Akurey og Lundey

Verknúmer : US140049

77. fundur 2014
Akurey og Lundey, friðun
Lagt fram bréf frá Fuglavernd dags. 12. febrúar 2014 þar sem lagt er til að Reykjavíkurborg friðlýsi eyjarnar Akurey og Lundey. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu umhverfisgæða dags. 21. ágúst 2014.

Snorri Sigurðsson verkefnisstjóri situr fundinn undir þessum lið.
Umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu umhverfisgæða, dags. 21. ágúst 2014 samþykkt.

76. fundur 2014
Akurey og Lundey, friðun
Lagt fram bréf frá Fuglavernd dags. 12. febrúar 2014 þar sem lagt er til að Reykjavíkurborg friðlýsi eyjarnar Akurey og Lundey.
Frestað.