Aflagrandi 40,
Bauganes 25,
Baughús 24,
Bergstaðastræti 52,
Bragagata 29a,
Bæjarflöt 5-7,
Drápuhlíð 5,
Faxafen 8-14 - skeifan 11-19,
Faxafen 8-14 - skeifan 11-19,
Faxafen 8-14 - skeifan 11-19,
Fellsmúli 24 - 26,
Fjölnisvegur 4,
Flúðasel 78 - 94 bílastæði,
Framnesvegur 28,
Goðheimar 23,
Grensásvegur 3 - 7,
Gullengi 7,
Hjarðarhagi 36 - 42,
Hnjúkasel 11,
Hraunbær 131,
Hraunbær 139,
Hraunbær 36-60,
Hrefnugata 7,
Hringbraut 119,
Hvassaleiti 53 - 59,
Hverfisgata 19,
Háaleitisbraut 41 - 43,
Háteigsvegur 3,
Háteigsvegur 6,
Höfðabakki 1,
Jötnaborgir 13-15,
Jötnaborgir 9-11,
Kaplaskjólsvegur,
Kleifarás 4,
Kleppsvegur 78 - 80,
Klifvegur 4,
Langholtsvegur 137,
Laufásvegur 5,
Laugateigur 6,
Ljósheimar 14-18,
Lokastígur 19,
Miklabraut 86,
Miðtún 28,
Mururimi 8, sambýli.,
Mávahlíð 21,
Ránargata 4,
Seljavegur 10,
Selásbraut 56,
Sigtún 27,
Silungakvísl 21,
Skipholt 25,
Skútuvogur 1,
Starengi 24-32,
Stigahlíð 37,
Stigahlíð 46,
Stórholt 16,
Suðurgata - háskóli íslands,
Suðurgata - háskóli íslands,
Síðumúli 34,
Sóleyjargata 11,
Tangarhöfði 2,
Tjarnargata 10c,
Vaðlasel 2,
Vesturbrún 20,
Vesturhús 9,
Viðarrimi 52,
Viðarás 19,
Viðarás 27,
Vorsabær 8,
Álfabakki 7,
Ármúli 34,
Öldusel skóli,
Úthlíð 5,
Þingholtsstræti 1,
Auglýsingar í miðborginni,
Heiðagerði 37,
Hraunbær - tölusetningar,
Kleifarás 4,
Klukkurimi 2 - 4,
Logafold 1,
Lágholtsvegur 13,
Melbær 30 - 40,
Miðborg-augl.borðar og skilti,
Sóleyjargata 11,
Trjáfellingar,
Túngata 22,
Vallengi 14,
Austurberg 3 - íþróttahús,
Bragagata 24,
Fálkagata 20,
Hofteigur 18,
Hverfisgata 101a,
Jötnaborgir 12-18,
Norðurstígur 3,
Skeggjagata 11,
Súðarvogur 6,
Vesturás 38,
Ármúli 5,
BYGGINGARNEFND
3381. fundur 1995
Árið 1995, fimmtudaginn 10. ágúst, kl. 11.00 fyrir hádegi, hélt byggingarnefnd Reykjavíkur 3381. fund sinn. Fundurinn var haldin í fundarsalnum 4. hæð Borgartúni 3. Þessir nefndarmenn sátu fundinn: Steinunn V.Óskarsdóttir, Kristín Blöndal, Sigurbjörg Gísladóttir Hilmar Guðlaugsson og Þórunn Pálsdóttir Auk þeirra sátu fundinn: Margrét Þormar,Ágúst Jónsson Jón Viðar Matthísson, Ólafur Ó. Axelsson, og Sigríður K.Þórisdóttir. Fundarritari var Bjarni Þór Jónsson.
Þetta gerðist:
Umsókn nr. 9763 (01.01.522.301)
">Aflagrandi 40, Loka svölum.
Sótt er um leyfi til að loka svölum, með færanlegum glerrömmum,
í húsinu á lóðinni nr. 40 við Aflagranda.
Gjald kr. 2.180.oo.
Frestað.
Vantar stærðir.
Umsókn nr. 9745 (01.01.673.011)
Bauganes 25, einbýlishús
Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús úr steinsteypu á
lóðinni nr. 25 við Bauganes.
Stærð: 1. hæð 82,5 ferm., ris 65,7 ferm., 462 rúmm., bílgeymsla
25,8 ferm., 75 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 11.707.oo.
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknareyðublaði.
Umsókn nr. 9801 (01.02.846.106)
Baughús 24, Stækkun á kjallara
Sótt er um leyfi til að stækka kjallara og setja glugga á
vestur- og austurhlið hússins á lóðinni nr. 24 við Baughús.
Stækkun: kjallari 72,7 ferm., 196 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykki eigenda að Baughúsum 22, 24 og 26, dags. í júní 1995
fylgir erindinu. Bréf Borgarskipulags, dags. 09.08.95 fylgir
erindinu.
Samþykkt
Umsókn nr. 9737 (01.01.185.306)
Bergstaðastræti 52, Fella niður stiga í kj. o.fl.
Sótt er um leyfi til að loka opi í steyptri gólfplötu með A - 60
lokun og fella niður stiga úr kjallara hússins á lóðinni nr. 52
við Bergstaðarstræti.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykkt.
.
Umsókn nr. 9755 (01.01.186.220)
Bragagata 29a, áður gerðar breytingar
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum í húsinu á lóðinni
nr. 29A við Bragagötu.
Gjald kr. 2.180.oo.
Frestað.
Lagfæra teikningar.
Umsókn nr. 9700 (01.02.576.002)
Bæjarflöt 5-7, byggja iðnaðarhús
Sótt er um leyfi til að byggja iðnaðarhús úr steinsteypu á
lóðinni nr. 5 - 7 við Bæjarflöt.
Stærð: 309,0 ferm., 1.509 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo +
32.896.oo.
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknareyðublaði.
Umsókn nr. 9746 (01.01.702.215)
Drápuhlíð 5, br.útlit kvista
Sótt er um leyfi til að breyta útliti kvista á húsinu á lóðinni
nr. 3 og 5 við Drápuhlíð.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykkt
Umsókn nr. 9634 (01.01.462.001)
Faxafen 8-14 - skeifan 11-19, Skera úr fyrir hurð, B-30.
Sótt er um leyfi til að skera úr fyrir hurð í útbyggingu í húsi
nr. 17 við Skeifuna á lóðinni nr. 8 - 14 við Faxafen og nr.
11 - 19 við Skeifuna.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykkt.
Umsókn nr. 9704 (01.01.462.001)
04">Faxafen 8-14 - skeifan 11-19, auglýsingastandur með skilti
Sótt er um leyfi til að reisa auglýsingastand úr stáli og
steinsteypu við hús nr. 14 við Faxafen á lóðinni nr. 8 - 14 við
Faxafen og nr. 11 - 19 við Skeifuna.
Gjald kr. 2.180.oo.
Frestað.
Umsókn nr. 9638 (01.01.462.001)
Faxafen 8-14 - skeifan 11-19, Reisa spennistöð.
Sótt er um leyfi til að reisa spennistöð úr stáli við hús nr.19
við Skeifuna á lóðinni nr. 8 - 14 við Faxafen og 11 - 19 við
Skeifuna.
Stærð: 1.hæð 10,8 ferm., 38 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 828.oo.
Bréf hönnuðar dags. 21.07.95 fylgir erindinu.
Samþykkt.
Umsókn nr. 9730 (01.01.297.101)
Fellsmúli 24 - 26, Reyndarteikningar.
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á innréttingum í
húsinu nr. 26 á lóðinni nr. 24 - 26 við Fellsmúla.
Gjald kr. 2.180.oo.
Frestað.
Vísað til eldvarnaeftirlits.
Umsókn nr. 9810 (01.01.196.303)
Fjölnisvegur 4, 2 nýir gluggar
Sótt er um leyfi til að setja tvo nýja glugga á íbúð 1. hæðar
hússins á lóðinni nr. 4 við Fjölnisveg.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykki meðeigenda, dags. 02.08.95 fylgir erindinu.
Samþykkt.
Umsókn nr. 9771 (01.04.971.404)
Flúðasel 78 - 94 bílastæði, ganga frá bílaplani og leiksvæ
Sótt er um leyfi til að ganga frá bílastæði og leiksvæði á
lóðinni nr. 78 - 94 við Flúðasel.
Gjald kr. 2.180.oo.
Frestað.
Vísað til skipulagsnefndar.
Umsókn nr. 9728 (01.01.133.244)
Framnesvegur 28, byggja kvist og innr. íbúð
Sótt er um leyfi til að byggja kvist á bakhlið úr timbri og
innrétta íbúð í risi hússins á lóðinni nr. 28 við Framnesveg.
Gjald kr. 2.180.oo.
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknareyðublaði.
Umsókn nr. 9695 (01.01.432.401)
Goðheimar 23, Byggja yfir hluta af svölum.
Sótt er um leyfi til að byggja yfir hluta af svölum úr timbri á
lóðinni nr. 23 við Goðheima.
Stækkun: ris 27 ferm., 72 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 1.570.oo.
Meðfylgjandi samþykki meðeigenda.
Samþykkt.
Umsókn nr. 9766 (01.01.461.001)
Grensásvegur 3 - 7, Innrétta veitingastað o.fl.
Sótt er um leyfi til að innrétta húsnæði fyrir veitingarekstur
og skemmtistað og gera skyggni að utan á lóðinni nr. 5 og 7 við
Grensásveg.
Gjald kr. 2.180.oo.
Synjað.
Lausn gengur ekki,ófullnægjandi teikningar.
Umsókn nr. 9735 (01.02.386.501)
Gullengi 7, Fjölbýlishús.
Sótt er um leyfi til að byggja fjölbýlishús með 6 íbúðum úr
steinsteypu á lóðinni nr. 7 við Gullengi.
Stærð: 1. hæð 149,3 ferm. 2. hæð 149,3 ferm. 3. hæð 155,9 ferm.
Gjald kr.
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknareyðublaði.
Heimilaðar byrjunarframkvæmdir.
Umsókn nr. 9729 (01.01.546.003)
Hjarðarhagi 36 - 42, Klæða bílskúra.
Sótt er um leyfi til að klæða bílskúra með hvítum steniplötum á
lóðinni nr. 36 - 42 við Hjarðarhaga.
Gjald kr. 2.180.oo.
Bréf hönnuðar dags. 01.08.95 fylgir erindinu.
Frestað.
Vantar ástandsskýrslu og betri upplýsingar um klæðningu.
Umsókn nr. 9822 (01.04.974.212)
Hnjúkasel 11, Byggja svalir.
Sótt er um leyfi til að byggja svalir úr steinsteypu við húsið
á lóðinni nr. 11 við Hnjúkasel.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykki eigenda Hnjúkasel 9 og 12, dags. 20.07.95 fylgir
erindinu.
Frestað.
Umsókn nr. 9821 (01.04.341.201)
Hraunbær 131, 12 bílskúrar úr steinsteypu.
Sótt er um leyfi til að byggja 12 bílskúra, úr steinsteypu á
lóðinni nr. 131 við Hraunbæ.
Stærð: hver skúr 24,3 ferm., samtals 324,7 ferm., inntak,
snyrting og sorp 14,6 ferm., alls 339,3 ferm., 908 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 19.794.oo.
Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.
Umsókn nr. 9819 (01.04.345.101)
Hraunbær 139, 12 bílskúrar úr steinsteypu.
Sótt er um leyfi til að byggja 12 bílskúra, úr steinsteypu, á
lóðinni nr. 139 við Hraunbæ.
Stærð: hver bílgeymsla 24,3 ferm., samtals 324,7 ferm., inntak,
snyrting og sorp 14,6 ferm., alls 339,3 ferm., 908 rúmm. Gjald
kr. 2.180.oo + 19.794.oo.
Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.
Umsókn nr. 9799 (01.04.334.301)
Hraunbær 36-60, klæða svalahandriði
Sótt er um leyfi til að klæða svalahandrið að utanverðu með
"stoneflex"-plötum á húsunum á lóðinni nr. 50 - 54 við Hraunbæ.
Gjald kr. 2.180.oo.
Skýrsla frá R.B., dags. 16.05.95 fylgir erindinu.
Samþykkt.
Umsókn nr. 9712 (01.01.247.209)
Hrefnugata 7, Br innr. í kjallara.
Sótt er um leyfi til að breyta innréttingu, vegna eignaskipta, í
kjallara hússins á lóðinni nr. 7 við Hrefnugötu.
Gjald kr. 2.180.oo.
Frestað.
Lagfæra teikningar.
Umsókn nr. 9804 (01.01.520.301)
Hringbraut 119, Gera tröppur.
Sótt er um leyfi til að byggja tröppur við húsið á lóðinni nr.
119 við Hringbraut.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykki gatnamálastjóra fylgir erindinu.
Samþykkt.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.
Umsókn nr. 9732 (01.01.725.002)
Hvassaleiti 53 - 59, breyta gluggum á sólstofu
Sótt er um leyfi til að breyta gluggum á sólstofu á húsinu á
lóðinni nr. 57 við Hvassaleiti.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykkt.
Umsókn nr. 9764 (01.01.151.410)
Hverfisgata 19, flytja matsal starfsmanna
Sótt er um leyfi til að flytja matsal starfsmanna úr kjallara
á 4. hæð hússins á lóðinni nr. 19 við Hverfisgötu.
Gjald kr. 2.050.oo.
Meðfylgjandi bréf Garðars Halldórssonar og Guðjóns Magnússonar
dags. 01.08.95.
Frestað.
Lagfæra teikningar, gera grein fyrir fyrirhugaðri notkun
eldri matsalar.
Umsókn nr. 9309 (01.01.291.103)
Háaleitisbraut 41 - 43, áður gerð íbúð í kjallara
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðri íbúð í húsinu nr. 43 á
lóðinni nr. 41 - 43 við Háaleitisbraut.
Gjald kr. 2.180.oo.
Skoðunarskýrslur, dags. 05.07.95 og samþykki eigenda í
stigaganginum fylgja erindinu. Yfirlýsing formanna húsfélaganna,
Háaleitisbraut 41, 45 og 47, dags. 21.07.95, fylgir ennfremur
erindinu.
Samþykkt.
Umsókn nr. 9778 (01.01.244.202)
Háteigsvegur 3, Geymslukjallari
Sótt er um leyfi fyrir geymslukjallara, úr steinsteypu, á
lóðinni nr. 3 við Háteigsveg.
Stærð: kjallari 226,7 ferm., 510 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo +
11.118.oo.
Frestað.
Vísað til athugasemda slökkviliðsstjóra.
Umsókn nr. 9758 (01.01.244.418)
Háteigsvegur 6, Breyta úr skrifst. í íbúðir.
Sótt er um leyfi til að breyta skrifstofuhúsnæði í
þjálfunaríbúð fyrir fatlaða í húsinu á lóðinni nr. 6 við
Háteigsveg.
Gjald kr. 2.050.oo.
Samþykkt.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.
Umsókn nr. 9768 (01.04.070.001)
Höfðabakki 1, girða af hluta af lóð
Sótt er um leyfi til að girða úr timbri hluta af lóðinni nr. 1
við Höfðabakka.
Gjald kr.2.180.oo.
Meðfylgjandi afsal dags. 20.10.1994.
Synjað.
Umsókn nr. 9814 (01.02.341.308)
Jötnaborgir 13-15, Parhús.
Sótt er um leyfi til að byggja parhús úr steinsteypu á lóðinni
nr. 13 - 15 við Jötnaborgir.
Stærð hvort hús: kjallari 88,7 ferm., 1. hæð 78,9 ferm., 572
rúmm., bílgeymsla 28,4 ferm., 77 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo * 2 + 28.266.oo.
Umsögn skipulagsnefndar, dags. 11.07.95 fylgir erindinu.
Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.
Umsókn nr. 9812 (01.02.341.307)
Jötnaborgir 9-11, Byggja parhús.
Sótt er um leyfi til að byggja parhús úr steypu og timbri á
lóðinni nr. 9 - 11 við Jötnaborgir.
Stærð: 1. hæð 155,0 ferm., hvort hús., samtals 845 rúmm.,
bílgeymsla 28,0 ferm., hvor bílgeymsla, samtals 215 rúmm. Gjald
kr. 2.180.oo + 23.108.oo.
Meðfylgjandi er samþykki lóðarhafa að Jötnaborgum 5 - 7 og 13 -
15, dags. 12.05.95.
Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.
Umsókn nr. 9760 (01.01.522.104)
Kaplaskjólsvegur, Innr.br. og br. útliti skála.
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og útliti skála
úr steinsteypu á lóð við Kaplaskjólsveg.
Gjald kr. 2.180.oo.
Frestað.
Heimilt að byrja, sækja þarf um sameiningu lóða.
Umsókn nr. 9655 (01.04.375.502)
Kleifarás 4, skyggni
Sótt er um leyfi til að að byggja skyggni, úr timbri og
plexi-gleri, yfir núverandi trépall á lóðinni nr. 4 við
Kleifarás.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykkt.
Umsókn nr. 9731 (01.01.352.304)
Kleppsvegur 78 - 80, múrklæðning og vatnsbretti
Sótt er um leyfi til að klæða húsið með íspó múrklæðningu og
setja vatnsbretti á lóðinni nr. 80 við Kleppsveg.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykki eigenda húss nr. 78, dags. 01.08.95 fylgir erindinu.
Samþykkt.
Umsókn nr. 9770 (01.01.847.510)
Klifvegur 4, endurn,á byggingarl
Sótt er um endurnýjun byggingarleyfis á bílskúr á Klifvegi 4,
frá 28.07.1988.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.
Umsókn nr. 9336 (01.01.442.012)
Langholtsvegur 137, Setja glugga.
Sótt er um leyfi til að setja glugga á vesturhlið 1. hæðar
hússins á lóðinni nr. 137 við Langholtsveg.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykkt.
Umsókn nr. 9809 (01.01.183.105)
Laufásvegur 5, Kvistur og svalir.
Sótt er um leyfi til að byggja kvist og svalir úr timbri og
bárujárni við húsið á lóðinni nr. 5 við Laufásveg.
Stækkun: 8,1 ferm., 17 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 360.oo.
Samþykki Húsafriðunarnefndar, dags. 07.07.95 fylgir erindinu.
Ennfremur fylgir samþykki meðeigenda á teikningu.
Samþykkt.
Umsókn nr. 9603 (01.01.364.202)
Laugateigur 6, byggja kvist
Sótt er um leyfi til að byggja kvist og svalir, úr timbri og
gleri, á suðurhlið hússins á lóðinni nr. 6 við Laugateig.
Stækkun: 2 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 44.oo.
Frestað.
Lagfæra teikningar,vantar samþykki meðeigenda.
Umsókn nr. 9784 (01.01.437.101)
Ljósheimar 14-18, klæða húsið
Sótt er um leyfi til að klæða húsið nr. 14 - 18 við Ljósheima,
með litaðri trapesu stálplötuklæðningu.
Gjald kr. 2.180.oo.
Ástandsskýrslur Verkfræðistofunnar Hamraborg, dags. í ágúst 1995
og Línuhönnunar, dags. í október 1987 fylgja erindinu.
Samþykkt.
Umsókn nr. 9153 (01.01.181.413)
Lokastígur 19, Reyndarteikningar
Sótt er um leyfi fyrir breyttum innréttingum í húsinu á lóðinni
nr. 19 við Lokastíg.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykkt.
Umsókn nr. 9802 (01.01.710.011)
Miklabraut 86, Klæðning.
Sótt er um leyfi til að setja steniklæðningu á steypta veggi
og bæta við þakglugga á bílskúr á lóðinni nr. 86 við Miklubraut.
Gjald kr. 2.180.oo.
Skýrsla um ástand steinsteypu, dags. 20.06.95 fylgir erindinu.
Samþykkt.
Umsókn nr. 9805 (01.01.223.105)
Miðtún 28, klæða með stálklæðningu
Sótt er um leyfi til að klæða með stálklæðningu húsið á lóðinni
nr. 28 við Miðtún.
Gjald kr. 2.180.oo.
Umsögn Jóns Loga Sigurbjörnssonar, verkfræðings, dags. 17.07.95
fylgir erindinu.
Samþykkt.
Umsókn nr. 9759
Mururimi 8, sambýli., Mururimi 4, sambýli.
Sótt er um leyfi til að byggja sambýlishús fyrir fatlaða úr
steinsteypu á lóðinni nr. 4 við Mururima.
Stærð: 315,4 ferm., 1.120 rúmm., útigeymsla 8,2 ferm., 21 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 24.874.oo.
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknareyðublaði.
Umsókn nr. 9800 (01.01.702.123)
Mávahlíð 21, áður gerð íbúð og kvistir
Sótt er um leyfi til að byggja kvisti og fá leyfi fyrir áður
gerðri íbúð í risi hússins á lóðinni nr. 21 við Mávahlíð.
Stækkun: 4 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 88.oo.
Samþykki meðeigenda dags. 15.06.95 og skoðunarskýrslur
byggingarfulltrúa, dags. 22.06.95 og heilbrigðiseftirlits, dags.
23.06.95 fylgja erindinu.
Samþykkt.
Umsókn nr. 9736 (01.01.136.013)
Ránargata 4, Br. 5 geymslum í kjallara.
Sótt er um leyfi til að breyta 5 geymslum í kjallara hússins á
lóðinni nr. 4 við Ránargötu.
Gjald kr. 2.180.oo.
Frestað.
Vantar samþykki meðeigenda. Vísað til athugasemda
eldvarnaeftirlits.
Umsókn nr. 9725 (01.01.133.109)
Seljavegur 10, reisa viðbyggingu
Sótt er um leyfi til að reisa viðbyggingu úr timbri á lóðinni
nr. 10 við Seljaveg.
Stærð: kjallari 17,2 ferm., 1. hæð 17,2 ferm., 96 rúmm.
Gjald kr. 2.180.oo + 2.093.oo.
Frestað.
Lagfæra afstöðumynd. Kynna fyrir lóðarhöfum við Vesturgötu 59,
61, 65, 65A og 67.
Umsókn nr. 9724 (01.04.373.603)
Selásbraut 56, byggja viðbyggingu
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu við leikskóla úr
steinsteypu og timbri á lóðinni nr. 56 við Selásbraut.
Stærð 1. hæð 102,8 ferm., 348 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo +
7.586.oo.
Erindið var kynnt nágrönnum með bréfi dags. 30.06.95. Mótmæli
frá Þórarni Kjartanssyni, dags. 28.07.95 hafa borist.
Samþykkt.
Frágangur á brunavörnum háður sérstakri úttekt
slökkviliðsstjóra.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.
Umsókn nr. 9721 (01.01.364.209)
Sigtún 27, fá samþykkta íbúð
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðri íbúð í risi hússins á lóðinni
nr. 27 við Sigtún.
Gjald kr. 2.180.oo.
Skoðunarskýrslur heilbrigðiseftirlits, dags. 07.07.95 og
byggingarfulltrúa, dags. 06.07.95 fylgja erindinu, ásamt samþykki
meðeigenda, dags. 08.07.95.
Frestað.
Lagfæra teikningar.
Umsókn nr. 9727 (01.04.212.705)
Silungakvísl 21, gera tröppur og nýta rými íkj
Sótt er um leyfi til að gera tröppur og glugga og taka í notkun
rými í kjallara hússins á lóðinni nr. 21. við Silungakvísl.
Gjald kr. 2.180.oo.
Frestað.
Kynna fyrir meðeiganda.
Umsókn nr. 9761 (01.01.250.110)
Skipholt 25, Byggja bakbyggingu.
Sótt er um leyfi til að byggja bakhús úr steinsteypu og timbri á
lóðinni nr. 25 við Skipholt.
Gjald kr. 2.180.oo.
Meðfylgjandi bréf hönnuðar dags. 31.07.1995.
Frestað.
Ófullnægjandi teikningar.
Vísað til athugasemda á umsóknareyðublaði.
Umsókn nr. 9798 (01.01.421.001)
Skútuvogur 1, br.gl.á gafli/hurð á hlið
Sótt er um leyfi til að sameina eignarhluta 03 - 01, 03 - 02 og
03 - 04, breyta gluggum á gafli, setja glugga í stað vöruhurða á
hlið 06 og setja hurðir á vesturgafl.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykkt.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.
Umsókn nr. 9807 (01.02.384.201)
Starengi 24-32, br.á hæðark.
Sótt er um leyfi til að breyta hæðarsetningu á áður samþykktu
húsi vegna landhalla og stalla húsið í 3 hluta á lóðinni nr. 24
- 32 við Starengi.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.
Umsókn nr. 9811 (01.01.712.001)
Stigahlíð 37, klæða+byggja y.svalir+þak bg
Sótt er um leyfi til að setja þak á bílskúr, byggja yfir svalir
á 1. og 2. hæð og klæða hús með steni-plötum á lóðinni nr. 37
við Stigahlíð.
Stækkun: 41 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 894.oo.
Samþykki lóðarhafa að Stigahlíð 39, dags. 15.07.95 fylgir
erindinu.
Samþykkt.
Umsókn nr. 9622 (01.01.715.109)
Stigahlíð 46, byggja yfir altan
Sótt er um leyfi til að byggja blómaskála úr áli og gleri ,
yfir hluta af svölum hússins á lóðinni nr. 46 við Stigahlíð.
Stækkun: 7,8 ferm., 21 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 458.oo.
Samþykki meðeigenda, dags. 11.07.95 fylgir erindinu.
Samþykkt.
Umsókn nr. 9593 (01.01.245.004)
Stórholt 16, Breyta í verslun og íbúðir
Sótt er um leyfi til að breyta verslunar- og skrifstofuhúsnæði
í 3 íbúðir í húsinu á lóðinni nr. 16 við Stórholt.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykkt.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.
Umsókn nr. 9775 (01.01.60-.-99)
Suðurgata - háskóli íslands, br.innanhúss allar hæðir
Sótt er um leyfi fyrir breyttum innréttingum á öllum hæðum
hússins Gamla Garðs við Hringbraut.
Gjald kr. 2.180.oo.
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknareyðublaði.
Umsókn nr. 9803 (01.01.60-.-99)
Suðurgata - háskóli íslands, Breyting innveggja og notkun.
Sótt er um leyfi til að breyta innveggjum og notkun hluta
aðalbyggingar Háskóla Íslands við Suðurgötu.
Gjald kr. 2.180.oo.
Aðalbreyting á notum hússins er að bakálma, sem var
háskólabókasafn, verður notuð undir skrifstofur og
skjalasafn.
Jafnframt lagt fram bréf Magga Jónssonar arkitekts, dags.
12.07.95.
Samþykkt.
Umsókn nr. 9598 (01.01.295.201)
Síðumúli 34, stækka kjötvinnslu
Sótt er um leyfi til að stækka kjötvinnslu, innréttingabreyting,
í húsinu á lóðinni nr. 34 við Síðumúla.
Gjald kr. 2.180.oo.
Skýringarbréf frá VST, dags. 19.07.95 og samþykki meðeigenda
dags. 26.07.95 fylgja erindinu.
Samþykkt.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.
Umsókn nr. 9813 (01.01.185.006)
Sóleyjargata 11, Stækkun
Sótt er um leyfi til að stækka hús, breyta útliti og færa það
nær upprunalegu útliti á lóðinni nr. 11 við Sóleyjargötu.
Stærð: 1. hæð 5,5 ferm., ris 31,5 ferm., 96 rúmm. Gjald kr.
2.180.oo + 2.093.oo.
Erindið var kynnt nágrönnum með bréfi, dags. 12.05.95. Mótmæli,
dags. 06.06.95 og samþykki dags. 08.05.95 hafa borist.
Bréf hönnuðar, dags. 21.07.95 fylgir erindinu.
Erindinu var frestað í borgarráði 01.08.95 og því vísað aftur
til nefndarinnar.
Frestað.
Umsókn nr. 9744 (01.04.063.501)
Tangarhöfði 2, Reyndarteikningar.
Sótt er um leyfi til að leggja fyrir reyndarteikningar vegna
eignaskiptasamnings á lóðinni nr. 2 við Tangarhöfða.
Gjald kr. 2.180.oo.
Frestað.
Lagfæra teikningar,ræstiklefa vantar.
Umsókn nr. 9785 (01.01.141.308)
Tjarnargata 10c, Stjórnstöð f. snjóbræðslu
Sótt er um leyfi til að hafa stjórnstöð fyrir snjóbræðslu í
kjallara hússins á lóðinni nr. 10 C við Tjarnargötu.
Gjald kr. 2.180.oo.
Bréf Ragnars Ragnarssonar dags. 19.06.95 og skýrsla
Verkfræðistofunnar ÖNN sf., dags. 29.06.95 til Gatnamálastjóra
fylgja erindinu.
Umsögn R.b., dags 02.08.95 fylgir erindinu.
Samþykkt.
Umsókn nr. 9806 (01.04.930.505)
Vaðlasel 2, íbúð á jarðhæð
Sótt er um leyfi til að gera íbúð á jarðhæð hússins á lóðinni
nr. 2 við Vaðlasel.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykkt.
Umsókn nr. 9743 (01.01.382.103)
Vesturbrún 20, Breytingar.
Sótt er um leyfi til að bæta við einangrun í þaki, gera svalir
úr stálgrind og gleri, stækka glugga og breyta innra skipulagi í
húsinu á lóðinni nr. 20 við Vesturbrún.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykkt.
Umsókn nr. 9713 (01.02.848.503)
Vesturhús 9, breyttur og endusk.aðalupdrátt
Sótt er um leyfi til að leggja fyrir breyttar aðalteikningar.
Húsið er nú steypt í Argisol einingum og sólstofa hefur verið
fjarlægð á lóðinni nr. 9 við Vesturhús.
Rúmmál húss minnkar um 69 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykkt.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa
aðliggjandi lóða.
Við breytingarnar minnkar húsið um 69 rúmm., og til
endurgreiðslu koma því kr. 165.612.oo.
Vitja má endurgreiðslu hjá gjaldkera borgarverkfræðings,
Skúlatúni 2, 3. hæð.
Umsókn nr. 9773 (01.02.529.306)
Viðarrimi 52, Einbýlishús
Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús, úr timbri með
steindri klæðningu, á lóðinni nr. 52 við Viðarrima.
Stærð: 1. hæð 128,4 ferm., bílgeymsla 30,3 ferm. Gjald kr.
2.180.oo + 12.252.oo.
Frestað.
Lagfæra teikningar.
Umsókn nr. 9774 (01.04.387.301)
Viðarás 19, Íbúðarhús með aukaíbúð.
Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús, með 70 ferm.
aukaíbúð, úr steinsteypu á lóðinni nr. 19 við Viðarás.
Stærð: 104,3 ferm., 140,8 ferm., 746 rúmm., bílgeymsla 36,5
ferm., 99 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 18.421.oo.
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknareyðublaði.
Leyft að grafa grunn.
Umsókn nr. 9772 (01.04.387.305)
Viðarás 27, tvíb.hús
Sótt er um leyfi til að byggja einbýlishús með 70 ferm.,
aukaíbúð, úr steinsteypu, á lóðinni nr. 27 við Viðarás.
Stærð: 1. hæð 104,3 ferm., 2. hæð 140,8 ferm., 746 rúmm.,
bílgeymsla 36,5 ferm., 99 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 18.421.oo.
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknareyðublaði.
Leyft að grafa grunn.
Umsókn nr. 9823 (01.04.352.110)
Vorsabær 8, Breyta þaki.
Sótt er um leyfi til að byggja þak úr timbri á húsið á lóðinni
nr. 8 við Vorsabæ.
Stækkun: 84 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 1.831.oo.
Samþykkt.
Umsókn nr. 9705 (01.04.602.801)
Álfabakki 7, reisa auglýsingastand
Sótt er um leyfi til að reisa auglýsingastand úr stáli og
steinsteypu á lóðinni nr. 7 við Álfabakka.
Gjald kr. 2.180.oo.
Frestað.
Of stórt.
Umsókn nr. 9703 (01.01.293.203)
Ármúli 34, Eldvarnaruppdrættir.
Sótt er um leyfi fyrir breyttum innréttingum í húsinu á lóðinni
nr. 34 við Ármúla.
Gjald kr. 2.180.oo.
Frestað.
Vantar afstöðumynd.
Umsókn nr. 9767 (01.04.936.001)
Öldusel skóli, byggja viðbyggingu
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu við Ölduselsskóla
á lóðinni nr. 17 við Öldusel.
Stækkun: kjallari 218,3 ferm., 1. hæð 218,3 ferm., 2. hæð 218,3
ferm., 2.001 rúmm. Gjald kr. 2.180.oo + 43.622.oo.
Samþykkt.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.
Umsókn nr. 9756 (01.01.270.109)
Úthlíð 5, áður gerðar íb,kj.og ris
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum íbúðum í kjallara og risi
hússins á lóðinni nr. 5 við Úthlíð.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykki meðeigenda dags. 09.08.95 og skoðunarskýrslur
byggingarfulltrúa, dags. 28.07.95 og heilbrigðiseftirlits, dags.
28.07.95 fylgja erindinu.
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknareyðublaði.
Umsókn nr. 9776 (01.01.170.305)
Þingholtsstræti 1, endurbyggja fúinn timburvegg
Sótt er um leyfi til að endurbyggja fúinn timburvegg að norðan
og ónýtt þak úr timbri og bárujárni á lóðinni nr. 8 við
Bankastræti.
Gjald kr. 2.180.oo.
Samþykkt.
Umsókn nr. 9780
Auglýsingar í miðborginni, Auglýsingar í miðborginni
Lagt fram bréf framkvæmdastjóra Þróunarfélags Reykjavíkur dags.
28. júlí 1995 með samþykkt stjórnar Þróunarfélagsins frá 27.
júlí 1995 um auglýsingar í miðborginni.
Umsókn nr. 9793
Heiðagerði 37, Heiðagerði 37
Katrín Þ. Hreinsdóttir óskar eftir því að byggingarleyfi frá 13.
júlí 1995 verði fellt úr gildi, sbr. bréf dags. 4. ágúst 1995.
Samþykkt.
Umsókn nr. 9792
Hraunbær - tölusetningar, Hraunbær - tölusetningar
Byggingarfulltrúi leggur til að tölusetningar á lóðum milli
Bæjarháls og Hraunbæjar samkvæmt skipulagi samþykktu í
skipulagsnefnd þann 12.06.95 og borgarráði 13.06.95 verði þannig:
Bensínstöð Hraunbær 107
Gámar " 109
Skógrækt/garðlönd " 111
Bílskúrar, áður nr.111 verði " 113
Boltavöllur " 115
Verslun/Þjónusta " 117 - 127
Skógrækt/garðlönd " 129
Bílskúrar " 131
Boltavellir " 133 - 137
Bílskúrar " 139
Samþykkt.
Umsókn nr. 9781 (01.04.375.502)
Kleifarás 4, Kleifarás 4
Örn Erlendsson Kleifarási 4 óskar eftir því að teikning af
sólstofu við Kleifarás 4 verði felld úr gildi sbr. bréf dags. 19.
júlí 1995.
Samþykkt.
Umsókn nr. 9790 (01.02.544.403)
Klukkurimi 2 - 4, Bréf vegna seinagangs við fram
Lagt fram bréf íbúa við Klukkurima 6 - 12, dags. 02.08.95, vegna
seinagangs við framkvæmdir.
Vísað til byggingarfulltrúa.
Umsókn nr. 9826 (01.02.875.001)
Logafold 1, Bréf Foldaskóli
Lagt fram bréf 32 íbúa við Logafold 159 - 173 og 157 - 133 þar
sem mótmælt er fyrirhugaðri staðsetningu færanlegra kennslustofa
á lóð Foldaskóla.
Vísað til byggingadeildar til skoðunnar.
Umsókn nr. 9796
Lágholtsvegur 13, Lágholtsvegur 13
Sigrún A. Ámundadóttir óskar eftir því að byggingarleyfi ( umsókn
nr.9319 ) frá 29. júní 1995 verði fellt úr gildi, sbr. bréf dags.
31. júlí 1995.
Samþykkt.
Umsókn nr. 9815 (01.04.361.405)
Melbær 30 - 40, Lóðabreyting
Óskað er eftir samþykki byggingarnefndar til að breyta mörkum
lóðarinnar Melbær 30 - 40 og stækka hana eins og sýnt er á
meðfylgjandi uppdrætti mælingadeildar Reykjavíkurborgar, dags.
08.08.95. Við breytinguna stækkar lóðin úr 1608 ferm., í 1759
ferm.
Umsókn nr. 9788
Miðborg-augl.borðar og skilti, Miðborg-augl.borðar og skilti
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 2. ágúst 1995, vegna samþykktar
borgarráðs 1. ágúst 1995.
Umsókn nr. 9789
Sóleyjargata 11, Sóleyjargata 11
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 2. ágúst 1995, þar sem
borgarráð samþykkti að vísa afgreiðslu byggingarnefndar frá 27.
júlí sl. vegna ofangreinds húss aftur til byggingarnefndar.
Umsókn nr. 9782
Trjáfellingar, Trjáfellingar
Byggingarfulltrúi hefur, að fenginni umsögn garðyrkjustjóra,
samþykkt leyfi til trjáfellinga í Brúnalandi 19 og Rauðalæk 57.
Samþykkt.
Umsókn nr. 9794 (01.01.136.413)
Túngata 22, Móttökudiskur.
Franska sendiráðið óskar eftir leyfi til þess að fá að staðsetja
móttökudisk á 2. hæð suðurhliðar sendiráðsins á lóð nr. 22 við
Túngötu, sbr. bréf sendiráðsins, dags. 28.07.95.
Samþykkt.
Umsókn nr. 9786
Vallengi 14, Vallengi 14
Sótt er um leyfi fyrir staðsetningu, til bráðabirgða, á
tólf færanlegum kennslustofum úr timbri á lóð Engjaskóla við
Vallengi 14.
Samþykkt.
Áskilið samþykki heilbrigðisnefndar.
Umsókn nr. 9632 (01.04.667.101)
Austurberg 3 - íþróttahús, Byggja skýli.
Spurt er hvort leyft verði að byggja skýli úr tré við pylsuvagn
á lóðinni nr. 3 við Austurberg.
Neikvætt.
Umsókn nr. 9518 (01.01.186.640)
Bragagata 24, Byggja bílskúr og sólstofu.
Spurt er hvort leyft verði að byggja bílgeymslu úr steinsteypu
og sólstofu úr timbri á lóðinni nr. 24 við Bragagötu.
Jákvætt.
Umsókn nr. 9795 (01.01.553.011)
Fálkagata 20, nota hús sem íbúðarhús
Spurt er hvort húsið nr. 20B við Fálkagötu verði samþykkt sem
íbúðarhús.
Neikvætt.
Umsókn nr. 9779 (01.01.364.104)
Hofteigur 18, Hækka þak og setja rishæð.
Spurt er hvort leyft verði að hækka þak og byggja rishæð á húsið
á lóðinni nr. 18 við Hofteig.
Frestað.
Vísað til Borgarskipulags.
Umsókn nr. 9710 (01.01.154.408)
Hverfisgata 101a, bilsk.tvöf.
Spurt er hvort leyft verði að byggja tvöfaldan bílskúr í horni
lóðarinnar nr. 101A við Hverfisgötu.
Frestað.
Vísað til Borgarskipulags.
Umsókn nr. 9769 (01.02.340.603)
Jötnaborgir 12-18, fjölb.hús m/9 íbúðum steinst.
Spurt er hvort leyft verði að byggja fjölbýlishús með 9 íbúðum á
lóðinni nr. 12 - 18 við Jötnaborgir. Meðfylgjandi er bréf
hönnuðar dags. 02.08.95.
Frestað.
Vísað til skipulagsnefndar.
Umsókn nr. 9722 (01.01.132.016)
Norðurstígur 3, byggja við íbúðarhús
Spurt er hvort leyft verði að byggja við íbúðarhúsið úr timbri
og stáli á lóðinni nr. 3 við Norðurstíg.
Jákvætt.
Umsókn nr. 9797 (01.01.243.514)
Skeggjagata 11, Breyting á kjallaraíbúð
Spurt er hvort leyft verði að gera breytingar á kjallaraíbúð
hússins á lóðinni nr. 11 við Skeggjagötu.
Frestað.
Umsókn nr. 9754 (01.01.452.101)
Súðarvogur 6, opna aðkeyrsluhurð
Spurt er hvort leyft verði að gera innkeyrsluhlið á framhlið
og/eða norðurgafl hússins á lóðinni nr. 6 við Súðarvog.
Jákvætt á gafli.
Neikvætt varðandi framhlið.
Umsókn nr. 9714 (01.04.385.402)
Vesturás 38, Byggja einbýlishús.
Spurt er hvort leyft verði að byggja einbýlishús úr steinsteypu
á lóðinni nr. 38 við Vesturás. Blómaskáli fer út fyrir
byggingareit, bílskúr fer 1 m útfyrir byggingarreit.Meðfylgjandi
bréf húseigenda Vesturáss 40, dags. 16.07.95.
Neikvætt.
Umsókn nr. 9708 (01.01.262.002)
Ármúli 5, Breyta notkun á hæð að Hallm.
Spurt er hvort leyft verði að breyta notkun á 3. hæð (að
Hallarmúla) og innrétta gistirými í húsinu á lóðinni nr. 5 við
Ármúla.
Neikvætt.