Sorpa, Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, Bleikargróf 6, Kirkjusandur, Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, Vesturgata 6-10A, Grensásvegur suður, Tryggvagata 28, Elliðavogur, Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2015-2040, Hávaði frá framkvæmdum í íbúðabyggð og miðsvæðum., Umhverfis- og skipulagssvið, Laugavegur, Óðinstorg, Laugavegur 70 og 70B, Skipholt 70, Kleppsvegur, Kleppur, Umhverfis- og skipulagssvið, Umhverfis- og skipulagssvið, Umhverfis- og skipulagsráð, Betri Reykjavík, Betri Reykjavík, Betri Reykjavík, Betri Reykjavík, Betri Reykjavík, Arnargata 10, Arnargata 10, Skipasund 43, Frakkastígur - Skúlagata, Hádegismóar 1-3,

93. fundur 2015

Ár 2015, miðvikudaginn 21. janúar kl. 09:10, var haldinn 93. fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Vindheimum. Viðstaddir voru: Hjálmar Sveinsson, Magnea Guðmundsdóttir, Kristín Soffía Jónsdóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson, Áslaug María Friðriksdóttir og Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Björn Axelsson, Ágústa Sveinbjörnsdóttir, Ólafur Bjarnason, Björgvin Rafn Sigurðarson, Magnús Ingi Erlingsson og Marta Grettisdóttir Fundarritari var Örn Sigurðsson
Þetta gerðist:


Umsókn nr. 150016
1.
Sorpa, Kynning
Kynntar niðurstöður Capasentkönnunar á viðhorfum til úrgangsmála og endurvinnslu. Jafnframt kynntar niðurstöður árlegrar greiningar á samsetningu úrgangs frá heimilum í Reykjavík.

Sigurborg Ó Haraldsdóttir tekur sæti á fundinum kl. 9:15
Gísli Garðarsson tekur sæti á fundinum kl. 9:20.

Eygerður Margrétardóttir deildarstjóri og Guðmundur B. Friðriksson skrifstofustjóri taka sæti á fundinum undir þessum lið.
Bjarni Gnýr Hjarðar og Ragna Halldórsdóttir kynna..

Umsókn nr. 10070
2.
Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, fundargerð
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa Reykjavíkur dags. 16. janúar 2015.



Umsókn nr. 140692 (01.88.93)
650505-1580 Sýrfell ehf
Traðarlandi 2 108 Reykjavík
3.
Bleikargróf 6, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Sýrfells ehf dags. 16. desember 2014 um breytingu á deiliskipulagi vegna lóðarinnar nr. 6 við Bleikargróf. Í breytingunni felst fjölgun íbúða og breyting á byggingarreit samkvæmt uppdrætti Gests Ólafssonar arkitekts , dags. 15. desember 2014, br. 15.janúar 2015.

Guðlaug Erna Jónsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.

.


Umsókn nr. 150015 (01.34)
4.
Kirkjusandur, breyting á aðalskipulagi 2010-2030
Lögð fram drög umhverfis- og skipulagssviðs dags. 12. janúar 2015 að lýsingu varðandi breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 vegna reits 27, þróunarsvæði nr. 44, Kirkjusandur - miðsvæði M6b. Í breytingunni felst að endurskilgreina mögulegan fjölda íbúða á svæðinu.

Haraldur Sigurðsson deildarstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.

Lýsing samþykkt til kynningar og umsagnar með vísan til 1. mgr. 30. gr. sbr. 1. mgr. 36. gr skipulagslaga nr. 123/2010 Samþykkt að vísa lýsingunni til umsagnar Skipulagsstofnunar, Vegagerðarinnar, Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur og hverfisráðs Laugardals..
Lýsingin verður aðgengileg á vef umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkur.
Vísað til borgarráðs.




Umsókn nr. 45423
5.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, Fundargerð
Fylgiskjal með fundargerð þessari eru fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 811 frá 20. janúar 2015.





Umsókn nr. 140693 (01.13.21)
121271-4789 Hallgrímur Friðgeirsson
Kirkjustétt 22 113 Reykjavík
6.
Vesturgata 6-10A, (fsp) kvistir og innra skipulag
Lögð fram fyrirspurn Hallgríms Friðgeirssonar dags. 30. desember 2015 um byggingu kvista á bakhlið hússins nr. 8 á lóð nr. 6-10A við Vesturgötu. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 12. janúar 2015.

Borghildur Sölvey Sturludóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 12. janúar 2015 samþykkt .

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins Júlíus Vífill Ingvarsson og Áslaug María Friðriksdóttir og fulltrúi Framsóknar og flugvallarvina Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins Ólafur Kr. Guðmundsson sat fundinn við umræður um fyrirspurnina en Áslaug María Friðriksdóttir tók sæti á fundinum fyrir afgreiðslu þess.




Umsókn nr. 140180
7.
Grensásvegur suður, þrenging götu og hjólastígur (USK2014110050)
Lagt fram að nýju bréf umhverfis- og skipulagssviðs dags. 18. nóvember 2014 ásamt tillögu umhverfis- og skipulagssviðs að þrengingu á götu og gerð hjólastígs á Grensásvegi sunnan Miklubrautar samkv. uppdrætti Eflu dags . í apríl 2014. Einnig er lögð fram greinargerð umhverfis og skipulagssviðs dags. 7. júní 2012. Jafnframt er lögð fram til kynningar tillaga teiknistofunnar Storð ehf. að gróðursetningu vegna þrengingar á götu og hjólastíga dags. 7. nóvember 2014.
Einnig er lögð fram eftirfarandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins Áslaugar Maríu Friðriksdóttur og Ólafs Kr. Guðmundssonar frá fundi umhverfis- og skipulagsráðs 19. nóvember 2014 um aðgerðir á syðri hluta Grensásvegar:
"Í þeim tilgangi að auka umferðaröryggi fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og tryggja eðlilegt umferðarflæði, er lagt til að farið verði í eftirfarandi aðgerðir á Grensásvegi milli Bústaðavegar og Miklubrautar .
Gerður verði hjólreiðastígur austan megin vegarins og gangstígur breikkaður. Miða skal við að hjólreiðastígurinn verði nægilega breiður fyrir hjólaumferð í báðar áttir og rýmið aukið á milli bílumferðar og gangandi vegfarenda með þessum aðgerðum. Í þessum tilgangi verði miðeyjan mjókkuð og eystri akreinar vegarins færðar til vesturs sem því nemur.
Notendastýrðum gönguljósum veðri bætt við nálægt gatnamótum Heiðargerðis og Grensásvegar.
Lýsing þessa vegakafla verði bætt og endurhönnuð sérstaklega með þarfir gangandi vegfarenda í huga og þá einkum skólabarna.
Sebrabrautir og umferðarskilti í samræmi við lög og reglugerðir verði settar á allar hliðargötur meðfram þessum kafla Grensásvegar.
Þegar í stað verði framkvæmdar umferðartalningar og hraðamælingar á vegakaflanum og umferðarstjórnun metin í framhaldinu t.d með radarskiltum. Mikilvægt er að gert verði umferðarmódel af götunni, þar sem afleiðingar þessara breytinga eru metnar. Samhliða þessu verði metin þörf fyrir göngubrú yfir Grensásveg á helstu gönguleiðinni með öryggi skólabarna sérstaklega í huga.
Efna skal til víðtækrar kynningar á þessum tillögum meðal íbúa og annarra hagsmunaaðila, svo sem atvinnurekendum við götuna og í næsta nágreni. Einnig skal leggja fram umsögn frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins og lögreglunni, enda er Grensásvegur mikilvæg leið viðbragðsaðila að neyðarmóttöku Landsspítalans í Fossvogi."
Kynnt fundargerð af kynningarfundi umhverfis- og skipulagssvið dags. 28. nóvember 2014 um væntanlegar breytingar á Grensásvegi. Einnig er lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, samgöngur dags. 13. janúar 2015 ásamt lagfærðum gögnum dags. 12. janúar 2015 varðandi breytingar sem gerðar hafa verið á tillögunni eftir samráðsfund með hagsmunaaðilum.


Tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins frá 19. nóvember 2014 er tekin til atkvæðagreiðslu og felld með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar Hjálmars Sveinssonar og Kristínar Soffíu Jónsdóttur, fulltrúa- Bjartrar framtíðar Magneu Guðmundsdóttur og fulltrúa Vinstri hreyfingarinnar Græns framboðs Gísla Garðarssonar gegn þremur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokks Júlíusar Vífils Ingvarssonar og Ólafs Kr. Guðmundssonar og fulltrúa framsóknar og flugvallarvina Guðfinnu Jóhönnu Guðmundsdóttur sem bókar " Fulltrúi Framsóknar og flugvallarvina telur að tillaga Sjálfstæðismanna sé skynsamlegri af þeim tveimur tillögum sem liggja fyrir en telur þó að breytingar á Grensásvegi sé ekki forgangsverkefni m.a. í ljósi kostnaðar og forgangsröðun fjármuna. Þá var nýlega samþykkt að klára hjólastíg við Háaleitisbraut. Tryggja þurfi umferðaröryggi og að forgangsakstur verði ekki skertur."

Tillaga umhverfis- og skipulagssviðs samþykkt með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar Hjálmars Sveinssonar og Kristínar Soffíu Jónsdóttur, fulltrúa- Bjartrar framtíðar Magneu Guðmundsdóttur og fulltrúa Vinstri hreyfingarinnar Græns framboðs Gísla Garðarssonar gegn þremur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokks Júlíusar Vífils Ingvarssonar og Ólafs Kr. Guðmundssonar og fulltrúa Framsóknar og flugvallarvina Guðfinnu Jóhönnu Guðmundsdóttur

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins Júlíus Vífill Ingvarsson og Ólafur Kr. Guðmundsson bóka "Meirihluti borgarstjórnar hefur gert þrengingar gatna í Reykjavík að forgangsverkefni sínu. Megin tilgangurinn er að þrengja að umferðinni og skiptir þá litlu máli hvað það kostar. Fækkun akreina og þrengingar á tveimur götum, Grensásvegi og Háaleitisbraut, mun kosta borgarbúa 205 milljónir króna. Á sama tíma standa margir tónlistarskólar í Reykjavík frammi fyrir gjaldþroti en borgarfulltrúar meirihlutans finna enga peninga í sjóðum borgarinnar til að tryggja framboð á tónlistarnámi svo dæmi sé tekið um verkefni sem ætti frekar að hafa forgang. Önnur lögmál virðast gilda um tilgangslausar þrengingar á gatnakerfinu.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í umhverfis- og skipulagsráði hafa lagt fram útfærðar tillögur um það hvernig auka má öryggi gangandi vegfarenda og leggja hjólastíga meðfram Grensásvegi án þess að það hafi áhrif á aðra umferð sem fer um götuna og án þess að fækka akreinum um helming eins og til stendur. Umferðartalningar staðfesta að umferð um götur borgarinnar eykst ár frá ári og er á síðasta ári meiri en nokkru sinni fyrr að árinu 2007 undanskildu og því furðulegt að fara í öfuga átt þegar kemur að gatnakerfinu. Ekki liggja fyrir neinar talningar á því hversu margir hjóla um Gensásveg og því er ekki vitað hver raunveruleg þörf er.
Reynslan sýnir að þegar götur eru þrengdar eins og t.d. Hofsvallagata leitar umferðin inn á aðrar götur og inn í íbúðahverfi. Ekkert umferðarmódel hefur verið gert sem greinir hvert umferðin mun leita eftir að Grensásvegur hefur verið þrengdur og hver áhrifin verða af þessum framkvæmdum. Tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að gert verði umferðarmódel þar sem mat verði lagt á áhrif breytinga á Grensásvegi hefur nú verið felld sem sýnir að lítill vilji er til að gera þetta með faglegum og sæmilega varfærnum hætti og að koma í veg fyrir fjármunum borgarbúa sé varið í óþarfa."
Fulltrúi Samfylkingarinnar Hjálmar Sveinsson, fulltrúi- Bjartrar framtíðar Magnea Guðmundsdóttir og fulltrúi Vinstri hreyfingarinnar Græns framboðs Gísli Garðarsson bóka "Tillaga um endurhönnun Grensásvegar suður er hluti af Hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar frá árinu 2010 og í samræmi við stefnu borgarinnar í umferðarmálum og Aðalskipulag Reykjavíkur. Aðgerðin mun hægja á bílumferð, auka umferðaröryggi og bæta aðgengi og öryggi gangandi og hjólandi barna og fullorðinna í hverfinu. Umferðarflæði götunnar mun ekki raskast enda er metin umferð á þessum kafla Grensásvegar langt undir viðmiðum fyrir fjögurra akreina götu. Hönnun tekur tillit til athugasemda hagsmunaaðila þ.á.m. frá Slökkviliði sem komu fram í samráðsferlinu."

Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir víkur af fundi kl 11:25, þá var einnig búið að afgreiða lið 10 í fundargerðinni.

Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir tekur sæti á fundinum kl 12:35 þá var búið að fjalla um lið 11 og 12 í fundargerðinni.


Umsókn nr. 140233
8.
Tryggvagata 28, bílastæði fyrir hótel Radisson blu 1919 (USK2013070043)
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, samgöngustjóra dags. 4. desember 2014 varðandi bílastæði fyrir hótel Radisson blu 1919 við Tryggvagötu 28 . Einnig er lagt fram bréf Ratisson blu 1919 hotel móttekið 13. janúar 2015.

Samþykkt.

Umsókn nr. 150028
530269-7609 Reykjavíkurborg
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
9.
Elliðavogur, landfyllingar (USK2014100060)
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, samgöngustjóra dags. 16. janúar 2015 varðandi mat á umhverfisáhrifum landfyllinga í Elliðavogi.

Samþykkt
Vísað til borgarráðs.


Umsókn nr. 140462
530269-7609 Reykjavíkurborg
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
10.
Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2015-2040, auglýsing á tillögu
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 3. september 2014 vegna samþykktar borgarráðs 28. ágúst 2014 um að vísa erindi svæðisskipulagsnefndar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðisins dags. 26. ágúst 2014 um auglýsingu á tillögu að nýju svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2015-2040 til umsagnar umhverfis- og skipulagsráðs. Óskað er eftir að umsögn berist innan 14 daga. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 15. september 2014 og athugasemdir umhverfis- og skipulagssviðs dags. 19. janúar 2015 við auglýsta tillögu að nýju svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins til ársins 2040.

Haraldur Sigurðsson deildarstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Samþykkt
Vísað til borgarráðs.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins Júlíus Vífil Ingvarsson og Ólafur Kr. Guðmundsson og fulltrúi framsóknar og flugvallarvina Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir sitja hjá við afgreiðslu málsins.




Umsókn nr. 150015
11.
Hávaði frá framkvæmdum í íbúðabyggð og miðsvæðum., kynning
Lagt fram erindi frá Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur þar sem óskað er eftir að Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur kynni aðkomu HER vegna hávaða frá framkvæmdum í íbúðarbyggð og miðsvæðum fyrir umhverfis- og skipulagsráði.

Rósa Magnúsdóttir deildarstjóri og Ólöf Vilbergsdóttir heilbrigðisfulltrúi sitja fundinn undir þessum lið.
Kynnt.




Umsókn nr. 150013
12.
Umhverfis- og skipulagssvið, vetrarþjónusta staðan í janúar 2015.
Kynnt staðan á vetrarþjónusta umhverfis- og skipulagssviðs dags. í janúar 2015.


Guðjóna Björk Sigurðardóttir skrifstofustjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Kynnt.

Ólafur Kr. Guðmundsson víkur af fundi kl. 12:40 og tók Áslaug María Friðriksdóttir sæti á fundinum á sama tíma, þá átti eftir að afgreiða liði 8 og 9 í fundargerðinni.



Umsókn nr. 150020
13.
Laugavegur, hönnunarsamkeppni
Kynntar niðurstöður úr hönnunarsamkeppni um Laugavegs frá Skólavörðustíg að Snorrabraut.

Fulltrúar Arkís Birgir Teitsson og Hermann Ólafsson kynna.

Umsókn nr. 150019
14.
Óðinstorg, hönnunarsamkeppni
Kynntar niðustöður hönnunarsamkeppni um Óðinstorg.
Fulltrúar Basalt arkitekta Hrólfur Karl Cela og Anna María Bogadóttir kynna.

Umsókn nr. 150004 (01.17.42)
041148-4469 Sigurgeir Sigurjónsson
Bárugata 18 101 Reykjavík
130277-3499 Sigurjón Sigurgeirsson
Laugavegur 70 101 Reykjavík
15.
Laugavegur 70 og 70B, málskot
Lagt fram málskot Sigurjóns Sigurgeirssonar og Sigurgeirs Sigurjónssonar dags. 19. desember 2014 vegna neikvæðrar afgreiðslu skipulagsfulltrúa frá 28. nóvember 2014 á notkun húsanna á lóðunum nr. 70 og 70B við Laugaveg.

Margrét Þormar verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Fyrri afgreiða skipulagsfulltrúa frá 28. nóvember 2014 staðfest.


Kristín Soffía Jónsdóttir víkur af fundi kl 14:25


Umsókn nr. 140676 (01.25.52)
710178-0119 Teiknistofan Arkitektar ehf
Brautarholti 6 105 Reykjavík
16.
Skipholt 70, málskot
Lagt fram málskot Teiknistofunnar Arkitektar ehf. dags. 9. desember 2014 vegna neikvæðrar afgreiðslu skipulagsfulltrúa frá 20. nóvember 2014 um hækkun hússins á lóðinni nr. 70 við Skipholt um eina inndregna hæð ásamt breytingu á notkun annarrar hæðar hússins úr atvinnuhúsnæði í íbúðir/gistiheimili.

Frestað.

Umsókn nr. 150018 (01.3)
530269-7529 Faxaflóahafnir sf.
Tryggvagötu 17 101 Reykjavík
17.
Kleppsvegur, Kleppur, deiliskipulag
Lagt fram bréf Faxaflóahafna dags. 9. janúar 2015 varðandi samþykkt hafnarstjórnar s.d. um að fela hafnarstjóra í samvinnu við umhverfis- og skipulagssviðs að vinna tillögu að deiliskipulagi lands við Klepp.

Vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa.

Umsókn nr. 130118
18.
Umhverfis- og skipulagssvið, yfirlit yfir innkaup
Lagt fram yfirlit yfir innkaup umhverfis- og skipulagssviðs á verkum yfir milljón í nóvember 2014.



Umsókn nr. 130185
19.
Umhverfis- og skipulagssvið, mánaðaruppgjör janúar til október 2014
Kynnt uppgjör umhverfis- og skipulagssviðs ES og RK fyrir janúar til nóvember 2014.





Umsókn nr. 150014
221157-5089 María Hildur Maack
Reykjabraut 13 380 Króksfjarðarnes
20.
Umhverfis- og skipulagsráð, Bréf Maríu Hildar Maack
Lagt fram bréf Maríu Hildar Maack dags. 14. janúar 2015 þar sem óskað er eftir að koma á fund ráðsins og kynna verkefni er varðar verkefni sem er að efla umhverfisvitund neytenda í borginni.

Vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs, umhverfisgæði.

Umsókn nr. 150007
530269-7609 Reykjavíkurborg
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
21.
Betri Reykjavík, hraðleið á milli stúdentaíbúðanna í Grafarholti og háskólanna (USK2014120084)
Lögð fram fjórða efsta hugmynd desembermánaðar úr flokknum samgöngur "hraðleið á milli stúdentaíbúðanna í Grafarholti og háskólanna" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 29. desember 2014 ásamt samantekt af umræðum og rökum. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 15. janúar 2015.

Umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 15. janúar 2015 samþykkt.

Umsókn nr. 150003
530269-7609 Reykjavíkurborg
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
22.
Betri Reykjavík, setja bekki fyrir utan Hlemm (USK2014120081)
Lögð fram efsta hugmynd desembermánaðar úr flokknum samgöngur "setja bekki fyrir utan Hlemm" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 29. desember 2014 ásamt samantekt af umræðum og rökum. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 19. janúar 2015.


Umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 19. janúar 2015 samþykkt.

Umsókn nr. 150004
530269-7609 Reykjavíkurborg
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
23.
Betri Reykjavík, lækkun hámarkshraða í íbúðargötum (USK2014120082)
Lögð fram önnur efsta hugmynd desembermánaðar úr flokknum samgöngur "lækkun hámarkshraða í íbúðargötum" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 29. desember 2014 ásamt samantekt af umræðum og rökum. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 15. janúar 2015.

Umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 15. janúar 2015 samþykkt.

Umsókn nr. 150006
530269-7609 Reykjavíkurborg
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
24.
Betri Reykjavík, rauntímakort í öll strætóskýli borgarinnar (USK2014120083)
Lögð fram þriðja efsta hugmynd desembermánaðar úr flokknum samgöngur "rauntímakort í öll strætóskýli borgarinnar" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 29. desember 2014 ásamt samantekt af umræðum og rökum. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 19. janúar 2015.

Umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 19. janúar 2015 samþykkt.




Umsókn nr. 140106
530269-7609 Reykjavíkurborg
Ráðhúsinu 101 Reykjavík
25.
Betri Reykjavík, uppl. um skautafærð á tjörninni á vef Reykjavíkurborgar
Lögð fram efsta hugmynd marsmánaðar úr flokknum frítími og útivist "uppl. um skautafærð á tjörninni á vef Reykjavíkurborgar" sem tekið var af samráðsvefnum Betri Reykjavík þann 31. mars 2014 ásamt samantekt af umræðum og rökum. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 13. janúar 2015.
Umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 13. janúar 2015 samþykkt.

Umsókn nr. 140680 (01.55.32)
701211-0140 Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin
Skuggasundi 3 101 Reykjavík
26.
Arnargata 10, kæra 124/2014, umsögn
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 12. desember 2014 ásamt kæru dags. 11. desember 2014 þar sem kærð er breyting á deiliskipulagi Fálkagötureits vegna lóðarinnar nr. 10 við Arnargötu. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra, dags. 12. janúar 2015.



Umsókn nr. 150019 (01.55.32)
701211-0140 Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin
Skuggasundi 3 101 Reykjavík
27.
Arnargata 10, kæra 6/2015, umsögn
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindarmála dags. 13. janúar 2015 ásamt kæru dags. 10. janúar 2015 þar sem kært er byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við Arnargötu 10. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra, dags. 14. janúar 2015.



Umsókn nr. 140657 (01.35.82)
701211-0140 Úrskurðarnefnd umhverfis/auðlin
Skuggasundi 3 101 Reykjavík
28.
Skipasund 43, kæra 123/2014, umsögn
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála ásamt kæru, dags. 4. desember 2014 vegna byggingarleyfis fyrir framkvæmdum á lóð nr. 43 við Skipasund. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra, dags. 13. janúar 2015.



Umsókn nr. 140664 (01.15)
29.
Frakkastígur - Skúlagata, drög að lýsingu
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 8. janúar 2015 um samþykkt borgarráðs s.d að skipulagslýsingu fyrir hluta Skúlagötusvæðis.



Umsókn nr. 140638 (04.41.1)
590658-0149 Freyr ehf
Lynghálsi 2 110 Reykjavík
500191-1049 Arkþing ehf
Bolholti 8 105 Reykjavík
30.
">Hádegismóar 1-3, breyting á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 8. janúar 2015 um samþykkt borgarráðs s.d að auglýsingu á breytingu á deiliskipulagi lóðanna að Hádegismóum 1-3.