Tryggvagata og Naustin
Skjalnúmer : 8850
23. fundur 1999
Tryggvagata, bílastæði og frágangur
Lagt fram að nýju bréf borgarverkfræðings, dags. 20.10.99, varðandi bílastæði í Tryggvagötu, samkv. uppdr. umferðardeildar, dags. í okt. 1999.
Samþykkt 5 gjaldskyld bílastæði, sunnan við Tryggvagötu til móts við Hafnarhúsið, samkvæmt framlögðum uppdrætti umferðardeildar.
22. fundur 1999
Tryggvagata, bílastæði og frágangur
Lagt fram bréf borgarverkfræðings, dags. 20.10.99, varðandi bílastæði í Tryggvagötu, samkv. uppdr. umferðardeildar, dags. í okt. 1999. Einnig lagður fram uppdr. A1 arkitekta, dags. 20.10.99, að yfirborðsfrágangi og bílastæðum í Grófinni. Lagt er til að einstefna verði í Grófinni frá Geirsgötu að Tryggvagötu.
Yfirborðsfrágangur og einstefna í Grófinni samþykkt en málinu frestað að öðru leyti.