Austurstræti 20, Bergstaðastræti 13, Bergstaðastræti 52, Borgartún 25, Borgartún 8-16, Bræðraborgarstígur 3, Bæjarháls 1, Efstasund 84, Engjavegur 6, Flugvöllur 106748, Fossaleynir 6, Fróðengi 1-11, Grjótháls 5, Gufunes Áburðarverksm, Hátún 10-12, Hringbraut 121, Hverfisgata 105, Kringlan 7, Laugavegur 103, Laugavegur 116, Laugavegur 15, Lækjargata 8, Nesvegur 68, Ránargata 8A, Sifjarbrunnur 26, Spöngin 9-31, Spöngin 9-31, Tjarnargata 10A, Urðarstígur 12, Öldugata 5, Vatnsveituv. Dýrasp., Barónsstígur 47, Bergstaðastræti 46, Flókagata 23, Framnesvegur 14, Hallveigarstígur 10, Heiðargerði 72, Hverfisgata 114, Leifsgata 16, Lyngháls 7, Nauthólsvegur 87, Túngata 41, Vellir 1 C 1, Vogaland 8,

Afgreiðsla byggingarfulltrúa samkv. samþykkt nr. 161/2005

572. fundur 2010

Árið 2010, þriðjudaginn 26. janúar kl. 10:07 fyrir hádegi hélt byggingarfulltrúinn í Reykjavík 572. fund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulagsráðs. Fundurinn var haldinn í fundarherbergi 2. hæð austur Borgartúni 12-14. Þessi sátu fundinn: Björn Kristleifsson, Sigrún Reynisdóttir, Jón Hafberg Björnsson, Þórður Búason, Guðfinna Ósk Erlingsdóttir, Eva Geirsdóttir, Magnús Sædal Svavarsson og Bjarni Þór Jónsson Fundarritari var Bjarni Þór Jónsson
Þetta gerðist:


Umsókn nr. 40953 (01.14.050.3)
440703-2240 Hressingarskálinn ehf
Austurstræti 20 101 Reykjavík
420408-0990 Fasteignafélagið okkar ehf
Digranesvegi 10 200 Kópavogur
1.
Austurstræti 20, tjald í garði
Sótt er um leyfi til að reisa veitingatjald í garði Hressingaskálans á lóð nr. 20 við Austurstræti.
Meðfylgjandi er fylgiskjal sem sýnir suðurhlið.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.


Umsókn nr. 40897 (01.18.030.9)
490204-2960 Mótamenn ehf
Þúfuseli 2 109 Reykjavík
2.
Bergstaðastræti 13, endurnýjun byggingarleyfis BN038695
Sótt er um endurnýjun á erindi BN038695 samþ. 19. ágúst 2008 þar sem veitt var leyfi til þess að byggja þriggja hæða steinsteypta viðbyggingu auk kjallara, allt einangrað að utan og klætt gráum náttúrustein og múrkerfi, með samtals þremur íbúðum og atvinnuhúsnæði á neðstu hæð (kjallara), sem tengist 1. hæð húsnæðisins sem fyrir er á lóðinni nr. 13 við Bergstaðastræti.
Erindi fylgir tölvupóstur dags. 20. janúar og annar dags. 17. janúar 2010 þar sem samþykki eigenda 0401 og 0204 eru dregin til baka.
Stækkun: Viðbygging 336,6 ferm., 920,7 rúmm
Gjald kr. 7.700 + 70.894
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 40962 (01.18.530.6)
461207-0730 Bergstaðastræti 52,húsfélag
Bergstaðastræti 52 101 Reykjavík
3.
Bergstaðastræti 52, reyndarteikningar v/ eignaskiptayfirlýsingar
Sótt er um samþykki fyrir núverandi fyrirkomulagi v/gerðar eignaskiptasamnings í íbúðar- og atvinnuhúsinu á lóð nr. 52 við Bergstaðastræti.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 40723 (01.21.810.1)
470704-3060 Fasteignafélagið Sjávarsíða hf
Borgartúni 25 105 Reykjavík
4.
Borgartún 25, breytingar á 4. hæð
Sótt er um leyfi til breytinga á innréttingum á 4. hæð atvinnuhúss á lóð nr. 25 við Borgartún.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 40741 (01.22.010.7)
681205-3220 Höfðatorg ehf
Skúlagötu 63 105 Reykjavík
5.
Borgartún 8-16, veitingasala
Sótt er um leyfi til að byggja millipall og innrétta veitingastað í flokki 3 á 1. hæð og koma fyrir kælum og frystum á -2. hæð í atvinnuhúsinu Höfðatúni 2 á lóð nr. 8-16 við Borgartún.
Hljóðskýrsla dags. 14. jan. 2010 fylgir og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 18. jan. 2010
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.


Umsókn nr. 39750 (01.13.501.4)
641105-1550 HVH Verk ehf
Þverholti 14 105 Reykjavík
250864-4859 Gunnar Bergmann Stefánsson
Logafold 66 112 Reykjavík
6.
Bræðraborgarstígur 3, gistiheimili
Sótt er um leyfi til að breyta í gistiheimili kjallara og 1. hæð fjölbýlishússins á lóð nr. 3 við Bræðraborgarstíg. Grenndarkynning stóð frá 15. maí til og með 16. júní 2009. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Ingibjörg Helgadóttir og Árni Björnsson dags. 25. maí 2009. Einnig lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 13. júlí 2009.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 40785 (00.00.000.0 09)
551298-3029 Orkuveita Reykjavíkur
Bæjarhálsi 1 110 Reykjavík
7.
Bæjarháls 1, reyndarteikningar
Sótt er um leyfi fyrir reyndarteikningu á bílgeymslu, mhl 10 við hús Orkuveitu Reykjavíkur á lóð nr. 1 við Bæjarháls.
Sama erindið BN030066 var lagt inn 7. sept. 2004 og var því frestað.
Bréf frá hönnuði dags. 18. jan. 2010 fylgir
Stækkun alls: 282,0 ferm. 1890,4 rúmm
Gjald kr. 7.700 + 145.561
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnaeftirlits á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 40565 (01.41.001.0)
160552-3019 Ingileif Guðjónsdóttir
Efstasund 84 104 Reykjavík
8.
Efstasund 84, stækkun kvists
Sótt er um leyfi til að rífa eldri kvist og byggja nýjan og stærri á vesturhlið einbýlishússins á lóð nr. 84 við Efstasund.
Jafnframt er gerð grein fyrir áður gerðri ósamþykkjanlegri íbúð í kjallara.
Erindi fylgir samþykki meðeiganda áritað á uppdrátt ásamt útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 13. nóv. 2009.
Einnig fylgja þinglýst afsöl dags. 29. júní 1972, 24. maí 2000 og 10. júlí 2003 ásamt skiptayfirlýsingu dags. 21. júní 1991 og íbúðarskoðun byggingarfulltrúa dags. 3. des. 2009.
Stækkun: 3 ferm., 6,2 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 477
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Afmörkun ósamþykkjanlegarar íbúðar er gerð með vísan til 15. gr. reglugerðar nr. 910/2000.


Umsókn nr. 40865 (00.00.000.0 02)
670169-1709 Íþróttabandalag Reykjavíkur
Engjavegi 6 104 Reykjavík
570169-4169 Íslenskar getraunir
Engjavegi 6 104 Reykjavík
9.
Engjavegur 6, breyta húsum 1 og 2
Sótt er um leyfi til að byggja 4. hæðina ofan á mhl. 02 og 04 sem sameinast í mhl 02 og að byggja tengibyggingu sem verður mhl. 03 sem tengir mhl. 02 , 07 og 10, og að byggja geymsluhús sem verður mhl. 05 á lóð nr. 6 við Engjaveg.
Bréf frá hönnuði dags. 22. des. 2009 og 18. jan. 2010 fylgir. Umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 19. jan. 2010
Stækkun: mhl. 02. 466,3 ferm., mhl. 03. 240,7 ferm.og
mhl. 05. 409,2 ferm. Samtals stækkun 1116,2 ferm.,
3897,3 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.700 + 300.092
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.


Umsókn nr. 40949 (01.66.--9.9)
670706-0950 Flugstoðir ohf
Reykjavíkurflugvelli 101 Reykjavík
10.
Flugvöllur 106748, endurnýjun byggingarleyfis BN039227
Sótt er um leyfi til að endurnýja byggingarleyfið BN039227 dags. 23. des. 2008 og fjallar um að rífa viðbyggingu við gamla flugturninn sem hefur landnúmer 106748 og mhl 10 á Reykjavíkurflugvelli.
Niðurrif: Mhl. 10 merkt 0101 skýli 176 ferm. 545 rúmm.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Bókun byggingarfulltrúa: Byggingarfulltrúi beinir þeim tilmælum til umsækjanda að suðurhlið gamla flugturnsins verði klædd til dæmis með bárujárni til verndar byggingunni og jafnframt að hresst verði upp á útlit hússins til dæmis með málningu.


Umsókn nr. 40959 (02.46.710.3)
701296-6139 Íslandspóstur hf
Stórhöfða 29 110 Reykjavík
11.
Fossaleynir 6, breyting úti og inni
Sótt er um leyfi til að breyta út og inni í atvinnuhúsnæðinu á lóð nr. 6 við Fossaleyni.
Stækkun: XX ferm og XX rúmm.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 40825 (02.37.850.2)
710890-2269 Eir,hjúkrunarheimili
Pósthólf 12096 132 Reykjavík
12.
Fróðengi 1-11, breyting inni
Sótt eru breytingar á nýsamþykktu erindi BN040641 sem felast í að geymsluveggir verða opnir stálgrindarveggir, einangrun þaks verður 225 mm Roofbord Extra, þrýstieinangrun og inntök og tæknirými 4. og 5. áfanga víxlast.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 15. des. 2009 og
bréf frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands um einangrunargildi
Gjald kr. 7.700.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


Umsókn nr. 40850 (04.30.230.1)
711296-4929 Grjótháls ehf
Skúlagötu 63 105 Reykjavík
13.
Grjótháls 5, breyting úti
Sótt er um leyfi til að byggja léttan tengigang á 2. hæð að lóðamörkum við nr. 1-3, sbr. fyrirspurn BN040211, við hús á lóð nr. 5 við Grjótháls.
Meðfylgjandi er bréf frá arkitekt dags. 19. jan. 2010
Stækkun 20,7 ferm., 61 rúmm.
Gjald kr 7.700 + 4.697
Frestað.
Lagfæra skráningartöflu.


Umsókn nr. 39758 (02.22.000.1)
530269-7529 Faxaflóahafnir sf
Tryggvagötu 17 101 Reykjavík
14.
Gufunes Áburðarverksm, breyting inni
Sótt er um leyfi til að koma fyrir mötuneytiseldhúsi ásamt búri og ræstikompu á 1. hæð í skrifstofubyggingu mhl 54 á lóð með staðgreini 2.220.001 í Gufunesi.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 40829 (01.23.400.1)
420369-6979 Brynja, Hússjóður Öryrkjabandal
Hátúni 10 105 Reykjavík
15.
Hátún 10-12, sameining íbúða ofl.
Sótt er um leyfi fyrir breytingum innanhúss sem felast aðallega í því að sameina íbúðir, fækka þeim úr 77 í 55 ásamt fleiri tilfæringum innanhúss og niðurfellingu útitrappa og inngangs í sorpgeymslu í fjölbýlishúsi á lóð nr. 10 við Hátún.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 40463 (01.52.020.2)
621101-2420 Lýsing hf
Ármúla 3 108 Reykjavík
16.
Hringbraut 121, endurnýjun byggingarleyfis BN032683
Sótt er um leyfi til að endurnýja erindi BN032683 dags. 25. október 2005 þar sem sótt er um að breyta innra skipulagi skyndibitastað í flokki 1 og apóteks, í suðurenda 1. hæðar atvinnuhússins á lóð nr. 121 við Hringbraut.
Tölvupóstur frá arkitekt ódags.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


Umsókn nr. 40951 (01.15.440.6)
471008-0280 NBI hf
Austurstræti 11 155 Reykjavík
581008-0150 Arion banki hf
Borgartúni 19 105 Reykjavík
17.
Hverfisgata 105, aðskilið byggingarleyfi fyrir 0401, 0404, 0405
Sótt er um aðskilið byggingarleyfi fyrir íbúðum 0401, 0404 og 0405, sjá erindi BN038972 dags. 14. október 2008, í íbúðar- og atvinnuhúsinu á lóð nr. 105 við Hverfisgötu.
Gjald kr. 7.700

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 40956 (01.72.310.1)
681204-2290 Líf fasteignir ehf
Lynghálsi 13 110 Reykjavík
18.
Kringlan 7, rými 0101 breytingar inni
Sótt er um að endurinnrétta fyrir breytta starfsemi hluta 1. hæðar Húss verslunarinnar, matshluta 01, á lóð nr. 7 við Kringluna.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 40719 (01.24.000.7)
610593-2919 Lindarvatn ehf
Borgartúni 31 105 Reykjavík
19.
Laugavegur 103, breytingar inni - kjallari, 1. og 6.hæð
Sótt er um leyfi fyrir smávægilegum breytingum innanhúss, í kjallara, á jarðhæð þar sem annars vegar er verslun og hinsvegar veitingastaður sem ekki er starfræktur í dag og á 6. hæð þar sem er íbúð í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 103 við Laugaveg.
Tölvupóstur frá hönnuði dags. 27. nóv. 2009.
Samþykki meðeigenda dags. 16. nóv fylgir.
Gjald kr. 7.700

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst fyrir útgáfu á byggingarleyfi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 40367 (01.24.010.3)
600269-2599 Smáragarður ehf
Hlíðasmára 11 201 Kópavogur
20.
Laugavegur 116, breytingar innanhúss
Sótt er um leyfi fyrir þegar framkvæmdum breytingum á 1. hæð og í kjallara í verslunarhúsi á lóð nr. 116/118 við Laugaveg.
Gjald kr. 7.700 + 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


Umsókn nr. 40849 (01.17.111.2)
430481-1269 Menningar/framfarasj Ludv Storr
Laugavegi 15 101 Reykjavík
21.
Laugavegur 15, gluggar
Sótt er um leyfi til að skipta um glugga á 2., 3. og 4. hæð götuhliðar hússins á lóð nr. 15 við Laugaveg.
Meðfylgjandi er tölvupóstur arkitekts dags. 18. jan. 2010 og teikningar af gluggakerfi dags. jan. 2010.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.


Umsókn nr. 40957 (01.14.051.0)
450269-3609 Lækur ehf
Bæjarlind 6 201 Kópavogur
22.
Lækjargata 8, breyting inni, veitingastaður
Sótt er um leyfi til að innrétta veitingahús í flokki ? á neðri hæð (Mhl01) og í bakhúsi (Mhl.02) verslunarhússins á lóð nr. 8 við Lækjargötu.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 40955 (01.51.701.8)
230639-6719 Björg Juhlin
Nesvegur 68 107 Reykjavík
23.
Nesvegur 68, bílskýli
Sótt er um leyfi til að byggja opið bílskýli úr stáli og timbri á norðurhluta lóðar nr. 68 við Nesveg.
Stærð: 30,7 ferm., 97,8 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 7.531
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.


Umsókn nr. 40945 (01.13.601.8)
100760-3209 Jon Olav Fivelstad
Hófgerði 6 200 Kópavogur
030354-2309 Þuríður Ólafía Hjálmtýsdóttir
Hófgerði 6 200 Kópavogur
24.
Ránargata 8A, endurnýjun byggingarleyfis BN039482
Sótt er um leyfi til að endurnýja byggingarleyfið BN039482 dags. 10. feb. 2009, þar sem sótt var um innanhúsbreytingar, tilfærslur milli rýma og að einangrun flatra þaka sé að innanverðu en ekki utan í gistihúsi á lóð nr. 8A við Ránargötu.
Stækkun: 60 ferm., 167 rúmm.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


Umsókn nr. 40954 (05.05.540.2)
251176-5749 Friðrik Kristinsson
Ljósavík 52 112 Reykjavík
25.
Sifjarbrunnur 26, reyndarteikningar
Sótt er um samþykki fyrir minni háttar breytingum, svo sem minnkun á svölum, breyting á gluggum og bygging tveggja stoðveggja, sem orðið hafa á byggingartíma einbýlishússins á lóð nr. 26 við Sifjarbrunn.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 40919 (02.37.520.1)
510907-0940 Landic Ísland ehf
Kringlunni 4-12 108 Reykjavík
201271-4879 Jósep Grímsson
Laufengi 178 112 Reykjavík
110174-3659 Regína Sigrún Ómarsdóttir
Laufengi 178 112 Reykjavík
26.
Spöngin 9-31, nr. 31 breyta innra skipulagi
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi núverandi húsnæðis og breyta í ísbúð og kaffihús í matshluta 04 í verslunarhúsnæði á lóð nr. 31 við Spöngina.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


Umsókn nr. 40921 (02.37.520.1)
510907-0940 Landic Ísland ehf
Kringlunni 4-12 108 Reykjavík
140363-2009 Þröstur Theódórsson
Búagrund 3 116 Reykjavík
27.
Spöngin 9-31, fiskverslun
Sótt er um leyfi til að innrétta fiskverslun í rými 02-0103 í verslunarhúsi á lóð nr. 13 við Spöngina.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


Umsókn nr. 40588 (01.14.131.0)
510497-2799 Félagsbústaðir hf
Hallveigarstíg 1 101 Reykjavík
28.
Tjarnargata 10A, reyndarteikning 5. hæð
Sótt er um leyfi fyrir reyndarteikningu og breytingu á skráningartöflu fyrir íbúð 0401 og 0501 í fjölbýlishúsinu á lóðinni nr. 10A við Tjarnargötu.
Samþykki meðeigenda dags. 2. nóv. 2009.
Gjald kr. 7.700
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.


Umsókn nr. 40236 (01.18.640.2)
050669-5649 Jósef Halldórsson
Urðarstígur 12 101 Reykjavík
260173-5109 Sólveig Arnarsdóttir
Urðarstígur 12 101 Reykjavík
29.
Urðarstígur 12, viðbygging, kvistir ofl.
Sótt er um leyfi til að byggja við til suðurs, til að hækka hús, byggja kvisti á báðar hliðar og svalir til suðurs á einbýlishúsið á lóð nr. 12 við Urðarstíg.
Jafnframt er gerð grein fyrir áður gerðum geymsluskúr í suðausturhorni lóðar.
Stækkun: 80 ferm., 207,5 rúmm.
Gjald kr. 7.700 + 15.978
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektarákvæðum 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Bókun byggingarfulltrúa: Allar byggingarframkvæmdir eru óheimiliar uns byggingarleyfi hefur verið gefið út og gerð grein fyrir þeim óleyfisframkvæmdum sem þegar hafa átt sér stað.


Umsókn nr. 40961 (01.13.640.7)
300140-3279 Gunnlaugur Geirsson
Hvassaleiti 31 103 Reykjavík
30.
Öldugata 5, gluggar
Sótt er um leyfi til að endurnýja glugga úr timbri nýjir gluggar verða í anda upprunalegra glugga í fjölbýlishúsi á lóð nr. 5 við Öldugötu.
Gjald kr. 7.700
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


Umsókn nr. 40975 (04.76.410.2)
570480-0149 Framkvæmda- og eignasvið Reykja
Borgartúni 10-12 105 Reykjavík
31.
Vatnsveituv. Dýrasp., felld úr fasteignaskrá
Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar óskar eftir því að lóð sem skráð hefur verið Vesturlandsvegur Dýraspítali, landnr. 112468, staðgr. 4.761.02 verði felld úr fasteignaskrá og lóðin sem er 1.693 m2 sameinuð óútvísuðu landi Reykjavíkurborgar með landnr. 218177. Málinu fylgir bréf Framkvæmdasviðs dags. 20. þ.m.
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 73/1997.


Umsókn nr. 40980 (01.19.310.1)
710304-3350 Álftavatn ehf
Kringlunni 7 103 Reykjavík
32.
Barónsstígur 47, (fsp) breyta í hótel
Spurt er hvort leyft verði að innrétta húsnæði áður Heilsuverndarstöð Reykjavíkur sem hótel fyrir Icelandair Hótel á lóðinni nr. 47 við Barónsstíg.
Málinu fylgir bréf fyrirspyrjanda dags. 21. janúar 2010.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.


Umsókn nr. 40963 (01.18.520.5)
200347-4559 Ásgeir Erling Gunnarsson
Básbryggja 37 110 Reykjavík
33.
Bergstaðastræti 46, (fsp) fjölbýlishús
Spurt er hvort leyft yrði að byggja fjölbýlishús eins og sýnt er á meðfylgjandi mynd af fjölbýlishúsi á lóð nr. 46 við Bergstaðastræti.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.


Umsókn nr. 40938 (01.24.440.7)
120759-5319 Jón Eiríkur Guðmundsson
Njálsgata 49 101 Reykjavík
34.
Flókagata 23, (fsp) breyting á kvistum
Spurt er hvort stækka og sameina megi kvisti á suður- og norðurhlið íbúðarhúss á lóð nr. 23 við Flókagötu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.
Kvistir of stórir.


Umsókn nr. 40952 (01.13.322.9)
280426-2969 Þórir Björnsson
Lindargata 64 101 Reykjavík
35.
Framnesvegur 14, (fsp) kvistur og svalir
Spurt er hvort leyfi fengist til að setja kvist á suðurhlið og á norðurhlið sem jafnframt er komið fyrir þaksvölum með útsýni yfir Faxaflóann í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 14 við Framnesveg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.


Umsókn nr. 40976 (01.18.020.7)
270441-7269 Rögnvaldur Jónsson
Skjólbraut 16 200 Kópavogur
36.
Hallveigarstígur 10, (fsp) skipting lóðar
Spurt er hvort byggja megi skiptingu lóðarinnar Hallveigarstígur 10 í lóðirnar Hallveigarstígur 10 og 10A á meðfylgjandi gögnum.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.


Umsókn nr. 39593 (01.80.220.4)
110368-4379 Arnar Hilmarsson
Heiðargerði 72 108 Reykjavík
160968-5409 Margrét Guðmundsdóttir
Heiðargerði 72 108 Reykjavík
37.
Heiðargerði 72, (fsp) breyting úti
Spurt er hvort að leyfi fengist fyrir stækkun 1. hæðar og rishæðar á einbýlishúsinu á lóð nr. 72 við Heiðargerði.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 21. janúar 2010 fylgir erindinu.
Frestað.
Lagfæra uppdrætti til samræmis við deiliskipulag, svo unnt sé að taka afstöðu til erindsins.


Umsókn nr. 40947 (01.24.000.9)
121242-2069 Epimaco Dadol Ycot
Hverfisgata 114 105 Reykjavík
38.
Hverfisgata 114, (fsp) setja upp skilti á lóð
Spurt er hvort sérmerkja megi bílastæði á lóð nr. 114 við Hverfisgötu.
Frestað.
Gera grein fyrir samþykktum bílastæðum á lóðinni og aðkomu að þeim svo unnt sé að taka afstöðu til erindisins.


Umsókn nr. 40971 (01.19.520.7)
680582-0179 Fasteignasalan Gimli ehf
Grensásvegi 13 108 Reykjavík
39.
Leifsgata 16, (fsp) er íbúðin samþykkt?
Spurt er hvort kjallaraíbúð sé samþykkt í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 16 við Leifsgötu.
Ekki kemur fram í gögnum embættisins að samþykkt sé íbúð í kjallara hússins.

Umsókn nr. 40977 (04.32.410.1)
540373-0199 Gnípa ehf
Lynghálsi 2 110 Reykjavík
40.
Lyngháls 7, (fsp) breyting inni, frystigámur, hleðsluskýli
Spurt er hvort veitt yrði stöðuleyfi til fimm ára fyrir tjaldskemmu framan við hleðsludyr, fyrir þremur frystigámum og til að breyta innra fyrirkomulagi iðnaðarhússins á lóð nr. 7 við Lyngháls.
Erindi fylgir vottun tjaldskemmu dags. 16. desember 2008 og bréf hönnuðar dags. 22. janúar 2010.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.


Umsókn nr. 40929 (01.75.520.3)
540599-2039 Hjallastefnan ehf
Vífilsstaðavegi 123 210 Garðabær
41.
Nauthólsvegur 87, (fsp) kennsluhúsnæði
Spurt er hvort byggja megi ca 200 ferm. kennsluhús fyrir aftan núverandi skóla Hjallastefnunnar á lóð nr. 87 við Nauthólsveg.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.


Umsókn nr. 40958 (01.13.740.8)
080858-3379 Hrefna Haraldsdóttir
Túngata 41 101 Reykjavík
42.
Túngata 41, (fsp) stækka bílskúr og tengja við íbúðarhús
Spurt er hvort leyfi fengist til að stækka bílskúr og tengja við íbúðarhúsið og breyta notkun í vinnustofu á lóð nr. 41 við Túngötu.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.


Umsókn nr. 40944 (00.08.101.0)
181249-3319 Lilja Guðmundsdóttir
Vellir 116 Reykjavík
010447-3569 Reynir Kristinsson
Vellir 116 Reykjavík
43.
Vellir 1 C 1, (fsp) 3 færanleg hús
Spurt er hvort leyfi fengist til að setja 3 færanleg hús, ?? ferm hvert á land lögbýlisins Valla landnr. 216705 á Kjalarnesi.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.


Umsókn nr. 40937 (01.88.060.4)
140771-5469 Ólafur Örn Jónsson
Vogaland 8 108 Reykjavík
080471-3519 Guðrún Símonardóttir
Vogaland 8 108 Reykjavík
44.
Vogaland 8, (fsp) stækka hús
Spurt er hvort leyft yrði að byggja viðbyggingu ofan á verönd einbýlishússins á lóð nr. 8 við Vogaland.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsstjóra.