Gerðhamrar 19

Verknúmer : BN043530

653. fundur 2011
Gerðhamrar 19, (fsp) viðbygging
Spurt er hvort byggja megi viðbyggingu við austurhlið tvíbýlishússins á lóð nr. 19 við Gerðhamra.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 23. september 2011 fylgir erindinu.

Jákvætt.
Með vísan til útskriftar úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagstjóra frá 23. september 2011.


365. fundur 2011
Gerðhamrar 19, (fsp) viðbygging
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. september 2011 þar sem spurt er hvort byggja megi viðbyggingu við austurhlið tvíbýlishússins á lóð nr. 19 við Gerðhamra.
Ekki eru gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað. Ekki verður þó heimilað að fjölga bílastæðum á lóð. Tillagan verður grenndarkynnt þegar hún berst.

652. fundur 2011
Gerðhamrar 19, (fsp) viðbygging
Spurt er hvort byggja megi viðbyggingu við austurhlið tvíbýlishússins á lóð nr. 19 við Gerðhamra.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.