Framnesvegur 40, 42 og 42a

Skjalnúmer : 5649

15. fundur 1999
Framnesvegur 40, bílgeymsla
Lagt fram bréf borgastjóra f.h. borgarráðs um samþykkt borgarráðs 15.6.99 á bókun skipulags- og umferðarnefndar frá 14. þ.m. um bílageymslu að Framnesvegi 40.


14. fundur 1999
Framnesvegur 40, bílgeymsla
Að lokinni kynningu er lagt fram að nýju bréf byggingarfulltrúa f.h. byggingarnefndar dags. 29.1.99, varðandi byggingu bílgeymslu á lóðinni nr. 40 við Framnesveg samkv. uppdr. Helga Hafliðasonar ark. dags. í mars 99. Einnig lagt fram samþykki íbúðareigenda Holtsgötu 31, Framnesvegi 38 og 40, dags. 9.9.98 og umsögn Borgarskipulags dags. 23.4.99. Málið var í kynningu frá 6. maí til 3. júní 99. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt

11. fundur 1999
Framnesvegur 40, bílgeymsla
Lagt fram bréf byggingarfulltrúa f.h. byggingarnefndar, dags. 29.01.99, varðandi byggingu bílgeymslu á lóðinni nr. 40 við Framnesveg, samkv. uppdr. Helga Hafliðasonar arkitekts, dags. í mars 1999. Einnig lagt fram samþykki íbúðaeigenda Holtsgötu 31, Framnesvegi 38 og 40, dags. 09.09.98 og umsögn Borgarskipulags, dags. 23.04.99.
Samþykkt að kynna erindið samkv. 7. mgr. 43. gr. skipulags- og byggingarrlaga fyrir hagsmunaaðilum að Framnesvegi 36, 38 og 42 og Holtsgötu 31 og 33.