyfi til að byggja pall og handrið úr timbri og gera
hurð á húsið á lóðinni nr. 33 við Breiðagerði.
Gjald kr. 2.180.oo.
Frestað.
Lagfæra teikningar.
Umsókn nr. 8283 (01.01.826.005)
Byggðarendi 9, innrétta íbúð í kjallara
Sótt er um leyfi til að innrétta íbúð í kjallara hússins á
lóðinni nr. 9 við Byggðarenda.
Gjald kr. 2.180.oo.
Frestað.
Vísað til skipulagsnefndar.
Umsókn nr. 8461 (01.04.065.001)
Bíldshöfði 16, Breyta innréttingu v/eldvarna.
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingum vegna eldvarna í
húsinu á lóðinni nr. 16 við Bíldshöfða.
Gjald kr. 2.180.oo.
Meðfylgjandi er bréf Eldvarnaeftirlits Reykjavíkur, dags.
17.03.1993.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8469 (01.04.065.002)
Bíldshöfði 18, bæta við innkeyrsluhurðum
Sótt er um leyfi til að bæta við 3 innkeyrsludyrum á norðurhlið
bakhúss á lóðinni nr. 18 við Bíldshöfða.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8468 (01.01.410.113)
Efstasund 69, Bílgeymsla og br. innra skip.
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi húss og gera tvær
íbúðir, gera þakglugga og byggja bílskúr úr steinsteypu á
lóðinni nr. 69 við Efstasund.
Stærð: bílgeymsla 36,0 ferm., 98 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo +
3.074.oo.
Frestað.
Umsókn ekki rétt. Skoða lýsingabók. Lagfæra teikningar.
Umsókn nr. 8401 (01.01.412.116)
Efstasund 99, Breyta íbúð.
Sótt er um leyfi til að breyta verslunarhæð í íbúð í húsinu á
lóðinni nr. 99 við Efstasund.
Gjald kr. 2.180.oo.
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknareyðublaði.
Umsókn nr. 8412 (01.01.297.101)
Fellsmúli 24 - 26, Líkamsræktarstöð.
Sótt er um leyfi til að innrétta líkamsræktarstöð í húsinu á
lóðinni nr. 24 - 26 við Fellsmúla.
Gjald kr. 2.180.oo.
Frestað.
Vísað til athugasemda byggingarfulltrúa.
Umsókn nr. 8460 (01.02.226.001)
Gufunes - sorpa, Verkstjóraaðstaða og geymslurý
Sótt er um leyfi til að byggja verkstjórnarmiðstöð og
geymslurými við innkeyrslu við Sorpu í Gufunesi.
Stærð: 1. hæð 53,6 ferm., 2. hæð 53,6 ferm., 295 rúmm. Gjald kr.
2.180.oo + 6.431.oo.
Ennfremur lagt fram bréf frá Ögmundi Einarssyni, framkvæmdastj.
dags. 20.02.95.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8467 (01.01.140.101)
Hafnarstræti 5, Breyting á innrétt. kjallara.
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingu í kjallara hússins
(brunatæknileg atriði) á lóðinni nr. 5 við Hafnarstræti.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8223 (11.11.111.11)
Hlemmur, innr,ljósm,og þjónustusv,hraðb
Sótt er um leyfi til að innrétta ljósmyndastofu og þjónustusvæði
fyrir hraðbanka, ljósritun o.fl. í húsinu.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8298 (01.04.670.802)
Hraunberg 5, Stækkun.
Sótt er um leyfi til að opna upp í ris og setja glugga á gafla
vinnuskála/bílgeymslu á lóðinni nr. 5 við Hraunberg.
Gjald kr. 2.180.oo.
Frestað.
Gera grein fyrir björgunaropi og notkun.
Umsókn nr. 8301 (01.01.361.102)
Hraunteigur 18, Klæðning.
Sótt er um leyfi til að klæða hús með marmoroc klæðningu og
breyta svölum á 2. hæð hússins á lóðinni nr. 18 við Hraunteig.
Gjald kr. 2.180.oo.
Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda, kostnaðaráætlun,
ástandslýsing, umsögn Rb.
Synjað.
Byggingarnefnd leggst ekki gegn viðhaldi hússins en beinir þeim
eindregnu tilmælum til umsækjanda að leitað verði leiða sem
falla að byggingarlagi hússins og taki mið af heildaryfirbragði
götunnar.
Hilmar Guðlaugsson kom á fundinn kl. 11.35.
Umsókn nr. 8459 (01.01.346.012)
Hrísateigur 41, Áður gerð íbúð í kjallara.
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðri íbúð í kjallara hússins á
lóðinni nr. 41 við Hrísateig. Skoðunarskýrslur fylgja.
Gjald kr. 2.180.oo.
Synjað.
Samræmist ekki reglugerð.
Umsókn nr. 8466 (01.01.817.701)
Hæðargarður 29, bílskúralengja
Sótt er um leyfi til að byggja þrjá bílskúra úr steinsteypu á
lóðinni nr. 29 við Hæðargarð.
Stærð: bílgeymsla 96,8 ferm., 323 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo +
7.041.oo.
Jafnframt lagt fram bréf umsækjanda dags. 5. mars 1995.
Samþykkt.
Fullgera skal bílskúra að utan eins og um sjálfstæða einingu
væri að ræða, þrátt fyrir að síðar sé gert ráð fyrir fjölgun
bílskúra um fimm. Þinglýsa skal kvöð á lóðina um að bílskúrar
geti aldrei orðið fleiri en átta. Frágangur á lóðamörkum verði
gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Umsókn nr. 8413 (01.01.152.201)
Klapparstígur 1 - 7a, Fjölbýlishús.
Sótt er um leyfi til að byggja fjölbýlishús úr steinsteypu og
timbri á lóðinni nr. 1 - 7 við Klapparstíg og 10 við Skúlagötu.
Stærð: kjallari 242 ferm., 1. hæð 305 ferm., 2. - 5. hæð hver 308
ferm., 6. hæð 207 ferm., 5401 rúmm.
Eldri uppdrættir óskast jafnframt felldir úr gildi.
Stækkun húss frá fyrri samþykkt er 14 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 117.742.oo.
Frestað.
Vísað til athugasemda byggingarfulltrúa.
Umsókn nr. 8354 (01.02.235.460)
Lambhagi/mæri, Lambhagi/Mæri
Sótt er um leyfi til að byggja opið skýli og loka af öðru (merkt
á teikningu) Mæri við Lambhaga.
Stærð: 1. hæð 128 ferm., 422 rúmm. Opið skýli 531 ferm. Gjald kr.
2.180.oo + 9.200.oo.
Frestað.
Vísað til borgarskipulags.
Umsókn nr. 8393 (01.01.410.016)
Langholtsvegur 79, Áður gerð íbúð í risi.
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðri íbúð í húsinu á lóðinni nr.
79 við Langholtsveg.
Gjald kr. 2.180.oo.
Skoðunarskýrslur, dags. 27.01.95 og 06.02.95 fylgja erindinu.
Samþykkt.
Sem einstaklingsíbúð.
Umsókn nr. 8462 (01.01.173.101)
Laugavegur 44, Breyting.
Sótt er um leyfi til að breyta gluggum á vesturhlið og endurgera
íbúðir á 1. og 2. hæð hússins á lóðinni nr. 44 við Laugaveg.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8337 (01.01.173.026)
Laugavegur 49, Br. á innrétt. og brunastigi.
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingu og gera brunastiga í
húsinu á lóðinni nr. 49 við Laugaveg.
Gjald kr. 2.180.oo.
Meðfylgjandi er yfirlýsing meðeigenda, dags. 17.11.94.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8371 (01.01.261.302)
Lágmúli 7, Eldvarnir.
Sótt er um leyfi fyrir breytingum vegna eldvarna í húsinu á
lóðinni nr. 7 við Lágmúla.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8411 (01.01.710.001)
Miklabraut 68, Breyta í íbúð.
Sótt er um leyfi fyrir íbúð í húsinu á lóðinni nr. 68 við
Miklubraut.
Gjald kr. 2.180.oo.
Frestað.
Fá betri upplýsingar.
Umsókn nr. 8387 (01.02.543.404)
Mosarimi 33-41, Keðjuhús ásamt bifreiðageymslu
Sótt er um leyfi til að byggja keðjuhús ásamt bifreiðageymslu úr
steinsteypu og timbri á lóðinni nr. 33 - 41 við Mosarima.
Stærð: nr. 33, 1. hæð 128,3 ferm., nr. 35 - 41, 1. hæð 132,2
ferm., hver samtals 2282 rúmm. Bílgeymslur 414 rúmm.
Gjald kr. 5 x 2.180.oo + 58.773.oo.
Jafnframt er samþykkt byggingarnefndar frá 29.09.94 felld úr
gildi.
Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.
Umsókn nr. 8414 (01.01.531.004)
Nesvegur 61, Breyting.
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktum teikningum,
þ.e.a.s. bæta við hurð á norðurhlið á lóðinni nr. 61 við Nesveg.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.
Umsókn nr. 8482 (01.01.140.104)
Pósthússtræti 2, Skábraut og þrep .
Sótt er um leyfi fyrir skábraut og breyttri aðkomu m.t.t.
hreyfihamlaðra í húsinu á lóðinni nr. 2 við Pósthússtræti.
Gjald kr. 2.140.oo.
Ennfremur lögð fram umsögn gatnamálastjóra, dags. 3. mars 1995.
Samþykkt.
Með vísan til bréfs gatnamálastjóra.
Umsókn nr. 8415 (01.01.823.003)
Rauðagerði 30, Parhús
Sótt er um leyfi til að byggja parhús úr steinsteypu á lóðinni
nr. 30 við Rauðagerði.
Stærð: hvort hús: 1. hæð 98,1 ferm., 2. hæð 123,3 ferm., 1243
rúmm., samtals. Bílgeymsla 58,9 ferm., 160 rúmm.
Gjald kr. 2 x 2.180.oo + 30.585.oo.
Jafnframt er sótt um leyfi til að númera húsin nr. 30 og 30A við
Rauðagerði.
Synjað.
Samræmist ekki skipulagsskilmálum.
Fer út fyrir byggingarreit.
Umsókn nr. 8231 (01.01.154.401)
Skúlagata 40 40a og 40b, Heilsurækt+veisluþjónusta
Sótt er um leyfi fyrir áður innréttaðri heilsurækt íbúa í húsinu
nr. 40 við Skúlagötu og veisluþjónustu í húsinu nr. 40A við
Skúlagötu.
Gjald kr. 2.180.oo.
Meðfylgjandi er bréf frá Guðmundi Gunnlaugssyni, dags. 01.02.95
og bréf Gunnars Þorsteinssonar fh., húsfélagsins, dags. mars
1995.
Frestað.
Vísað til athugunnar skrifstofustjóra byggingarfulltrúa.
Umsókn nr. 8417 (01.02.526.307)
Smárarimi 60, Br. á útliti og klæðning.
Sótt er um leyfi til að breyta gluggadeilingu og klæða húsið að
utan með timburklæðningu á lóðinni nr. 60 við Smárarima.
Gjald kr. 2.180.oo.
Synjað.
Umsókn nr. 8388 (01.02.293.504)
Stakkhamrar 20, Geymsluherb. og gluggi.
Sótt er um leyfi til að stækka kjallara og bæta við glugga á
norðausturhlið hússins á lóðinni nr. 20 við Stakkhamra.
Stærð: kjallari 12,5 ferm., 34 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 740.oo.
Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.
Umsókn nr. 8358 (01.04.232.401)
Stangarhylur 2, Stækkun og br. á innréttingu.
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingum (dýraspítala),
stækka húsið um 16,5 ferm., (dýrageymsla) breyta bílastæðum og
gluggum á norðurhlið hússins á lóðinni nr. 2 við Stangarholt.
Stækkun: 15,6 ferm., 40 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 8.720.oo.
Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.
Umsókn nr. 8315 (01.04.670.0--)
Suðurhólar 14 - 18, klæðning
Sótt er um leyfi til að klæða fjölbýlishúsið með lituðu stáli á
lóðinni nr. 18 við Suðurhóla.
Gjald kr. 2.180.oo.
Ennfremur lögð fram ástandsskýrsla frá Ingólfi Antonssyni,
deildarstj. hjá Húsnæðisnefnd Reykjavíkur, dags. 22.02.95.
Frestað.
Fá samþykki meðlóðarhafa ásamt skuldbindingu.
Umsókn nr. 8402 (01.01.293.206)
Síðumúli 19, Aðstaða f. morgunverð.
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingu á 1. hæð (býtibúr og
borðsal) í tengslum við gistiheimili á 2. og 3. hæð. Gjald kr.
2.180.oo.
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknareyðublaði.
Umsókn nr. 8416 (01.01.295.201)
Síðumúli 34, Breytingar.
Sótt er um leyfi til að gera afgreiðsluhurð á austurvegg og
reisa eldvarnarvegg. Ennfremur lagt fram bréf dags. 01.03.95.
Gjald kr. 2.180.oo.
Frestað.
Lagfæra teikningar.
Umsókn nr. 8384 (01.04.686.601)
Torfufell 2 - 22, Klæðning f. Torfufell 2-14.
Sótt er um leyfi til að láta klæða hluta húss með steniklæðningu
á lóðinni nr. 2 - 14 við Torfufell.
Gjald kr. 2.180.oo.
Meðfylgjandi er samþykki húsfélagsins, ástandsskýrsla R.b.
Ljósrit úr fundargerðarbók húsfélagsins og bréf Hjálmars
Loftssonar til byggingarnefndar dags. 05.03.95.
Synjað.
Umsókn nr. 8464 (01.01.131.011)
Vesturgata 46a, Áður gerðar svalir á viðb.
Sótt er um leyfi fyrir svölum á útbyggingu, jafnframt er gerð
grein fyrir innra fyrirkomulagi húss, eins og það er í dag á
lóðinni nr. 46A við Vesturgötu.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8418 (01.04.385.704)
Vesturás 10 - 16, Breyta innra fyrirkomulagi
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi í húsinu á
lóðinni nr. 10 við Vesturás.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.
Umsókn nr. 8383 (01.01.434.301)
Álfheimar 74, Brunavarnauppdr.
Lagðir fram brunavarnauppdrættir á húsinu nr. 74 við Álfheima.
Gjald kr. 2.180.oo.
Frestað.
Laga afstöðumynd.
Umsókn nr. 8345 (01.01.292.003)
Ármúli 18, Reyndarteikningar.
Sótt er um leyfi fyrir innréttingabreytingu á 1. hæð og 2. hæð.
(Sýnir núverandi notkun hússins) á lóðinni nr. 18 við Ármúla.
Gjald kr. 2.180.oo.
Frestað.
Vantar ræstiklefa á 1. hæð.
Umsókn nr. 8381 (01.01.292.104)
Ármúli 30, Hárgreiðslustofa
Sótt er um leyfi til að innrétta hárgreiðslustofu í húsinu á
lóðinni nr. 30 við Ármúla.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykkt.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.
Umsókn nr. 8362 (01.01.262.002)
Ármúli 5, Br. í félags og endurhæfingars
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingum fyrir félags og
hópþjálfunarstöð. Húsnæðið er í dag skrifstofu - oglagerhúsnæði
á lóðinni nr. 5 við Ármúla.
Gjald kr. 2.180.oo.
Frestað.
Sjá athugasemdir á umsóknareyðublaði.
Umsókn nr. 8450 (01.01.110.-98)
Örfirisey skeljungur, Úrgangasolíugeymir.
Sótt er um leyfi til að byggja olíugeymi fyrir úrgangsolíu úr
stáli við Örfirisey.
Stærð: 1. hæð 36,3 ferm., 280 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo +
6.104.oo.
Ennfremur lögð fram umsögn hafnarstjórnar Reykjavíkur, dags.
22.02.95 og umsögn heilbrigðisnefndar, dags. 07.03.95.
Samþykkt.
Með vísan til bréfs heilbrigðisnefndar, dags. 7. mars 1995.
Umsókn nr. 8488 (01.04.411.-58)
1. gata 15 v/rauðavatn, Niðurrif.
Sótt er um leyfi til að rífa húsið nr. 15 við 1 götu
v/Rauðavatn. Íbúðarhúsið er um 53 ferm., og 161 rúmm., byggt árið
1957 úr timbri með járnklæddu þaki.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8490 (01.04.413.-69)
2. gata 37 v/rauðavatn, Niðurrif.
Skrifstofustjóri borgarverkfræðings, sækir um leyfi
byggingarnefndar til þess að rífa geymsluskúr úr timbri við 2.
götu nr. 37 v/Rauðavatn. Skúrinn sem er talinn byggður á árinu
1960 er orðinn lélegur m.a. er gólf hans og ein hlið nánast ónýt.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8489 (01.04.413.-78)
2. gata 6 v/rauðavatn, Niðurrif.
Sótt er um leyfi byggingarnefndar til að rífa húsið nr. 6 við 2.
götu v/Rauðavatn. Íbúðarhúsið er um 80 ferm., og 229 rúmm, byggt
árið 1920 úr timbri, bárujárnsklætt emð járnklæddu þaki.
Húsið er ónýtt eftir eldsvoða.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8440 (01.01.140.503)
Austurstræti 20, Niðurrif.
Sótt er um niðurrif á skúr byggðum 1898, vegna gönguleiðar
Austurstrætis/Skólabrú.
Með málinu fylgir umsögn Árbæjarsafns, dags. 28.02.1995, bréf
Húsafriðunarnefndar ríkisins, dags.22.02.95 og samþykkt
Umhverfismálaráðs, dags. 1. mars 1995.
Lagt fram bréf KFUM, dags. 07.03.95.
Samþykkt í samræmi við umsögn Árbæjarsafnsm dags, 28.02.1995.
Framkvæmd á niðurtekningu hússins og flutningi efnis skal vera í
samráði við Árbæjarsafn.
Vegna varðveislu á sökkulhleðslum skal og hafa samráð við
húsadeild Árbæjarsafns um frágang. Af sömu ástæðum skal
umsækjandi gera nýja tillögu um staðsetningu og frágang
sorpgeymslu og leggja hana fyrir byggingarnefnd, með umsókn um
frágang útveggja.
Umsókn nr. 8453 (01.01.673.007)
Bauganes 25, Lóðamarkabreyting.
Óskað er eftir samþykki byggingarnefndar til að breyta mörkum
lóðarinnar Bauganes 25 og skipta henni eins og sýnt er á
meðsendum uppdrætti mælingadeildar Reykjavíkurborgar, dags.
06.03.95.
Lóðin Bauganes 25 er talin vera 892,5 ferm., en reynist vera 892
ferm. Með 58 ferm., stækkun frá Bauganesi 23, sem er eign
borgarsjóðs, verður hún 950 ferm. Lagt er til að lóðinni, þannig
stækkaðri sé skipt í tvær lóðir, og verður framlóðin 332 ferm.,
en baklóðin 618 ferm.
Frestað.
Vísað til skrifstofustjóra borgarverkfræðings.
Umsókn nr. 8477 (01.01.134.612)
Bræðraborgarstígur 34, Bréf.
Lagt fram bréf dags. 18. janúar 1995 frá embætti
byggingarfulltrúa til hönnuða og meistara að breytingum
Bræðraborgarstígs 34.
Ennfremur svör viðkomandi aðila, dags. 27.01.95 og 30.01.95.
Vísað til byggingarfulltrúa til afgreiðslu.
Umsókn nr. 8441
Byggingarreglugerð gr. 6.1.2., Byggingarreglugerð gr. 6.1.2.
Byggingarfulltrúi leggur til að samþykkt á eldhúsi sbr. 2. mgr.
sé bundið skilyrði um loftræstingu uppúr þaki með viftu.
Frestað.
Umsókn nr. 8447
Byggingastjóri., Byggingastjóri.
Sótt er um leyfi til að Sigurður Guðmundsson, Heiðarási 23, verði
byggingastjóri við byggingu Húsaskóla við Dalhús 4. áfanga.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8456 (01.01.746.801)
Efstaleiti 10 - 14, Úrskurður ráðuneytis
Lagður fram úrskurður Umhverfisráðuneytisins, dags. 01.03.95
vegna kæru Sigurðar Georgssonar hrl. dags. 09.12.94.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun byggingarnefndar Reykjavíkur frá 10. nóvember 1994 um að
samþykkja umsókn frá Húsfélaginu Breiðabliks og Páli Ásgeiri
Tryggvasyni um leyfi til að setja upp veggi og hurðir við
setustofu í húsinu nr. 12 á lóðinni nr. 10 - 14 við Efstaleiti er
úr gildi felld.
Samþykkt að gefa Húsfélaginu Breiðablik og Páli Ásgeiri
Tryggvasyni 30 daga frest til að koma veggjum og hurðum í fyrra
horf.
Umsókn nr. 8443
Engjavegur - tölusetningar., Engjavegur - Tölusetningar.
Byggingarfulltrúi leggur til að hús við Engjaveg verði þannig
tölusett:
Hús ÍSÍ verði nr. 6
Laugardalshöll nr. 8
Reykjaborg (Þvottalaugabl. 7) 14
Gervigrasvöllur nr. 7
-"- Stúka nr. A
-"- Búningshús nr. B
-"- Náðhús nr. C
-"- Náðhús nr. D
Húsdýragarður nr. 13
Hreindýrahús nr. A
Minnkahús nr. B
Miðasala við torg nr. C
Hafrafell nr. D
Smádýrahús nr. E
Selahús nr. F
Svínahús nr. G
Hlaða og áhöld nr. H
Hest-fjárhús nr. I
Bræðrapartur nr. J
Greiðasala nr. K
Samþykkt.
Umsókn nr. 8429
Gautavík - númerabreyting., Gautavík - Númerabreyting.
Vegna skilgreininga á lóðamörkum er nauðsynlegt að gera
eftirfarandi breytingar.
Gautavík 30 verður 27.
- " - 27 - 33 verður 29 - 35.
- " - 35 - 39 verður 37 - 41.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8372 (01.01.815.402)
Hlíðargerði 16, Trjáfelling.
Sótt er um leyfi til að fella ösp sem stendur u.þ.b. 2,5 m frá
húsinu að austanverðu.
Umsögn garðyrkjustjóra, dags. 01.03.95 fylgir erindinu.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8445
Holtavegur - tölusetningar, Holtavegur - Tölusetningar
Byggingarfulltrúi leggur til að lóð Fjölskyldugarðs verði
tölusettu við Holtaveg nr. 34 og hús í garðinum skráð með
bókstöfum þannig:
Starfsmannahús A
Geymsluhús B
Fjarstýrðir bílar C
- " - D
Hjólabraut E
Torfærubílar F
Umferðarfræðsla G
Útsýnisturn H
Salerni I
Miðasala J
- " - K
Grill L
Fjarstýrðir bátar M
- " - N
Samþykkt.
Umsókn nr. 8446
Holtavegur - tölusetningar, Holtavegur - Tölusetningar
Lóð Ræktunarstöðvar og Grasagarðs verði tölusett við Holtaveg nr.
32 og hús á lóðinni skráð með bókstöfum þannig:
Matshluti
Laugatunga 01.01 A
Bækist. í grasag. 06.01 B
Lystihús 11.01 C
Gróðurh. í grasag. 11.01 D
Gróðurskáli 12.01 E
Moldarskáli 08.01 F
Gróðurhús II 09.01 G
Gróðurhús I 10.01 H
Ræktunarstöð 05.01 I
Skemma 07.01 J
Geymsluhús 03.01 K
Íbúðarhús 02.01 L
Bækistöð 11.01 M
Lóð Bæjarsíma Reykjavíkur fyrir tækjahús verði Holtavegur 21.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8457
Jafnasel - úrskurður., Jafnasel - Úrskurður.
Lagður fram úrskurður Umhverfsiráðuneytisins vegna kæru
Jóhannesar Sigurðssonar, Jakaseli 9, dags. 12.10.1994.
Úrskurðarorð:
Kæran er ekki tekin til greina.
Umsókn nr. 8455 (01.01.363.001)
Kirkjuteigur 24, Lóðabreyting.
Guðmundur Pálmi Kristinsson, forstöðum. byggingadeildar, óskar
eftir samþykki byggingarnefndarinnar til að skipta lóð
Laugarnesskóla við Reykjaveg eins og sýnt er á meðsendum
uppdrætti mælingadeildarinnar, dags. 07.03.95.
Úr lóðinni sem er 27611 ferm., að stærð, er skipt lóð fyrir
leikskóla við Gullteig, 4739 ferm., að stærð. Verður þá lóð
Laugarnesskóla eftir skiptinguna 22872 ferm., að stærð.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8448 (01.01.183.508)
Laufásvegur 17 - 19, Lóðarskipting.
Matthías Einarsson fh., eigenda óskar eftir samþykki
byggingarnefndar til að skipta lóðinni Laufásvegur 17-19 (ójöfn
nr.) eins og sýnt er á meðsendum uppdrætti mælingadeildar
Reykjavíkurborgar, dags. 03.03.95. Við skiptinguna verður
Laufásvegur 17, 428 ferm., að stærð, en Laufásvegur 19 verður 795
ferm.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8436 (01.01.185.212)
Laufásvegur 31, Bílastæðagjald.
Sótt er um leyfi byggingarnefndar til að nýta 3. grein "Reglna um
bílastæðagjald" við útreikninga á bílastæðaþörf að Laufásvegi 31.
Undanþágan nái til þess hluta hússins, sem eru geymslur í
niðurgröfnum kjallara með aðgengi úr bílastæðakjallara, stærð
þess rýmis er 48 ferm.
Vísað til borgarráðs.
Umsókn nr. 8449
Leiðréttingar., Leiðréttingar.
Lagðar fram leiðréttingar frá fundi byggingarnefndar 10.11.1994.
Árbæjarsafn, var bókað 528,6 ferm., 2305 rúmm., en átti að vera
510,5 ferm., 2227 rúmm.
Dvergaborgir 5, 3028 rúmm., en átti að vera 2970 rúmm.
Dvergaborgir 8, 3019 rúmm., en átti að vera 2970 rúmm.
Laufrimi 81 - 85, 384 rúmm., x 3 en átti að vera 414 rúmm., x 3.
Mosarimi 6 - 16, 7190 rúmm., 7996 rúmm.
Lagðar fram leiðréttingar frá fundi byggingarnefndar 24.11.1994.
Héðinsgata 10, 73 rúmm., en átti að vera 130 rúmm.
Lyngrimi 22, 154,4 ferm., 450 rúmm., en átti að vera 162,4 ferm.,
498 rúmm.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8430
Ljósavík - númerabreyting., Ljósavík - Númerabreyting.
Vegna skilgreininga á lóðamörkum er nauðsynlegt að gera
eftirfarandi breytingar.
Ljósavík 32 verður 52.
- " - 34 - 38 verður 32 - 36.
- " - 40 - 46 verður 38 - 44.
- " - 35 verður 54.
- " - 29 - 33 verður 56 - 60.
- " - 37 verður 27.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8458
Meistari/ húsasmíðameistari., Meistari/ húsasmíðameistari.
Ofanritaður sækir um leyfi byggingarnefndar til að mega standa
fyrir byggingum í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur sem
húsasmíðameistari.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8473
Meistari/húsasmíðameistari, Meistari/húsasmíðameistari
Ofanritaður sækir um leyfi byggingarnefndar til að mega standa
fyrir byggingum í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur sem
húsasmíðameistari.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8452
Meistari/húsasmíðameistari., Meistari/húsasmíðameistari.
Ofanritaður sækir um leyfi byggingarnefndar til að mega standa
fyrir byggingum í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur sem
húsasmíðameistari.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8484
Meistari/pípulagningameistari., Meistari/pípulagningameistari.
Ofanritaður sækir um leyfi byggingarnefndar til að mega standa
fyrir byggingum í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur sem
pípulagningameistari.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8442
Múlavegur - nafn og tölusetn., Múlavegur - Nafn og tölusetn.
Byggingarfulltrúi leggur til að sá hluti Múlavegar sem enn er
eftir milli Engjavegar og torgs á Þvottalaugavegi haldi nafni
sínu.
Lóð skautasvells verði nr. 1 og lóð spennistöðvar RR verði nr. 3.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8451 (01.01.243.703)
Skeggjagata 14, Umhvefisráðun.
Lagt fram bréf frá Umhverfisráðuneytinu, dags. 24.02.95 þar sem
kærð er ákvörðun byggingarnefndar vegna ofangreinds húss þann
13.10.94.
Vísað til umsagnar skrifstofustjóra byggingarfulltrúa.
Umsókn nr. 8485 (01.01.181.006)
Skólavörðustígur 18, Bréf byggingarfulltrúi.
Lagt fram minnisblað byggingarfulltrúa.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8438
Skúlagata - tölusetning., Skúlagata - Tölusetning.
Byggingarfulltrúi leggur til að:
Skólpdælustöð gatnamálastjóra verði nr. 3 við Skúlagötu.
Bensín og þjónustustöð Olíuverslunar Íslands hf., verði nr. 7 við
Skúlagötu.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8432
Vallengi 2-10. afmörkun lóða., Vallengi 2-10. Afmörkun lóða.
Á fundi byggingarnefndar þann 20. febrúar s.l., var samþykkt
afmörkun tveggja nýrra lóða við Vallengi, en áður hafði verið
gert ráð fyrir einni lóð nr. 2 - 10.
Byggingarfulltrúi leggur til að nyðri lóðin verði nr. 2 og syðri
lóðin verði nr. 4 - 6.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8454 (01.04.724.602)
Þverás 51 - 57, Lóðarstækkun
Ofanritaður sækir um stækkun á lóð við Þverás 57 sem liggur við
húsið að vestan megin um 2 metra frá húsi.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8444
Þvottalaugavegur - tölusetning, Þvottalaugavegur - Tölusetning
Byggingarfulltrúi leggur til að spennistöð RR við aðkomutorg að
Fjölskyldugarði verði nr. 25 við Þvottalaugaveg.
Samþykkt.
Umsókn nr. 8472 (01.01.182.221)
Bjarnarstígur 9, Íbúð á jarðhæð.
Spurt er hvort íbúð á jarðhæð Bjarnastígs 9 fengist samþykkt.
Jákvætt.
Umsókn nr. 8422 (01.04.642.301)
Blikahólar 2-12, Fá samþykkta íbúð.
Spurt er hvort ósamþykkt íbúð á 1. hæð (leikherbergi) fengist
samþykkt.
Neikvætt.
Samræmist ekki reglugerð.
Umsókn nr. 8395 (01.02.344.404)
Dofraborgir 15, Íbúðarhús.
Spurt er hvort leyft verði að byggja einbýlishús úr steinsteypu
og timbri samkvæmt meðfylgjandi teikningu.
Jákvætt.
Athuga með útlit og hæðarafsetningu.
Umsókn nr. 8397 (01.04.683.007)
Drafnarfell 2 - 18, Gistiheimili.
Spurt er hvort leyft verði að innrétta gistiheimili í því rými
sem samþykkt er sem danssalur.
Nei.
Umsókn nr. 8419 (01.04.030.001)
Eirhöfði 12, Stækkun
Spurt er hvort leyft verði að stækka svínasláturhús um 40 ferm.
Jákvætt.
Umsókn nr. 8476 (01.02.852.309)
Fannafold 188, spurt um bílskúr
Spurt er hvort leyft verði að stækka bílskúr í Fannafold út
yfir kvöð sem liggur í gegnum lóðina.
Umsögn skipulagsnefndar, dags. 8. mars 1995.
Nei.
Umsókn nr. 8394 (01.01.243.605)
Flókagata 1, Glerskáli og tjaldbygging.
Spurt er hvort leyft verði að byggja glerskála og tjaldbyggingu
á lóðinni nr. 1 við Flókagötu.
Jákvætt.
Að uppfylltum ákvæðum laga og reglna er málið varða.
Umsókn nr. 8487 (01.01.245.316)
Flókagata 51, Reyndarteikningar.
Spurt er um afstöðu byggingarnefndar til reyndarteikninga.
Meðfylgjandi er bréf Þórarins Björnssonar til byggingarnefndar,
dags. 03.02.95.
Jákvætt.
Umsókn nr. 8470 (01.01.819.306)
Hólmgarður 58, Bílskúr.
Spurt er hvort leyft verði að byggja bílskúr samkvæmt
meðfylgjandi teikningum.
Nei.
Vantar upplýsingar.
Umsókn nr. 8355 (01.04.994.203)
Jakasel 27, Séríbúð á jarðhæð.
Spurt er hvort aukaíbúð verði samþykkt á jarðhæð hússins á
lóðinni nr. 27 við Jakasel. Ennfremur lagt fram bréf umsækjenda
dags. 21. febrúar 1995.
Frestað.
Vísað til byggingarfulltrúa.
Umsókn nr. 8478 (01.01.161.209)
Kirkjugarðsstígur 8, Viðbygging.
Spurt er hvort leyft verði að byggja við húsið
Kirkjugarðsstíg 8 samkvæmt meðfylgjandi uppdráttum.
Nei.
Umsókn nr. 8421 (01.01.870.601)
Ljósaland 1 - 25 og 2 - 24, Stækkun frá bílskúr.
Spurt er hvort leyft verði að stækka hús.
Nei.
Umsókn nr. 8471 (01.01.702.122)
Mávahlíð 19, Br. 2 kvistum í 1 og svalir.
Spurt er hvort leyft yrði að breyta tveim kvistum í einn
og gera svalir á húsið á lóðinni nr. 19 við Mávahlíð.
Gjald kr. 2.180.oo.
Kvistur: Jákvætt.
Svalir: Nei.
Umsókn nr. 8404 (01.01.441.314)
Nökkvavogur 19, Stækka bílskúr
Spurt er hvort leyft verði að stækka bílskúr á lóðinni nr. 19
við Nökkvavog.
Frestað.
Fá upplýsingar um starfsemi.
Umsókn nr. 8486
Sigtún 42, Sigtún 42
Spurt er hvort leyft verði að byggja skrifstofuhús samkvæmt
meðfylgjandi hugmyndum.
Jákvætt.
Kynna fyrir eigendum Sigtúns nr. 40 og 44, 37 - 51 og eigendum
Engjateigs 7 - 9, 11 og 17 - 19.
Umsókn nr. 8424
Skipulagssv.austan víkurvegar., Skipulagssv.austan Víkurvegar.
Spurt er hvort leyft yrði að byggja móttöku og meðferðarstöð
samkvæmt meðfylgjandi teikningum.
Halda skal fund með arkitektum embættisins.
Umsókn nr. 8389 (01.02.384.001)
Starengi 2, Verslun greiðasala bensínafgr.
Spurt er hvort leyft verði að byggja bensínstöð o.fl. við
Starengi 2.
Nei.
Umsókn nr. 8423 (01.01.293.103)
Síðumúli 16 - 18, Stækkun.
Spurt er hvort leyft verði að stækka anddyri hússins á lóðinni
nr. 16 - 18 við Síðumúla.
Jákvætt.
Umsókn nr. 8483 (01.01.295.202)
Síðumúli 32, Bílastæðabreyting.
Spurt er hvort leyft verði það fyrirkomulag bílastæða á lóðinni
sem sýnt er á meðfylgjandi drögum af uppdrætti.
Jákvætt.
Greiða skal fyrir 4 - 5 bílastæði í flokki IV.
Umsókn nr. 8433 (01.01.635.001)
Þorragata 3 - 9, Veggir milli bílskúra.
Sigurður Hallgrímsson, arkitekt fh., Skildinganes hf., spyr hvort
leyft verði að setja upp veggi milli bílskúra en breidd skúra
verður þá u.þ.b. 293 sm., sbr. bréf dags. 21.01.95 móttekið
24.02.95.
Nei.