Bárugata 35

Verknúmer : BN051753

906. fundur 2017
Bárugata 35, Þaksvalir 3. hæð, síkka þakglugga o.fl.
Sótt er um leyfi til að byggja þaksvalir og kvist til suðurs, síkka glugga á austurþekju og til að loka á milli 2. og 3. hæðar í stigahúsi bakdyramegin með E-30 hurð í E-60 umgjörð á stigapalli á 2. hæð í fjölbýlishúsi á lóð nr. 35 við Bárugötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 6. janúar 2017 fylgir erindinu. Erindi var grenndarkynnt frá 25. nóvember til og með 23. desember 2016. Engar athugasemdir bárust.
Jafnframt er erindi BN050853 dregið til baka.
Gjald kr. 10.100

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


615. fundur 2017
Bárugata 35, Þaksvalir 3. hæð, síkka þakglugga o.fl.
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25. október 2016 þar sem sótt er um leyfi til að byggja þaksvalir og kvist á til suðurs, síkka glugga á austurþekju og til að loka á milli 2. og 3. hæðar í stigahúsi bakdyramegin með E-30 hurð í E-60 umgjörð á stigapalli á 2. hæð í fjölbýlishúsi á lóð nr. 35 við Bárugötu. Erindi var grenndarkynnt frá 25. nóvember til og með 23. desember 2016. Engar athugasemdir bárust.
Jafnframt er erindi BN050853 dregið til baka. Gjald kr. 10.100

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.


608. fundur 2016
Bárugata 35, Þaksvalir 3. hæð, síkka þakglugga o.fl.
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. október 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25. október 2016 þar sem sótt er um leyfi til að byggja þaksvalir og kvist á til suðurs, síkka glugga á austurþekju og til að loka á milli 2. og 3. hæðar í stigahúsi bakdyramegin með E-30 hurð í E-60 umgjörð á stigapalli á 2. hæð í fjölbýlishúsi á lóð nr. 35 við Bárugötu. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Jafnframt er erindi BN050853 dregið til baka. Gjald kr. 10.100

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Bárugata 33, 37 og Öldugötu 30, 30A og 32.

Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 8.1. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2015.


607. fundur 2016
Bárugata 35, Þaksvalir 3. hæð, síkka þakglugga o.fl.
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25. október 2016 þar sem sótt er um leyfi til að byggja þaksvalir og kvist á til suðurs, síkka glugga á austurþekju og til að loka á milli 2. og 3. hæðar í stigahúsi bakdyramegin með E-30 hurð í E-60 umgjörð á stigapalli á 2. hæð í fjölbýlishúsi á lóð nr. 35 við Bárugötu.
Jafnframt er erindi BN050853 dregið til baka. Gjald kr. 10.100

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra..

897. fundur 2016
Bárugata 35, Þaksvalir 3. hæð, síkka þakglugga o.fl.
Sótt er um leyfi til að byggja þaksvalir og kvist á til suðurs, síkka glugga á austurþekju og til að loka á milli 2. og 3. hæðar í stigahúsi bakdyramegin með E-30 hurð í E-60 umgjörð á stigapalli á 2. hæð í fjölbýlishúsi á lóð nr. 35 við Bárugötu.
Jafnframt er erindi BN050853 dregið til baka.
Gjald kr. 10.100

Frestað.
Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta nr. 1.01A, 1.02A , 1.03 og 1.04 dags. 18. apríl 2016.


895. fundur 2016
Bárugata 35, Þaksvalir 3. hæð, síkka þakglugga o.fl.
Sótt er um leyfi til að byggja þaksvalir og kvist á til suðurs og síkka glugga á austurþekju, loka á milli 2. og 3. hæðar í stigahúsi bakdyramegin með E-30 hurð í E-60 umgjörð á stigapalli á 2. hæð í fjölbýlishúsi á lóð nr. 35 við Bárugötu.
Jafnframt er erindi BN050853 dregið til baka.
Gjald kr. 10.100

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.