Hverfisgata 94
Verknúmer : BN056623
1058. fundur 2020
Hverfisgata 94, 94-96 - Breytt skráning
Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN051617 þannig að stigapallur á 5. hæð verður séreign aðliggjandi íbúða 502 og 503 í staðfangi nr. 96 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 94 við Hverfisgötu.
Erindi fylgir bréf frá hönnuði dags. 12. febrúar 2020.
Gjald kr. 11.200
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.
1057. fundur 2020
Hverfisgata 94, 94-96 - Breytt skráning
Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN051617 þannig að stigapallur á 5. hæð verður séreign aðliggjandi íbúða 502 og 503 í staðfangi nr. 96 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 94 við Hverfisgötu.
Erindi fylgir bréf frá hönnuði dags. 12. febrúar 2020.
Gjald kr. 11.200
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnareftirlits.
1035. fundur 2019
Hverfisgata 94, 94-96 - Breytt skráning
Sótt er um leyfi til þess að breyta erindi BN051617 þannig að stigapallur á 5. hæð verður séreign aðliggjandi íbúða 502 og 503 í staðfangi nr. 96 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 94 við Hverfisgötu.
Gjald kr. 11.200
Frestað.
Vísað til athugasemda.