Fyrirspurn frá fulltrúum Samfylkingarinnar og Vinstri Grænna
Verknúmer : SR060005
75. fundur 2006
Fyrirspurn frá fulltrúum Samfylkingarinnar og Vinstri Grænna, bótaskylda
Lagt fram svar lögfræði og stjórnsýslu dags. 27. nóvember 2006 við fyrirspurn frá fulltrúum Samfylkingarinnar og Vinstri Grænna varðandi bótaskyldu frá fundi skipulagsráðs 6. september 2006. Einnig lagt fram minnisblað skipulags- og byggingarsviðs dags. 3. september 2006 og umsögn lögfræðiskrifstofu stjórnsýslu sviðs dags. 11. september 2006.
64. fundur 2006
Fyrirspurn frá fulltrúum Samfylkingarinnar og Vinstri Grænna, bótaskylda
Leitað er eftir upplýsingum og áliti frá lögfræðingum sviðsins um það hvort borgin yrði bótaskyld ef til friðunar Alliance hússins kæmi.