Nesvegur 68

Verknúmer : BN040955

585. fundur 2010
Nesvegur 68, bílskýli
Sótt er um leyfi til að byggja opið bílskýli úr stáli og timbri á norðurhluta lóðar nr. 68 við Nesveg.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 30. apríl 2010 fylgir erindinu. Grenndarkynning stóð yfir frá 23. mars 2010 til og með 29. apríl 2010. Engar athugasemdir bárust.
Stærð: 30,7 ferm., 97,8 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.531
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


299. fundur 2010
Nesvegur 68, bílskýli
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. janúar 2010. Sótt er um leyfi til að byggja opið bílskýli úr stáli og timbri á norðurhluta lóðar nr. 68 við Nesveg. Grenndarkynningin stóð yfir frá 23. mars 2010 til og með 29. apríl 2010. Engar athugasemdir bárust.
Stærð: 30,7 ferm., 97,8 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.531
Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.


289. fundur 2010
Nesvegur 68, bílskýli
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 26. jan. 2010. Sótt er um leyfi til að byggja opið bílskýli úr stáli og timbri á norðurhluta lóðar nr. 68 við Nesveg.
Stærð: 30,7 ferm., 97,8 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.531
Samþykkt að grenndarkynna framlagða umsókn fyrir hagsmunaaðilum að Nesvegi 64, 66, 72 og 74 þegar samþykki lóðarhafa að Nesvegi 70 liggur fyrir.

572. fundur 2010
Nesvegur 68, bílskýli
Sótt er um leyfi til að byggja opið bílskýli úr stáli og timbri á norðurhluta lóðar nr. 68 við Nesveg.
Stærð: 30,7 ferm., 97,8 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.531
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.