Kringlan 8-12
Verknúmer : BN019500
3477. fundur 1999
Kringlan 8-12, Breyting á húsnæði Nýja Kökuhússins
Lagt fram bréf Laugasels s.f. dags. 19. júlí 1999 vegna fyrirhugaðra breytinga á húsnæði Nýja Kökuhússins úr kaffiveitingahúsi yfir í verslunarhúsnæði.
Byggingarnefnd álítur að erindi bréfritara falli undir lög um fjöleignarhús nr. 26/1994. Sé um ágreining húseigenda að ræða geta deiliaðilar skotið máli sínu til kærunefndar fjöleignarhúsamála sbr. 80. gr. laganna.