Skipholt 21,
Embættisafgreiðslufundur skipulagsstjóra Reykjavíkur samkvæmt viðauka 2.4 við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
842. fundur 2021
Ár 2021, miðvikudaginn 20. október kl. 15:30, hélt skipulagsfulltrúi Reykjavíkur 842. embættisafgreiðslufund sinn til afgreiðslu mála án staðfestingar skipulags- og samgönguráðs. Fundurinn var haldinn á skrifstofu skipulagsfulltrúa Borgartúni 12 - 14, 2. hæð, Stardalur.
Fundinn sat: Björn Axelsson.
Eftirtalinn embættismaður kynnti mál á fundinum: Ingvar Jón Bates Gíslason.
Þetta gerðist:
1.21 Skipholt 21, (fsp) breyting á deiliskipulagi
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. september 2021 var lögð fram fyrirspurn Helga Más Hallgrímssonar dags. 7. september 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Skipholtsreits vegna lóðarinnar nr. 21 við Skipholt. Í breytingunni felst að heimilt verður að byggja 4-5 hæðir og 6 hæðir á horni byggingar, gert verði ráð fyrir verslun og þjónustu á jarðhæðum, heimilt verði að hafa íbúðir á efri hæðum, byggingarreitur jarðhæðar stækkar, heimilt verður að vera með sameiginlega þakgarða fyrir íbúa ofan á fjórðu og fimmtu hæð, bílastæðum á lóð fækkar og fjöldi hjólastæða verður í samræmi við reglur um fjölda bíla- og hjólastæða í Reykjavík, samkvæmt deiliskipulags- og skuggavarpsuppdr. Arkþing - Nordic ehf. dags. 9. september 2021. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. september 2021. Lagt fram að nýju ásamt frumtillögum Arkþing - Nordic ehf. ódags. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. október 2021.
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 20. október 2021, samþykkt.