Grensásvegur 12

Verknúmer : BN058148

1086. fundur 2020
Grensásvegur 12, Breyting á BN051009, innra skipulag og skilrúm á svölum
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN051009 þannig að innra skipulagi íbúða og skilrúmum á svölum milli íbúða er breytt á húsi á lóð nr. 12 við Grensásveg.
Erindi fylgir yfirlit breytinga mótt. 17. september 2020, samþykki eigenda í mhl. 01, dags. 23. september 2020 og samþykki eiganda mhl.02 dags 30. september 2020.
Gjald kr. 11.200

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.



1085. fundur 2020
Grensásvegur 12, Breyting á BN051009, innra skipulag og skilrúm á svölum
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN051009 þannig að innra skipulagi íbúða og skilrúmum á svölum milli íbúða er breytt á húsi á lóð nr. 12 við Grensásveg.
Erindi fylgir yfirlit breytinga mótt. 17. september 2020 og samþykki eigenda í mhl. 01, dags. 23. september 2020.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Vísað til athugasemda.


1083. fundur 2020
Grensásvegur 12, Breyting á BN051009, innra skipulag og skilrúm á svölum
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN051009 vegna húss á lóð nr. 12 við Grensásveg.
Gjald kr. 11.200

Frestað.
Vísað til athugasemda.