Ljósavík 30, 52, 54 og 27

Skjalnúmer : 5999

13. fundur 1999
Ljósavík 30, 52, 54 og 27, breytingar á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 11.5.99 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 10. s.m. um breytingar á deiliskipulagi á Ljósuvík 30, 52, 54 og 27.


12. fundur 1999
Ljósavík 30, 52, 54 og 27, breytingar á deiliskipulagi
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju bréf lóðarhafa húsanna nr. 30, 52, 54 og 27 við Ljósuvik, dags. 09.02.99, varðandi breytingu á skipulagi. Einnig lögð fram umsögn Borgarskipulags, dags. 12.3.99.
Samþykkt með vísan í umsögn Borgarskipulags.

9. fundur 1999
Ljósavík 30, 52, 54 og 27, breytingar á deiliskipulagi
Lagt fram bréf borgarstjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 16.3.99 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 15. s.m. um auglýsingu á breyttu deiliskipulagi vegna Ljósavíkur 30, 52, 54 og 27.


7. fundur 1999
Ljósavík 30, 52, 54 og 27, breytingar á deiliskipulagi
Lagt fram bréf lóðarhafa húsanna nr. 30, 52, 54 og 27 við Ljósuvik, dags. 09.02.99, varðandi fjölgun íbúða í húsunum úr 8 íbúðum í 9. Einnig lögð fram umsögn Borgarskipulags, dags. 12.3.99 meðvísan í umsögn Borgarskipulags, dags. 12.3.99.
Með vísan í umsögn Borgarskipulags samþykkir nefndin að leggja til við borgarráð að auglýst verði breyting á deiliskipulagi.