Borgartún 39
Skjalnúmer : 7431
24. fundur 1999
Borgartún 39, br. á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 9. nóv. 1999 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 8. s.m. varðandi breytt deiliskipulag að Borgartúni 39.
23. fundur 1999
Borgartún 39, br. á deiliskipulagi
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju tillaga Arkitekta Skógahlíð, dags. 8. sept. 1999. varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðar nr. 39 við Borgartún. Málið var í kynningu til 20. okt. 1999. Lögð fram athugasemdabréf eigenda 3. h. t.v. í Borgartúni 33, dags. 07.10.99, Umferðarráðs, dags. 19.10.99. Einnig lögð fram umsögn Borgarskipulags, dags. 20.10.99 ásamt umsögn umferðardeildar dags. 12.10.99.
Samþykkt með vísan til umsagnar Borgarskipulags og umferðardeildar.
19. fundur 1999
Borgartún 39, br. á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga Arkitekta Skógahlíð, dags. 8. sept. 1999. varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðar nr. 39 við Borgartún.
Fallist er á umsögn Borgarskipulags. Grenndarkynna skal erindið fyrir hagsmunaaðilum að Borgartúni 33, 35 og 37 skv. 2. mgr. 26. gr. sbr. 7. mgr. 43. gr. laga nr. 73/1997