Afgreiðslufundir skipulagsstjóra Reykjavíkur, Nýr Landspítali við Hringbraut, Spítalastígur 8, Fiskislóð og Hólmaslóð, Suðurlandsbraut, Steinahlíð, Kjalarnes, Brautarholt 1, Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, Hverfisgata 40-44, Nauthólsvegur 50, Túngata 5, Öskjuhlíð, Keiluhöll, Holtsgata 24, Laugavegur, Sóltún 6, Fegrunarviðurkenningar 2011, Skipulagsráð,

Skipulagsráð

250. fundur 2011

Ár 2011, miðvikudaginn 24. ágúst kl. 09:10, var haldinn 250. fundur skipulagsráðs Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn að Borgartúni 12 - 14, 7. hæð. Ráðssal. Viðstaddir voru: Páll Hjalti Hjaltason, Elsa Hrafnhildur Yeoman, Hjálmar Sveinsson, Kristín Soffía Jónsdóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson, Gísli Marteinn Baldursson, Jórunn Ósk Frímannsd Jensen og áheyrnarfulltrúinn Sóley Tómasdóttir. Eftirtaldir embættismenn sátu fundinn: Ólöf Örvarsdóttir, Björn Stefán Hallsson, Ólafur Bjarnason, Magnús Ingi Erlingsson, Marta Grettisdóttir og Helena Stefánsdóttir. Auk þess gerðu eftirtaldir embættismenn grein fyrir einstökum málum: Margrét Þormar, Margrét Leifsdóttir, Valný Aðalsteinsdóttir og Björn Ingi Edvardsson Fundarritari var Harri Ormarsson.
Þetta gerðist:


Umsókn nr. 10070
1.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra Reykjavíkur, fundargerð
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar skipulagsstjóra Reykjavíkur frá 19. ágúst 2011.



Umsókn nr. 110037 (01.19)
580810-0710 SPITAL ehf
Geirsgötu 9 101 Reykjavík
2.
Nýr Landspítali við Hringbraut, lýsing, nýtt deiliskipulag
Lögð fram umsókn Spital ehf. dags. 13 september 2010, lýsing Spital vegna Landspítala við Hringbraut dags. 25. janúar 2011, drög að endurskoðaðu varðveislumati dags. 2. febrúar 2011 ásamt umsögnum hagsmunaaðila og umsögn Skipulagsstofnunar dags. 2. mars 2011 ásamt fornleifskráningu Minjasafns Reykjavíkur móttekin í mars 2011.
Einnig er lögð fram tillaga SPITAL að deiliskipulagi Landsspítala við Hringbraut samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdráttum dags. 10. ágúst 2011 ásamt ásýndarmyndum og skuggavarpi dags. 10. ágúst 2011 og drög að greinargerð og skilmálum dags. 8. ágúst 2011 ásamt minnisblaði dags. 12. apríl 2011, bréf Spital til skipulagsráðs dags. 28. apríl 2011, bókun Umhverfis- og samgöngusviðs dags. 10. maí 2011 þrívíddarmyndir dags. 19. maí 2011 minnisblað SPITAL dags. 7. júní 2011, minnisblað SPITAL varðandi umferðardreifingu dags. 7. júní 2011 , minnisblað SPITAl vegna bílastæða dags. 20. júní 2011, minnisblað verkefnisstjóra dags. 28. júní 2011 , minnisblað SPITAL dags. 1. júlí 2011 og minnisblað Skipulags- og byggingarsviðs dags. 5. júlí 2011, breytt 17. ágúst 2011.
Einnig eru lagðar fram eftirfarandi skýrslur:
Drög að greinargerð um samgöngur dags. 31. maí 2011, Þyrlupallur forsendur dags. 18. apríl 2011, Flutningur hættulegra efna um Hringbraut, áhættugreining dags. 4. mars 2011, Gróður á lóð Landspítalans dags. 1. mars 2011, Samgöngustefna 1. útgáfa dags. í maí 2011 ásamt kynningarbréfi dags. 30. maí 2011 og Hljóðvistarskýrsla dags. 1. mars 2011.

Samþykkt að hefja almenna kynningu á drögum á deiliskipulagstillögu svæðisins með vísan til leiðbeininga í minnisblaði skipulags- og byggingarsviðs dags 5. júlí, breytt 17. ágúst 2011 þegar kynningargögn hafa verið lagfærð með vísan til leiðbeininga í minnisblaðinu.

Fulltrúar Besta flokksins Páll Hjaltason og Elsa Hrafnhildur Youmann og fulltrúar Samfylkingarinnar Hjálmar Sveinsson og Kristín Soffía Jónsdóttir lögðu fram eftirfarandi bókun:
"Skipulagsráð Reykjavíkur hefur haft fyrirliggjandi tillögu til meðferðar á fundum sínum síðastliðna mánuði, en um er að ræða skipulag sem unnið er út frá vinningstillögu arkitektasamkeppni um svæðið. Fulltrúarnir telja tímabært að umsækjendur haldi umfangsmikla kynningu á þessu stigi og telur mikilvægt að fá sjónarmið almennings til hliðsjónar við frekari þróun skipulagsins. Fulltrúarnir leggja áherslu á að tillagan er ekki lögð fram í endanlegri mynd og telur að enn þurfi að gera breytingar á henni þar sem enn ríkir ágreiningur í ráðinu um afmarkaða þætti tillögunnar.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins Júlíus Vífill Ingvarsson, Gísli Marteinn Baldursson og Jórunn Frímannsdóttir óskuðu bókað:
"Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í skipulagsráði leggja mikla áherslu á aðkomu almennings að ákvörðunum um skipulagsmál og telja að leita eigi allra leiða til hún sé sem mest og best. Í stórum ákvörðunum eins og hér um ræðir er það sérstaklega mikilvægt. Slíku samráði verður hins vegar að fylgja alvara og almenningur verður að geta treyst því að þær tillögur sem lagðar eru fram í nafni skipulagsráðs séu vel unnar og ígrundaðar.

Samráðsferli í skipulagsmálum hefst að jafnaði þegar fyrir liggja drög að tillögu sem reikna má með að lýsi sjónmarmiðum skipulagsráðs og niðurstöðum þess. Í því felst að þegar kynning á skipulagstillögu fer fram er verið að kynna almenningi tillögu sem alvara býr að baki og því mikilvægt að kalla eftir umræðu og að fá öll sjónarmið fram. Á þetta skortir því miður í því ferli sem hér um ræðir. Forkynning sú sem nú er lagt upp með er forkynning á tillögu sem skipulagsráð hefur ekki náð saman um og í henni eru ýmis atriði sem enn þarf að vinna betur og þar er jafnvel að finna tillögur sem ráðið hefur ítrekað lýst andstöðunni sinni við. Hæðir húsa, bílastæða- og umferðarmál ofl. eru atriði sem enn þarf að fara betur ofan í. Þegar skipulagsráð hefur unnið sína vinnu, og það þarf ekki að taka langan tíma, eru viðbrögð borgarbúa, athugasemdir og ábendingar næsta skref í að þróa vandað deiliskipulag fyrir Landspítala Háskólasjúkrahús við Hringbraut sem sátt mun vonandi ríkja um".

Áheyrnarfulltrúi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs Sóley Tómasdóttir óskaði bókað:
"Áheyrnarfulltrúi Vinstri grænna í skipulagsráði tekur undir bókun meirihluta ráðsins og gerir ekki athugasemdir við að forkynning fari fram á tillögum um nýjan Landspítala með fyrirvara um að enn eigi eftir að þróa hana frekar. Mikilvægt er að borgarbúar séu upplýstir um vinnuna með reglulegu millibili og hafi möguleika á að gera athugasemdir sem oftast.
Fulltrúinn hefur þó enn efasemdir um ákveðna þætti tillögunnar, og má þar helst nefna hæðir húsa og fyrirkomulag bílastæða. Hækkun meðferðarkjarnans úr fimm hæðum í sex er afar óæskileg og fjöldi bílastæða á yfirborði er of mikill. Mikilvægt er að strax verði bílastæðunum komið fyrir neðanjarðar í samræmi við fyrirætlanir í seinni áföngum".




Umsókn nr. 110184 (01.18.41)
521009-1950 EGG arkitektar ehf
Stóragerði 38 108 Reykjavík
240847-2649 Ólafur Haukur Símonarson
Spítalastígur 8 101 Reykjavík
3.
Spítalastígur 8, breyting á deiliskipulagi
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju erindi Ólafar H. Símonarsonar og Guðlaugar M. Bjarnadóttur dags. 14. apríl 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.184.1 vegna lóðarinnar nr. 8 við Spítalastíg. Í breytingunni felst að rífa núverandi skúrbyggingu milli Spítalastígs 8 og 10 og byggja þriggja hæða byggingu í hennar stað næst Spítalastíg og eina hæð bakatil næst Bergstaðastræti 17b, samkvæmt uppdrætti Egg arkitekta dags. 14. apríl 2011. Tillagan var auglýst frá 10. maí til og með 23. júní 2011. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Júlíana Ingram dags. 22. júní 2011.
Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 30. júní 2011.

Samþykkt með þeirri breytingu sem fram kemur í umsögn skipulagsstóra.
Vísað til borgarráðs.


Umsókn nr. 110288 (01.08.7)
530269-7529 Faxaflóahafnir sf
Tryggvagötu 17 101 Reykjavík
4.
">Fiskislóð og Hólmaslóð, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn Faxaflóahafna dags. 5. júlí 2011 að breytingu á deiliskipulagi við Fiskislóð og Hólmaslóð skv. uppdrætti Teiknistofu arkitekta dags. 9 júní 2011. Í breytingunni felst að lóðin Hólmaslóð 3 minnkar og skiptist upp og vestari hluti lóðarinnar skiptist upp í tvær lóðir.
Frestað.

Umsókn nr. 110227 (01.47.0)
570480-0149 Framkvæmda- og eignasvið Reykja
Borgartúni 10-12 105 Reykjavík
5.
Suðurlandsbraut, Steinahlíð, breyting á deiliskipulagi Vogahverfis
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju erindi Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkur dags. 13. maí 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vogahverfis vegna lóðarinnar Steinahlíð við Suðurlandsbraut. Breytingin felst í gerð reits fyrir færanlega leikstofu og fyrirkomulagi bílastæða á lóð, samkvæmt uppdrætti Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkur dags. 19. maí 2011. Tillagan var í auglýsingu frá 15. júní til 28. júlí 2011. Athugasemd barst frá Hildigunni Haraldsdóttur og Ragnhildi Ingólfsdóttur, dags. 27. júlí 2011. Einnig er lagt fram bréf Framkvæmda og eignasviðs dags. 19. ágúst 2011, og umsögn skipulagsstjóra dags. 22. ágúst 2011.
Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.
Vísað til borgarráðs.


Umsókn nr. 100307 (32.3)
250572-3959 Bjarni Pálsson
Brautarholt 1 116 Reykjavík
6.
Kjalarnes, Brautarholt 1, lýsing, deiliskipulag
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju lýsing Einars Ingimarssonar fh. lóðarhafa dags 9. febrúar 2011 ásamt deiliskipulagi golfvallar við Brautarholt á Kjalarnesi, dags. 12. maí 2011. Einnig lagðar fram umsagnir Fornleifaverndar ríkisins, dags. 12. apríl 2011 og Skipulagsstofnunar dags. 8. apríl 2011. Auglýsing stóð yfir frá 15. júní til 28. júlí 2011. Athugasemdir sendu eftirfarandi aðilar: Pétur Richter stjórnarformaður Rekstrarfélagsins Brautar ehf. dags. 25. júlí 2011, Kristinn Gylfi Jónsson og Björn Jónsson fh. Emilíu Björg Jónsdóttur og Nesvík ehf. dags. 25. júlí 2011. Einnig er lögð fram umsögn Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 28. júlí 2011 og umsögn skipulagsstjóra dags. 12. ágúst 2011.

Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.
Vísað til borgarráðs.


Umsókn nr. 43451
7.
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa, fundargerð
Fylgiskjal með fundargerð þessari er fundargerð nr. 648 frá 23. ágúst 2011.


Umsókn nr. 110297 (01.17.20)
680598-2589 Foldir fasteignaþróunarfél ehf
Klapparstíg 29 101 Reykjavík
8.
Hverfisgata 40-44, (fsp) uppbygging á lóðum
Lögð fram fyrirspurn Folda ehf. dags. 12. júlí 2011 varðandi uppbyggingu á lóðunum nr. 40-44 við Hverfisgötu skv. frumdrögum Arkþings dags. júní 2011.
Kynnt.
Vísað til umsagnar skipulagsstjóra.


Umsókn nr. 43227 (01.61.960.1)
461202-3490 Icelandair ehf
Reykjavíkurflugvelli 101 Reykjavík
9.
Nauthólsvegur 50, (fsp) hækkun á skrifstofuálmu
Á fundi skipulagsstjóra 1. júlí 2011 var lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. júní 2011 þar sem spurt er hvort hækka megi um eina hæð skrifstofuálmu hótels Loftleiða á lóð nr. 50 við Nauthólsveg.
Ekki er gerð athugasemd við að unnin verði breyting á deiliskipulagi á kostnað lóðarhafa. Vísað til meðferðar skipulagsstjóra.

Umsókn nr. 110299 (01.16.11)
490597-3289 Studio Granda ehf
Smiðjustíg 11b 101 Reykjavík
10.
Túngata 5, (fsp) hækkun
Lögð fram fyrirspurn Studio Granda, dags. 13. júlí 2011, um hvort hækka megi húsið að Túngötu 5 um eina hæð með því að framlengja útveggi upp og endurgera tannstafi í upprunalegri mynd samkvæmt meðfylgjandi teikningum og ljósmyndum.

Sóley Tómasdóttir vék af fundi kl: 11:40.

Frestað.

Umsókn nr. 110284 (01.73.12)
421007-2090 Keiluhöllin ehf
Pósthólf 8500 128 Reykjavík
11.
Öskjuhlíð, Keiluhöll, (fsp) breyting á deiliskipulagi
Á fundi skipulagsstjóra 1. júlí 2011 var lögð fram fyrirspurn Guðna Pálssonar ark. f.h. Keiluhallarinnar ehf. dags. 30. júní 2011 varðandi stækkun húsnæðis Keiluhallarinnar við Öskjuhlíð og breytingar á þaki samkvæmt uppdráttum dags. 26. maí 2011.

Frestað.

Umsókn nr. 110335 (01.13.43)
200362-6409 Hildur Bjarnadóttir
Hofteigur 20 105 Reykjavík
12.
Holtsgata 24, málskot
Lagt fram málskot Hildar Bjarnadóttur dags. 15. ágúst 2011 vegna neikvæðrar afgreiðslu Skipulags- og byggingarsviðs um að lyfta þaki hússins nr. 24 við Holtsgötu og innrétta þar vinnuherbergi.
Frestað.

Umsókn nr. 110337 (01.1)
630408-0670 Íbúasamtök Miðborgar
Skúlagötu 21 101 Reykjavík
13.
Laugavegur, göngugata
Lagt fram bréf Magnúsar Skúlasonar f.h. stjórnar Íbúasamtaka Miðborgar dags. 15. ágúst 2011 varðandi bókun stjórnarinnar frá 9. s.m. þar sem lýst var yfir ánægju með lokun Laugavegar fyrir bílaumferð í sumar og hvatt til þess að haldið verði áfram á sömu braut.


Umsókn nr. 110312 (01.23.35)
621299-4179 Úrskurðarnefnd skipul/byggmál
Skúlagötu 21 101 Reykjavík
14.
Sóltún 6, kæra, umsögn
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála dags. 15. júlí 2011 ásamt kæru vegna samþykkts byggingarleyfis frá 28. júní 2011 fyrir færanlegum kennslustofum á lóðinni að Sóltúni 6. Einnig er lögð fram umsögn lögfræði og stjórnsýslu dags. 10. ágúst 2011.
Umsögn lögfræði og stjórnsýslu samþykkt.

Umsókn nr. 110319
15.
Fegrunarviðurkenningar 2011, Tilnefningar 2011
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 11. ágúst 2011 um samþykkt borgarráðs s.d. um tillögur skipulagsráðs að fegrunarviðurkenningum Reykjavíkurborgar 2011.


Umsókn nr. 110354
16.
Skipulagsráð, tillaga fulltrúa sjálfstæðisflokksins vegna Sóltúns 6.
Lögð fram tillaga Sjálfstæðisflokksins dags. 24. ágúst 2011 vegna færanlegra kennslustofa.
"Hægt er að færa rök fyrir því að framkvæmdir á lóðinni nr. 6 við Sóltún séu ekki í samræmi við samþykkt deiliskipulag. Enda þótt lausar kennslustofur sem nú hafa verið settar innan lóðar séu vissulega innan byggingarreitar skv. deiliskipulaginu eru þær ekki í samræmi við þær skólabyggingar sem lýst eru í uppdráttum deiliskipulagsins. Ásýnd er augljóslega allt önnur og dæmi eru um að lausar kennslustofur í borginni sem eiga að heita bráðabirgðalausnir standi við skóla í áratugi.

Lagt til að fulltrúar Reykjavíkurborgar ásamt kjörnum fulltrúum og rekstraraðilum skólans fari á fund íbúa á svæðinu, útskýri áform varðandi nýtingu og skipulag lóðarinnar og hlusti á athugasemdir og ráð frá íbúum.

Samþykkt.