Austurstræti 20

Verknúmer : BN008440

3371. fundur 1995
Austurstræti 20, Niðurrif.
Sótt er um niðurrif á skúr byggðum 1898, vegna gönguleiðar
Austurstrætis/Skólabrú.
Með málinu fylgir umsögn Árbæjarsafns, dags. 28.02.1995, bréf
Húsafriðunarnefndar ríkisins, dags.22.02.95 og samþykkt
Umhverfismálaráðs, dags. 1. mars 1995.
Lagt fram bréf KFUM, dags. 07.03.95.

Samþykkt í samræmi við umsögn Árbæjarsafnsm dags, 28.02.1995.
Framkvæmd á niðurtekningu hússins og flutningi efnis skal vera í
samráði við Árbæjarsafn.
Vegna varðveislu á sökkulhleðslum skal og hafa samráð við
húsadeild Árbæjarsafns um frágang. Af sömu ástæðum skal
umsækjandi gera nýja tillögu um staðsetningu og frágang
sorpgeymslu og leggja hana fyrir byggingarnefnd, með umsókn um
frágang útveggja.